Þjóðviljinn - 21.01.1983, Page 16
DWÐVHMN
Föstudagur 21. janúar 1983
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudaí>s. Utan þess tíma er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum sínum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527. umbrot 81285. Ijósmyndir 81257. Aðalsími Kvöldsími Helgarsími afgreiðslu 81663
Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur síma 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348
Lagt að jöfnu:
Einbýlishús
°8 tveggja
herbergja
íbúð
Það kcmur í Ijós í skýrslu Fast-
eignamats ríkisins, að nær sama
fasteignamat er á 150 fermetra ein-
býlishúsi í Vestmannaeyjum og 2ja
herbergja 65 fermetra íbúð í
þriggja hæða blokk í Reykjavík.
Fastcignamat cinbýlishússins, er
690 þúsund kr. cn 2ja herbergja
íbúðarinnar 626 þúsund kr.
Að sjálfsögðu stafar þetta af
þeim gífurlega verðmismun sem er
á fasteignum á höfuðborgarsvæð-
inu og utan þess.
Hér fara á eftir nokkur dæmi um
mat einstakra fasteigna:
Einlyft einbýlishús í Fossvogi í
Reykjavík er metið á 2.356 þús. kr.
Það er 226 fermetrar.
Tveggja herbergja íbúð í þriggja
hæða blokk í Breiðholti, 65 fer-
metrar, er metin á 626 þús. kr.
Fjögurra herbergja íbúð, 81 fer-
metri að stærð í sama húsi er metin
á 772 þús. kr.
Sem dæmi um mat 30-40 ára
gamalla íbúðarhúsa í borginni má
taka timburhús í Vogahverfi á
steyptum kjallara. Fimm herbergja
sérhæð í því er metin á 954 þús. kr.
Hún er 126 fermetrar. Tveggja her-
bergja kjallaraíbúð í sama húsi, 52
fermetrar, er metin á 426 þús. kr.
Steinsteypt 288 fermetrar raðhús
á tveimur hæðum í Kópavogi er
metið á 1.885 þús. kr.
Tveggja hæða steinsteypt einbýl-
ishús, 251 fermetri, á Akureyri er
metið á 988 þús. kr.
Þá má nefna að 150 fermetra
steinsteypt einbýlishús í Vest-
mannaeyjum er metið á 690 þús.
kr. -S.dór
Framhalds-Saga
Framhald er nú að rísa við Ilótel
Sögu í Reykjavík, en nýbyggingin
mun verða svipuð að stærð og nú-
verandi bygging. Byggingin hefur
þegar hlotið hcitið Framhalds-
SAGA hjá óopinberum aðilum, en
ábyrgð tökum við ekki á þcirri
nafngift.
Byrjað varáverkinusl. sumarog
óhætt er að segja, að verkinu miði
vel. Búnaðarfélagið á 2/3 hluta í
gömlu Sögu og Stéttarsamtök
bænda 1/3, og verður eignarhluti
þeirra svipaður í nýju byggingunni,
sem fjármögnuð er með lánsfé.
Hótelherbergi verða á 4.-7. hæð
hússins, bændasamtökin fá 3ju
hæðina og 1. og 2. hæð verða
leigðar út. (Ljósm. —eik—) ast
Síðari umferð forvals 1 Suðurlandskjördæmi
Utankj örfundariíosning
hefst á laugardagínn
Síðari umferð forvals Alþýðu-
bandalagsins í Suðurlandskjör-
dæmi fyrir komandi alþingiskosn-
ingar fer fram nk. fimmtudag 27.
janúar. Kosning stendur yfir frá kl.
13 - 23.
I kjöri eru 22 félagar sem tilncfnd-
ir voru í fyrri umferð og er kosn-
ingin í því fólgin að merkja með
tölustöfum við 6 nöfn.
Á Selfossi verður kosið að
Kirkjuvegi 7, í Vestmannaeyjum í
Kreml, á Hellu að Geitasandi 3 og í
Hveragerði í gamla leikskólanum.
Utankjörfundarkosning hefst nú
um helgina, 22. janúar, og fer
kosningin fram hjá formönnum fé-
laganna á hverjum stað. Félags-
menn sem staddir eru fjarri heima-
byggð geta því kosið hjá næsta fé-
lagsformanni í kjördæminu.
Dýr myndi
baráttan
um l.sætið
í Suðurlandskjördæmi fer fram
einkennileg prófkjörsbarátta um 2.
sætið á lista Alþýðuflokksins.
Magnús H. Magnússon er öruggur
um 1. sæti listans en Guðlaugur
Tryggvi Karlsson og nokkrir aðrir
keppa um 2. sætið. Þvílíkt ofur-
kapp leggur Guðlaugur Tryggvi á
að ná þessu sæti að nær öllu cr fórn-
að til.
í dag boðar hann til skemmtunar
í íþróttahúsinu á Selfossi og býður
upp á slíkt úrval skemmtikrafta að
duga myndi á þrjú hérðasmót sam-
tímis. Áuk þess býður hann uppá
sætaferðir víðsvegar að úr kjör-
dæminu.
Maður einn, sem vanur er að
halda skemmtanir, sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær, að bara
skemmtikraftarnir á skemmtun-
inni myndu kosta 50 þúsund krón-
ur ef kaupa þyrfti þá alla. Þá eru
sætaferðirnar, húsaleiga, og
auglýsingar eftir, þannig að reikna
mætti með að svona skemmtun
kostaði vart undir 100 þúsund
krónum. Guðlaugur Tryggvi er op-
inber starfsmaður og fram til þessa
hafa þeir nú ekki verið taldir hafa
há laun og því eru menn að vonum
hissa á því mikla fjármagni sem
hann eyðir í baráttuna um 2. sætið;
eða hvað myndi barátta um 1. sætið
þá kosta?
-S.dór
1. Lúðrasveit Selfoss. s
2. Guðlaugur Tryggvi Karlsson býður gesti velKo-nna
3. Bessi Ðjarnason og Ragnar Bjarnason
•kemmta meö gamanmálum ^(1*
4. Hljómsveitin LÓtUS Oömlu og ný|U Bgin. ^
5. Sigfús Halldórsson leikur
6. Snœbjörg Snæbjarnardóttir
ayngur Iðg Scgtúsar Hallðörssonar viö undirleik hans. ,
7. Haukur Morthens
og hl|ðmsveit taka lagið
8. Karlakór Seltoss sýngur S£SC,ií,'“'‘-
9. Katla María
>10. Bingó: 3 umferðir.
Utanlanðslerö Feröaakirlslolan Útaýn
Stjórnandi og kynnir
Bryndís Schram
IMlltrtt tré H.iniirM. Irrsrkakkl
Stefna Sjálfstæðisflokksins
í framkvæmd:___________
15 krónur í
sundlaugamar
Fulltrúi Alþýðubandalagsins var einn á móti
Tillaga um afsláttarfargjöld vísað frá:
Frumhlaup og
gerræði hjá
Davíð Oddssyni
„Það er yilrlýst stefna mcirihluta
borgarstjórnar Reykjavíkur að
aðgangseyrir að sundstöðum borg-
arinnar skuli standa undir 70%
kostnaðar. Alþýðubandalagið tel-
ur hins vegar að eðlilegt sé að miða
við 60% eins og verið hefur á
liðnum árum. Þar sem sú tillaga að
hækkun aðgangscyris, sem hér er
lögð fram, er ma. rökstudd incð því
að þar sé stefnt að scttu marki um
70% hlutfall, greiði ég atkvæði
gegn tillögunni.“ Þannig hljóðar
bókun Tryggva Þórs Aðalstcins-
sonar fulltrúa Alþýðubandalagsins
í íþróttaráði frá í gær.
Á íþróttaráðsfundinum var sam-
þykkt með 4 atkvæðum gegn einu
að hækka alla verðskrá sund-
staðanna um 25% nema hvað
barnagjöldin hækka aðeins um
16%. Tryggvi Þór sagði í samtali
við Þjóðviljann í gær að hann hefði
orðið fyrir vonbrigðum með af-
stöðu Sveins Jónssonar, fulltrúa
V-listans í ráðinu, en hann greiddi
atkvæði með hækkuninni.
Eftir að þessi hækkun var sam-
þykkt flutti Tryggvi tillögu um að
hafin yrði sala stórra afsláttar-
korta, 50 miðar á 450 krónur fyrir
fullorðna.
Ég er þeirrar skoðunar að það sé
eðlilcgt að borgin taki tillit til þess
fólks sem er líklegt til þess aö nýta
sér aðgöngumiða sem eru heldur
ódýrari en iö miða kortin, sagði
Tryggvi. Aö því er bæði hagræði
fyrir viðkomandi einstaklinga og
borgina sjálfa. Á slíku korti myndi
afsláttarmiðinn kosta 9 krónur í
stað 10.50 á 10 miða kortunum.
Hér er unt aðræða hagræði fyrir
fastagesti sundlauganna og þjón-
ustu við þá og þar kemur á móti
staðgreiðsla á 50 miöum, sem jafn-
gildir um 2ja mánaða notkun, sagði
Tryggvi.
Nú er veittur 30% staðgreiðslu-
afsláttur á 10 miðum en mín tillaga
gerði ráð fyrir 40% afslætti sem
ekki er óeðlilegur miðað við upp-
hæðina. Þessi tillaga var hins vegar
felld, - hún fékk aðeins tvö at-
kvæði, mitt og Sveins Jónssonar,
sagði Tryggvi.
I umræðum í íþróttaráði kont
fram að það væri andstætt stefnu
meirihlutans að veita afslátt af
þessu tagi og þetta sýnir ásamt
öðru að þar er ekki fyrir að fara
áhuga á því að koma til móts við
þær tugþúsundir sem nýta sér góða
þjónustu sundstaðanna að stað-
aldri, sagði Tryggvi Þór.
Tveir
pokar af
sandi
Hin gífurlcga hálka í umferðinni
að undanförnu hefur valdið mörg-
um umfcrðaróhöppum og bíl-
cigendur orðið að láta af hcndi
rakna umtalsverðar upphæðir.
Að sögn lögreglunnar í Reykja-
vík má rekja mörg þessi óhöpp til
þess af afturhjóladrifnir bílar, léttir
að aftan, hafa rásað og runnið á
aðvífandi bíla. Á þessu hafa margir
ráðið bót með því að fá sér sand-
poka og sett í skottið á bílnum sín-
um. Reykjavíkurborg hefur um
mörg undanfarin ár veitt þá þjón-
ustu að láta menn hafa sandpoka í
bíla sína. Niðri við Sigtún mokar
einn starfsmanna borgarinnar í
poka fyrir þá sem vilja, tvo poka á
mann, ekki meira.
Meðfylgjandi mynd tók Atli
ljósmyndari Þjóðviljans af einum
ánægðum bíleiganda sem var að
koma sandpoka fyrir aftast í bíl
sínum.
-hól
var dómur minnihluta
„Við hljótum að mótmæla þeim
vinnubrögðum harðlega að borg-
arstjóri taki í embættisnafni jafn
afdrifaríka ákvörðun og þá að
hætta sölu afsláitarfargjalda án
þess að bera það undir kjörna full-
trúa í stjórn SVR, borgarráði eða
borgarstjórn“, sagði Guðrún Ág-
ústsdóttir í utandagskrárumræðu í
borgarstjórn í gær. Guðrún vakti
máls á strætódeilunni og flutti til-
lögu frá Alþýðubandalaginu um að
nú þegar yrði hafin sala afsláttar-
kortaeinsog veriðhefur um árabil.
Tillögunni var vísað frá með at-
kvæðuin Sjálfstæðisflokksins.
Borgarfulltrúar minnihlutans
lýstu allir ábyrgð á þeirri stöðu sem
upp er konrin á hendur meirihlut-
ans og átöldu borgarstjóra fyrir
frumhlaup og gerræði. „í þessu
persónulega stríði Davíðs borgar-
stjóra við verðlagsyfirvöld hefur
verið gripið til ógeðfelldra vinnu-
bragða", sagði Guðrún Ágústs-
dóttir. „Við hljótum að mótmæla
þeim hótunum sem nú dynja á
Reykvíkingum; ýmist um að hætta
rekstri SVR, draga úr þjónustu eða
skera niður framlög til dagvistar-
heimila, sjúkrahúsa og bygginga
fyrir aldraða. Gleymdi Davíð
Óddsson kannski að segja kjósend-
borgarstjórnar
um sínum hvernig hann hygðist ná
inn þeim peningum sem lækkun
fasteignagjaldanna kostar?"
Sigurjón Pétursson sagðist telja
það mjög óeðlilegt, þegar verð-
hækkunin 7. janúar hefði verið
tekin til baka með lögbanni, að það
næði ekki til allra þátta málsins.
Sagði hann þessa aðgerð borgar-
stjóra benda til þess að hann
reiknaði með að tapa málinu fyrir
dómi. „Vissulega mun fjárhagsá-
ætlunin raskast vegna þeirrar stöðu
sem upp er komin", sagði Sigur-
jón. „Hins vegar vil ég benda á að
fresta má lagningu gervigrass og
tvöföldun Suðurlandsbrautar, og
rnörgu fleiru áður en félagsleg
þjónusta er skorin niður, frekar en
orðið er.“
Davíð Oddsson svaraði fyrst
með gífuryrtum árásum, einkum á
Alþýðubandalagið og Þjóðviljann.
í síðari ræðu sinni biðlaði hann hins
vegar til borgarfulltrúa um að sýna
nú samstöðu um kröfuna um sjálf-
stæði sveitarfélaga, en það þótti
koma iíp hörðustu átt. Benti Guð-
rún Ágústsdóttir m.a. á að þetta
væri ekki rétti tíminn til að leita
samráðs við kjörna fulltrúa, - það
hefi hann átt að gera fyrr.