Þjóðviljinn - 08.01.1983, Page 5
Helgin 8. - 9. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5
Á nýliðnu ári létust um 15,3
miljónir barna af vannæringu,
lélegri hreinlætisaðstöðu og
skorti á lyfjum, heilsugæslu og
hreinu vatni. Þar af voru 10,3
miljónir barna, sem ekki náðu
eins árs aldri. Hinar 5
miljónirnar voru á aldrinum 1-
4ára. Yfirgnæfandi meirihluti
þessara barna lifði í
þróunarlöndunum. Á Indlandi
einu dóu 3 miljónir barna, sem
ekki náðu eins árs aldri. I
Afríku dóu 2,6 miljónir og 800
þúsundir í Rómönsku Ameríku
og álíka mörg í Kína. Að
meðaltali dóu 40.000 börn á dag
af þessum orsökum. Þetta
kemur fram í nýlegri skýrslu
Barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna.
Árlega deyja um 5 miljónir
barna af völdum niðurgangs, sem
orsakast fyrst og fremst af óhreinu
drykkjarvatni og ófullnægjandi
heilsugæslu. Barn sem lifir við
óhreint drykkjarvatn fær niður-
gang 6-16 sinnum á ári. Aðrar al-
gengar orsakir barnadauðans eru
mislingar, stífkrampi, berklar og
lömunarveiki, en auðvelt og til-
tölulega ódýrt er að koma í veg
fyrir þessa sjúkdóma. Fái barn mis-
linga eða kíghósta ofan í niðurgang
eru líkurnar á dauða 400 sinnum
meiri.
Fjögur ráð
Forstöðumaður barnahjálpar-
Leiðrétting
við minning-
argrein um
Skafta
Magnússon
Síðastliðinn fimmtudag birtist
hér í blaðinu minningargrein um
Skafta Magnússon, eftir Björn Eg-
ilsson. Niðurlag greinarinnar hefur
brenglast svo hastarlega að ekki er
unnt að afsaka það. Rétt er niður-
lag greinarinnar þannig:
„Heimili Skafta í Suðurgötunni
var friðsælt og gott. Indíana Al-
bertsdóttir bjó þar með honum,
ágæt kona, sem hugsaði vel um
heimilið. Hún var yfirlætislaus,
hrein og bein, en ekki málskrafs-
mikil. Málskrafið var hjá okkur
Skafta. Við töluðum alltaf um
heima og geima, landsins gagn og
nauðsynjar, menn og málefni og
oft með kímilegum blæ. Við vorum
ekki alltaf sammála, en þá kom það
eins og af sjálfu sér að við ræddum
ekki þar um.
Skafti Magnússon er nú allur. í
einrúmi á hljóðri stund er gott að
minnast góðra vina, þegar þeir
hafa horfið á braut."
Lesendur blaðsins allir, - og þó
einkum þeir, sem beinan hlut eiga
að máli, - eru beðnir velvirðingar á
þessari handvömm.
-mhg
Dagmar Rodin
Laugardaginn 8. janúarkl. 16.00
verður opnuð sýning á verkum
þýsku listakonunnar Dagmar Ro-
dius í Nýlistasafninu Vatnsstíg 3 b.
Dagmar,sem er fædd í Bæjaralandi
árið 1945, hefur stundað myndlist-
arnám bæði í Þýskalandi og Hol-
landi, auk fjögurra ára listasögu-
náms. Sýning stendur fram á
sunnudagskvöld 16. janúar.
innar segir í skýrslu sinm að um
fjórðungur barna í þróunarlöndun-
um þjáist af vannæringu. I helming
þessara tilfella er ekki beint um
fæðuskort að ræða, heldur orsakast
vannæringin af iðrasýklum, hita-
sótt og sýkingum.
Forstöðumaðurinn bendir á
fjögur einföld og ódýr ráð til að
draga úr barnadauðanum:
- afturhvarf tii náttúrulegrar
brjóstagjafar eftir hina „hörmu-
legu tilhneigingu til notkunar
mjólkurdufts" í löndum þar sem
skortur er á ómenguðu vatni.
- að gefa þeim börnum sem
þjást af niðurgangi sykur og salt-
blöndu, en það hefur reynst auka
hæfni líkamans til að halda í sér
vökva umtalsvert;
- bólusetning allra barna gegn
mislingum, barnaveiki, stífkrampa,
kíghósta, berklum og lömun-
arveiki;
- mánaðarlegt eftirlit og vigtun
allra barna til þess að koma í veg
fyrir vannæringu áður en hún
kemst á alvarlegt stig.
„Engin tölfræði getur endur-
speglað þær tilfinningar er vakna
við að sjá barn deyja með þessum
hætti“, segir í skýrslu forstöðu-
mannsins. „Að sjá móður sitja graf-
kyrra tímunum saman með barn
sitt í fanginu, horfa á höfuð þess
hreyfast og reyna að hindra jafnvel
þessa litlu hreyfingu, þar sem hún
taki um of af þeirri litlu orku, sem
eftir Iifir í líkamanum, að sjá
hræðsluna í augum móður og
barns, og að skynja síðan á ómældu
augnabliki að lífið hafi slokkn-
að...“ -ólg.
í Afríku dóu á síðasta ári 2,6 miljónir barna af völdum vannæringar og hörgulsjúkdóma áður en þau náðu
eins árs aldri.
Skrifstofu-
húsgögn
Allar gerðir
Sendum um allt land.
Leitið eftir verði og greiðslukjörum
ísiensk húsgögn
inn á íslensk fyrirtæki
HUSGOGN
Skemmuvegi 4,
Kópavogi,
Sími73100
, fagra
veröld...
//