Þjóðviljinn - 11.01.1983, Qupperneq 4
4 SiÐA — ÞJÓÐVILJINN, Þriðjudagur II. janúar 1983
UOBVIUINN
Málgagn sósíalisma, verkalýðs-
hreyfingar og þjóöfrelsis
Utgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans.
Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson.
’Umsjónarmaður Sunnudagsbiaðs: Guðjón Friðriksson.
Auglýsingastjori: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir
Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson.
Blaðamenn: Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús
H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson,
Þórunn Sigurðardóttir, Valþór Hlöðversson.
íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson.
Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson.
Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason
Handrita- og prófarkalestur: Elias Mar
Augíýsingar: Ásiaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Haröarson.
Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Kristín Pétursdóttir.
Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir.
Bílstjóri: Sigrún Bárðardóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson.
Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir.
Otkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33
Umbrot og setning: Prent.
Frentun: Blaðaprent h.f.
Morgunblaðið vill
óbreytt orkuverð
• Það er greinilegt að engin takmörk eru fyrir því hversu
langt Morgunblaðið leyfir sér að ganga í auðmjúkri þjónustu
við auðhringinn Alusuisse, sem hér rekur álverksmiðju í
Straumsvík.
• í forystugrein Morgunblaðsins á sunnudaginn var er kom-
ist svo að orði: - „Öllum er ljóst, að miðað við stöðu ál-
iðnaðarins í heiminum er varanleg verðhækkun á raforku til
álversins í Straumsvík óraunhæf nema samþykkt verði að
auka megi framleiðslugetu þess.“
• Morgunblaðið heldur því sem sagt blákalt fram að krafa
af okkar hálfu um hækkað raforkuverð til álversins í
Straumsvík sé einfaldlega „óraunhæf“ nema búið sé að
stækka verksmiðjuna svo og svo mikið! - Það er ekki ama-
legt fyrir álfurstana í Sviss þá dr. Múller ogherra Sorato aðfá
svona yfirlýsingar frá íslandi, og ekki að undra þótt þeir lifi í
voninni um stjórnarskipti á íslandi.
• Morgunblaðið segist telja óraunhæft að við íslendingar
séum að heimta hærra raforkuverð af auðhringnum en þessi
6,5 mill, sem er það lægsta orkuverð sem finnst hvar sem
leitað er í nálægum löndum í hliðstæðum viðskiptum
óskyldra aðila.
• Morgunblaðið Iætur hins vegar að því liggja, að væntan-
lega geti stjórn Landsvirkjunar valdið þáttaskilum í samn-
ingum við auðhringinn um orkuverðið. Þau þáttaskil, sem
Morgunblaðið vill sjá eru hins vegar greinilega nýir samning-
ar um óbreytt orkuverð fyrst allar kröfur um hækkun eru
stimplaðar óraunhæfar.
• En er nú víst, að Morgunblaðið eigi sér vísan bandamann í
þessum efnum þar sem er stjórn Landsvirkjunar? Við
leyfum okkur að draga það í efa. Að vísu má vera, að
framganga Jóhannesar Nordal, stjórnarformanns Lands-
virkjunar í fréttatíma sjónvarpins á föstudaginn var hafi
gefið Morgunblaðsmönnum átyllu til að ætla að svo væri. En
hér er á fleira að líta.
• í opinberri greinargerð um rafmagnsverð til stóriðju, sem
Landsvirkjun sendi frá sér í septembermánuði s.I. segir svo á
blaðsíðu 31:
• „Meðalverð á raforku til álvera í Evrópu var árið 1981 um
20 mill. Á sama tíma greiddu öll álver Alusuisse að meðaltali
22 mill og álver Pechiney greiddu 24 mill. Spænskar álverk-
smiðjur fóru fram á niðurgreiðslur á raforku niður í 25 mill,
en fengu niður í 27 mill til að þær yrðu samkeppnisfærar.
Þessar tölur benda til þess, að ef tekið er tillit til flutnings-
kostnaðar og allur annar kostnaður er eins, ætti ISAL að
geta greitt allt að 22 mill fýrir orkuna. Þegar á allt er litið,
virðist raunhæft að fara fram á tvö- til þreföldun á núverandi
orkuverði til ÍSAL.“
• Við biðjum menn að taka vel eftir því, að þetta er orðrétt
úr greinargerð Landsvirkjunar frá því í haust, og þarna
kemur fram sama niðurstaða ýtarlegra athugana og áður lá
fyrir frá sameiginlegum starfshópi iðnaðarráðuneytis,
Landsvirkjunar, Orkustofnunar og Rafmagnsveitna
ríkisins. 1
• Með öðrum orðum: Það er Morgunblaðið eitt og pólitísk-
ir aðstandendur þess, sem telja allar kröfur um hærra orku-
verð til álversins óraunhæfar. Á sama tíma er það niðurstaða
allra sérfróðra og óvilhallra aðila, að kröfur um tvöföldun til
þreföldun orkuverðsins séu sjálfsagðar og rökin fyrir þeim
sterk.
• Afstaða Morgunblaðsins í þessu mikilvæga máli gengur
þvert gegn íslenskum þjóðarhagsmunum og er fordæm-
anleg.
• í gögnum sem Ragnar Halldórsson, forstjóri ISAL sendi
fjölmiðlum fyrir stuttu segir að meðalorkuverð hjá álverum í
heiminum og hjá Alusuisse sérstaklega sé „ekki 22-24 mill
sem ráðherrann villveraláta,heldur milli 16 og 17 millí‘Þetta
er einkar athyglisverð yfirlýsing og hvað sem réttmæti henn-
ar líður þá gefur hún tilefni til að slá því föstu, að ágreiningur
milli aðila varðandi meðalorkuverð hjá verksmiðjum AIu-
suisse erlendis og til álvera í heiminum yfirleitt snúist um það
hvar á bilinu 16 til 24 mill þetta meðalverð liggi.
• Morgunblaðið telur hins vegar að hér sé óraunhæft að
krefjast hækkunar frá smánarverðinu 6,5 millH
I kaffi hjá
Jóni Baldvin
„Þetta byrjaði allt saman í kaffi
hjá Jóni Baldvin. Það var árið
1974, hann var skólameistari
Menntaskólans á ísafirði og ríkis-
stjórnin hafði áætlanir um að
senda herinn úr landi.“ Þannig
hefst inngangur í Helgarpósti að
viðtali við Arnór Sigurjónsson
soldáta að mennt og lesendur
hljóta að kikna í hnjánum and-
spænis svo dýrmætri þekkingu og
reynslu. Auk þess er með viðtal-
inu gefið til kynna að stríð og
vopnaskak hafi tilgang, já æðri
tilgang.
„I alvöru stríði kynnist maður
sjálfum sér og sínum eigin mörk-
um“, segir maðurinn og göfug
sjálfsíhugun af þessu tagi hlýtur
að réttlæta vopnuð átök nær færi
gefst. Helgarpósturinn er veikur
fyrir þessari rómantík; strákur í
kaffi hjá Styrmi og Jóni Baldvin,
sleginn til soldáts, einkennis-
klæddur andspænis Rauða hern-
um, í sprengjuregni í Líbanon,
yfirlögregluþjónn sem vill kenna
lögreglumönnum að fara með
skotvopn, tilvonandi hernaðar -
ráðgjafi.
Helgarpósturinn segir: „Þeir
sátu í eldhúsinu hjá skólameistar-
ahjónunum, skólabróðir þeirra
Jóns og Bryndísar, Styrmir
Gunnarsson ritstjóri Morgun-
blaðsins, Einar Guðfinnsson frá
Bolungarvík og Arnór Sigurjóns-
son. Hinir síðarnefndu nementi-
ur í þriðja bekk skólans og talið
barst að því hvað ungir menn ætl-
uðust fyrir að menntaskóla lokn-
um. - Það er ekki annað að gera
en fara út og læra til hermennsku
í þeirri von að geta talað um þau
mál af skynsemi, lagði Arnór til
málanna."
Teningnum var kastað.
Andspœnis
Rauða hernum
„En hugmyndin var fædd og ári
síðar var hann kominn í nýliða-
skóla norska hersins. Hann kom
heim aftur í sumar, sjö árum
síðar, liðforingi að tign og hefur
stjórnað mönnum sínum í
Norður-Noregi andspænis Rauða
hernum, starfað í yfirherstjórn
Norður-Noregs og friðargæslu-
sveit Sameinuðu þjóðanna í Lí-
banon.“ Þannig hefur víkings-
i
eðlið fengið að njóta sín í Arnóri
þó vegur hans hafi farið minnk-
andi. „Nú hefur hann fengið
skrifstofu í Lögreglustöðinni í
Reykjavík og er ekki lengur
liðsforingi, heldur aðstoðaryfir-
lögregluþjónnog kennir nemend-
um Lögregluskólans“, segir
Helgarpóstur og virðist ekki al-
veg sáttur við hlutskipti manns-
ins.
Það er dýrlegur
draumur...
Síðan spyr biaðið:
„Er ekki draumur þinn - með
hliðsjón af menntun þinni og
þjálfun - að koma hér upp sér-
þjálfaðri lögreglusveit?
- Það er mat yfirvalda á hverjum
tíma að ákveða hvað þarf að
gera. Og eiginlega æiti ég að vísa
þessari spurningu hér upp á
næstu hæð, segir Arnór og bendir
með vísifingri uppfyrir sig. Það
er lögreglustjóri sem á að svara
þessu.“
í hans hendi...
Jamm, það er í hans hendi hvað
verður úr þessum pilti sem hefur
verið með í stríði, “þar sem
maður kynnist sjálfum sér“. Það
getur verið býsna strembið að
stríða. „Þess vegna lætur maður
mennina gjarnan fara að grafa
skotgrafir eða hlaða skotfæra-
belti - aðallega til að dreifa hug-
anum“, segir Arnór Sigurjóns-
son.
„Er íslenska lögreglan tilbúin að
takast á við vopnaða menn-''
hugsanlega erlenda hryðjuverka-
menn?“ spyr Helgarpóstur af því
að innlendir uppreisnarseggir
koma ekki til greina. „Já, ég hef
fyllstu trú á því, að íslenska lög-
reglan gæti gert það sem gera
þyrfti", svarar Arnór og lesand-
inn verður að ráða í martröðina
þegar á að fara brytja niður
mannskap eins og á Sturlunga-
öld, eða til hvers eru vopnin?
Hann vill verða
hernaðar-
ráðgjafi
„Hitt er þó kannski mikilvægara
í huga liðsforingjans fyrrverandi,
að hann hefur flutt til landsins
nútíma hernaðarþekkingu
byggða á sjö ára reynslu og
námi.“
Það vantar hernaðarráðgjafa.
„Það er undir slíkt sem ég hef
verið að undirbúa mig“, segir
Arnór og er búinn að gleyma að
ætlunin var í upphafi að geta tal-
að af viti um „varnarmál". Það er
svo spurning, hvort ekki væri
heppilegra að hernaðarráðgjafi
kæmi af öðrum vettvangi en All-
oy Express Natós. Spurning
hvort drengurinn þyrfti ekki að
komast í læri hjá Rauða hernum
sem hann stóð andspænis forðum
í fullum skrúða, svona rétt til að
verða líklegri til hlutlauss mats.
En það hlýtur að vera æsileg til-
hugsun fyrir þá í varnarmáladeild
utanríkisráðuneytisins að fá
ráðunaut sem staðið hefur and-
spænis Rauða hernum.... - óg>
Kauplœkkanir
og kerfisvarsla
f skætingspistli í Tímanum í sl.
viku var því haldið fram, að Al-
þýðubandalagið standi gegn
skynsamlegum efnahagstil-
lögum. En hvernig er það með
þessar tillögur Framsóknar-
flokksins í efnahagsmálum...
hvers vegna í ósköpunum birtir
Tíminn þær aldrei?
Til glöggvunar skal á það bent,
að efnahagstillögur Framsóknar-
flokksins snúast um tvennt: 1)
kauplækkanir 2) að verja
óbreytta yfirbyggingu og stjórn-
kerfi þjóðfélagsins. Með öðrum
orðum stendur ekki annað eftir
en kauplækkun á kauplækkun of-
an. Þessar tillögur eru ekki settar
á blað til birtingar opinberlega.
En þó má finna í ýmsum gögnum
stjórnarsamstarfsins fróðlegar
heimildir um kauplækkunarár-
áttu þessa flokks.
Verðbólgu-
valdur
í ofanálag
Þess er heldur ekki víða getið í
málgögnum Framsóknarflokks-
ins, að flokkurinn er einn megin
verðbólguvaldur síðustu ára.
í því sambandi væri ekki úr
vegi að birta opinberlega yfirlit
yfir áhrif fiskverðsákvarðana for-
manns Framsóknarflokksins á
verðbólgustærðir. Ekki síst væri
athyglisvert að taka á því hvernig
Framsóknarflokkurinn stóð að
síðustu fiskverðákvörðun. Þjóð-
viljinn fullyrðir að sull sjávarút-
vegsráðherra með gengi í tengsl-
um við fiskverðsákvarðanir hafi
eitt sér munað 10-20% í verð-
bólgu þessa árs. Mætti Tíminn
gjarnan birta yfirlit yfir gengistil-
lögur Framsóknarflokksins í nú-
verandi ríkisstjórn og verðbólgu-
áhrif þeirra tillagana. Þá kemur
væntanlega fram niðurtalningar-
aðferðin og kostir hennar.
Hœgri sigur
í Framsókn
Það fór eins og vænta mátti að
Ólafur Jóhannesson sigraði í
prófkjöri Framsóknarflokksins.
Hins vegar varð þeim sem von-
uðust til að kona skipaði annað
sæti ekki að ósk sinni (engar
breytingar í Framsókn). Hins
vegar varð Haraldur Ólafsson,
sem skrifað hefur langar greinar
og vandaðar um næstu hægri
stjórn, í öðru sæti. Það fer því
ekki á milli mála, að það var fylk-
ing Helguvíkurmanna og Natós,
sem þarna vann sigur. -óg
k.