Þjóðviljinn - 27.01.1983, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 27.01.1983, Blaðsíða 1
DJÚÐVIUINN Gætu launamanna- sjóðir verið sú lausn sem væri heppileg á sumum vandamálum efnahagslífs okkar? spyr Ásmundur Hilmarsson janúar 1983 fimmtudagur 48. árgangur 21. tölublað Sjá 5 Landsvirkjun áformar 29% hækkun á orkuverði til almenningsrafveitna þann 1. febrúar Hækkunin ein er hærri en verðið til Alusuisse þá hefur orkuverð til almenningsraf- veitnanna hækkað frá 1. janúar 1980 til 1. febrúar 1983 um 774%, en á sama tíma hefur orkuverð til álversins hækkað langtum minna eða urn tæp- lega 400%. Þannig magnast skattgreiðslan frá ís- lenskum almenningi til Alusuisse ár frá í~4 Alusuisse borgar nú liðlega 12 aura á kílówattstund fyrir orku sem Lands- virkjun selur til álversins í Straumsvík. Þjóðviljanum er kunnugt um að stjórn Landsvirkjunar áformar nú að hækka orkuverð til almenningsraf- veitna um 29% þann 1. febrúar n.k., og nemur sú hækkun 14,7 aurum á kílów- attstund. Þannig nemur hækkunin eins sér tals- vert hærri upphæð en svarar öllu verðinu, sem Alusuisse greiðir fyrir orkuna, en þar kemur engin hækkun til framkvæmda um næstu mánaðamót. Á sama tíma og Alusuisse greiðir 12 aura á orkueiningu, þá stendur til að hækka verðið til innlendra almennings- rafveitna um tæpa 15 aura, úr 50,7 aurum í 65,4 aura. Orkuverðinu til Alusuisse verður ekki beytt nema með samningum eða lagaboði, en Landsvirkjun fer með allt vald til að ákveða verð á raforku til almenningsrafveitna og þarf hvorki að spyrja Verðlagsstofnun né ríkisstjorn samicvæmt núgildandi lögum. Komi þessi hækkun til framkvæmda, Nokkrir þeirra listamanna sem verða með verk á listahátíðinni „Gull- ströndin andar“. F.v.: Brynhildur Þorgeirsdóttir, Óskar Jónasson, Þorlák- ur Kristinsson, Einar Garíbaldi Eiríksson, Stefán Valdimarsson, Georg Guðni Hauksson og Eyþór Stefánsson. Ljósm.: - Atli. Um 120 einstaklingar á hin- um ýmsu sviðum lista hafa á- kveðið að stilla saman strengi sína og efna til listahátíðar sem valin hefur verið yfirskriftin „Gullströndin andar“. Listahátíð þessi er öðrum þræði ætluð sem einskonar andóf gegn þeirri listahátíð sem haldin hefur verið hér á landi annað hvert ár. í þeim hópi sem sýna verk sín á há- tíðinni má nefna marga af eftirtekt- arverðustu ungu myndlistar- mönnum þjóðarinnar, 18 rithöf- undar munu lesa upp úr verkum sínum á meðan hátíðin stendur yfir, og nafntogaðar hljómsveitir á borð við Orghestana og Tappa tík- arrass koma fram, meðfram því sem öðrum tónlistaruppákomum er gefinn laus taumurinn. Fram- jleiðendur gjörninga láta sitt ekki | eftir liggja á hátíðinni. Hún stendur frá 29. janúar til 12. febrúar næstkomandi. 120 listamanna: Verðstríð á olíumörkuðum gæti orsakað gjaldþrotaskriðu og harðnandi kreppu. í slenska landsliðið í handknattleik sigraði Dani ytra í gærkvöldi með 1<9 mörkum gegn 18. Cannibal Holocaust: Rannsókn á drelf- ingunni er lokið Rannsóknarlögregia ríkisins hefur nú sent öll málsgögn varðandi rannsókn embættisins á dreifingu ÍS-VÍDEÓ á ofbeldismyndinni margumtöluðu Cannibal- Holocaust. Eins og kunnugt er, þá kærði Þjóðviljinn dreifingu myndarinnar til ríkissaksóknara og hann sendi kæruna með framkomnum gögnum til RLR. Arnar Guðmundsson deildar- stjóri hjá RLR fer með mál sem þessi fyrir hönd Rannsóknarlög- reglunnar, og þegar hann var spurður um niðurstöður rannsókn- ar varðist hann allra frétta. Hann sagði að ríkissaksóknara hefði ver- ið afhentar niðurstöður rannsókn- ar sem hánn vildi ekki fjölyrða um að öðru leyti. Ríkissaksóknari, Þórður Björns- son, sagði að hann hefði enn ekki tekið afstöðu til niðurstöðu RLR, hver svo sem hún væri. Hann kvaðst ekki hafa kynnt sér niður- stöðurnar, en kvaðst eiga von á að málið fengi eðlilega afgreiðslu og hefði ekki neinn forgang umfram önnur mál sem inná borð hjá sér kæmu. Þjóðviljinn hefur haft spurnir af því, að myndbönd með Cannibal Holocaust væru í dreifingu hjá nokkrum myndbandamörkuðum og hefði gildi myndarinnar sem söl- uvöru aukist verulega eftir að um- ræður um hana jukust svo verulega sem raun ber vitni. - hól. Sjá 3

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.