Þjóðviljinn - 27.01.1983, Blaðsíða 15
Fimmtudagur 27. janúar 1983 þjÓÐVILJINN - SÍÐA 15
RUV ©
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Gull í
mund. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt má. Endurtekinn þáttur
Arna Böðvarssonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir. Morgu-
norð: Sigurður Magnússon talar.
9.05 Morgunstund barnanna: Líf, eftir
Else Kappel. Gunnvör Braga les þýð-
ingu sína (16).
9.20 Leikfimi. Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.30 Iðnaðarmál. Umsjón: Sigmar Ár-
mannssón og Sveinn Hannesson.
10.45 Skáld í vanda. Guðmundur L.
Friðfinnsson les úr óbirtu handriti sínu.
11.00 Við Pollinn. Gestur E. Jónassson
velur og kynnir létta tónlist (RÚVAK).
11.40 Félagsmál og vinna. Helgi Már Ár-
thúrsson og Guðrún Ágústsdóttir.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Fimmtudagssyrpa - Ásta R.
Jóhannesdóttir.
14.30 „Tunglskin í trjánum“, ferðaþættir
frá Indlandi eftir Sigvalda Hjálmarsson.
Hjörtur Pálsson les (10).
15.00 Miðdegistónleikar. Davið Oistrakh,
Mstislav Rostropovitsj og Svjatoslav
Rikhter leika með Fílharmóníusveit
Berlínar Konsert í C-dúr op. 56 fyrir
fiðlu, selló, píanó og hljómsveit eftir Lud
wig van Beethoven; Herbert von Kara-
jan stj.
Frederich Chopin og George Sand, tón-
skáldið og skáldkonan. Tveir stórbrotnir
listamenn, sem löðuðust hvor að öðrum. Sé
annað nefnt kemur hitt í hugann.
16.20 Útvarpssaga barnanna: „Aladdín og
töfralampinn". Ævintýri úr „Þúsund og
einni nótt“ í þýðingu Steingríms Thor-
steinssonar. Björg Árnadóttir les (8).
16.40 Tónhornið. Stjórnandi: Anne Marie
Markan.
17.00 Djassþáttur í umsjón Jóns Múla
Árnasonar.
17.45 Hildur - Dönskukennsla 1. kafli -
„Ankomst"; seinni hluti.
18.00 Neytendamál. Umsjónarmenn
Anna Bjarnason, Jóhannes Gunnarsson
og Jón Ásgeir Sigurðsson.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.40 Tilkynningar. Tónleikar.
20.00 Fimmtudagsstúdíóið - Útvarp unga
fólksins. Stjórnandi: Helgi Már Barða-
son (RÚVAK).
20.30 Sand og Chopin. Friðrik Páll Jónsson
segir frá ævi og viðhorfum frönsku
skáldkonunnar George Sand og tón
skáldsins Chopins, ástum þeirra og sam-
skiptum. Lesari með Friðriki Páli: Unn
ur Hjaltadóttir. í þættinum er leikin tón-
list eftir Chopin. (Áður útv. í apríl
1977).
21.30 „Manndómur", smásaga eftir John
Wain. Þýðandinn, Sigurður Jón Ólafs-
son,les.
22.00 Tónleikar.
22.35 Leikrit: „Drakúla" eftir Bram Stok-
er. 2. þáttur - „Hún þarf blóð og blóð
skal hún fá“. Leikgerð og leikstjórn: Jill
Brook Árnason. Leikendur: Gunnar
Eyjólfsson, Lilja Guðrún Þorvaldsdótt-
ir, Saga Jónsdóttir, Jóhanna Norðfjörð,
Sigurður Skúlason, Randver Þorláksson
og Guðný Helgadóttir.
23.05 Kvöldstund með Sveini Einarssyni.
frá lesendum
Hvernig verður tekið
á mínum málum?
Atvinnulaus og skuldar skatta
frá síðasta ári
Lcsandi hringdi:
Eg er búinn að vera atvinn-
ulaus um nokkurt skcið og sé
ekki fram á bjartari tíð í þeim
cfnum í bráð, heldur virðist
atvinnuástandið almcnnt vera
að versna í landinu. Nú er ég
skuldugur að því er varðar
síðustu greiðslur af skatti ný-
liðins árs og þar að auki
skulda ég á öðrum stöðum.
Atvinnuleysisbætur eru
ekki hærri en það að þær dugi
til að framfleyta mér og mín-
um hvað þá að standa undir
greiðslu þessara skulda. Og
nú er mér spurn hvernig á
þessum málum verður tekið,
sem er sjálfsagt ekkert eins-
dæmi með mig. Skuldirnar
safna á sig dráttarvöxtum.
Verður gengið að eignum
okkar, sem erum atvinnu-.
lausir og getum ekki greitt
þessar skuldir, eða verður
brugðist á annan hátt við þess-
um vanda?
Vegna fyrirspurnar lesanda
leituðum við upplýsingar hjá
gjaldheimtustjóra og fcr svar
hans hér á eftir:
Hægt að biðja
um lækkun
eða frest!
Gjaldheimtustjóri svarar:
Guðmundur Vignir Jósefs-
son, gjaldheimtustjóri, sagði
að í skattalögum væri heimild
til handa skattgreiðendum að
sækja um lækkun á sköttum ef
þeir ættu við erfiðleika að
stríða, t.d. vegna veikinda eða
efnahagslegra skakkafalla. Þá
þarf að sækja um lækkun
tekjuskatts til ríkissjóðs og út-
svars til borgarsjóðs eða
bæjarfélaga.
Guðmundur sagði að það
væri matsatriði hverju sinni
hvort lækkun væri veitt á
álögðum gjöldum og eins
hvort frestur fengist á
greiðslum. Þó að óskað hafi
verið eftir fresti, þá sendum
við út lögtakstilkynningu þeg-
ar skuldin er gjaldfallin, til að
tryggja okkar stöðu. Það er
hinsvegar okkar að meta
hvort og hvenær gengið verð-
ur að eigninni til innheimtu.
Snúðarnir
hennar Rósu
„Einu sinni var lítil stelpa sem hét
Rósa. Einu sinni átti Rósa að fara út í
búð fyrir mömmu sína. Hún átti að
kaupa fimm snúða. Mamma hennar
Rósu sagði að hún mætti ekkert slóra
á leiðinni.
Þegar Rósa var búin að kaupa
snúðana fór hún að skoða hatta í hatt-
abúð, en þá vildi svo til að hundur
kom og borðaði alla snúðana.“
Helga Helgadóttir
Laugaveg 50 B
101 Reykjavík
Vísa eftir
• •'
Onnu
Kæra Barnahorn!
Ég heiti Anna Karlsdóttir og er
níu, að verða tíu ára. Ég les Þjóðvilj-
ann á hverjum degi og langar til að
senda Barnahorninu vísu sem ég bjó
til.
Drengur að nafni Nissi átti bú.
Hann átti hest, sem hét Sokkur.
Og hann átti kú, sem hét Kokkur.
Þetta eru skrýtin nöfn, ég veit það.
Anna Karlsdóttir.
éafétískfa
OQ fór i jbau
öjdattK þa'rr)
móoum óinnuryi.
^Sáy-d Afcraflesí
Verið nú dugleg að senda
Barnahorninu myndir, sögur,
kvæði og hvað annað sem ykk-
ur dettur í hug.
fTTélr- 9 5 f2l
il ^^----------------------------eé^\-