Þjóðviljinn - 29.12.1982, Síða 11
Miðvikudagur 29. desembcr 1982 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Umsjón:
Viöir Sigurðsspn
ísland—Danmörk 22—21
Rossi frá
í 6 vikur
Paolo Rossi, ítalski knattspyrnu-
dýrlingurinn sent á dögunum var
kjörinn knattspyrnumaður ársins
1982 í Evrópu af France Football,
verður frá vegna meiðsla næstu sex
vikurnar að minnsta kosti. Fyrir
nokkru rifnaði útúr vöðva á fæti
Rossi og það tók sig upp á æfíngu í
fyrradag. Hann missir líklcga af
næstu sex deildaleikjum Juventus
og jafnvel leik Kýpurbúa og Itala í
Evropukeppni landsliða í febrúar.
í kjöri France Football hafði
Rossi nokkra yfirburði og hlaut 115
atkvæði. Alain Giresse, Frakkinn
snjalli, kom næstur með 68, Zbign-
iew Boniek frá Póllandi fékk 53,
Bruno Conti, Ítalíu 48 og Karl-
Heinz Runtmenigge, V-Þýskalandi,
47 en aðrir talsvert minna.
- VS
Óskadraumurinn rættist!
Tekst strákunum að sigra Dani aftur í kvöld?
Óskadraumur íslenskra hand-
knattleiksunnenda rættist í gær-
kvöldi; Danir voru lagðir að velli í
Laugardalshöllinni í fjörugum og
spennandi leik, 22-21. Tíu mörk-
um minni sigur en síðast þegar
þjóðirnar mættust, í leiknum eftir-
minnilega á Akranesi, en virkilega
sætur samt eftir frekar slakt gengi
landsliðsins að undanförnu. Þetta
var besti leikur liðsins hér heima í
vetur og lofar bara nokkuð góðu.
Við skulum vona að þetta sé skref í
rétta átt og víst er að áhorfendur í
Höllinni fengu mikið fyrir aurana
sína í gærkvöldi.
„Þetta var sigur sem við þurfum
á að halda", sagði Brynjar Kvaran,
markvörðurinn snjalli úr Stjörn-
unni, í samtali við Þjóðviljann eftir
leikinn. „Þessi leikur er jákvætt
framhald af leiknum við Ungverja í
Austur-Þýskalandi, og þar á ég
ekki síst við sjálfan mig. Mér gekk
ágætlega þá og aftur nú. Vörnin er
mikið að koma til og strákarnir eru
farnir að gera sér grein fyrir því að
varnarleikurinn er alltaf númer
eitt. Ég vil engu lofa fyrir leikinn í
kvöld, við gérum okkar besta,
erum reyndar alltaf að því þó fólk
virðist oft eiga erfitt með að skilja
það. En þetta verður örugglega
annar jafn spennandi leikur.“
Island náði þégar undirtökunum
í gærkvöldi og komst í 4 -1 en eins
og svo oft áður var sú forysta fljót
að hverfa. Liðið komst að vísu í 8 -
5 en Danir jöfnuðu fljótlega og í
leikhléi var staðan jöfn, 9-9. Síðan
var hnífjafnt iangt fram í síðari
hálfleik en Danir náðu þó aldrei að
komast yfir. Úrslitin réðust á fjög-
urra mínútna kafla; ísland breytti
stöðunni úr 17 -17 í 21 -18 og í því
átti Páll Ólafsson stóran þátt með
tveimur glæsimörkum sem hann
skoraði af gífurlegu harðfylgi.
Danir minnkuðu muninn í 21 - 20
þegar 20 sekúndur voru eftir en
Guðmundur Guðmundsson, besti
maður íslenska liðsins, var aðeins
nokkrar sekúndur að svara, 22-20.
Dönum tókst að skora, 22-21, en
fengu ekki færi á að jafna. ískyggi-
lega nærri komust þeir þó, en þetta
hafðist.
Batamerkin eru greinileg í varn-
arleiknum og markvarsla Brynjars
Kvaran var stórkostleg.sérstaklega
í síðari hálfleiknum, en þá varði
hann átta skot.
Gömlu gloppurnar skjóta þó
upp kollinum í vörninni af og til og
brotin eru á stundum ansi klaufa-
leg. Sóknarleikurinn var þokka-
legur en þar þarf enn margt að
bæta. Páll Ólafsson er að koma til
sem stjórnandi og seigla hans undir
lokin var ómetanlegur þáttur í sigr-
inum. Guðmundur var þó stjarna
kvöldsins ásamt Brynjari. Hvað
eftir annað sneri hann illilega á
dönsku vörnina og skoraði sex
glæsileg mörk auk tveggja víta-
kasta sem hann nældi í. Hann minn-
ist þessa leiks vafalaust lengi.
Bjarni Guðmundsson komst ágæt-
lega frá leiknum, svo og Kristján
Arason. Alfreð Gíslason byrjaði
ilia og það hafði greinilega slæm
sálræn áhrif á hann. Sigurður
Sveinsson er líka undir einhverjum
slíkum álögum; við vitum hvað Alli
og Siggi geta gert, en meðan sjálfs-
traustið er ekki til staðar ná þeir
aldrei að sýna nema brot af eigin-
legri getu. Hans Guðmundsson
komst þokkalega frá sínum hlut en
er einum um of óbeislaður, enda
lítt reyndur enn.
Guðmundur og Kristján voru
markahæstir með 6 mörk hvor,
Kristján með 4 úr vítaköstum. Páll
skoraði 3, Bjarni 2, Hans2, Sigurð-
ur, Þorgils Óttar og Steindór, sem
lék sinn 100. landsleik, eitt hver.
Danir eru alltaf jafn Iétt leikandi
og mjög hreyfanlegir, bæði í vörn
og sókn. Þar er sterkt íið á ferð eins
og alþjóð veit og það verður erfitt
að endurtaka þennan leik gegn
þeirn. Atkvæðamestir þeirra voru
Erik Rasmussen, Michael Ström
og Per Skaarup sem skoruðu 4
mörk hver en einnig bar nokkuð á
Morten Stig Christiansen og Jens
Erik Röepstorff.
Vestur-þýsku dómararnir voru
ekki nægilega samkvæmir sjálfum
sér og því í slakara lagi. Hvorugt
liðið hagnaðist þó að ráði á dóm-
gæslu þeirra.
Kristjan Arason brýst í
gegnum dönsku vörnina og
skorar eitt af sex mörkum
sínum í leiknum í gær-
kvöldi.
Mynd: -eik
Enska knattspyrnan: x ______________________________________
Forest og United fengu skelli!
Liverpool hefur sex stiga forystu eftir jafntefli í Sunderland
Staða Liverpool á toppi 1.
deildar ensku knattspyrnunnar
styrktist enn í gær. Liverpool gerði
inarkalaust jafntefli við Sunder-
land á útivelli á mcðan Nottingham
Forest tapaði fyrir Everton á Goo-
dison Park og Manchester United
fékk skell á Highfíeld Road gegn
Coventry. Forysta Liverpool er nú
sex stig.
Leikur Everton og Forest þótti
ekki góður knattspyrnulega séð en
baráttan var þeim mun meiri, sér-
staklega af hálfu heimaliðsins.
Everton tók forystuna á 24. mínútu
með marki Graeme Sharp úr vít-
aspyrnu og hann bætti öðru við
eftir sendingu frá Peter Reid, besta
manni Everton. Á 57. mínútu jók
Steve McMahon forystuna í 3-0 en
Steve Hodge lagaði stöðuna fljót-
lega fyrir Forest með góðu skoti,
3-1. Everton átti hættulegri færi
það sem eftir var og Steve Sutton
markvörður Forest varði tvívegis
stórkostlega frá Gary Stevens og
hinum hættulega Kevin Sheedy.
Garry Birtles og Colin Todd hjá
Forest meiddust báðir og það getur
komið liðinu illa næstu dagana.
„Við hefðum átt að vinna 25-0“
fullyrti Ron Atkinson stjóri Manc-
hester United á mánudag eftir
markalausa jafnteflið við Sunder-
land en hann þagði i gær þegar Un-
ited fékk skell. 3-0, í Coventry.
Peter Hormantschuk skoraði
fyrsta markið af 40 m færi og Mark
Hateley bætti öðru við eftir send-
ingu Steve Whitton. Þriðja markið
kom fljótlega í síðari hálfleik, fal-
leg sending Paul Dyson kom Jim
Melrose á auðan sjó og hann ekki í
vandræðum með að skora. Coven-
try hefur tekið mikinn kipp að
undanförnu og er óvænt komið í
hóp efstu liða 1. deildar.
Úrslit í gær:
1. deild:
Coventry-Manch.United.............3-0
Everton-Nottm.Forest..............3-1
Manch.City-W.B.A..................2-1
Norwich-Luton Town................1-0
Notts County-Stoke................4-0
Southampton-Arsenal...............2-2
Sunderland-Liverpool..............0-0
Tottenham-Brighton................2-0
2. deild:
Cambridge-Cr.Palace...............i-o
Carlisle-Middlesborough...........1—3
Chelsea-Fulham....................o-0
Grimsby-Newcastle.................2-2
Leeds-Bolton......................1_1
Leicester-Barnsley................1-0
Sheffield Wed.-Rotherham..........0-1
Woives-Burnley....................2-0
3. deild:
Bradford City-Wrexham.............0-0
Brentford-Gillingham..............1-1
Chesterfield-Sheff.Utd............3-1
Doncaster-Preston N.E.............2-0
Lincoln-Huddersfield..............1-2
Newport-Oxford....................1-2
Orient-Bournemouth................5-0
Plymouth-Cardiff..................3-2
Reading-Portsmouth................1-2
Southend-Millwall.................1-1
4. deild:
Blackpool-Tranmere................0-2
Bury-Hartiepool...................4-0
Chester-Stockport.................0-2
Colchester-Aldershot..............0-0
Crewe-Peterborough................0-3
Darlington-Hull City..............1-2
Halifax-Scunthorpe................3-1
Hereford-Bristol City.............1-3
Mansfield-Northampton.............2-0
Port Vale-Torquay.................1-0
Rochdale-York City................1-0
Swindon-Wimbledon.................0-1
Stoke átti aldrei möguleika gegn
Notts County á Meadow Lane og
heimaliðið skoraði tvö í hvorum
hálfleik. Fyrst Gordon Mair, þá
Ian McCulloch, Mark Goodwin
það þriðja og McCulloch rak síðan
endahnútinn, 4:0.
Steve Kinsey skoraði fyrir Manc-
hester City í fyrri hálfleik en fljót-
lega í þeirn síðari jafnaði Ally
Brown fyrir WBA. Þetta var hans
400. leikur fyrir Albion. Það var
síðan gamla brýnið Dennis Tueart
sem skoraði sigurmark City.
Staða efstu liða 1. deildar eftir
leikina í gær:
Liverpool........21 13 5 3 50:19 44
Nott.For.........21 12 2 7 38:20 38
Nanch.City.......21 10 6 5 28:17 36
WestHam..........20 11 1 8 36:30 34
Coventry.........22 10 4 8 30:28 34
Watford..........20 10 3 7 37:23 33
Aston Villa.....20 10 1 9 30:27 31
Neðstu lið:
Norwich..........21 6 5 10 24:35 23
Swansea..........20 6 4 10 28:33 22
Brighton.........21 6 4 11 19:40 22
Birmingham.......20 4 8 8 15:29 20
Sunderland.......21 4 7 10 24:37 19
Efstu lið 2. deildar:
Wolves...........21 13 4 4 40:19 43
Q.P.R............21 12 4 5 32:19 40
Fulham...........21 11 5 5 42:28 38
Leicester........21 10 3 8 37:24 33
Sheff.Wed........21 9 6 6 32:23 33
Leeds............21 7 10 4 26:21 31
- vs