Þjóðviljinn - 22.12.1982, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 22.12.1982, Blaðsíða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 22. desember 1982 þingsjá Viðbót til Náms- gagna- stofnunar Námsgagnastofnun fær til við- bótar 500 þúsuntl vegna námsgagnagerðar fyrir börn með sérþarfir, sagði Geir Gunnarsson formaður fjárveitinganefndar í lokaumræðu fjárlaga á laugardag. Ennfrentur voru m.a. eftirtaldar hækkanir samþykktar á alþingi í fjárlögum: Fiskvinnsluskólinn 100 þúsund vegna námskeiða fyrir fisk- matsmenn, Fóstruskóli lOOþúsund vegna framhaldsnáms fyrir fóstrur. - óg Tillaga um lán til að bjarga skipi í Skeiðarárssandi: Het Wapen frá Amsturdammi Kjartan Jóhannsson. Tillögur þ.jónar enguin tilgangi. Alþýðuflokkur: Breytingatil- lögur þjóna engum tilgangi Breytingartillögur þjóna engum tilgtingi viö fjárlög sem eru fjarri raunveruleikanum, stigði Kjartan Jóhannsson viö lokaumræðu fjár- laga. Kvað hann þingflokk Al- þýðuflokksins því ekki flytja neinar breytingartillögur; það sem vantaði væru nú fjárlög ásamt með kerfisbreytingu í efnahagsmálum. Kjartan sagði aö menn væru nú farnir að ræða opinskátt um meiri- háttar gengisfellingíir um áramót. Þá sagði hann að efnahags- framvindan væri óvissari en nokkru sinni fyrr. Utgjöld væru áætluð of lágt og gert væri ráð fyrir tekjum af sköttum sem engar heimildir væru fyrir. - óg „(Iullskipið“ sein svo hef'ur verið kallað og talið er hafa lcgið í Skeiðarársandi síðan á 17. öld, kom til umræðu á alþingi sl. laugardag er nokkrir þingmcnn lögðu til að ríkið ábyrgðist lán allt að krónum 50 miljónum. Tillaga um þetta var dregin til baka áður en kom til atkvæðagreiðslu um niálið. Sighvatur Björgvinsson og Ólafur Þórðarson réðust af hörku og háði gegn tillögunni, og minnti „Gullskipið” í fjárlagaumræðu Ólafur Sjálfstæðisflokkinn á boðorið um að arður eigi aö fylgja áhættu. Ólafur Kagnar Grímsson sagði að vel mætti ræða það í alvöru, að hér gætu hugsanlega mikil menningarverðmæti verið á ferð- inni og væri auðvitað eðlilegt að styðja uppgröft og vörslu menningarverðmæta. Hins vegar væri þetta mál þannig vaxið að sjálfsagt væri að Alþýðuflokkur og Framsóknarflokkur hefðu ekki rætt ýtarlega þetta mál. Flutnings- rnenn vildu gjarna að þingmönnum gæfist betra tóm til að rannsaka það. Þess vegna drægju þeir til- löguna til baka, en ntyndu e.t.v. flytja írumvarp sama efnis siðar. -óg Skárra atvinnuástand á Akureyri Atvinnuástand á Akureyri fyrstu mánuði vetrarins er betra en á sama tíma sl. ár, sagði Gunnar Thoroddsen í svari til llalldórs Blöndals um þetta mál á alþingi sl. laugardag. Sttgði Gunnar að samkvæmt upplýsingum hans hefðu fram- kvæmdir á Akureyri í húsnæðis- byggingum og fleiri orðið meiri en áður hafði verið óttast. Því hefði atvinnuástandið skánað verulega. Sagði Gunnar að ríkisstjórnin fylgdist vel með þessum málum og væri ævinlega reiðubúin til viðræðna við bæjarstjórn Akur- eyrar og atvinnumálanefnd staðarins. - óg Verkamanna- bústaðír, Vinnueftir- litið og Fram- kvæmda- sjóður aldr- aðra fengu hækkun Byggingasjóður verkamanna fær 10 miljónir til viðbótar sam- kvæmt tillögu fjárveitinganefndar til þriðju umræðu fjárlaga. Þá fékk Vinnueftirlit ríkisins 3 miljónir og framkvæmdasjóður aldraðra hækkun um 5.210 eða 40 miljónir alls. Þessar hækkanir voru allar samþykktar á lokasprettinum sl. laugardag. - óg Lárus Jónsson. Stórt gat. Sjálfstæðisflokkur: Stórt gat í fjar- lögum í frumvarpinu er gat upp á 1000 miljónir, sagði Lárus Jónsson aðaltalsmaður Sjálfstæðisflokksins við lokaumræðu fjárlaga á laugardag. Sagði Lárus að frumvarpið hefði hækkað um 2.2% þ.e. útgjaldaliðir þess eða um 285 miljónir. Hins vegar hefur tekjuliður hækkað unt 230 miljónir með því að „teygja" tekjuáætlunina. Lýsti Lárus harðri andstöðu flokks síns við megin- atriði fjárlagafrumvarpsins. - óg Askell Másson í veglegri útgáfu Halldór B. Runólfsson skrifar um hljómplötur Áskell Másson: Klarinettukonsert - Bláa Ijósið - Sýn. Flytjendur: Einar Jóhannesson (klarinett), Sinfóníuhljómsveit íslands/ stjórnandi Páll P. Pálsson. Manucla Wiesler (llauta), Jósef Magnússon (flauta og alt-flauta), Roger Carlson (slagverk), Reynir Sigurðsson (slagverk). Roger Carlson (slagverk), kven- raddir úr kór Tónlistarskólans í Rvík, Ágústa Agústsdóttir (ein- söngur, sópran)/stjórnandi Mar- teinn H. Friðriksson. Útgefandi: Gramm, G 100, 1982. Ekki man ég eftir að hafa séð aðra íslenska hljómplötu sem jafn mikið hefur verið higt í. Öll vinna við þessa plötu er slík að hvergi gerist hún betri. Upptökur voru gerðar í Háskólabíói og stú- díói Ríkisútvarpsins, en öll frek- ari vinna við plötuna var gerð í Þýskalandi hjá hinu heimsþekkta fyrirtæki Telefunken-Decca. Pressun fór þar fram einnig. Tóngæðin eru frábær og stuðla að akkústískri nálægð þar sem hvert hljóðfæri og hver rödd nýtur sín fullkomlega. Umslag er einnig hannað í Þýskalandi og veitir það góðar upplýsingar. Þar er aö finna hug- leiðingtt um Áskel Másson, eftir Guðmund Emilson hljómsveitar- stjóra. og upplýsingar um Einar Jóhannesson, einleikara í Klarin- ettkonsertnum. Untslaginu fylgir bæklingur um þau þrjú verk Áskels senr platan hefur að geyma, „Klarinettkonsertinn", „Bláa ljósið" og „Sýn". Er hann saminn af Hjálmari H. Ragnars- syni tónskáldi, og svo ýtarlegurer hann að kallast mætti lexicum. Þar er farið rækilega ofan í saumana á tónverkunum, tilurð og sköpun. Áskeli er óvenjuatorkusamur tónsmiður. Hann stundaði fram- haldsnám í London, þar sem hann lagði stund á tónsmíðar og slagverk undir leiðsögn þekktra kennara. Slagverk er áberandi í tónverkum Áskels, það má reyndar heyra í „Bláa ljósinu" (1978) og „Sýn" (.1975). En móti ásláttarhljóðfærunum teflir hann frarn tréblásturshljóðfærum, s.s. í fyrrnefnda verkinu þar sem þau Manuela Wiesler og Jósef Magn- ússon skiptast á blæbrigðaríkum flautuleik og hinum snjalla „Klarinettkonsert" (1981). erf- iöu stykki senr Einar Jóhannes- son túlkar meistaralega ásanit Sinfóníuhljómsveitinni. I elsta verkinu eru þáð kvenraddir og einsöngur Ágústu Ágústsdóttur, senr hljóma þýtt yfir áslættinum. Kannski verður manni hugsað til upphafs nútímatónlistar, sem margir segja að hafi verið þegar Debussy gekk inn á heimssýning- una í París, 1889 og heyrði hið merkilega gamelan frá Jövu, hljómsveit skipaða strengjum, tréblásturshljóðfærum og kynstr- um ásláttarhljóðfæra og hafði það sterk áhrif á hann. Það er einmitt eitthvað inr- pressiónískt við tónlist Áskels sem gerir hana óendanlega Áskell Másson ljóðræna, en krefst um leið erf- iðis af túlkendum, þannig að ekki er á færi aukvisa að flytja hana. Hér er því valinn rnaður í hverju sæti, og árangurinn lætur ekki á sér standa. Það er virðingarvert að svo ungt fyrirtæki sem Gramm skuli ráðast í útgáfu svo mikils verks sem þessi plata er. Vonandi færir hún mönnum heim sanninn unr nauðsyn og gildi slíks framtaks. -HR

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.