Þjóðviljinn - 11.01.1983, Qupperneq 2
2 SÍÐA - ÞJÖÐVILJINN Þriðjudagur 11. janúar 1983
Einn
viðgerðar-
maður á
hverja
58 bíla
Bílaflotinn
tvöfaldaöist á
áratug
Samkvæmt nýjustu tölum um
fjölda starfsfólks í einstökum
atvinnugreinum hérlendis, en þær
eru frá árinu 1980, þá eru ársverk
er snerta bíla á einn eða annan
hátt, þar með talin sala á bif-
reiðum og bilvörum, hátt í 2400.
Ef einungis er litið á mannafla-
tölur iðngreinanna innan bíl-
greinarinnar kemur í ljós, að á
árinu 1980 voru ársverkin tæp-
lega 1800. Þessar upplýsingar má
lesa í nýjasta fréttabréfi Lands-
sambands iðnaðarmanna.
Til að skýra þessar tölur nánar
má geta þess að heildarvinnuafl í
bílgreinum er um 40% af vinnu-
afli við fiskveiðar. Þessa þróun
má ekki síst rekja til stóraukinnar
bíleignar landsmanna á undan-
förnum árum. Nú er svo komið
að íslendingar eru orðnir einhver
mesta bílaþjóð heims, með 435
bifreiðar á hverja 1000 íbúa mið-
að við tölur frá árinu 1981. Sem
dæmi um þessa þróun má geta
þess að árið 1971 var bílafjöldi í
landinu rétt yfir 50 þús. en 10
árum síðar hafði bílaflotinn tvö-
faldast, var kominn yfir 100 þús.
bíla. Fyrir 10 árum var bílafjöldi á
hvern viðgerðarmann að meðal-
tali 32,7 bílar, en árið 1980 voru
orðnir 58 bílar á hvern bifvéla-
virkja.
Skák
Karpov að tafli - 78
Karpov sigraði Svetozar Gligoric í 13. um-
ferð millisvæðamótsins. Kortsnoj vann Ra-
dulov svo þeir voru enn jaf nir, báðir með 10
vinninga. Larsen tapaði óvænt fyrir Quint-
eros sem gerði möguleika hans til að kom-
ast áfram hæpna. I 3. - 4. sæti eftir þessa
umferð voru Byrn og Smejkal með 9 vinn-
inga. í 5. sæti kom Hubner með 8V2 v. og í
6. sæti Larsen með 8 vinninga. Hér koma
lokin úr endatafli Karpovs og Gligoric:
Karpov - Gligoric
58. d6 Hc1 +
59. Ke2 Hc2+
60. Kf1 Hc6
61. Kg2 Hb6
62. Rc7 Hb7
63. Rd5! - Svartur gafst upp.
„Lyftan“ mjakast upp jökulinn. 240 Pakistanar voru í burðarliðinu, þar af fóru 15 þeirra upp í efstu búðir.
Hœst, brattast
og dýrast
Efsti hlutinn var erfiðastur.
Þarna er brattinn um 50 gráður
en myndin er tekin í 7.800 metra
hæð.
Þetta var lengsta brunferð sem
farin hefur verið. Það að auki var
brunað á hærri slóðum en áður
hefur þekkst. Brattinn var vlða
hrikalegur. Þessi brunferð kost-
aði hvorki meira né minna en 4
miljónir íslenskar. Þetta er ör-
ugglega dýrasta skíðaferð sem
farin hefur verið.
Það tók tvöhundruð og fimm-
tíu manns þrjátíu og fimm daga
að láta draum ævintýramannsins
Sylvain Saudan rætast. Að kom-
ast á toppinn á Hidden Peak í
Himalayafjallgarðinum sem er í
8.068 metra hæð yfir sjó, spenna
á sig brunskíðin og láta sig húrra
niður ótrúlegan bratta á ótrúlegri
ferð allt niður í 5.200 metra hæð,
þar sem ævintýrinu lauk.
Brunferðin tók aðeins 9 klukk-
ustundir, í það heila, en ferða-
lagið upp og niður fjallið á annan
mánuð.
Hidden Peak er nyrst í Pakist-
an skammt frá kínversku landa-
mærunum. f austur sér til kon-
ungs fjallanna Mount Everest
sem er í 8.884 metra hæð.
Þeir sem náðu á toppinn á
Hidden Peak voru auk ofurhug-
ans Sylvain Saudan, frönsku
alpafjallgöngumennirnir Marie-
Jose Valensot, Daneiel Sembla-
net og Jean-Pierre Ollagnier sem
stjórnuðu uppgöngunni og einn
af pakistönsku burðarmönnun-
um Mohamed Ali. Ferðin upp
gekk erfiðlega, en að lokum
hafðist það. Þetta var ekki í fyrsta
sinn sem tindur Hidden Peak er
klifinn, en í þetta sinn notuðu
fjallgöngumennirnir ekki súrefni
í lokaáfanganum. Það var aðeins
Saudan sem tók með sér skíðin
upp, og mður brattann fór hann.
„Fyrsti kaflinn var hrikalega
brattur, allt að 50 gráða halli“,
sagði kappinn þegar hann kom í
mannabyggðir aftur. Hann
brunaði í fyrsta áfanga samtals í
tvær klukkustundir, en þá var á-
kveðið að bíða með frekara brun
til morguns. Þá var hann staddur í
7.300 metra hæð, hafði lagt að
baki tæpa 800 m. fallhæð á
tveimur klukkustundum.
Lokaáfanginn var farinn í einni
lotu og það tók rétt rúmar sjö
klukkustundir að bruna niður í
5.200 metra hæð þar sem enda-
stöðin var.
Á bak við þetta óvenjulega
ferðalag bjó tveggja ára athugun,
skipulagning og annar undirbún-
ingur. Og hvað kostnaðinn
áhrærir þá kostaði „ferðin með
lyftunni upp“, eins og Saudan
orðaði ferðalagið, um 4 miljónir
íslenskar. Lyftan samanstóð af
240 pakistönskum burðar-
mönnum og 10 alpafjallgöngu-
mönnum.
(Endursagt -lg.)
Umferðar-
öryggisár
gengið í garð
Eins og fram hefur komið í
fréttum hefur Norðurlandaráð
ákveðið að í ár verði sérstök
áhersla lögð á öryggi í umferðinni
á Norðurlöndum. Hugmyndin er
að vekja fólk til umhugsunar um
þátt hvers og eins í umferðinni.
Mikið undirbúningsstarf hefur
verið unnið á síðustu mánuðum
svo vel megi takast á þessu nor-
ræna umferðaröryggisári, sem er
nýbyrjað. Haldnar verða
ráðstefnur á öllum Norðurlönd-
um um einstök atriði umferðar-
öryggis, gerðar hafa verið
fræðslumyndir ætlaðar til sýning-
ar í sjónvarpi um unglinga í um-
ferðinni, hjólreiðafólk, gangandi
vegfarendur og aldraða í umferð-
inni.
Hér innanlands er ýmislegt á
döfinni eins og t.d. teikni- og
ritgerðarsamkeppni í grunnskól-
unum, vikulegir þættir um
umferðaröryggismál í útvarpi,
ráðstefnur og fundir. Þá er hug-
myndin að halda sérstakar
umferðarvikur í einstökum
sveitarfélögum.
Eitt af plakötum Umferðarráðs á umferðaröryggisári,