Þjóðviljinn - 27.01.1983, Síða 3
Fimmtudagur 27. janúar 1983' frJóbVlLjÍNN - SÍÐA 3
í báðum deildum alþingis
Bann á ofbeldismyndir
í gær var mælt fyrir tveimur
frumvörpum tii laga þar sem gert
er ráð fyrir banni við ofbeldiskvik-
myndum. Eiður Guðnason mælti
fyrir frumvarpi um vernd barna og
ungiinga, þar sem gert er ráð fyrir
að engin mynd megi verða sýnd
sem ætla má að haft geti skaðleg
áhrif á siðferði eða sálarlíf barna
eða á annan hátt. í neðri deild
mælti Ingvar Gíslason fyrir stjórn-
arfrumvarpi sem miðar að því
sama.
Eiður Guðnason rakti íýtarlegri
framsögu sinni ástæður þess, að
breyta þurfi lögum um þetta efni.
Gat hann þess að fjöldi mynda,
viðbjóðslegt sýningarefni, sem
bannað væri í nágrannalöndum
okkar, gengi hérlendis í mynd-
bandaleigum. Yrði að stemma
stigu við þessum ófögnuði. Gat
hann myndarinnar Holocaust, sem
Þjóðviljinn hefði vakið athygli á
fyrir skömmu og ætti blaðið þakkir
skildar fyrir. Olafur Jóhanncson
tók undir þessi sjónarmið og bætti
því við að í sjónvarpinu væri ýmis-
legt efni sem orkaði tvímælis af
sömu ástæðum.
Helgi Seljan þakkaði flutnings-
manni frumvarpsins og sagðist
styðja frumvarpið heilshugar.
Benti hann á að undirrót þessa ó-
fögnuðar væri gróðasjónarmiðið
sem vísaði framleiðendum veginn.
Benti hann einnig á það hvernig
fjölmiðlar veltu sér uppúr ýmiss
konar hörmungum. Eiður Guðna-
son flutningsmaður frumvarpsins
þakkaði undirtektirnar en síðan
var frumvarpinu vísað til nefndar.
í neðri deild mælti menntamála-
ráðherra Ingvar Gíslason fyrir
ríkisstjórnarfrumvarpi um bann
við ofbeldiskvikmyndum. „Of-
beldiskvikmynd" merkir í lögum
þessum kvikmynd, þar sem sér-
staklega er sóst eftir að sýna hvers
konar misþyrmingar á mönnum og
dýrum eða hrottalegar dráps-
aðferðir. Bannið tekur ekki til
kvikmynda þar sem sýning ofbeldis
telst eiga rétt á sér vegna upplýs-
ingagildis kvikmyndarinnar eða
vegna listræns gildis hennar. Það
eru skoðunarmenn kvikmynda
sem meta sýningarhæfni kvik-
mynda. Gert er ráð fyrir að
Ofbeldismyndir voru til umræðu á
Alþingi í gær.
menntamálaráðherra setji reglu-
gerð með lögunum.
Að lokinni framsögu Ingvars
Gíslasonar var frumvarpinu vísað
til nefndar.
-óg.
Wijk Aan Zee:
Friðrik tapaði fyrir Kortsnoj
Friðrik Olafsson tapaði fyrir
Viktor Kortsnoj í 10. umferð al-
þjóðlcga skákmótsins í Wijk Aan
Zee í gær. Sá Friðrik aldrei til sólar
eftir ónákvæma byrjunartafl-
mennsku. Kortsnoj sem átt hefur
erfitt uppdráttar það sem af er mót-
inu, tefldi af mikilli hörku og vann
sannfærandi sigur. Mannsfórn
hans í 13. leik virtist koma Friðrik í
opna skjöldu, enda fór svo að eftir
fórnina fékk Friðrik ekki við neitt
ráðið.
Önnur úrslit í 10. umferð í gær
urðu sem hér segir: Hulak vann
Sheeren og jafntefli varð í skákum
Anderson og Ribli, Hort og Van
der Wiel, Seirawan og Nunn og
Ree og Kuligowski. Skák Speel-
man og Browne fór í bið.
Staðan að óloknum tveim bið-
skákum er þessi: 1. Anderson 7 v.
2. Nunn 6 v. 3. Ribli 5‘A v. + 1
biðskák. 4. - 5. HulakogHortó'A v.
6. Browne 5 v. + 1 biðskák. 7,- 9.
Friðrik, Kortsnoj og Seirawan 5 v.
10. Ree 4'/2 v. 11. - 12. Kuligowski
og Van der Wiel 4 v. 13. - 14. Spe-
elman 3 v. + 1 biðskák hvor.
Skák Kortsnojs og Friðriks tefl-
dist þannig:
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: Friðrik Ólafsson
Nimzoindversk - vörn
1. d4 Rf6
2. c4 e6
3. RO d5
4. Bg5 Bb4+
(Eftir 4. - Be7 er komið upp reglu-
legt Drottningarbragð.)
5. Rc3 Rbd7
(Sterkasti leikurinn er af flestum
talinn vera 5. - h6. Friðrik leitast
við að fara ótroðnar slóðir en hefur
ekki árangur sem erfiði.)
6. e3 c5 9. bxc3 dxc4
7. Bd3 Da5 10. Bxc4 b5
8. 0-0 Bxc3
(Friðrik áræðir ekki að taka peðið
enda er staðan sem kemur upp eftir
10. - Dxc3 11. Hcl Da5 12. dxc5
hvítum greinilega í hag. 12. - Dxc5
strandar á 13. Bxe6 og 12. - Rxc5
væri glapræði vegna 13. Bxf6
o.s.frv. Best er sennilega 12. - 0-0
þó svartur sé í úlfakreppu eftir t.d.
13. Dd4. Þá gengur ekki að leika
13. - Dxc5 vegna 14. Bxf6! gxf6 15.
Dg4+ og 16. Bxe6!)
11. Be2 Re4
12. dxc5 h6?
(Friðrik hefur greinilega vanmetið
mannsfórn Kortsnojs. Best var að
leika 12. - Rxc3.)
13. Dd4. Rxg5
14. Rxg5 hxg5
15. Dxg7 Hf8
16. Bf3 Hb8
17. c6 Rc5
18. Dxg5 Ra6
19. Hfdl Dc7
22. Hd3 De7
23. De5 Dc7
24. Hd6. b4
(Ekki 24. - f6 25. Hxe6. Bxeó 26.
Dxe6+ De7 27. Bh5+ Kd8 28.
Hdl+ og vinnur.)
25. Hadl bxc3
26. Df6!
- Svatur gafst upp.
11. untferð verður tefld í dag og
þá mætir Friðrik Hort og hefur
hvítt.
Viðburöa-
flóð á
Patreks-
firði
Prentvillupúkinn lædd-
ist með skeyti sitt í viðtal
við Sigurjón Rist vatna-
mæiingamann í Þjóðvilj-
anurn í gær. Talað var um
að á Patreksfjörð hefðu
fallið sk. viðburðarflóð en
þetta fyrirbrigði heitir á
máli vatnafræðinnar við-
burðaflóð.
Þess má og geta flóðum í ám hér
á landi er skipt í 7 megin flokka: 1.
Regnflóð, 2. Leysingaflóð, 3.
Regn- og leysingaflóð, 4. Jökul-
hlaup, 5.Þrepahlaup, 6. Mann-
virkniflóð og 7. Viðburðaflóð.
Með tilvísun til viðtalsins í
blaðinu í gær við Sigurjón Rist hafa
því í raun fallið regn- og leysingafl-
óð auk viðburðaflóða yfir Patreks-
fjörð sl. laugardag.
Hvenær
byrjaðir þú ff*
____•__________I
Kristvin
Kristvinsson
látinn
Kristvin Kristinsson verka-
maður varð bráðkvaddur á heimili
sínu 22. janúar s.l. Kristvin var
fæddur 13. 6. 1926 og því tæplega
57 ára að aldri. Kristvin starfaði hjá
Eimskip í fjölda ára og nú hin síðari
ár hjá Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Kristvin var stjórnarmaður í
Verkamannafélaginu Dagsbrún og
sat um árabil í trúnaðarráði Dags-
brúnar. Kristvin átti sæti í út-
gerðarráði fyrir Alþýðubandalagið
1978 - 1982 og var varamaður þar
frá síðustu kosningum. Eftirlifandi
kona hans er Þórdís Eiríksdóttir.
Kristvin Kristinsson
Óánægðir með
félagsheimilið
Sjónvarpsþættirnir um félags-
heimilið í sjónvarpinu hlutu ekki
háa einkunn hjá þingmönnunum
Helga Seljan og Eiði Guðnasyni,
en þeir minntust á þessa þætti í um-
ræðunum á alþingi um bann við of-
beldiskvikmyndum.
Helgi sagði að þessir þættir
hefðu átt að gefa einhverja mynd af
„landsbysidjótum" og hefðu verið
algerlega misheppnaðir. Eiður tók
undir þetta og sagði að peningun-
um hefði verið betur varið til ann-
ars konar þáttargerðar. -óg
UTSALA
Á ELDAVÉLUM
Módel 1982. Við rýmum fyrír 1983 árgerðunum
f
I PA 460, 4 hellur, bökunarofn með
rafm. grillmótor, annar ofn að
neðan, gufugteypir með klukku
I og kolasiu. Verð 14.140 staðgr.
Takmarkaö magn.
Litir: gulur, rauður, grænn
EIGUM N0KKRAR LÍTIÐ ÚTLITSGALLAÐAR ELDAVÉLAR
MEÐ VERULEGUM AFSLÆTTI
EINAR FARESTVEIT & CO. HF.
BERGSTAÐASTRÆTI I0A -
SlMI I6995