Þjóðviljinn - 29.12.1982, Page 2

Þjóðviljinn - 29.12.1982, Page 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. desember 1982 Skák Gætum tungunnar Sagt var: Þar voru mættir fulltrú- ar tveggja samtaka. Rétt væri: Þar voru komnir full- trúar tvennra samtaka Betur færi þó: ..fulltrúar frá tvennum samtökum. ( Ath.: Orðið Samtök er ekki til í eintölu.) I þeirri slæmu færð sem víðast hvar er á götum borgarinnar er nauðsynlegt að kunna fótum sínum forráð. - Ljósm. Atli. Karov aö taffli - 72 Vladimir Tukmakov var á tímabili talinn efnilegasti skákmaður Sovétr- íkjanna ekki síst eftir frammistöðu sína á alþjóðlega mótinu í Buenos Aires 1970 þegar hann varð í 2. sæti á eftir Fischer. En á árunum frá 1972 fór að bera á stöðnun, eða öllu heldur afturför. Á millisvæðamótinu í Len- ingrad gekk honum t.a.m. herfilega og e.t.v. hefur Karpov átt sinn þátt í því. Þeir tefldu saman í 3. umferð: Tukmakov — Karpov Staðan sem hér er komin upp er furðulega auðug af möguleikum. Hvítur sem er nýbúinn að gefa frá skiptamun missir af besta möguleika sínui.i til mótspils... 31. Hb7? (Best var 31. Dg6! með hótunínni 32. Hb7. Svartur á þá úr vöndu að ráða þar sem 31.- Kf8 strandar á 32. Dh7 og 31. - De7 strandar á 32. Hg4 Df8 33. f6! o.s.frv. Best leikur svartur sennilega 31. - e4 en staðan er afar óljós eftir 32. Kf1! (ekki 32. Hb7 Da1 + 33. Kh2 De5-! og vinnur þving- að!) Hd2 33. Dxf6 gxf6 34. Hb7 Hf8 35. Hc5 og hvítur hefur nægilegt mót- vægi fyrir skiptamuninn. Jafntefli er hugsanleg úrslit. 31... he7! 32. Kf1 Hd2! - og hverju hefði hvítur leikið eftir 33. - Hb2? Jú ótrúlegt en satt 34. Dg6+!! og svartur á ekkert betra en 34. - fxg6 35. Bg8+ Kh8 36. Bb3+ með jafn- tefli. I þessari stöðu er allt mótspil hinsvegar útilokað. Hvítur er einfald- lega skiptamun undir, kóngurinn í bráðri hættu. M.ö.o. tapað tafl. Hvítur gafst þvi upp. Eftir 3 umferðir á mótinu voru Kort- snoj og Larsen efstir með 3 vinninga. Karpov og Byrne voru í 3-4. sæti með 2V2 vinning. Stærsti lax sum- arsins 27 punda hængur Þetta er stærsti laxinn sem veiddist á stöng á liðnu veiðiári íslenskra stangveiðimanna, að því er skýrt er frá í nýjasta Veiðimanninum. Það er að sjálfsögðu veiði- maðurinn sjálfur sem heldur á feng sínum. Hann heitir Örn Gústafsson og er frá Akureyri. Þennan myndarlega iax, sem er 27 punda hængur, nýrunninn fékk Örn í Hálfholu í Laxá í Aðaldal 17. júlí sl., á maðk og tók viðureignin um 20 mínútur. Um 515 miljónir í seðlum Um síðustu mánaðarmót voru rétt tæpar 515 miljónir kr. í seðlum í umferð og tæpar 35 milj- ónir af mynt. Seðlaveltan var tryggð með: a) Gulleign samkvæmt verð- skráningu Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins að upphæð kr. 29 miljón- ir 686.110. b) Erlend verðbréf í frjálsum gjaldeyri og óveðbundnum að upphæð 1 miljarður 808.834.791. kr. c) Inneign í erlendum bönkum í frjálsum gjaldeyri að upphæð 451 miljón 233.466 kr. Samtals gerir þetta í tryggingu 2 miljarða 285 754.367 kr. en sú upphæð samsvarar 443.9% af seðlum í umferð. Þessar upplýsingar er að finna í efnahagsreikningi Seðlabankans frá síðustu mánaðarmótum. „Oðruvísi frímerki yy Hér eru hugmyndir að „öðru- vísi“ frímerkjum, sem birtust í tímariti alþjóða íþróttasam- bandsins. Vissulega væri skemmtilegt að fá eitthvað þessu líkt inn á borð til sín, sérstaklega líst mér vel á skíðafrímerkið. Það þarf smá ímyndunarafl og frjóleika til að láta sér detta eitthvað þessu líkt í hug. I það minnsta er það alltaf verðug viðleitni að breyta út af vananum, þótt ekki sé annað. Hvað með íslenska frímerkja- útgáfu? Eru engin önnur form til en fernings- og rétthyrnings- merki? Hvað með þríhyrning- ana, hringi, sexstrendinga, keilu- form eða eitthvað annað? Af hverju ekki að breyta einu sinni út af venjunni, póstmenn góðir?

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.