Þjóðviljinn - 21.01.1983, Side 4

Þjóðviljinn - 21.01.1983, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN, Föstudagur 21. janúar 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Utgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einár Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. ‘Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmunds- son, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur Þ. Jónsson Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Otkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaöaprent h.f. Níu líf? • Þessi ríkisstjórn hefur níu líf, sagði gamalreyndur Sjálf- stæðismaður, sem við ræddum við fyrir nokkrum dögum. Af skiljanlegum ástæðum voru þeir margir, sem töldu daga ríkisstjórnarinnar talda, þegar hún missti meirihluta sinn í neðri deild í haust við brotthlaup Eggerts Haukdal. - Nú eru hins vegar horfur á, að ríkisstjórnin komi ýmsum meiriháttar málum fram á Alþingi, m.a. vegna klofnings í liði stjórnar- andstæðinga. • Sem dæmi um þetta má nefna: • Frumvarp ríkisstjórnarinnar um hækkun útflutnings- gjalds af sjávarafurðum %og aðrar hliðarráðstafanir vegna fiskverðsákvörðunar um áramót sýnist eiga greiða leið i gegnum þingið, þar sem einn stjórnarandstæðinga, Vil- mundur Gylfason, hefur lýst yfir að hann muni ekki bregða fæti fyrir samþykkt þess. • Hvað varðar afgreiðslu bráðabirgðalaganna um efna- hagsráðstafanir frá því í sumar sýnast veður nú einnig hafa skipast í lofti. Bráðabirgðalögin hafa nú verið afgreidd frá efri deild, en flestir hafa talið að þau væru dæmd til að falla á jöfnum atkvæðum í neðri deild, þar sem sæti eiga 20 stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar og 20 stjórnarandstæðing- ar að meðtöldum Eggert Haukdal. • En viti menn - þegar Alþing kom saman til funda á ný að loknu þinghléi, þá var bóndinn á Bergþórshvoii ekki mættur til leiks, hafði tekið sér frí frá þingstörfum vegna anna við önnur mikilvæg verkefni. Og í sæti Eggerts var sestur varamaður hans, Siggeir Björnsson, bóndi í Holti á Síðu. Við höfum ekki séð neina yfirlýsingu frá Siggeir um afstöðu hans til bráðabirgðalaganna, en mörgum er kunnugt að hann hefur verið eindreginn stuðningsmaður ríkisstjórnarinnar, Iíka eftir að Eggert Haukdal réðst í aðra vist. Og svo mikið er víst, að Siggeir í Holti telur sig með öllu óbundinn af yfirlýsingum Eggerts á Bergþórshvoli. • Með tiliiti til þessa kann svo að fara, að bráðabirgðalögin verði þrátt fyrir allt samþykkt á Alþingi, þó of snemmt sé að fullyrða neitt um það enn sem komið er. • Við sjáum hvað setur. • En þótt ýmsir telji ríkisstjórnina hafa níu líf, eða fleiri, þá er illt að eiga framgang mála undir geðþótta einstakra þing- manna stjórnarandstöðunnar, og þess vegna nauðsynlegt að kosningar fari fram á næstu mánuðum. k. Valhöll í logum • Pótt Morgunblaðið og ýmsir fleiri leitist við að auglýsa Geir Hallgrímsson sem friðarhöfðingja, þá sýnist flest benda til þess, að aldrei hafi eldar iogað glaðar innan Sjálfstæðis- flokksins en einmitt nú. • Svo er að sjá, að í nær hverju kjördæmi Iandsins geysi hatrammar deilur um val frambjóðenda, og í mörgum tilvik- um standa átökin milli liðþjálfa flokkseigendafélagsins ann- ars vegar og hins vegar uppreisnarmanna gegn alræði Geirs- klíkunnar. • Óþarfi er að rifja upp sneypuför sjálfs flokksformannsins, Geirs Hallgrímssonar, en hann lenti í sjöunda sæti í prófkjöri flokksins í Reykjavík. • Á Vesturlandi og á Norðurlandi vestra var Eyjólfi Kon- ráð Jónssyni og Ingu Jónu Þórðardóttur teflt fram gegn ráð- herrunum Pálma Jónssyni og Friðjóni Þórðarsyni. Bæði hlutu þau Eyjólfur og Jóna herfilega útreið. • Á Vestfjörðum þorðu Geirsmenn ekki í prófkjör af ótta við fylgi þeirra Sjálfstæðismanna, sem stutt hafa ríkisstjórn- ina. Þar var Sigurlaugu Bjarnadóttur frá Vigur sparkað og í stað hennar settur á listann dyggur lærisveinn Hannesar Hólmsteins og Miltons Friedman. • Á Norðurlandi eystra geysar stórstyrjöld allra gegn öllum innan Sjálfstæðisflokksins og enginn getur treyst næsta manni. • Á Suðurlandi fer sendiboði Geirs Hallgrímssonar, fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasambandsins, um héruð og reynir að grafa undan fylgi heimamanna og troðast á þing til styrktar Geir og Vinnuveitendasambandinu. Það skyldi þó ekki vera að annir Eggerts Haukdal eigi rætur að rekja til baráttunnar við þennan sendiboða flokkseigendafélagsins? Þannig mætti lengi telja. • Valhöll Sjálfstæðisflokksins brennur.' klippt Óháð öllum stjórnmála- flokkum Um áramótin hóf ný stofnun starf sitt, stofnun Jóns Þorláks- sonar, en hann var forsætisráð- herra og formaður Sjálfstæðis- flokksins. í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir m.a. um tilgang stofnunarinnar: „Tilgangur hennar er að efla rannsóknir í atvinnumálum og stjórnmálum á fslandi með út- gáfu rita, styrkjum til fræði- manna, söfnun og dreifingu upplýsinga og öðru starfi eftir þörfum. Stofnunin er óháð öllum stjórnmálaflokkum og hagsmunasamtökum". Hér er komin enn ein stofnun- in undir veldi hurgeisanna til við- bótar við Vinnuveitendasam- bandið, Verslunarráðið, Sjálf- stæðisflokkinn og m.fl. Harðneskjuleg hugmyndafrœði Yfirleitt eru það sömu menn- irnir sem veljast sem hugmynd- afræðingar að þessum stofnun- um. Og oftast nær tilheyra þeir hinum harðneskjulega Chicago- skóla leiftursóknar íhaldsins. f framkvæmdaráði þessarar stofn- unar eru menn á borð við Hjört Hjartarson stórkaupmann, Pétur Björnsson forstjóra í Kóka kóla, Ingimund Sigfússon stór- kaupmann í Heklu-umboðinu og síðdegisblaðinu, að ógleymdum Ragnari Halldórssyni forstjóra Aluisuisse-útibúsins og formanni Verslunarráðsins. I rannsóknar- ráði stofnunarinnareru m.a. Jón- as Haralz og Þráinn Eggertsson. Segja má að stofnendur þessa fyrirtækis hafi altént húmorinn í vegarnesti, því þeir kalla fyrir- tækið óháð öllum stjórnmála- flokkum og hagsmunasam- tökum. Það þarf varla að geta þess, að framkvæmdastjóri þessarar ó- pólitísku stofnunar heitir Hannes H. Gissurarson. Skóli lífsins - peningavit Það er einmitt sami Hannes, sem skrifar um bókmenntir í Morgunblaðið í gær. Þessi nýja gnípa bókmenntanna fjallar þar um ritling frá Sjálfstæðiskvenna- félaginu Hvöt - Frjáls hugsun - frelsi þjóðar - heitir bæklingur- inn og er amríski herinn væntan- lega hafður í huga með titlinum. Hannes segir rit þetta vera hið merkasta. En hann vilji engu að síður gera nokkrar athuga- semdir. Allar eru þær fagurfræði- legs eðlis, en ekki pólitískar: „Ég er sammála Sigríði Arn- bjarnardóttur og Árdísi Þórðardóttur um það, að þekking er dýrmæt. En þó held ég, að menn hafi lagt of mikla áherslu á skólabókar- þekkingu og fróðleik, en of litla á þá þekkingu, sem menn fá ekki nema í skóla lífsins - hagnýta þekkingu, peninga- vit, glöggskyggni, sjötta skiln- ingarvitið, útsjónarsemi, verkkunnáttu og mannþekk- ingu. Menn geta ekki aflað þessarar þekkingar eða nýtt hana nema í frjálsu atvinnu- lífi, eins og margir hag- fræðingar hafa bent á. Sam- keppni á markaðnum er um- fram allt til þekkingaröflunar, hún er „discovery proce- dure“.“ Tek undir með Sigríði... Þá skrifar bókmenntagagnrýn- andinn í anda hins hlutlæga og ópólitíska vísindamanns: „Ég tek þó undir það með Sig- ríði, að menntun í framhalds- skólum á að vera almenn, hún á að vera til þess að gera menn færa um að afla síðar sérþekk- ingar. Þess vegna ætti að kenna íslensku og aðrar tung- ur menningarþjóða, sögu og stærðfræði í framhalds- skólum, en ekki sérgreinar, þær eiga heima í háskólum." Tek síðan undir með Ardísi Og enn við sama heygarðs- hornið: „Ég tek síðan undir það með Árdísi, að hæpið getur verið að draga úr fjárfestingu í menntun, en hún mætti vera meiri í hagnýtri menntun fyrir atvinnuh'fið og minni í ýmsum greinum mannvísindanna, til dæmis félagsfræði, sálfræði og . uppeldisfræði.“ Á móti félags- skap og mann- vísindum Jamm. Hannes er ekki mikið gefinn fyrir mannvísindin fremur en fleiri hugmyndabræður hans af skóla Friedmanns og félaga.' Fólk á ekki að eyða miklum tíma í að íhuga og kynna sér mannlífið, heldur skal markaðurinn kaldur og villtur ráða öllu. Og félags- skapur og samtök eru af hinu illa í þessum vísindum leiftursóknarí- halds allra landa: „Konur eiga því að berjast sem einstaklingar, en ekki sem hópur. Margrét Thatc- her, sem er einn frambærileg- asti stjórnmálamaðurinn á Vesturlöndum á okkar dög- um, hefur ekki hlotið frama sinn af því að hún sé kona.“ Þannig er það nú orðað. Það verður fróðlegt að sjá hvernig nýja kóka-kólastofnunin nýtist Sjálfstæðisflokknum í komandi kosningum. - óg. og skorið Anti kommunismus II Framsóknar- menn í fjöl- miðlum Staksteinar Morgunblaðsins fer mikinn í gær vegna allra þeirra Framsóknarmanna af ríkisfjöl- miðlum sem flykkjast nú í fram- boð fyrir flokkinn sinn. „Sá grunur læðist að manni að þetta sé ekki einleikið", segir Morgunblaðið. Nú má Sjálfstæð- isflokkurinn vel við una hvort sem borið er niður á útvarpi eða sjónvarpi. Og ekkert er eðlilegra en allra flokka fólk sé starfandi við fjölmiðlana einsog annars staðar. Hins vegar læðist að okk- ur sá grunur, að allur þessi fjöldi Framsóknarmanna í hljóðvarp- inu sé að einhverju leyti til orðinn fyrir tilverknað Morgunblaðsins. Það hefur nefnilega alla tíð ærst þegar vikið er í einhverju smá- legu frá stöðluðum viðhorfum í Morgunblaðsstíl í fjölmiðlum þessum. Og fólk vinstra rnegin við miðju virðist hafa sætt sig við að fá aldrei störf hjá þessum ríkis- stofnunum. Það er með öðrum orðurn ritskoðunarpólitík Morg- unblaðsins sem hefur orðið þess valdandi að „óeðlilega" margir Framsóknarmenn vinna hjá út- varpinu. Nær væri að unnafólki, hver svo sem pólitísk lífsskoðun þess kann að vera, að fá störf og verkefni í þessum stofnunum. En þá þyrfti Morgunblaðið að afla sér umburðarlyndis í pólit- ískum efnum, sem stofnun Hann- esar H. Gissurarsonar gæti tæp- ast veitt. Enn fremur yrðu veður- fregnir í sjónarpi og tilkynninga- lestur í hljóðvarpi að fá að vera í friði fyri ritskoðun Moggans. Góð bók „Lesið bók Envers Hoxa: Evrópukommúnismi er andkom- múnismi. Góð bók, sem afhjúpar svikapólitík Alþýðubandalags- ins. Fæst íbókabúð BSK“. Þann- ig hljóðar auglýsing í virtu mál- gagni Albaníukomma, Rödd byltingarinnar, sem er nýkomið út. Seint hefði því verið trúað að Hoxa kallinn ætti eftir að kljást viö Alþýðubandalgið norður í Ballarhafi. - óg. k.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.