Þjóðviljinn - 08.01.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 8. — 9. janúar 1983
UNG ANGIST
Norrænir
unglingar tjá
skoðanir sínar
í myndum
Kjarnorkusprengjan er ofarlega í
hugum unglinganna. Þetta erein af
Tinnsku myndunum, en nærri því
eins mynd kom frá Islandi.
Yfir hátíðarnar hefur staðið
yfir í kjallara Norræna
hússins sýning á verkum
norrænna unglinga sem
farið hefur um allar helstu
borgir á Norðurlöndum og
hvarvetna vakið mikla
athygli. Hér hefur sýningin
farið dálítið fyrir ofan garð og
neðan hjá mörgum vegna
jólanna og veðursins, en nú
um þessa heigi eru síðustu
forvöð að sjá sýninguna.
Myndir þessar eru eftir unglinga á
aldrinum 13-15 ára og flestar
unnarsem hóþverkefni í
einstökum hópum eöa bekkjum.
Vinnan fór þannig fram aö þau
ræddu fyrst um óskir sínar, vonir
og þrár og hvaö þau væru hrædd
viö og unnu síðan myndirnar eftir á
í samræmi viö niðurstöðurnar.
Blaðamaður Þjóöviljans ræddi viö
handmenntakennara Eddu
Óskarsdóttur og Þóri Sigurðsson
og sögöu þau aö þessi sýning væri
eiginlega fyrsta verkefniö sem
kemur út úr nýstofnuöu Sambandi
myndmenntakennara á
Noröurlöndum.
Þegar gengið er um sýningarsalina
rekur maður strax augun í hve
margt er líkt með myndum frá
Finnlandi og íslandi og þær myndir
hafa vakiö mikla athygli þar sem
sýningin hefur verið. Otti viö stríö
og þrá um frið er áberandi í
myndum þessara tveggja þjóöa og
Dæmigerð stelpumynd. Það er
togað í hana úr öllum áttum. Vertu
svona, gerðu þetta! Óttinn við að fá
ekki að vera sjálfstæðar persónur í
nútímasamfclagi er ríkjandi í
mörgum myndum.
skýringarinnar kannski aö leita í því
aö þetta eru tvær útvarðaþjóðir
meö stórveldapressu á sér, önnur
úr austri og hin úr vestri. Þó aö
ekkert samband sé milli geröar
myndanna í þessum tveimur
löndum eru þæroft mjög líkar,
nánast sömu „mótívin".
Um þetta segir í sýningarskránni:
„Eyðilegging umhverfisins,
sjálfvirknin, þekking á náttúru
landsins er tjáð á áhrifamiklum
myndverkum. Nemendurbrjóta
heilann um framtíö mannsins.
Veröurmanneskjan lík vélmenni
eöaveröurtæknin
manneskjulegri? Lífiö minnir á
vissan hátt á dauðadans og
hótunin - kjarnorkusveppurinn -
sést í mörgum myndanna.
Nemendur vilja réttlátan heim og
þeir viljafriö. Þeir vilja vera ábyrgir.
Margar myndanna segja okkur
hvernig heimurinn og manneskjan
þyrftu aöbreytast".
Hér á landi lögöu 5 skólar til efni á
sýninguna og í umsögnum margra
erlendra blaöa er þáttur íslands
talinn einna bestur. Skólarnir voru
Garðaskóli í Garöabæ,
Heyrnleysingaskólinn,
Hólabrekkuskóli í Rvík,
Laugalækjaskóli í Rvík og
Lækjaskóli í Hafnarfiröi.
En sjón er sögu ríkari og veröur
þetta látið nægja í oröum _ GFr
Ein íslensku myndanna.
Fullkominn skólaleiði.
Hið vonda og góða.
Jafnrétti. Vigdís umkringd andlitslausum karlmönnum.