Þjóðviljinn - 08.01.1983, Qupperneq 32

Þjóðviljinn - 08.01.1983, Qupperneq 32
DJÖÐVIUINN Helgin 8. - 9. janúar 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9—20 mánudag til föstudags. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum Aðalsími Kvöldsími Helgarsími símum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9—12 er hægt aö ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 afgreiðslu 81663 Snúist gegn 50% hækkun fargjalda Strætisvagna Reykjavikur: Verðlagsstoinun krefst lögbanns! Mun styðja við bakið á Verðlagsstofnun, segir Ragnar Arnalds fjármálaráðherra „Mér sýnlst einboðið að standa við bakið á Verlagsstofnun í tilraunum hennar til að berjast gegn þessum óhóflögu og löglausu hækkunum á fargjöldum Strætisvagna Reykjavíkur sem borgar- stjórnarmeirihlutinn í Reykjavík hefur ákveðið og tóku gildi í gærmorgun“, sagði Ragnar Arnalds fjármálaráðherra í samtali við Þjóðviljann í gærkvöldi. Verðlagsstofnun hefur ákveðið að krefjast þess að borgarfógeti leggi lögbann við hinni ólögmætu hækkun á fargjöldum Strætis- vagna Reykjavíkur, sem meirihluti borgarstjórnar Reykjavíkur hefur samþykkt. Tók hækkunin gildi í gær án þess að fyrir lægi samþykki Verðlagsráðs, einsog lögkveða á um. Hækkun fargjald- anna er hvorki meira né minna en 46.5% að meðaltali, samkvæmt upplýsingum borgarhagfræðings. Verðlagsstofnun hefur farið þess á leit við fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs að hann veiti atbeina sinn í málinu og leggi fram þá lögbannstryggingu sem krafist verður til þess að lögbannið nái fram að ganga. Fjármálaráðherra hefur einsog áður sagði lýst þeirri skoðun sinni að það beri að standa við bakið á Verðlags- stofnun í þessu máli, eins og hann komst að orði. „Égbafði ekkert um þetta mál heyrt um miðjan dagí gærogmér hefur því ekki gefist tími til að skoða málið til hlýtar en formleg afgreiðsla málsins fer fram strax eftir helgina“, sagði Ragnar Arn- alds fjármálaráðherra í gærkvöldi. -v. 12 hendur á lofti; einhliða hækkun. Frá afgreiðslu í borgarstjórn í fyrrakvöld. Ljósm. -eik, Heildarfiskaflinn 1982: Nær helmingi minni en 1981 Þorskaflinn minnkaði um 90 þús. lestir Komnar eru bráðabirgðatölur yflr heildar fískafla íslendinga árið 1982 og varð hann 762.907 lestir á móti 1.434.857 árið 1981. Munur- inn er hvorki meira né minna en 672 þúsund lcstir. Þorskaflinn varð 372.566 lestir en var 461.895 lestir árið á undan, og því nær 90 þúsund lestum minni þorskafli í ár. Annar botnfiskafli en þorskur jókst hins vegar svo nam að magni um það bil helming af minnkun þorskaflans, en þar er um mun verðminni fisktegundir að ræða. í heild var botnfiskaflinn um 670.000 tonn á síðasta ári, en hafði verið nær 716.000 tonn árið 1981. Loðnuafli var aðeins 13.244 tonn á síðasta ári, 642.430 tonn árið áður, sem sagt aflinn í fyrra var aðeins um 2% þess loðnuafla, sem hér veiddist árið 1981. Síldarafli var á síðasta ári 55.545 tonn en árið áður 39.097 tonn. -S.dór. Afgreiðsla fjárhagsáœtlunar Reykjavíkur: Felldu tillögur minnihlutans Hendur 12 borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins voru rígbundnar við afgrciðslu fjárhagsáætlunar Reykjavíkurborgar í gærmorgun. Aðeins einu sinni fékk tillaga frá minnihluta einhvern stuðning; það var þegar Magnús L. Sveinsson greiddi atkvæði með tillögu Al- þýðubandalagsins um styrk til Listasafns alþýðu. Það dugði þó ekki til. Allar breytingatillögur minni- hlutans, stórar sem smáar voru felldar. Af málum sem ekki fengu stuðning má nefna tillögur Alþýðu- bandalagsins um einfalda verðlags- hækkun í stað niðurskurðar á styrkjum til Alþýðuleikhússins, Framfarafélags Breiðholts, Leigjendasamtaka og Torfusam- taka; tillögu um 200 þúsund krónur til að bjarga Reykjavíkurmynd Lofts Guðmundssonar frá 1940- 1942 frá eyðileggingu; tillögu um að gera upp eina íbúð í Bjarnaborg og uppfylla kröfur eldvarnareftir- lits, og svo mætti lengi telja. -ÁI 84,6% hœkkun á fargjöldum frá 16. nóvember: 13—15 árn böm greiða miljónir í strætó í ár Tillögur AB um hœkkað aldursmark vísað frá í borgarstjórn Tillögu Alþýðubandalagsins um að aldurstakmark barnafargjalda með strætó yrðu hækkuð úr 12 í 15 ár eftir 84,6% hækkun fargjalda á hálfum öðrum mánuði var vísað frá með atkvæðum 12 borgarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins í gær- morgun. Nafnakall fór fram um til- löguna. f frávísunartillögu íhaldsins segir að öll rök skorti til þess að breyta viðmiðunaraldrinum auk þess að ekki sé gert ráð fyrir fé í þessu skyni í fjárhagsáætluninni. í máli Davíðs Oddssonar borgarstjóra kom fram að hér væri um miljónir að ræða. Guðrún Ágústsdóttir sagði at- hyglisvert að ef 3-4000 börn á aldr- inum 13, 14 og 15 ára hættu að greiða fullorðinsfargjald yrði um margra miljóna tap að ræða fyrir borgarsjóð. í ljós kæmi að þessi aldurshópur myndi á árinu 1983 greiða fléiri miljónir í strætisvagn- afargjöld eftir þá hækkun sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur nú ein- hliða ákveðið. Þetta væri staðfest- ing á þeim orðum Alþýðubanda- lagsins að hækkunin bitnaði verst á efnalitlum og barnmörgum fjöl- skyldum. Tillagan væri einmitt fram komin vegna ákvörðunar um 50% hækkun fargjalda nú, en á hálfum öðrum mánuði, þ.e. frá 16. nóvember, hefðu strætisvagna- gjöld í Reykjavík hækkað samtals um 84,6%. Nafnakall var einnig um 50% hækkunina nú og greiddu allir full- trúar minnihlutans atkvæði gegn henni og þegar tillaga Kvenna- framboðs um að fargjöld stæðu undir 60% af rekstri í stað 70%, eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið, var borin upp, studdu 9 fulltrúar minnihlutans þá tillögu líka. Meirihluti 12 Sjálfstæðis- manna stendur því einn að þessari árás á kjör strætisvagnafarþega. 50% hækkun SVR Hækkar vísitöluna segir Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ „50% hækkun á fargjöldum SVR hækkar framfærsluvísitöluna um 0,8% samkvæmt núgildandi vísitölukerfi“, sagði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ í gær. „í nýja vísitölugrunninum myndi hún vega töluvert minna eða lík- hefur fengið yfirlýsingu ríkisstjórn- ar um að hún muni sjá til þess að verðhækkanir á opinberri þjónustu verði ekki nema á síðustu 10 dög- um fyrir útreikning verðbóta, sem næst verður 1. febrúar. Hér munar því um tveimur vikum, en hækkun- um 0,8% in fæst fyrst bætt í verðbótum 1. ntars nk. Ásmundur sagði að Reykjavíkurborg hefði hingað til miðað hækkun sína á sínum þjón- ustugjöldum við verðlagstímabilin enda hefðu hækkanir hingað til verið staðfestar af viðkomandi yfir- völdum. -ÁI lega um 0,3% hækkun, þar sem neyslukönnun sýndi að notkun strætisvagna hefur minnkað hjá meðalfjölskyldunni. Hins vegar er ljóst að fyrir lágtekjufólk, sem vegna lítilla tekna notar strætis- vagna en ekki einkabíl, er þessi tala, 0,8%, síst of há“, sagði Ás- mundur. Um hækkunina að öðru leyti sagði hann að ekki hefði verið sótt um hana til verðlagsyfirvalda, þannig að ekki yrði séð að hún væri framkvæmd á löglegan hátt. Enda hefðu verðlagsyfirvöld ákveðið að grípa til ráðstafana til að hnekkja henni. Engin lög eða reglur eru til um það hvenær hækka megi vörur og þjónustu, en verkalýðshreyfingin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.