Þjóðviljinn - 27.01.1983, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 27.01.1983, Blaðsíða 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. janúar 1983 ALÞÝÐUBANDALAGIÐ Alþýðubandalagið í Neskaupsstað - þorrablót Hið árlega þorrablót Alþýðu- bándalagsins í Neskaupsstað, verð- ur haldið í Égilsbúð laugardaginn 29. janúar og hefst kl. 20.00. Heiðursgestur verður Stefán Jóns- son alþingismaður. Blótsstjóri verður Stefán Þorleifsson. Að afloknu borðhaldi leikur hljómsveit fyrir dansi. Miðasala verður fimmtudaginn 27. janúar frá kl. 18.00 - 21.00 að Egilsbraut Stefan Jonsson Stefán Þorleifsson 11- Hver skuldlaus félagi á rétt á fjór- um miðum. Stjórnin. Tilboð óskast í smíði, uppsetningu pg frágang á 780 m3 stálgeymi m/tilheyrandi fyrir asfalt á ísafirði. A: Smíði geymis, ásetning mannopa, tengistúta, hitara o.fl. B: Einangrun og klæðning geymis, smíði stigapalla. Smíði dæluhúss með tilheyrandi, uppsetning á dælum ásamt smíði og frágangi lagna. Efni verður að mestu tillagt af verkkaupa. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri gegn skilatryggingu, kr. 2000,- og hjá Vegagerð ríkisins, isafirði. Tilboð verða opnuð á sama stað þriðjudaginn 8. febrúar n.k. kl. 11:00 f.h. að viðstöddum bjóðendum. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 PÓSTHÓLF 1441 TELEX 2006 ÚTBOÐ Stjórn Verkamannabústaða óskar eftir til- boðum í blikksmíði í 17 fjölbýlishús við Eiðs- granda. Utboðsgögn verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, gegn 500 kr. skilatrygg- ingu. Tilboðin verða opnuð á skrifstofu V.B. mánudaginn 7. febrúar kl. 15.00. Stjórn V.B. Smásagnasamkeppni Samtök móðurmálskennara hafa ákveðið að efna til sam- keppni um smásögur, sem ætlaðar eru börnum og ungling- um á grunnskólaaldri (6-15 ára). Verðlaunum er heitið, 20.000 kr. fyrir bestu söguna, auk væntanlegra höfundar- launa. Stefnt er að því að úrval sagnanna komi á bók. Höfundarlaun verða að sjálfsögðu greidd fyrir hverja sögu, sem valin verður. Handrit, merkt dulnefni, skal vera vélritað í stærðinni A-4 og eru engin lengdarmörk sett. Sögurnar mega ekki hafa birst áður. Nafn höfundar og heimilisfang fylgi í lokuðu umslagi, merktu viðkomandi dulnefni. Skiiafrestur er til 1. júní 1983. Handrit sendist Þórði Helgasyni Bjarnhólastíg 18, 200 Kópavogi. Byggingarfulltrúi Bæjarsjóður Neskaupstaðar óskar eftir að ráða nú þegar tæknimenntaðan mann sbr. grein 2.5.4 í byggingarreglugerð til starfa sem byggingarfulltrúi á Norðfirði. Frekari upplýsingar um starfið veitir bæjar- stjórinn í Neskaupstað í síma 97-7700 eða 97-7138. Bæjarstjórinn í Neskaupstað Blaðberar óskast Fálkagata - Lynghagi Holtagerði Hraunbær Kópavogsbraut - Skjólbraut Hjallabrekka UOWIUINN Umræðufundur Alþýðubandalagið í Kópavogi heldur umræðufund mánudaginn 31. janúar kl. 20.30 í Þinghóli, Hamraborg 11. Fundarefni: Vinstri stjórn, hægri stjórn - núverandi stjórn. Frummælendur eru Ragnar Arn- alds fjármálaráðherra og Óskar Guðmundsson blaðamaður. Alþýðubandalagið í Kópavogi Alþýðubandalagið á Vestfjörðum Forval 22. - 30. janúar Síðari umferð forvals vegna skipunar framboðslista Alþýðubandalagsins á Vestfjörðum í komandi alþingiskosningum fer fram dagana 22. - 30. janúar. í síðari umferð forvalsins á að velja í þrjú efstu sæti listans úr hópi þeirra sjö einstaklinga, sem í kjöri eru. Kjósandi merkir með viðeigandi tölustaf við nöfn þeirraþriggja, sem hann vill að skipi 1., 2. og3. sæti framboðslist- ans. Sé merkt við fleiri eða færri en þrjá telst seðill ógildur. • Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem taka viljaþátt í forvalinu geta snúið sér til eftirtalinna kjörstjóra: Indriði Aðalsteinsson, Skjaldfönn, Nauteyrarhreppi N.-ÍS. Ástþór Ágóstsson, Móla Nauteyrarhreppi, N-ÍS. Ari Sigurjónsson, Þúfum Reykjafjarðarhreppi, N.-ÍS. Ingibjörg Björnsdóttir, Súðavík. Þuríður Pétursdóttir, Túngötu 17, ísafirði. Kristinn H. Gunnarsson, Vitastíg 21, Bolungarvík. Sveinbjörn Jónsson, kennari Súgandafirði. Magnús Ingólfsson, Vífilsmýrum Önundarfirði. Davíð H. Kristjánsson Aðalstræti 39, Þingeyri. Halldór G. Jónsson, Lönghiíð 22, Bíldudal. Lúðvíg Th. Helgason, Miðtúni 4, Tálknafirði. Bolli Olafsson, Sigtúni 4, Patreksfirði. Gisella Halldórsdóttir, Hríshóli, Reykhólasveit. Sigmundur Sigurðsson, Steinadal, Fellshreppi, Strandasýslu . Jón Ólafsson, kennari, Hólmavík. Jóhanna Thorarensen, Gjögri, Árneshreppi, Strandasýslu. Þeir Alþýðubandalagsmenn á Vestfjörðum sem dvelja í Reykjavík eða grennd geta einnig snúið sér til skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettis- götu 3, Reykjavík, og tekið þar þátt í forvalinu. Alþýðubandalagið Suðurlandskj ördæmi Forval 22.-27. janúar Síðari umferð forvals Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi vegna skipunar á framboðslista flokksins við komandi alþingiskosningar fer fram 27. janúar nk. Félagsmenn sem staddir eru utan heimabyggðar geta kosið hjá næsta félagsformanni í kjördæminu. í kjöri eru 22 félagar sem tilnefndir voru í fyrri umferð forvalsins. Kjósa á 6 félaga með því að setja tölustafina 1-6 fyrir framan nafn við korhandi. Kosningferfram á Selfossi að Kirkjuvegi7. í Vestmannaeyjum í Kreml, Hellu að Geitasandi 3, Hveragerði í gamla leikskólanum. Félagar eru hvattir til að taka þátt í forvalinu. Akranes - nærsveitir Árshátíð AB á Akranesi verður haldin í Rein laugardaginn 29. janúar næstkomandi og hefst með borðhaldi kl. 20.30. Húsið verður opnað kl. 20. Helgi Seljan verður gestur okkar. Skemmtiatriði: Fjöldasöngur Dans Miðasaia og borðapantanir í Rein fimmtudaginn 27. janúar kl. 18-20 s. 1630. Mætum öll stundvíslega. Skemmtinefndin. Alþýðubandalagið á Húsavík Árshátíð Árshátíð Alþýðubandalagsins á Húsavík verður haldin laugardaginn 29. janúar n.k. í Félagsheimili Húsavíkur og hefst með borðhaldi kl. 20. Húsið opnað kl. 19.30 Dagskrá: Ávarp, samkoman sett: Freyr Bjarnason. Kvöldverður. Fjöldasöngur. Blandað efni: Sigurður Hallmarsson Helgi og Villi. Dans, hljómsveit Illuga leikur. Veislustjóri: Freyr Bjarnason, fjöldasöngur: Sigurður Hallmarsson. Miðapantanir í sínum 41761 og 41882 kl. 20-22 alla daga Sala aðgöngu- miða frá kl. 17 laugardaginn 29. í Félagsheimilinu. Miðaverð kr. 350. Undirbúningsnefndin. Árshátíð og þorrablót ABR Árshátíð og þorrablót Alþýðubandalagsins í Reykjavík verða haldin í Snorrabæ við Snorrabraut (Áusturbæjarbíóhúsið)Töstudaginn 4. febrúar. Húsið opnað klukkan átta - borðhald hefst klukkan háifníu. Hljómsveitin Ásar leikur fyrir dansi til klukkan þrjú. - Fjölbreytt skemmt iatriði eru í undirbúningi. - Vegna húsrýmis kemst takmarkaður fjöldi að. Ahugafólki er því bent á að panta miða sem fyrst að Grettisgötu 3 - sími 17500. - Skemmtinefndin Alþýðubandalagið Hafnarfírði Blaðamennskunámskeið Alþýðubandalagið í Hafnarfirði hefur fengið þau Vilborgu Harðardótt- ur útgáfustjóra og blaðamann og Jón Ásgeir Sigurðsson blaðamann, til að hafa umsjón með blaðamannanámskeiði á vegum félagsins. Námskeiðið verður í tveim hlutum og hefst fyrri hlutinn á laugardaginn 29. janúar n.k. kl. 14.00. Síðari hluti verður haldinn fimmtudagskvöldið 3. febrúar n.k. Námskeiðið verður haldið í Skálanum Strandgötu 41. Þeir sem hafa áhuga á að starfa að útgáfu Vegamóta, málgagns ABH, og taka þátt í námskeiðinu, hafi sem fyrst samband við Hallgrím, sími: 51734, eða Lúðvík, s: 81333 (vinnutími). Athugið, að þátttökufjöldi er takmarkaður. Stjórnin. Hlynur — blað samvinnu- starfsmanna Hlynur, blað samvinnustarfs- manna, kemur út sex sinnum á ári. Þrjátíu ár eru nú liðin síðan blaðið kom fyrst út og má heita, að út- koma þess hafi verið samfelld síð- an. Fræðsludeild SÍS sá um útgáfu ritsins frá 1955-1974. Síðan hefur hún verið í höndum Landssam- bands samvinnustarfsmanna og Nemendasambands Samvinnu- skólans. Blaðið er nú gefið út í 6 þús. eintökum og mega mörg tímarit láta sér minna nægja. Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Guðmundur R. Jóhannsson en útgáfustjórn skipa Eva Örnólfsdóttir, Gunnar Sig- urðsson, Pálmar Arnarson, Reynir Ingibjartsson og Vigdís Pálsdóttir. Okkur hefur nú borist 6. tbl. síð- asta árg.. Töluverður hluti þess er helgaður þrítugsafmælinu í máli og myndum en forystugreinina skrifar ritstjórinn og fjallar hún um blaðið og þýðingu þess. Viðtal er við Ing- veldi Einarsdóttur, sem nú er átta- tíu ára. Hún byrjaði að vinna í Garnastöð SÍS árið 1922, eða fyrir 60 árum, hefur síðan starfað hjá SÍS og vinnur enn í Reykhúsinu hálfan daginn. Ingveldur er ekki alveg búin að gera það upp við sig hvort hún mætir á árshátíðinni í vetur. Dagbjört Torfadóttir sér nú um 8. síðuna og ræðir einkum fjöl- skyldumál, sem stjórnmálamenn virtust hafa mikinn áhuga á fyrir síðustu kosningar en síðan þær „raddir vorsins“ þagnað. Rætt er við Hörð Zóphoníasson, stjórnarmann í SÍS og Valgerði Kristjánsdóttur hjá Samvinnu- bankanum um lífeyrismál og Krist- ínu Karlsdóttur, Höskuld Egilsson og Sæmund Hrólfsson um starfslok og málefni aldraðra. Sagt er frá vetraráætlun KPA, haustmóti sam- vinnustarfsmanna í innanhúss- knattspyrnu, starfsaldursmerkja- veitingu hjá Kf. Borgfirðinga, stofnfundum félaga samvinnu- starfsmanna á Borðeyri og á Skriðulandi í Saurbæ og nýbygg- ingu Kf. Stöðfirðinga. Pétur Krist- jónsson segir frá eftirlaunakerfinu í Svíþjóð. Greint er frá ritstjóra- skiptum við Gjallarhorn, málgagn Samvinnutryggingamanna. Bald- vin Þ. Kristjánsson hefur nú látið af ritstjórninni eftir 22 ára starf en Þórir E. Gunnarsson tekið við. Guðvarður Kjartansson segir frá ferð Starfsmannafélags Kf. Önfirð- inga norður í Fljótavík. Sagt er frá starfseminni í Hamragörðum og rætt við Kristjönu Sigurðardóttur um fund norrænna samvinnustarfs- manna, sem haldinn var í Osló 5.- 6. nóv. sl.. Þá eru í ritinu fréttir frá ýmsum starfsmannafélögum og annað smálegt. -mhg Esperantistar safna gögnum Islcnska Espcranto-sambandið safnar nú efni til sögu Esperantista- hreyfingarinnar á íslandi. AHir þeir, sem gætu látið í té heimildir og/eða gögn um þetta efni, eru vin- samlega beðnir að hafa samband við einhvern neðangreindan, en þeir sitja í sjö manna nefnd, sem skipuð hefur verið af þessu tilefni: Friðrik Kristjánsson, Akureyri, sími 22279, Hallgrímur Sæmunds- son, Garðabæ, sími 42810, Harald- ur Guðnason, Vestm., sími 1498, Helgi Hannesson, Rvk., sími 83659, Ingimundur Ólafsson, Rvk., sími 32848, Jón Emil Guð- jónsson, Rvk., sími 19737, og Kristján Eiríksson, Laugarvatni, sími 6129. Þau sem veitt gætu einhverjar upplýsingar um hreyfinguna hér á landi á fyrsta fjórðungi þessarar aldar eru sérstaklega beðin að láta í sér heyra. Gagnasöfnunin er for- senda þess að hægt verði að rita sögu íslensku Esperantistahreyf- ingarinnar.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.