Þjóðviljinn - 22.01.1983, Side 18

Þjóðviljinn - 22.01.1983, Side 18
18 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 22.-23. janúar 1983 Sunnudaginn23. janúar, þ.e. á morgun, eru 10 ár liðin f rá því að gosið í Heimaey hófst. Þegar mörg hundruð metra löng gossprunga rifnaði hreinlega upp í túnunum hans Þorbjörns bónda á Kirkjubæ. Rúmlega 5000 íbúar Heimaeyjar yfirgáfu heimabyggð sína, fluttust á bátum og með flugvélum til meginlandsins. Þessir fólksflutningareru einstæðiríallri íslandssögunni. Þegargosinu lauk höfðu rúmlega 400 hús og eignir eyðilagst og tjónið var gífurlegt. Við eyna höfðu bæst rúmir tveirferkílómetrar og er heildarmagn gosefna talið í kringum 250 miljónir rúmmetra. Þar af urðu eftir í Eldfelli og hrauni 230 miljónir rúmmetra. Það sem afgangs varð féll að mestu í sjó. Þeim vikri sem féll yfir bæinn með öðrum gosefnum var að miklum hlutatil komið fyrir í flugbrautinni í Eyjum, auk þess sem hann var nýttur til nýrrar byggðar úti við Hamar, en sú byggð kom í stað þeirrar sem undir hraun hvarf. 10 ár Þessir tveir voru frá bresku sjónvarps- og útvarpsstöðinni BBC. Sá til hægri á myndinni heldur á hljóðnema. eru liðin frá því að I þeirri samantekt sem hér birtist er stuðst við blöð og rit sem komu út í tilefni gossins. Stiklað er á stóru því að Ijóst er að gosið í Heimaey verður um ókomin ár uppspretta frásagna af ýmsu tagi. Allar þær Ijósmyndir sem birtast hér með greininni tókSigurjón Jóhannsson, sem þá var Ijósmyndari Þjóðviljans, en starfar nú sem blaðafulltrúi Arnarflugs. Fæstar þeirra hafa birst áður. Menn hötðu talað um það sín á milli að túnin við Kirkjubæ hefðu vcrið furðulega græn það sem af var vetri. Þær umræður tengdust þó ekki á neinn hátt möguleikum á gosi. 22. janúar var dagur mikilla andstæðna á Heimaey a.m.k. hvað veðurfar snerti. Fyr- ri part dags halði foráttuvonsku- veður gengið yfir og í mesta veðrarass landsins Stórhöfða höfðu mælst uni 12 vindstig. Það gekk á með rigningu, rokið var svo mikið að menn áttu í mestu vandræðum með að standa í fæt- urna. Þegar kvölda tók snarlægði hinsvegar, logn komst á í bæ og varð næstum hlýtt í veðri. Um kl. 22 um kvöldið þóttust einhverjir finna jarðskjólftakippi sem ekki eru mjög tíðir í Kyjum. Síðan var gengið til náða. Jörðin rifnaði sundur... Þann tíma sem gosið stóð yfir í Eyjum áttu viðstaddir vart orð til að lýsa áhrifum þeim sem gosið hafði á þá. Þetta átti einkum við þegar gosvirknin var hvað mest. En eitt er aðvaknavið gos, annað að að vera áhoríandi að áðuraug- lýstugosi. Hvernig varð mönnum eiginlega um að vakna við þessi ósköp? Undirritaður er í nokkuð góðri aðstöðu til að dæma um það. Hann var á staðnum. Menn hafa eiginlega aldrei fengið það á hreint hvenær gosið byrjaði nákvæmlega en flestum ber saman um að upptökin hafi verið um kl. 2 aðfaranótt 23. jan- úar. Tíminn 01.55 hefur verið gefinn upp á meðan aðrar teóríur ganga út á það að gosið hafi byrj- að kl. 01.58. Hversvegna? Tja, rafeindaknúin klukka, sem hékk og hangir, á Útvegsbankabygg- ingunni í Eyjum þar sem bæjar- skrifstofurnar höfðu einnig starf- semi síma, stöðvaðist nákvæm- lega á þessum punkti og var klukkuverkinu ekki komið í samt lag fyrr en mörgum árum síðar, rétt eins og hún bæri mikilvægt vitni í máli þessu. Um leið og þeir sem austast bjuggu í bænum, einkanlega íbú- arnir á Kirkjubæ, höfðu gert lög- reglu viðvart var þegar hafist handa við að vekja íbúa bæjarins og gekk það verk fljótt og vel fyr- ir sig. Lögreglubílar og slökkvi- liðsbílar óku um götur bæjarins og þeyttu sírenur í ákafa. Á skammri stundu hafði tekist að vekja nær alla íbúa Heimaeyjar. Menn gengu út á götu og horfðu til austursins. f fyrstu höfðu sumir haldið að Katla, sem um þessar ntundir átti von á sér, væri þarna á ferðinni, en sú sjón sem blasti við þessa kyrru vetrarnótt tók af öll tvímæli. Þarna gat að líta gígaröð og hraunsletturnar hófust hátt til himins. Óvæntur vágestur hafði tekið sér bólfestu í bæjarhlaðinu. Leiðin lá niður á höfn Vegna veðursins um daginn lágu allir bátar bundnir við bryggju og lengi vel ræddu ntenn þá furðulegu tilviljun. Hvað hefði gerst ef bátar hefðu verið úti og veðrið verra. Snjókoma eða eitthvað þess háttar? Án þess að nokkur tilskipun bærist um það í fyrstu lá leið fólksins niður á höfn. Bæjarstjórn Vestmanna- eyja kont þegar í stað til fundar og þá var tekin ákvörðun um hvernig að fólksflutningum skyldi staðið. Fóik hafði með sér allra nauðsynlegustu hluti. Fullorðnir létu niður í töskur sínar ýmislegt sem ekki mátti vanta í þá ferð sem framundan var. Plögg tengd fjármálum ogfleira. Börnin tóku nteð sér þá gripi sent voru þeim hjartfólgnust. Innan klæðaþeirra mátti t.a.m. sjá nýfædda kett- linga, gullfiska í krukkum o.s.frv. Það eru til margar spaugilegar sögur um viðbrögð fólks. Þannig á ónefndur maður að hafa rekið börn sín úr rúminu og arkað út á götu. kvnnt sér málin með hangi- kjötslæri undir hendinni. Þegar Eyjamenn höfðu náð landi í Þor- lákshöfn um morguninn og spurðu einn aðkominn hvernig honum hefði orðið að vakna við Fráfyrsta degi gossins. Þá var gosvirknin mest og töldu menn að gysi úr um 40 gígum. Þessi mynd Sigurjóns Jóhannssonar var af mörgum talin ein sú besta sem tekin var í gosinu. Eyjamönnum þótti þó verra að báturinn sem kemur siglandi skyldi ekki vera úr Eyjmn.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.