Þjóðviljinn - 08.01.1983, Qupperneq 15
Helgin 8. — 9. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15
söngvarinn
Laurence
Albert
Laurence Albert hefur unnið til
margra góðra verðlauna með söng
smum.
Bassa-
Fjórðu áskriftartónleikar Tón-
listarfélagsins í Reykjavík verða í
Austurbæjarbíói í dag, laugardag,
kíúkkan hálf þrjú eftir hádegi. Þar
kemur fram ameríski bassasöng-
varinn Laurence Albert, en hann
er meðal efnilegustu yngri söngv-
ara vestanhafs og hefur unnið til
margra góðra verðlauna. Þrisvar
sinnum hefur hann unnið til Schu-
bertverðlauna fyrir ljóðasöng í
Austurríki. Hann hefur einnig
sungið í óperunt og komst t.d. í
úrslit í söngkeppni á vegum
Metropolitan-óperunnar í New
York 1981.
Píanóleikarinn Mary Dibbern
mun leika með honum á þessunr
tónleikum, en hún er einnig band-
rísk. Hún hefur þó fyrst og fremst
numið í Evrópu, hjá Paul Velucci á
ltalíu, og í Englandi hjá Dalton
Baldwin. Hún hefur starfað með
mörgum frægum söngvurum, t.d.
Bernac: Souzay og Ellu Amelin. A
efnisskránni eru aríur eftir Hándel
og Vivaldi og sönglög og lagaflokk-
ur eftir Schubert, Hugo Wolf og
Paulenc.
Sigrún Hjálmtýsdóttir
syngur klassísk lög
í dag. laugardag, verða haldnir
tónleikar í Hlégarði í Mosfellssveit
á vegum Tónlistarfélags Mosfells-
sveitar. Sigrún Hjálmtýsdóttir
sópran syngur við undirleik Önnu
Guðnýjar Guðmundsdóttur píanó-
leikara.
Efnisskráin er fjölbreytt og m.a.
eru lög eftir Hándel, Schumann,
Brahms, Schubert, Donnizetti,
Rossini o.fl.. Þetta verður í fyrsta
sinn, sem Sigrún Hjálmtýsdóttir
heldur klassíska tónleika opinber-
lega. Hún stundar nú framhalds-
nám í London við Guildhall School
ot Music and Drama og mun vænt-
anlega ljúka þaðan burtfararprófi í
júlí 1984. Aðalsöngkennari hennar
er Laura Sarti. Áður en Sigrún hélt
utan til náms var hún tvo vetur við
Tónlistaskólann í Reykjavík.
Söngkennari hennar þar var Rut L.
Magnússon.
A tónleikunum verða einnig
fluttir kaflar úr forleik eftir Hándel
fyrir tvö klarinett og horn. Flytj-
endur eru Kjartan Óskarsson,
klarinett, Knútur Birgisson, klar-
inett, og Þorkell Jóelsson, horn.
Aðgöngumiðar eru seldir við inn-
ganginn.
Jörgen Murer.
kl. 16 - 22. Hún stendur til 16.
janúar.
Jörgen múrari í
Nýlistasafninu
VíIItustu dmumarþínír.
Björtustu vonír annarra.
Miöi í Happdrætti SÍBS hefurtvær góðar hliðar:
Þú gefur sjálfum þér von um veglegan vinning.
Hin hliðin, - og ekki síðri. Þú tekur þátt í víðtæku
endurhæfingar- og þjálfunarstarfi á Múlalundi
og Reykjalundi.
HAPPDRÆTTISÍBS
— Happdrætti til góðs.
Danski listamaðurinn Jörgen
Bruun Hansen eða Jörgen Murer
eins og hann er gjarnan kallaður af
vinum sínum opnar sýningu á
rnorgun, kl. 4 í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3B. Á henni eru 14
segraffito-myndir, gerðar með
blandaðri tækni, járnbleki og past-
el á litaðan grunn. Þetta eru
ljóðmálverk þar sem ljóðtextar eru
skrifaðir hver yfir annan á flötinn,
uns upp úr stendur heildstætt
myndverk. Að auki gefur að líta
bækur listamannsins. Hann verður
viðstadur opnun sýningarinnar.
Jörgen Bruun Hansen er fæddur
1927 í Danmörku, afkomandi múr-
ara í þrjá ættliði. Hann er kennari
við Konunglegu listaakademíuna í
Kaupmannahöfn, jafnframt því að
vera þekkt og afkastamikið ljóð-
skáld. Alls hefur hann gefið út níu
ljóðabækur. Iðulega hefur hann
fengið aðra myndlistarmenn til liðs
við sig í bókagerðinni og eru bækur
hans nær ávallt myndskreyttar.
Gott dæmi þar um er bókin um
Wegerknapf sem þrykkt er á hand-
gerðan pappír, handrituð og frá-
bærleg vönduð í handverki. íslend-
ingum er Jörgen Murer einkum
kunnur fyrir ljóð sín (sem sum hafa
verið þýdd og birt í tímaritum og
dagblöðum), en hingað til lands
kom hann fyrst í boði Norræna
hússins árið ’73 og las þá upp úr
verkum sínum og hélt fyrirlestra.
Einnig hefur hann kennt í
Myndlista- og handíðaskóla ís-
lands í sérfagi sínu sent við kemur
múrverki og útfærslu veggskreyt-
inga; en hann hefur farið víða um
Evrópu og sett upp vegg- og múr-
myndir fyrir hina ýmsu myndlistar-
menn. Hér má minna á uppsetn-
ingu veggskreytingar Tryggva
Ólafssonar á sjúkrahúsinu á Nes-
kaupstað. Til íslands hefur Jörgen
Murer komið einum finrm sinnum
og eignast hér fjölda vina og kunn-
'ngja.
Sýningin í Nýlistasafninu,
Vatnsstíg 3B, er opin daglega frá