Þjóðviljinn - 03.02.1983, Page 3
Fimmtudagur 3. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Fjórir hlutu
heiðurslaun
Brunabótar
i
Fjórir einstaklingar, Arnór Pétursson, Þórir S. Guðbergsson,
Hafsteinn Hafliðason og Birgir Björnsson, hlutu heiðurslaun
Brunabótaféiags íslands að þessu sinni. Voru verðiaunin afhent í
hófi sem Brunabótafélagið hélt í gær að Hótel Loftleiðum. Þetta er í
annað sinn sem félagið veitir launin, en í fyrra í fyrsta sinn og þá í
tilefni 65 ára afmælis BÍ. Launin miðast við 20. launaflokk opin-
berra starfsmanna.
Verðlaunahafar með stjórnarmönnum í Brunabótafélagi íslands. Neðri röð frá vinstri: Arnór Pétursson,
Hafsteinn Hafliðason, Birgir Björnsson og Þórir S. Guðbergsson. Efri röð frá vinstri: Hilmar Pálsson, Ingi R.
Helgason, Stefán Valgarðsson, Björgvin Bjarnason og Þórður Jónsson. Ljósm: -eik.
Bókun iðnaðarráðherra:___________________
Er andvígur mót-
mæhim Steingríms
Ingi R. Helgason forstjóri BÍ
gerði grein fyrir afhendingu
launanna. Hann sagði að á liðnu ári
hefði verið stofnað eitt stöðugildi
til þess að auðvelda einstaklingum
á sviði lista, vísinda, menningar-
mála, íþróta og atvinnulífs að sinna
verkefnum sínum. Ingi sagði að líkt
og í fyrra væri laununum skipt.
Hann sagði að stjórn Brunabóta-
félagsins hefðu borist fjölmargar
umsóknir um launin, en til þess að
halda fullum trúnaði við umsækj-
endur væri farin sú leið að gefa ekki
upp fjölda þeirra né heldur hverjir.
þeir væru.
Síðan rakti Ingi ástæður fyrir því
að fjórmenningarnir fengu launin
nú. Arnór Pétursson fengi launin
til þess að undirbúa þátttöku ís-
lendinga í Olympíuleikum fatlaðra
sem fram fara í Bandaríkjunum á
næsta ári, Birgir Björnsson til að
kynna sér eldvarnir og öryggismál
á stórum vinnustöðum, Hafsteinn
Hafliðason til aö geta sinnt enn
betur þeirri fræðslustarfsemi á
sviði gróður- og garðræktar sem
hann hefði undanfarið staðið fyrir í
útvarpi og blöðum. Þá eru launin
veitt Þóri S. Guðbergssyni til þess
að hann geti haldið áfram því
óeigingjarna starfi sem hann hefur
unnið á sviði upplýsinga- og
fræðslustarfs í þágu aldraðra meðal
annars með því að taka saman bæk-
ling um málefni þeirra, jafnframt
því sem hann hefði staðið straum af
kostnaði við útgáfuna.
Við afhendinguna í gær voru auk
verðlaunahafa og Inga viðstaddir
stjórnarmenn og starfsmenn
Brunabótafélagsins.
-hól.
Á ríkisstjórnarfundi þann 1. fe-
brúar sl., þar sein fjallað var um
hvalveiðimál lét Hjörleifur Gutt-
ormsson, iðnaðarráðherra bóka
eftirfarandi:
Ég er andvígur þeirri afstöðu
sjávarútvegsráðherra að mótmæla
ákvörðun 34. ársfundar Alþjóða
hvalveiðiráðsins um hvalveiðar frá
árunum 1985/1986 að telja.
Afstöðu mína byggi ég á einkum
á eftirfarandi rnati:
1. Þótt ekki liggi fyrir gögn sem
bendi til, að hvalastofnanir
þeir, sem nú eru veiddir hér við
land, séu í hættu vegna ofveiði,
ríkir óviss um ástand þeirra
vegna takmarkaðra og ófull-
nægjandi rannsókna.
2. Mótmæli af íslands hálfu veikja
stöðu þeirra aðila á
alþjóðavettvangi, sem berjast
Sölustofnun
lagmetis:
Víll stað-
festa hval-
veiðibannlð
Stjórn Sölustofnunar lagmetis
hcfur lýst andstöðu við þegar kynn-
tar fyrirætlanir ríkisstjórnarinnar
um að mótmæla hvalveiðibanni
Alþjóða hvalveiðiráðsins og telur
að mótmæli gætu haft í för með sér
ófyrirsjáanlegar afleiðingar fyrir
útflutningshagsmuni íslands í
Bandaríkjunum.
í frétt frá Sölustofnun lagmetis
segir að stjórn þess hafi fjallað um
fyrirhuguð mótmæli ríkisstjórnar
Islands gegn ákvörðun Alþjóða-
hvalveiðiráðsins að banna hval-
veiðar frá árinu 1986.
Stofnunin tekur ekki afstöðu til
þeirra vísindalegu raka, sem færð
hafa verið með og móti slíku hval-
veiðibanni, en telur á því verulega
hættu, að verði hvalveiðibanninu
mótmælt af íslendinga hálfu gæti
það haft í för með sér ófyrirsjáan-
legar afleiðingar fyrir útflutnings-
hagsmuni okkar í Bandaríkjunum.
I frétt frá Sölustofnuninni segir
síðan:
„Minna má á, að vörumerki á
íslensku lagmeti í Bandaríkjunum
er ICELAND WATERS og gera
má ráð fyrir vaxandi sölu á þann
markað, ef ekki kemur til óvæntra
truflana.
Stofnunin lýsir því yfir andstöðu
við þegar kynntar fyrirætlanir ríkis-
stjórnarinnar að mótmæla hvai-
veiðibanninu." “v-
gegn ofveiði hvalastofna á öðr-
um hafsvæöum.
3. Slík mótmæli íslendinga munu
veikja stöðu okkar til að ná
Hjörleifur Guttormsson
fram skynsamlegri stjórnun á
nýtingu fiskistofna sem flakka
milli lögsögusvæða einstakra
ríkja á Norður-Atlantshafi, svo
sem karfa, loðnu og kolmunna.
4. Með mótmælum okkar er stefnt
í hættu rniklu stærri hagsmun-
um en um er að tefla þótt hætt
verði um tíma hvalveiðum ís-
lendinga,á þaö við hvort sent
litið er til söluandvirðis af
afurðum á erlendum mörkuð-
um eða til atvinnu hér innan-
lands.
5. íslendingar eiga kost á að meta
afstöðu sína til hvalveiða og
Alþjóða hvalveiðiráðsins á
næstu árum, m.a. í ljósi þeirrar
þróunar, rannsókna og umræðu
sem veröur á alþjóðavettvangi
fram til þess tíma að samþykkt
hvalveiðiráðsins gengur í gildi.
Verkamanna-
bústaðir
í Hafnarfirði
Stjórn verkamannabústaöa í Hafnarfirði hef-
ur ákveöiö aö auglýsa aö nýju eftir umsókn-
um vegna Víðivangs 1.
Þeir einir hafa rétt til aö kaupa íbúð í verkamannabú-
stööunum, sem uppfylla eftirtalin skilyrði:
a) Eiga lögheimili í Hafnarfirði.
b) Eiga ekki íbúð fyrir eða samsvarandi eign í öðru
formi.
c) Hafa haft meðaltekjur fyrir sl. þrjú ár sem séu ekki
hærri en kr. 91.500,- fyrir einhleyping eða hjón.
Fyrir hvert barn innan við 16 ára aldur sem er á fram-
færi umsækjanda bætast við kr. 8.100,-.
Greiðslukjör: Umsækjandi, sem fær úthlutað íbúð,
skal inna af hendi greiðslu sem nemur 10% af verði
íbúðar og greiðist í tvennu lagi. Fyrri helmingurinn
greiðist innan átta vikna frá dagsetningu tilkynningar
og úthlutun íbúðar, en seinni helmingurinn samkvæmt
nánari ákvörðun stjórnar.
Þeir aðilar sem sóttu um þann 9. nóv. 1982- 1. des.
1982 þurfa ekki að endurnýja sínar umsóknir. Allar
aðrar umsóknir þarf að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á félagsmálaskrif-
stofunni, Strandgötu 6, og ber að skila umsóknum
þangað eigi síðar en 18. febrúar nk.
Hafnarfirði, 1. febrúar 1983.
Stjórn verkamannabústaða
í Hafnarfirði.
Verkakvennafélagið Framsókn
Allsherjaratkvæða-
greiðsla
Ákveðið hefur veriö aö viðhafa allsherjar-
atkvæöagreiðslu við kjör stjórnar og í önnur
trúnaðarstörf í félaginu fyrir áriö 1983 og er
hér með auglýst eftir tillögum um félagsmenn
í þau störf. Frestur til aö skila listum er til kl.
12 á hácfegi miðvikudaginn 9. febrúar 1983.
Hverjum lista þurfa aö fylgja meðmæli 100
fullgildra félagsmanna. Listum ber að skila á
skrifstofu félagsins í Alþýöuhúsinu viö
Hverfisgötu.
Stjórnin
UTBOÐ
WR
'V
Tilboð óskast í steyptar hlífðarhellur fyrir Rafmagns-
veitu Reykjavíkur. Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu
vorri að Fríkirkjuvegi 3 Reykjavík gegn 300 kr. skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju-
daginn 15. febrúar 1983 kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
P ÚTBOÐ
Tilboð óskast íjarðvinnu við og lagningu 132 kVjarð-
strengsfyrir Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Útboðsgögn
eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkjuvegi 3 Reykja-
vík gegn 300 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð
á sama stað þriðjudaginn 22. febrúar 1983 kl. 11 fyrir
hádegi.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Verkfræðingar-
tæknifræðingar
Staöalnefnd ITÍ viöurkenndi töflur um varma-
afköst fyrir Funaofna, sem framleiddir eru af
Ofnasmiöjunni Funaofnar hf. í Hverageröi í
mars 1981.
Iðntæknistofnun
íslands
II