Þjóðviljinn - 27.01.1983, Síða 4

Þjóðviljinn - 27.01.1983, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 27. janúar 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðs- hreyfingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Ritstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Dmsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Biaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gislason, Ólafur Gíslason, Óskar Guðmunds- son, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. Iþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Útlit og hönnun: Andrea Jónsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Atli Arason Handrita- og prófarkalestur: Elías Mar Augíýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólafur P. Jónsson Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Sæunn Óladóttir Húsmóðir: Bergljót Guðjónsdóttir. Bilstjóri: Sigrún Bárðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigmundsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir. Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6 Reykjavík, sími 8 13 33 Umbrot og setning: Prent. Frentun: Blaðaprent h.f. Að moka fé í Alusuisse • í fornum Gulaþingslögum úr Noregi var mönnum veittur mismunandi réttur eftir stétt þeirra og stöðu. Þeir sem til- heyrðu yfirstéttinni nutu höldaréttar, sléttir bændur urðu að búa við mun lakari rétt, en þrælar og ambáttir voru að kalla réttlaus svo sem dýr merkurinnar. • Nú er jafnréttisöld. Gulaþingslög og Grágás heyra sög- unni til. • En skyldi þá nokkur sú sölustofnun finnast í landinu þar sem viðskiptamennirnir eru enn flokkaðir í hölda annars vegar og kotkarla hins vegar og verðlag síðan ákveðið harla breytilegt með tilliti til þeirrar skiptingar? • Jú, reyndar er það svo. • Fyrir nokkrum vikum var á það bent hér í Þjóðviljanum að viðskiptaháttum Landsvirkjunar mætti líkja við sölu- starfsemi þarsem um helmingur vörunnar er seldur nokkrum útvöldum á gjafverði, en hinn helmingurinn síðan seldur öðrum viðskiptavinum á tvöföldu verði svo verslunin geti borið sig. • Um helmingur af seldri orku Landsvirkjunar hefur á undanförnum árum farið til álvers Alusuisse í Straumsvík en almenningsrafveiturnar í landinu keypt hinn helminginn nær allan. • Orkuverðið frá Landsvirkjun til hins erlenda álvers er nú 12,13 aurar á kílówattstund, en orkuverðið frá Landsvirkjun til almenningsrafveitnanna er hins vegar 50,70 aurar á kíló- wattstund. • Þjóðviljanum er kunnugt um að Landsvirkjun hyggst hækka orkuverð til almenningsrafveitna nú þann 1. febrúar um 29% og telur stjórn Landsvirkjunar það óhjákvæmilegt til að forðast hallarekstur og mæta halla síðasta árs. • Komi slík hækkun til framkvæmda nú um mánaðamótin þá hækkar orkuverðið til almenningsrafveitna enn um 14,70 aura í 65,40 aura. A meðan álverið borgar áfram röska 12 aura fyrir kílówattstundina, þá á að hækka verðið til al- menningsrafveitnanna um tæpa 15 aura, - þannig að sú hækkun ein sér - bara hækkunin - nemur mun hærri upp- hæð en öllu verðinu sem Alusuisse greiðir!! • Engum dettur í hug, að ástæðan fyrir þessum ósköpum sé sú að stjórn Landsvirkjunar hafi sérstakan hug á að kúga fé út úr íslenskum almúga til að hygla álfurstunum hjá Alu- suisse. Ástæðan eru þeir herfilegu samningar, sem íslensk stjórnvöld gerðu á sínum tíma við auðhringinn og ekki hafa fengist lagfærðir. - Þessum samningum verður að breyta og það strax, - ef ekki með samkomulagi, þá með því að við Islendingar notum okkar fullveldisrétt, til að hækka orku- verð til álversins. Þá peninga ber síðan m.a. að nota til þess að lækka og jafna orkuverð hér innanlands. • Samkvæmt núgildandi lögum þá fer Landsvirkjun ein með allt vald til að ákveða verð á seldri orku til almennings- rafveitnanna og þarf hvorki að spyrja Verðlagsstofnun né ríkisstjórnina. • Á síðustu þremur árum frá 1. janúar 1980 og til 1. janúar 1983 hefur orkuverð til almenningsrafveitnanna hækkað úr 7,48 aurum í 50,70 aura eða um 578%. -Bætist 29% hækkun við nú, þá verður heildarhækkunin á rösklega þremur árum 774% eða nær níföldun. • Þann 1. janúar 1980 var orkuverðið til álversins hins vegar 2,45 aurar, en er nú 12,13 aurar. Þannig hefur orkuverð til álversins aðeins hækkað um tæp 400% á sama tíma og horfur eru á, að orkuverð til almenningsrafveitnanna hafí hækkað um 774% sé miðað við næstu mánaðamót. Þannig magnast skattgreiðsla íslensks almennings til Alusuisse ár frá ári. • Samkvæmt nýlegri álitsgerð okkar færustu sérfræðinga á sviði verðlagningar á orku,-álitsgerð sem m.a. er undirrituð af yfirverkfræðingi Landsvirkjunar, þá er talið eðlilegt að orkuverð til almenningsrafveitna sé um 50% hærra heldur en til stóriðju. - Orkuverðið til almenningsrafveitnanna var hins vegar um 200% hærra en til álversins fyrir þremur árum og verður væntanlega eftir 1. febrúar n.k. um 440% hærra. • Við spyrjum: - Ætla menn að una þessu? • Það er mál að þessum fjáraustri frá íslenskum almenningi til Alusuisse linni. Hér verða ríkisstjórn og Alþingi að grípa í taumana. - k. klippt Villukennmgar um mannlegt eðli eftir Sigurð Pétursson gerlafrœðing Eggert Haukdal: Stöðug lygi um írossakaup spillti fyrir mér hAð sjálfsögðu er ég óánægður neð mína útkomu og hafði ég von- ist eftir að hún yrði betri,“ sa»oi Eggert Haukdal í gærkveldi. ÆK Dr. Sicrurður Pétursson Allir fœddir jafnir Dr. Sigurður Pétursson gerl- afræðingur skrifar grein í Morg- unblaðið á dögunum þar sem hann viil reyna að beita því sem hann kallar „náttúrufræðilegar staðreyndir“ til þess að kveða niður „villukenningar" sósíalista um mannlegt eðli. Hann segir að sósíalistar hafi mjög á lofti tvær kenningar sem séu báðar „líffræðilegs eðlis“. Þær séu þessar: „1. Allir menn eru fæddir jafnir og eiga samkvæmt því að hafa sömu möguleika í lífinu, bæði karlar og konur. 2. Munurinn á karli og konu er enginn annar en á kynfærum þeirra. Að öðru leyti er karl og kona eins og geta því geng- ið inn í hvors annars hlutverk í lífinu. “ Náttúrufar og pólitík Sigurður heldur síðan áfram með því að staðhæfa að þetta séu villukenningar sem brjóti í bága við náttúrufræðilegar staðreyndir og séu „til þess gerðar að villa um fyrir kjósendum". Síðan gerir hann sér lítið fyrir og sakar sósíal- ista um að þeir vilji ekki viður- kenna að menn séu misjafnlega úr garði gerðir til að vera skáld eða listamenn eða góðir stærðfræðingar eða hagsleiks- menn. Þess í stað útskýri sósíalist- ar allan mun á eiristaklingum, efnahagslegan, heilsufarslegan og annan, með áhrifum þjóðfé- lagsins og svo uppeldis. „Ut frá þessu sjónarmiði er svo hafin her- ferð, einkum af kommúnistum, gegn þjóðfélaginu og tekið að grafa undan ríkjandi skipulagi". Pýðing umhverfis Það er ekki oft sem viðhorf af þessu tagi eru viðruð í dag- blöðum, en eins og endranær eru skrif af þessu tagi því marki brennd, að höfundar þeirra gera það sem dr. Sigurður sakar sósí- alista um í sínum pistlum: gefa sér ákveðar forsendur og hamast svo á þeim nótum, hvað sem veru- leikanum líður. Það er að sönnu rétt, að sósíalistar hafa, eins og reyndar margir róttækir menn sem á undan þeim gengu, lagt áherslu á þýðingu félagslegra þátta í hlutskipti mannsins. En það er mikil einföldun að halda því fram, að þar með fylgi hjá sósíalistum yfir höfuð vanmat á því, að einstaklingar eru hver öðrum ólíkir. Þegar sósíaiistar hafa lagt áherslu á þýðingu fé- lagslegs umhverfis, þjóðskipu- lags, er það ekki til að afneita mismunandi hæfileikum manna og þroskaviðleitni sem gengur í ýmsar áttir. Heldur til að beina athyglinni að því hve miklu samfélagslegir þættir ráða um það, hvað verður úr þeim mögu- leikum sem hinir ólíku einstak- lingar búa yfir. Boðskapurinn um þjóðfélagslegan jöfnuð er ekki reistur á líffræði heldur á siðfræði - það ættu þeir reyndar að vita sem einhverntíma hafa fengið nasasjón af kristnum dómi. Réttlœting En það er svo mjög í ætt við þessa umræðu fyrr og síðar, að dr. Sigurður vill vísa öllu saman yfir á erfðafræðina, eða náttúr- una eða jafnvel guðs vilja. Ekk- ert er algengara hjá forréttinda- stéttum eða þeim sem hafa komið sér vel fyrir, eins og það heitir, en að reyna að lyfta sér í eigin vitund með því að sannfæra sig um að forsjónin, góðar gáfur og annað af því tagi réttlæti velgengni þeirra eða velmegun. Það var einu sinni sagt opinskátt að fá- tæklingar væru svo illa gefnir að þeim væri ekki trúandi fyrir at- kvæðisrétti. Slíkt tal er ekki lengur í tísku en tilhneigingar til að hugsa í þessa veru eru í all- miklu fjöri. Eins og grein dr. Sig- urðar minnir á, sem og mestu langhundar íslandssögunnar - syrpa sú sem Morgunblaðið birtir reglulega eftir Jón Árnason. Hrossafargan En vendum okkar kvæði í kross undir lokin. Blöð eru að spyrja Eggert Haukdal um það hvernig honum líki að hafna í þriðja sæti í prófkjöri Sjálfstæðis- manna á Suðurlandi. Eggert er ekkert hress með þetta og kennir um því, eins og haft er eftir hon- um í Morgunblaðinu - að „fjöl- miðlar voru mér ekki vinsamlegir meðan á þessu stóð, með stöðuga lygi um hrossakaup og hverskyns vinnubrögð". Skáldið S. orti þeg- ar hann las þetta: Stríðið heyja vonlaust var, vandinn þessi mestur: Gegn mér barðist guðlaust par gamalt hross og prestur. - áb. og skorid Eðvarð um menntamanna- klíku í viðtali við Helgarpóstinn á dögunum var Eðvarð Sigurðs- son, fyrrum alþingismaður og Dagsbrúnarformaður, spurður að því, hvort að „Alþýðubanda- laginu sé ekki mestmegnis stjórn- að af menntamannaklíkunni?“ eins og blaðamaður komst að orði. Eðvarð svaraði á þessa leið: „Nei alls ekki. Auðvitað geta verið skipt sjónarmið milli þess- ara þjóðfélagshópa, en mín skoð- un er sú að í verkalýðsflokki eigi sjónarmið verkafólksins að vera alls ráöandi. „Er Alþýðubandalagið ennþá verkalýðsflokkur? Já það tel ég vera. En aðstæður hafa breyst. Verkafólk er ekki sú stærð og það afl í þjóðfélaginu sem áður var og það hefur áhrif inn í pólitísku flokkana“. Sérhagsmuna- sjónarmið I framhaldi af þessu er Eðvarð spurður að því, hvað augurn hann líti verkalýðsbaráttu nú á síðustu tímum og hann fer með svofelld orð í tíma töluð um eilífðarmál verkalýðshreyfingar, samstöðu- kröfuna: „Mér mislíka mest þessi sér- hagsmunasjónarmið og háu kröf- ur einstakra hópa, sem stundum eru markaðar tillitslausri eigin- girni. En sá blær hjálpseminnar sem að mínu viti verður alltaf að vera aðall verkalýðshreyfingar- innar er ekki jafn sterkur og áður var. Innihaldið í baráttunni hefur tekið á sig annan svip og þá þróun erégekki sátturvið. Efsamhjálp- Eðvarð Sigurðsson in - við eigum ekki til annað orð yfir solidarity - og áhersla á kjör þeirra sem eru lakast staddir eru ekki í fyrirrúmi erum við ekki á réttri leið“.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.