Þjóðviljinn - 29.12.1982, Side 12

Þjóðviljinn - 29.12.1982, Side 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. desember 1982 Maður ársins og annáll Maður ársins í íslenskum bridge 1982 er Jón Baldursson. Sjaldan hefur umsjónarmaður haft eins mikla ánægju eins og nú, að til- nefna einn einstakan spilara úr val- inkunnum hópi gæðamanna, sem óumdeilanlega er betur kominn að nafngiftinni, heldur en Jón. Það er ekki ýkja mörg ár síðan Jón hóf spilamennsku og enn færri ár síðan hann komst í þröngan hóp okkar allra bestu spilara, fyrr og síðar. Að telja upp þá titla og sigra sem Jón hefur innbyrt síðustu mis- serin, er ekki á færi þáttarins. Aðeins minnt á, að hann er nv. ísl. meistari í tvím. (sl. 2 ár) og sveita- keppni, Reykjavíkurm. í sveita- keppni, landsliðsmaður 1982 o.fl. Fílósófi, sem hér á árum áður sagði eitthvað á þá leið, að tímarnir breyttust og mennirnir með, má gjarnan eiga niðurlagið í þessari grein. Einu vill þó þátturinn koma að, en það er dulítil dæmisaga um þró- un bridgemála hér á landi. Ungur frændi minn vakti furðu mína með þekkingu sinni á Jóni Baldurssyni hér um daginn. Þegar ég spurði hann um önnur nöfn úr bridge- heiminum, var fátt til svara. Þetta varð að umhugsunarefni fyrir mig, því ég er jú svona hér- umbil á sama aldri og Jón, og svo sannarlega erum við Jón ungir að árum. Eða hvað? Þátturinn óskar Jóni innilega til hamingju með útnefninguna. Áður hafa hlotið þessa útnefn- ingu: Skúli Einarsson (’77), Ás- mundur Pálsson (’78), Örn Arn- þórsson (’79), Þórarinn Sigþórsson (’80) og Stefán Guðjohnsen (’81). Annáll 1982 Að venju lítum við yfir árið sem nú er að kveðja, og gerum skil helstu viðburðum í bridge. íslandsmeistarar í sveitakeppni, varð sveit Sævars Þorbjörnssonar. Með honum voru: Þorlákur Jóns- son, Jón Baldursson og Valur Sig- urðsson. { 2. sæti varð svo sveit Þórarins Sigþórssonar og í 3. sæti sveit Arn- ar Arnþórssonar. fslandsmeistarar í'.tvímenning, annað árið í röð, urðu þeir Jón Baldursson og Valur Sigurðsson. Tvímælalaust okkar besta par þetta árið. í 2. sæti urðu svo bræðurnir Hermann og Ólafur Lárussynir og í Ólafur Lárusson skrifar um bridge 3. sæti Ásmundur Pálsson og Karl Sigurhjartarson. Reykjavíkurmeistarar í sveita- keppni varð sveit Sævars Þorbjöms- sonar, með sömu skipan manna og í ísl. mótinu. í 2. sæti varð svo sveit Arnar Arnþórssonar og í 3. sæti, sveit Karls Sigurhjartarsonar. Reykjavíkurmeistarar í tví- menning 1982 urðu Guðmundur Páll Arnarson og Þórarinn Sigþórs- son. Þeir sigruðu með miklum glæsibrag, en í 2.-3. sæti varð svo sveit Sævars (drjúgir við kolann), þeir Sigurður - Valur í 2. sæti og Jón Baid. - Sævar í 3. sæti. Bikarmeistarar í sveitakeppni 1982, varð sveit Jóns Hjaltasonar. Með honum voru: Hörður Arn- þórsson, Jón Ásbjörnsson, Símon Símonarson og Hjalti Elíasson. Þeir sigruðu kvennalandsliðið okkar í úrslitum, sveit Estherar Jakobsdóttur, sem stóð sig frábær- lega í þessari keppni. Vonandi sjá þær sér fært að keppa saman á kom- andi ári, með hliðsjón af Evrópu- móti í kvennaflokki 1983. Eitthvað erindi ættu þær að eiga þangað, ekki síður en karlalandsliðið okkar síðustu árin. Jólafundir SINE veröa haldnir í Félagsstofnun stúdenta viö Hringbraut dagana 29. desember 1982 og 3. janúar 1983 og hefjast kl. 15 báöa dagana. SÍNE-félagar eru hvattirtil að mæta allir sem einn á fundinn. Stjórn SÍNE Starfsmaður óskast í hlutastarf Prentsmiðja Þjóðviljans óskar aö ráða mann í hlutastarf við hreingerningar, kaffihitun, o.fl. frá og meö næstu mánaðamótum. Æskilegur vinnutími 7-10.00. Upplýsingar gefur Jóhannes Harðarson í síma 81333. Blaðberar óskast Bollagata - Hrefnugata Gunnarsbraut Bogahlíð - Mávahlíð Drápuhlíð - Eskihlíð Fífusel - Flúðasel Tjarnarbraut - Sólbraut Kaplaskjólsvegur Meistaravellir Kársnesbraut frá 61 Digranesvegur frá 80 DIOOVIUINN íslendingar tóku þátt í ýmsum mótum á erlendum vettvangi síð- asta keppnistímabil (þ.e. 1982). Jón Bald. - Valur Sig., Sævar Þorbj. - Þorlákur Jónss., tóku þátt í NM og náðu 3. sætinu á eftir Norðmönnum og Svíum og á undan Dönum og Finnum. Sæmi- legt það. 6 manna lið frá ísiandi tók þátt í EM - í yngri flokk 1982. Fyrirliði m/spilamennsku var Guðmundur S. Hermannsson, aðrirvoru: Run- ólfur Pálsson, Sigurður Vilhjálms- son, Aðalsteinn Jörgensen, Stefán Pálsson og Ægir Magnússon. Liðið hafnaði í 16. sæti af 18 þjóðum, sem er frekar dapur ár- angur. Undanfari þessa móts, var Islandsmót í yngri flokk, sem hald- ið var í 1. skipti 1982. Þar urðu sigurvegarar sveit Runólfs Páls- sonar og með honum voru: Sigurð- ur Vilhjálmsson, Sturla Geirsson og Hannes Lentz. Tvö pör tóku þátt í Olympíumót- inu 1982 í tvímenning. Það voru: Hermann Lárusson - Ólafur Lár- usson og Jakob R. Möller - Guð- mundur S. Hermannsson. Pörin náðu þokkalegum árangri, þó ekki kæmust þau í úrslit. Einnig spiluðu þau í Rosenblum sveitakeppninni, sem er eins konar óopinber heimsmeistarakeppni sveita í opnu formi. Þar stóð sveitin sig frábærlega framan af og spilaði ávallt í efsta hluta mótsins, sem var með Monrad-fyrirkomulagi. Undir lokin dapraðist flugið nokkuð, enda menn brðnir þreyttir á 15-16 klst. spilamennsku á sólarhring, með töfum. Stórmót Bridgefélags Reykja- víkur og Flugleiða var haldið, að venju með glæsibrag. 6 erlend pör sóttu okkur heim, og þau ekki af verri endanum. Dallas-ásarnir Weichel - Sontag og Rubin - Beck- er. Norska landsliðið Stabell - Helness og Aabye - Nordby og Breska landsliðið Rose - Sheean og Coyle - Shenkin. Tvímælalaust sterkasta mót sem hér hefur verið haldið, miðað við nöfn þátttak- enda og opinbera stigatölu á al- þjóðlegum vettvangi. Weichel - Sontag sigruðu tvímenninginn, en Jón Ásbjörnsson og Símon Símon- arson höfnuðu í 3. sæti, á eftir Sta- bell og Helness frá Noregi. Af öðium innlendumviðburðum ársins 1982 má nefna að Kristófer Magnússon var endurkjörinn for- seti Bridgesambandsins. Guð- mundur Kr. Sigurðsson varð átt- ræður (og stjórnar með reisn enn). Guðmundur S. Hermannsson endurráðinn framkvæmdastjóri Bridgesambandsins (umsjón með skrifstofunni á Laugavegi). Frá Bridgefélagi Sauðárkróks: 8. desember var spilaður 14 para Butler-tvímenningur. Röð efstu para var: stig 1. Garðar Guðjónsson - Páll Hjálmarsson 50 2. Erla Guðjónsdóttir - Haukur Haraldsson 28 3. Jón Ingólfsson - Agnar Sveinsson 26 4. Baldvin Kristjánsson - Jón Dalmann 21 5. Jón Jósafatsson - Skúli Jóhannsson 19 6. Halldór Jónsson - Júlíus Skúlason 8 Aðalsveitakeppni félagsins hefst 5. janúar. Fréttatilkynning frá Bridgeklúbbi Akraness Nú er nýlokið haustsveitakeppni klúbbsins. Spilaðir voru 16 spila leikir og tóku 9 sveitir þátt í keppninni. Sigurvegari varð sveit Eiríks Jónssonar sem hlaut 141 stig. Auk Eiríks spiluðu í sveitinni Jón Alfreðsson, Alfreð Viktors- son, Guðjón Guðmundsson og Ólafur Gr. Ólafsson. 2. Sveit Olivers Kristóferssonar 126 stig 3. Sveit Halldórs Sigurbjörnssonar 119 stig Jólatvímenningur klúbbsins hófst sl. fimmtudagskvöld með þátttöku 20 para. Spilað er í tveimur 10 para riðlum. Efstu pör í riðlunum eftir fyrsta kvöldið urðu eftirtalin: A-riðill: stig 1. Guðmundur Bjarnason - Bjarni Guðmundsson 124 2. Búi Gíslason - Jósef Fransson 119 3. Alfreð Alfreðsson - Hallgrímur Rögnvaldsson 118 B-riðill: 1. Þórir Leifsson - Oliver Kristófersson 126 2. Jóhann Lárusson - Guðmundur Sigurjónsson 125 3. Eiríkur Jónsson - Alfreð Viktorsson 120 Meðalskor var 108 stig. Spilaðar verða tvær umferðir enn í keppninni og næst verður spilað fimmtudagskvöldið 30. des. Frá Bridgedeild Skagfirðinga Síðastliðinn þriðjudag 14. des. var spilaður tvímenningur í 14 para riðli. Efst urðu eftirtalin pör: stig 1. Björn Hermannsson - Lárus Hermannsson 184 2. Sigmar Jónsson - Vilhjálmur Einarsson 182 3. Guðmundur Þórðarson - Jón Andrésson 168 4. Baldur Ásgeirsson - Magnús Halldórsson 167 5. Bogi Sigurbjörnsson - Sævin Bjarnason 166 Bridgespilari ársins 1982, Jón Baldursson. Var þetta síðasta spilakvöld á þessu ári. Aftur verður hafist handa á nýju ári með eins kvölds tvímenning 4. jan. og svo aðalsveitakeppni deildarinnar 11. jan. (16 spila leikir), má reikna með góðri þátt- töku því alls spiluðu 12 sveitir í ný- afstaðinni hraðsveitakeppni. Þátt- töku í sveitakeppninni ber að til-. kynna til keppnisstjóra Kristjáns Blöndals í síma 40605. Að endingu óskum við öllum velunnurum bridge-íþróttarinnar gleðilegra jóla. Með félagskveðjum Þátturinn óskar bridgefólki góðs komandi árs með þökkum fyrir árið sem er að kveðja. Sérstakar þakkir fá ötulir fréttafulltrúar bridgefélag- anna, víða um land. Umsjónar- maður vonar að einhver skemmtun og fróðleikur hafi fengist við lestur bridgegreina í Þjóðviljanum. Sam- starfsfólki þakka ég samstarfið hér á blaðinu, sem hefur verið með miklum ágætur, enda þolinmótt fólk sem á í hlut. Sjáumst á nýju ári, 1983. ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið Ólafsvík - Aðalfundur Aðalfundur Alþýðubandalagsfélags Ólafsvíkur verður í Sjóbúðum, Ól- afsvík, fimmtudaginn 30. desember n.k. og hefst kl. 20.30. Dagskrá: Aðalfundarverkefni. Félagar fjölmennið. - Stjórnin. Alþýðubandalagið í Neshreppi utan Ennis Almennur fundur verður í félagsheimilinu Röst sunnudaginn 2. janúar kl. 14. Fyrir svörum sitja Skúli Alexandersson alþingismaður, Kristinn Jón Friðþjófsson og Svanbjörn Stefánsson. Umræðan snýst um landsmálapól- itíkina, hreppsmálin og hið almenna félagsstarf. - Stjórnin Alþýðubandalagið í Neskaupstað Alþýðubandalagið í Neskaupstað heldur félagsfund sunnudaginn 2. janúar kl. 16 í Sjómannastofunni. Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráðherra kemur á fuhdinn. - Félagar fjölmennið. - Stjórnin. Hjörleitur Alþýðubandalagið Reyðarfírði Félagsfundur verður haldinn sunnudaginn 2. janúar kl. 16. Helgi Seljan alþingismaður verður á fundin- um. Félagar, fjölmennið. - Stjórnin „Flóamarkaður Þjóðviljans Ný þjónusta við áskrifendur Á fimmtudögum geta áskriíendur Þjóöviljans fengiö birtar smáauglýsingar sér að kostpaöarlausu. Einu skilyröin eru aö auglýsingarnar séu stuttorðar og aö fyrirtéeki eöa stofnanir standi þar ekki aö baki. Ef svo er, þá kostar birtingin kr. 100.- Hringiö í sima 31333 ef þiö þurfið að selja, kaupa, skiþta, leigja, ef ykkur vantar vinnu, þið hafiö týnt einhverju eöa fundið eitthvaö. Allt þetta og fleira til a heima á Flóamarkaöi Þjóðviljans. DJOÐVIUINN Skrifstofur vorar verða lokaðar fimmtu- daginn 30. desember vegna útfarar Agn- ars Kofoed-Hansens flugmáiastjóra. Flugmálastjórn

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.