Þjóðviljinn - 22.01.1983, Blaðsíða 15
Helgin 22.-23. janúar 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Krákur (1981), eftir Brittu Marakatt
Spor mannanna 2 (annar hluti, 1982), eftir Conni Maria Johnsen
Christin „Kicken" Ericson, ful-
lega unnið þrykk.
Ég bjóst við veglegra framlagi
hjá Finnum, en þeir sýna helm-
ingi færri verk en Norðmenn og
Svíar. Þótt ckki sé allt fengið með
magninu, reynist erfiit að átta sig
á stöðu finnskrar vefjalistar af
svo litlu úrtaki. En ýmislegt er
aðdáunarvert, einkum það hve
persótiulegir finnskir listamenn
eru. Leena Saarto er ágætt dæmi
um þetta og verk hennar „Sum-
ar“ er einhver skemmtilegasti
myndvefnaðurinn á sýningunni.
Þá er „Förin", eftir nöfnu hennar
Leenu Jokinen, bæði siáandi og
unnið af næmri tilfinningu fyrir
möguleikum efnisins.
Hlutur íslendinganna er sá
jafnasti í heild. Áherslan liggur í
einfaldleik verkanna og gerir það
framlagið bæði klárt og traust.
En það er ekki að sama skapi ný-
stárlegt og ekki er örgrannt um
að íslensk vefjalist sé unt of bund-
in í viðjar átakaleysis. Verk Hild-
ar Hákonardóttur er samt sem
áður hreint og snjallt í uppsetn-
ingu og virðist mér Hildur vera að
stefna inn á nýjar og ferskari
brautir en áður. Eins er vefur
Ingibjargar Haraldsdóttur,
„Frostaskjól", óvenju fágaður og
tær í einfaldari en rismikilli lausn
sinni. „Skuggar" Sigurlaugar Jó-
hannesdóttur er tilraun til að
brjótast úr hinu hefðbundna
formi og gefur ótal möguieika ef
listakonan varast að binda sig við
hina formalísku hlið tilraunarinn-
ar. Vandræðalegast er „Leikur"
Ingibjargar Sigurðardóttur og
sýnist mér hún hafa fest sig um of
í „ullarleiknum" frá Langbrók-
arsýningunni. Ina Salóme á hins-
vegar fínlegt og sérstætt þrykk-
verk, sem nefnist „Landslag".
íslendingar eru gætin þjóð og
kjósunt við oft yfirvegun umfram
innlifun. Það er gott og blessað
aðalsmerki siðaðrar þjóðar, en
það er ekki endilega forsenda
framfarasinnaðrar listar, síst af
öllu á þessum „síðustu og verstu
tímum". Við rnegum ekki troða
um of einstigi sjálfsvitundarinn-
ar, heldur bæta okkur með því að
gerast frakkari gagnvart við-
fangsefnunum.
Við skulum ekki láta okkur
nægja „að standa jafnfætis" ná-
grönnunt okkar, eða telja okkur
sífellt trú um að viö séum þeim
jafnvel fremri, „opnari en þeir".
Tímarnir breytast en slagorðin
standa í stað og geta hæglega snú-
ist upp í staðlausa sjálfsblekk-
ingu. I stað fneðalmennskunnar,
verðum við að hætta einhverju til
að öðlast eitthvaö. Það nægir
ekki að vera opinn gagnvart um-
heiminum, sé maður lokaður
gagnvart sjálfum sér. Listamaður
sem aldrei þorir að gera skyssu,
gerir heldur aldrei neitt rétt. Ef
ekki er skilningur fyrir þessu,
endum við í því sent Donald
Kuspit kallar sósíal-
demókratíseringu listarinnar,
þ.e. list sent aldrei er „van", en
heldur aldrei „of“.
Frostaskjól (1982), eftir Ingibjörgu Haraldssóttur.
VST hf. - Virkir hf.
ÚTBOÐ Á RAUFUN
FÓÐURPÍPNA
Rafmagnsveitur ríkisins - Kröfluvirkjun óska
eftirtilboðum í raufun 7“ fóðurpípna í borhol-
ur. Útboðs- og verklýsing verður afhent
væntanlegum bjóðendum á eftirtöldum
stöðum:
Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen,
Ármúla 4, Reykjavík.
Verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns hf.
Laufásvegi 19, Reykjavík
Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.
Glerárgötu 36, Akureyri.
Tilboðum skal skila til Verkfræðistofu Sig-
urðar Thoroddsen Ármúla 4, Reykjavík eða
Glerárgötu 36, Akureyri fyrir kl. 11.30, 28.
jan. 1983 en þá verða þau opnuð að þeim
bjóðendum viðstöddum er þess óska.
Félag
Járniðnaðarmanna
Allsherjar-
atkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjarat-
kvæðagreiðslu um kjör stjórnar og trún-
aðarmannaráðs Félags járniðnaðarmanna
fyrir næsta starfsár.
Tillögur eiga að vera um 7 menn í stjórn
félagsins og auk þess um 14 menn til viðbót-
ar í trúnaðarmannaráð og 7 varamenn
þeirra.
Frestur til að skila tillögum rennur út kl. 18.00
þriðjudaginn 1. febrúar n.k.
Tillögum skal skila til kjörstjórnar félagsins í
skrifstofu þess að Suðurlandsbraut 30, 4.
hæð, ásamt meðmælum a.m.k. 86 fullgildra
félagsmanna.
Stjórn
Félags járniðnaðarmanna
RIKISSPITALARNIR
lausar stöður
LANDSPÍTALI
SJÚKRALIÐAR óskast viö handlækningadeildir.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 29000.
KLEPPSSPÍTALI
HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast strax eöa eftir
samkomulagi viö deild VIII Víoihlíð. Upplýsingar veitir
hjúkrunarforstjóri Kleppsspítalans í síma 38160.
KÓPAVOGSHÆLI
DEILDARÞROSKAÞJALFI og ÞROSKÁÞJALFI
óskast viö Kópavogshæli. Upplýsingarveitirforstöðu-
maöur Kópavogshælis í síma 41500.
RÍKISSPÍTALAR
Reykjavík, 16. janúar 1983.
íslenska járnblendífélagið hf.
óskar að ráða
Hjúkrunarfræðing
í hlutastarf við verksmiðju félagsins að
Grundartanga.
Jón Steingrímsson verkfræðingur veitir allar
nánari upplýsingar í síma 93-3944.
Grundartanga, 17. janúar 1983