Þjóðviljinn - 27.01.1983, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. janúar 1983
Fjölnota-
bíll á
Selfossi
{ bæjarblaðinu á Selfossi má
lesa frétt þess efnis, að bæjarfé-
lagið hafi nýlega keypt Iítinn
sendibíl til sameiginlegra afnota
fyrir stofnanir sínar.
„Vegna fjölþættra verkefna
hefur hann hlotið heitið „fjölnot-
abíll". Skv. fréttabréfi félagsmál-
astofnunar verði helsti ökumaður
og umsjónarmaður bílsins „fjöl-
notastarfsmaður" bæjarins.
Mogginn
í Morgunblaði margt er rætt,
það margan hefur löst:
Mest allt er þess mál í ætt
við móðursýkisköst.
Ekki í rakastormi stœtt,
né stóryrðanna röst.
Par sannleiksgyðjan sár- er fœtt
og situr gjarnan föst.
RAUÐGRANI
Skák
Karpov að tafli - 87
( 8. umferð Sovétmeistaramótsins 1973
tapaði Karpov einu skák sinni á því ári.
Hann mætti Tigran Petrosjan og eftir aö
Tigran hafði hafnað jafntefli eftir 10 leiki
tefldi han af miklum krafti, ruddist með
framsækið e-peð sitt nánast upp í borð og
vann skiptamun. Karpov lagðist í vörn og
hefði átt allgóða möguleika á jafntefli gegn
velflestum skákmönnum öðrum en Petro-
sjan:
8
7
6
5
4
3
2
1
Petrosjan - Karpov
47. h5!
(Sundrar svörtu peðstöðunni)
47. ... gxh5
48. Bf2 Bd8
49. Rd4 f4
50. Re2! Kc6
51. Rxf4 h4
52. Rg6 Rb7
53. f4 Bf6
54. Hc1 + Rc5
55. Kh3 Rd6
56. Bxc5 bxc5
57. Rxh4 h5
58. Rf3 Kd5
59. Hd1+ Bd4
60. Rd2 Ke6
61. Kg3 Rf5+
62. Kf3 h4
63. Rc4 Bc3
64. Kg4 Bb4
65. Hd3
- Svartur gafst upp.
Gaukarnir s.l. sumar í Hlöðunni (blessuð sé hennar minning) í Óðaii: Ásgeir, Haraldur, Jón, Egill og Einar,
Centaur, DRon og Gaukarnir
3x5 manna sveitir á
Borginni í kvöld
Rokkhljómleikar verða á
Borginni í kvöld, fimmtudag, og
hefjast þeir kl. 22. Húsið verður
opnað kl. 21. Þrjár hljómsveitir
koma þar fram, sem mestan part
hafa haldið sig í bílskúrnum en
hafa nú hug á að koma frum-
sömdu efni sínu fyrir almennings
heyrnir. Hér er um að ræða
hljómsveitirnar Centaur, DRon
og Gaukana.
Centaur mun flytja þungarokk
og eru liðsmenn 5 að tölu: Sigurð-
ur Sigurðsson söngvari, Hlöðver
Ellertsson gítar- og bassaleikari,
Benedikt Sigurðsson sömuleiðis,
Jón Óskar Gíslason gítarleikari
og Guðmundur Gunnarsson
trommari.
Skammstöfunin DRon stendur
fyrir Danshijómsveit Reykjavíkur
og nárennis. Sú hljómsveit varð
efst í vinsældavali í Músiktil-
raunum ’82 sem Satt og Tónabær
stóðu fyrir. DRon flytur einskon-
ar popprokk, en sveitina skipa
Bragi Ragnarsson söngvari,
Máni Svavarsson hljómborðs-
leikari, Björn Gunnarsson bassi,
Einar Þorvaldsson gítar og Óskar
Þorvaldsson trommari.
Gaukarnir eru 5 talsins eins og
hinar sveitirnar 2 og flytja blöndu
af rokki og poppi, en annars
munu þessar 3 hljómsveitir ólík-
ar. Gaukarnir eru bræðurnir Ein-
ar (gítar og hljómborð) og Har-
aldur (trommur) Hrafnssynir,
Ásgeir Sverrisson (gítar), Jón M.
Einarsson (bassi) og Egill Helga-
son (söngur).
Fiskveiðar
og útivist
Væntanleg frímerki
Samkvæmt frétt frá Póst- og
símamálastofnuninni hefur þegar
verið ákveðin útgáfa á nærri 20
nýjum frímerkjum á þessu ári.
Auk blómafrímerkjanna fjög- !
urra, sem þegar eru komin út,
munu 24. mars n.k. koma út tvö
Norðuriandafrímerki, þar sem
lögð verður áhersla á ferðalög um
Norðurlönd. Á íslensku frí-
merkjunum verða myndir af Súl-
um milli Breiðdalsvíkur og
Stöðvafjarðarm og Urriðafossum
í Melbugsá.
í byrjun maí koma út tvö Evr-
ópufrímerki þar sem lögð verður
áhersla á merkar framkvæmdir
og munu íslensku frímerkin hafa
að myndefni beislun jarðhitans.
Þá kemur út frímerki í sumar í
tilefni af „Alþjóðasamgönguári",
frímerki helguð fiskveiðum og
útivist og frímerki í tilefni frí-
r
Eg er
„Nú er nóg komið af mér í
þessu blaði“, segir fréttaritari
Suðurnesjablaðsins Víkurfrétta í
Vatnsleysustrandarhreppi í síð-
asta tbl. fréttablaðsins.
„Það er ábyrgðarstarf að skrifa
pistla eins og ég hef gert, það má
ekki á neinn hátt sverta byggðar-
lagið, heldur á að skrifa um alla
fegrunina sem sífellt er verið að
framkvæma, það á að leitast við
að telja blómin í blómabeðunum
sem eru með öllum gangstéttum,
1 merkjasýningarinnar Nordica i
’84.
Minningarfrímerki um dr.
Kristján Eldjárn, fyrrum forseta
Tslands, kemur út í sumar, og
einnig frímerki með mynd af
málverki Finns Jónssonar af Lak-
agígum, en á árinu verða 200 ár
liðin frá því að Skaftáreldar brut-
ust út. Einnig verða sem fyrr gef-
in út jólafrímerki.
hættur
telja kossana á hreppsnefndar-
fundunum og það á að telja grjót-
in í hafnargarðinum og hlusta á
söng fuglanna í Aragerði, þar
sem blómin blómstra árið um
hring. Og ef aðför er gerð að
persónu manns, þá lokið augun-
um og eyrunum og hendið penn-
anum og hjálpið síðan til við að
rakka helvítið niður.
Af hverju ég hætti nú? Jú, í dag
er ég sáttur við alla í hreppnum,
það er bara verst að 166 mann-
eskjur eru ekki sáttar við mig.“
Stiptamtmaður
leikur jómfrú
Pernille
Bæjarlífið í Reykjavík gat nú x
ekki kallast sérlega fjölskrúðugt á
þessum árum. Það þótti því ekki
svo lítill viðburður er Bardenfleth
stiptamaður efndi til sjónleika-
halds á afmælisdegi konu sinnar
1839 og bauð til þcirrar skemmt-
unar „heldri“ mönnum bæjarins.
Tveir leikir voru sýndir: „Ge-
ert Westphaler", eftir Holberg og
„Misforstaaelse ovenpaa Misfor-
staaelse". Tveir danskir náttúr-
ufræðingar, sem ferðast öfðu hér
um á liðnu sumri, Japhetus Ste-
enstrup og Jörgen Chr. Schythe,
léku hvor sitt hlutverkið í Hol-
bergsleiknum. Lék Schythe Ge-
ert en Steenstrup kerlingu, móð-
ur Geerts. Sjálfur lék stiptamt-
maðurPernille. Sáhængurvar þó
á þeirri hlutverkaskipan, að stipt-
amtmaður var mjög hávaxinn.
Reyndist af þeim sökum ógerlegt
að klæða hann pilsi af nokkurri
konu í bænum, en stutta tískan
illu heilli ekki komin til sögunn-
ar. Varð því að sauma stiptamt-
manni sérstakan klæðnað svo að
hann gæti leikið jómfrú Pernillu.
Það var samgönguleysinu að
þakka að hægt var að halda upp á
afmæli amtmannsfrúarinnar með
þessum leiksýningum. Kvöldið
áður hafði Friðrik konungur VI.
andast úti í Kaupmannahöfn. Af
þessum atburði höfðu þegnar hér
Og hvergi fannst pils sem passaði
stiptamtmanni.
hinsvegar engar spurmr tyrr en 5
mánuðum seinna og þá hafði
Bardenfleth fyrir löngu afklæðst
skrúðanum.
- mhg.