Þjóðviljinn - 08.01.1983, Qupperneq 23
Helgin 8. - 9. janúar 1983 ÞJÓÐVILJÍNN - SÍÐA 23
skák
Áskorendaeinvígin III. grein
Laj os Por tisch
Þegar skákáhugamenn
ræða um sterkasta
skákmann Ungverja um ára-
tuga skeið, Lajos Portisch,
þá kemur upp í huga manns
einbeittur og rólegur maður
við vinnuborðið heima hjá
sér, kaffibrúsi og kruðerí við
höndina. Portisch ku leggja á
sig a.m.k. 8 klst. vinnu á dag
og árangurinn má sjá í ara-
grúa af snjöllum nýjungum.
Fleiri skákmót hefur hann
unnið en flestir aðrir og ör-
yggi hans er í raun stórkost-
legt. Ólíkt brokkgengum
stórmeisturum eins og t.a m.
Bent Larsen og Jan Timman,
þá er Portisch jafnan að finna
í efstu sætum þeirra móta
sem hann tekur þátt í.
Um nokkurt skeið stóð hann í
skugga landa síns, Lazlo Szabo en
hans tími kom og á ntilli-
svæðamótinu í Amesterdam 1964
ávann hann sér þátttökurétt í
Askorendaeinvígjunum. Hann
hefur teflt í þessum einvígjum æ
síðan, ef undan er skilin
Áskorendakeppnin 1971, en á
undangengnu millisvæðanróti senr
haldið var í Palnra De Mallorca
varð hann 7: vinningi á eftir sjötta
nranni. Það gerði útslagið á
frammistöðu hans í þessu móti, að í
næstsíðustu umferð tapaði hann
fyrir neðsta manni mótsins, Jimen-
ez frá Kúbu. Hafði Portisch þó
hvítt.
Þátttaka Portisch í Áskorenda-
keppninni 1965 hófst með einvígi
hans við töframanninn frá Riga,
Mikhael Tal. Tal sigraði með
nokkrum yfirburðum, 57:: 27:, en
lokatölurnar gefa þó engan veginn
rétta mynd af gangi mála, því Port-
isch tefldi skínandi vel í byrjun, en
undir lokin seig Tal á.
Portisch varð því að bíða eftir
næsta tækifæri og það kom 1967
þegar háð var sögulegt milli-
svæðamót í Túnis. Þessa móts
verður sennilega nrinnst vegna
framgöngu Bobby Fischers sem
hætti keppni eftir 10 skákir og var
þó með 87: vinning. Portisch varð í
2. sæti ásamt Geller og Gligoric.
Andstæðingur hans í fyrstu hrinu
Áskorendakeppninnar senr fram
fór 1968 var Bent Larsen og eftir
geysispennandi keppni þar senr
Larsen náði tveggja vinninga for-
skoti í byrjun var staðan fyrir 10.
skák einvígisins jöfn, 47::47:. Lar-
sen vann síðustu skákina í aðeins
28 leikjum og enn féll Portisch úr
leik.
1970 var ár Fischers og Portisch
féll úr í keppninni um æðstu met-
orð skákarinnar þegar hann tapaði
fyrir Jimenez í næstsíðustu umferð
millisvæðamótsins eins og áður var
getið.
Enn var sótt á brattann. Á milli-
svæðamótinu í Petropolis 1973
deildi Portisch 2. sætinu með þeim
Geller og Polugajevskí og í auka-
ungverski
vinnu-
þjarkurinn
keppni unr tvö sæti í Áskorenda-
keppninni vann Portisch öruggan
sigur. Hann hlaut 57: vinning af 8
mögulegum. Polugajevskí kom
næstur með 37: vinning og Geller
rak lestina með 3 vinninga. Ein-
hver hefði talið að Portisch ætti
hæg heimatökin þegar hann mætti
Tigran Petrosjan í Áskorenda-
keppninni. Portisch hafði fyrir ein-
vígi þeirra unnið Armeníumanninn
fjórum sinnum og aldrei tapað, en
nú brá svo við að Petrosjan tefldi
eins og engill gegn þessum erfiða
andstæðingi og vann. Lokatölur
urðu 3:2 fyrir Petrosjan, jafntefli
ekki talin. Enn var Portisch fallinn
úr leik.
Það hefur einkennt Portisch að
hann virðist einlægt geta bætt sigog
ekki gefst hann upp svo glatt. Á
millisvæðamótinu sem haldið var í
Biel 1976 deildi hann enn 2. sætinu,
nú með Sovétmönnunum Petro-
sjan og Tal. Aukakeppnina um
sætin tvö vann Petrosjan, hlaut 47:
vinning af 8 nrögulegum, vann eina
skák og gerði sjö jafntefli. Port-
tisch náði öðru sæti, hlaut 4 vinn-
inga og Tal varð neðstur nreð 37:
vinning.
Umsjón
Helgi
Ólafsson
Portisch nrætti Bent Larsen, sig-
urvegaranum frá Biel í fyrstu unr-
ferð Áskorendakeppninnar 1967.
Larsen hafði stórorð eins og venju-
lega og þegar hann var beðinir unr
að nefna þrjá líklegustu áskorend-
ur Karpovs gaf hann eftirfarandi
röö: 1. Bent Larsen 2. Larsen 3.B.
Larsen frá Danmörku. Portisch
reyndist honum þyngri í skauti en 9
árunr áður. Einvígið átti að vera 12
skáka, en eftir 10 skákir var Port-
isch búinn að tryggja sér sigur,
67::37:.
í t'yrsta sinn var Portisch kominn
í aðra umferð einvígjanna og nú
beið hans fyrrum heimsmeistari,
Boris Spasskí. Fleiri veðjuðu á
Portisch þar sem árangur hans á
liðnum árum hafði verið til muna
betri en Spasskís. Auk þess var
Elo- stigatala hans hærri og í raun
var Spasskí hleypt í einvígin fyrir
Frá Menntaskólanum
við Hamrahlíð
Stundaskrár nemenda í dagskóla veröa af-
hentar þriöjudaginn 11. og miðvikudaginn
12. janúar kl. 14-16, Bóksalan veröur opin
sömu daga kl. 14-18 og síöan skv. auglýs-
ingu í skólanum.
Kennsla í dagskóla og í öldungadeild hefst
skv. stundaskrá fimmtudaginn 13. janúar, en
störf kennara á önninni hefjast meö kennara-
fundi kl. 13 mánudaginn 10. janúar.
Rektor
náð og miskunn þar senr stórlátur
maður, Bobby Fischer sá ekki á-
stæðu til að mæta til leiks eftir að
liafa tapað heimsmeistaratitlinum
án baráttu. Menn gleymdu því
e.t.v., að Spasskí er alveg sérstak-
lega harðsnúinn þegar kemur að
einvígjum og þrátt fyrir að Portisch
hafi í tvígang náð forystu tókst
Spasskí ávallt að jafna nretin og að
lokunr að síga framúr og sigra,
87::67:.
Þessi píslarganga Portisch í
Áskorendakeppninni hélt áfram.
Hann ávann sér þátttökurétt í
Áskorendaeinvígjunum sem fram
fóru 1980 nreð því að deila efsta
sætinu nreð þeim Petrosjan og Hú-
bner á millisvæðamótinu í Rio De
Janeiro 1979.
Portisch nrætti svo Spasskí í ein-
vígi í Mexíkó og þegar 14 skákir
höfðu verið tefldar og báðir höfðu
unnið sinn hvora skákina var stað-
an jöfn 7:7. Portisch komst áfranr á
þeiin reglunr að sá héldi áifram senr
fyrr ynni skák.
Næsti andstæðingur Ungverjans
var papýrussérfræðíngurinn Ro-
bert Húbner, senr fæstir höföu
mikla trú á. Einvígi þeirra
einkenndust af ótrúlegunr fjölda
mistaka beggja keppenda, en á
endanum stóð Húbner uppi senr
sigurvegari. Af 11 skákunr vann
hann tvær og geröi níu jafntefli.
í sjötta sinn teflir Portisch í
Áskorendaeinvígjunum, því í einu
þriggja millisvæðamótanna senr
haldin voru á liðnu sumri varð
hann í efsta sæti ásanrt Filippsey-
ingnum Eugunio Torre. And-
stæðingur Portisch verður einn af
ganrla skólanunr, baráttujaxlinn
ódrepandi, Viktor Kortsnoj. Þeir
hafa marga hildi háð og telst nrér til
að vinningatalan sé nrjög jöfn svo
einvígið hlýtur að verða spenn-
andi.
Möguleikar Portisch
Um nröguleika Portisch ef til
einvígis við Karpov kænri er e.t.v.
einfaldast að vitna í innbyrðis
vinningatölu hans í skákum hans
við heimsmeistarann. Þar eru yfir-
burðir Karpovs hreint nreð ólíkind-
um svo sá senr þessar línur ritar
hefur ekki nrikla trú á Portisch. En
hann nrun Irinsvegar áreiðanlega
fæða af sér margar skemnrtilegar
skákir í keppninni. Varðandi ein-
vígi Portisch og Kortnojs þá slær
þar sarnan ólíkum stíl keppenda.
Kortsnoj sem einhver haröasti
keppnismaður sem um getur,
maður gagnsóknarinnar; en Port-
isch á hinn bóginn einn
aðalhugmyndafræðingur vorra
tínra. Þeir nrættust á Olynrpíu-
skákmótinu í Luzern og tefldu at-
hyglisverða skák:
Hvítt: Lajos Portisch
Svart: Viktor Kortsnoj.
Benoni - byrjun
1. d4-Rf6 4. d5-exd5
2. c4-e6 5. cxd5
3. g3-c5
(Þetta afbrigði haföi gefist Kaspar-
ov vel í skák sinni við Kortsnoj
nokkrum unrferðunr áður. Kort-
snoj er þó fljótur að breyta útaf
taflmennsku piltsins.)
5 ..b5
(Sjaldséð leið og þó í hæsta máta
eölileg. Svartur hyggur á landvinn-
inga á drottningarvæng.)
6. Bg2 d6 9. Rc3 a6
7. Rl'3 g6 1«. a4 b4
8. Rfd2 Rbd7
(10. - Hb8 konr til greina en sá
leikur heldur í teygjuna í peða-
stöðunni. Kortsnoj kýs hinsvegar
að láta til skarar skríða enda orðinn
dálítið á eftir í liðsskipaninni.)
11. Rce4 a5
(„Ekki geynri ég nein hernaðar-
leyndarnrál önnur en þau að ég
kann að byggja upp góða peða-
Lajos Portisch. Sennilega sterkasti skákmaúur heinis utan Sovétríkjanna.
Situr svipbragða- og hreyfingarlaus við skákborðið í 5 klukkustundir.
stöðu," sagði Kortsnoj þegar hann
baröist fyrir því að sonur Irans Igor
yrði leystur úr prísundinni og send-
ur úr landi. I Ivað hann átti við nreð
þessari undarlegu setningu skal
ósagt látið, en á hinn bóginn sann-
ast það hér að hann kann að byggja
upp heilsteypta peðastööu.)
12. Db3 Be7 14. Bxe4 Rb6!
13. Rc4 Rxe4
(Uppskipti eru svörtum í hag.)
15. Rxb6 Dxb6 17. Bd3 Bf8
16. Bh6 Ba6
(Sjá aths. við 14. leik svarts.)
18. Bxf8 Kxt8 21. Hfel He7
19. 0-0 Kg7 22. Ile3 f6
20. e4 Hhe8
(Það er enginn hægðarleikur fyrir
hvítan að koirra peðameirihluta
sínunr á kóngsvæng afstað. Á hinn
bóginn getur svarlur leyft sér ýnrs-
ar tilfæringar á peöameirihluta sín-
unr á drottningarvæng.)
23. Hael Bxd3 26. I)d4 Hc8
24. Dxd3 I)a6! 27. HI3 H17
25. Dd2 c4 28. Hcl
(28. g4 kom til greina en þeinr leik
svarar svartur sennilega best nreö
28. -g5 t.d. 29. h4 h6 30. hxg5 hxg5
31. Hf5 Kg6 o.s.frv.)
28. ...c3!
8
7
6
5
4
3
2
1
abcdefgh
(Með þessunr óvænta og sterka leik
hrifsar Kortsnoj til sín frunr-
kvæðið.)
29. bxc3 Dc4!
30. Db6
(Eftir 30. Dxc4 Hxc4 ásanrt 31. -
I lfc7 á hvítur nrjög ólrægt unr vik.)
30. .. Dxe4 34. Hxc3 bxc3
31. Hf4 Dxd5 35. Dc6Dc5
32. Hd4 Dg5 36. Hxd6.
33. Hddl Hxc3
(Afar erfiða vörn teflir Portisch
nrjög vel. Ilann gætir þess vand-
lega að svarti hrókurinn konrist
ekki í spilið. Þannig gekk 36. Dxc5
ekki vegna 36. - dxc5 37. I lcl I Ic7
og nreö hrókinn á bak við peðið
vinnur svartur létt.)
36. ..Db4
37. lldl 1)1)2
(Nú er úr vöndu aö ráða. en hvítur
hittir á eina varnarleikinn.)
38. Hd4! He7 40. Hxc3 Hel +
39. Hc4 g5 41. Kg2 Dbl
(llér fór skákin í bið. Svartur er
nreð ýnrsar Irótanir í framnri en
Irvítur vísar þeim á bug af öryggi.)
42. 1)4!
(Drottningin á c6 valdar kónginn
sinn vel.)
42. .. gxh4
43. gxh4 De4+
44. Dxe4 Hxe4
45. Hc5 Hxa4
46. Kf3 Kg6
47. 1)5+ Kh6
48. 1115 Kg7
49. Hb5 Ha2
50. Kg3 a4
51. Ha5 a3
52. Kf3 Kh6
53. Kg3 Hal
54. Kg2 a2
55. KI3 Hgl
56. Hxa2 Kxh5
57. Ha8 Hg5
.- Jafntefli. Hörð baráttuskák, full
af duldunr nreiningunr.
Skákþing Reykjavíkur hefst í
dag í húsakynnunr Taflfélags
Reykjavíkur og verður mótshaldið
með hefðbundnu sniöi. Margir af
snjöllustu skákmönnunr
höfuðborgarsvæðinu verða meðal
þátttakenda ög þegar þessar línur
konra fyrir augu lesenda verður
ekki orðið of seint að skrá sig til
leiks.
Veist
þú hverju
það getur
forðað
UXF
FERÐAR