Þjóðviljinn - 03.02.1983, Qupperneq 11
Fimmtudagur 3. febrúar 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
Umsjón:
Viðir Sigurðsspn
Sigurður Sveinsson
lék mjög vel í gær-
kvöldi og sex þrumu-
fleygar hans höfnuðu
í norska markinu.
Norðurlandaferð landsliðsins í handknattleik:_
Vel heppnuð?- Kemur
í ljós í Hollandi!
„Þetta var þokkalcga góður
leikur hjá íslenska liðinu og fyrir
áhorfendur var hann hörkuspenn-
andi. Fyrir okkur var mikilvægast
að vinna, eitt af því sem við þurft-
um að ná upp í þessari ferð var
viljinn til að vinna leiki. Lands-
liðinu hefur oft gengið illa gegn
þjóðum, sem eru taldar veikari, á
þeirra heimavöllum, og það var því
gott að ná öðrum sigri hér í Nor-
egi“, sagði Hilmar Björnson lands-
liðsþjálfari í handknattlcik í sam-
tali við Þjóðviljann í gærkvöldi. Þá
var nýlega lokið síðari leik Norð-
manna og íslendinga í Lilleham-
mer, Islendingar sigruðu 21-20
eftir harða og tvísýna baráttu.
Þegar Hilmar var spurður hvort
hann teldi Noðurlandaferðina vel
Fimm sigrar og eitt tap er útkoman úr Norðurlanda-
ferðlandsliðsinsíhandknattleik. SiguráDönum, 19-18,
síðan tap 20-23. Sigrar á Finnum 31-19 og 30-28 og á
Norðmönnum 22-17 og 21-20. Samtals 143 mörk skoruð
gegn 125.
Álfreð Gíslason skoraði 31 mark, Kristján Arason 28,
Hans Guðmundsson 15, Guðmundur Guðmundsson 13.
Páll Ólafsson 12, Sigurður Sveinsson 11, Bjarni Guð-
mundsson 10, Ólafur Jónsson 8, SteindórGunnarsson 7,
Porgils Óttar Mathiesen 6, Jóhannes Stefánsson 1 og
Þorbjörn Jensson 1.
heppnaða var svarið þetta: „Hvort
hún er vel heppnuð eða ekki kemur
í ljós eítir B-keppnina í Hollandi.
Frammistaðan þar sýnir hvernig
hún hel'ur tekist, þetta var jú liður í
undirbúningnum fyrir þá keppni.
Ég vil vara menn við að rjúka upp
til handa og fóta þegar leikir eins
og þessir vinnast. Landsliðinu hef-
ur yfirleitt gengið illa í stórkeppn-
unt síðustu árin og yfirlýsingar
nú unt að við eigum að ná öðru sæti
í Hollandi og þvílíkt er hreinasta
rugl. Það verður að líta raunhæft á
málin og standa sig þegar á hólm-
inn er kontið."
Norðmenn tóku fljótlega forystu
í gærkvöldi, 1-4 og 6-8, en þá
breytti íslenska liðið um varnarað-
ferð. Tók tvo norska úr untferð og
það skilaði sér fljótt, forystan í
hálfleik íslensk, 10-9.
í síðari hálfleiknunt var jafnt á
öllum tölum upp að 16-16 en þá
komst ísland tveim mörkum yfir.
Norðmenn jöfnuðu en undir iokin
kom Brynjar Kvaran í íslenska
markið og lokaði því gersamlega.
Kristján Sigmundsson hafði varið
af stakri prýði fram að því. íslend-
ingar missti knöttinn þegar 15 sek-
úndur voru eftir en Norðmenn
náðu ekki að jafna, Brynjar sá til
þess, og annar sigur Islands var
staðreynd.
Sigurður Sveinsson átti mjög
góðan leik og skoraði 6 ntarka liðs-
ins. Kristján Arason lék ekki með
vegna smávægilegra nteiðsla og
skilaði Sigurður stöðu hans virki-
lega vel. Alfreð Gíslason skoraði 4,
Bjarni Guðmundsson 2, Guð-
ntundur Guðntundsson 2, Páll
Ólafsson 2, Þorgils Óttar Mathie-
sen 2, Steindór Gunnarsson 2 og
Ólafur Jónsson eitt.
íslenska liðið kemur heint í dag
og það verður lítið um hvíld hjá
landsliðsmönnunum okkar þrátt
'fyrir að erfið ferð sé að baki. Æft
daglega þar til farið verður til Hol-
lands síðar í þessunt mánuði og
leiknir æfingaieikir. Vonandi skilar
þetta sér í góðri frammistöðu þar
ytra, til þess er jú verið að leggja
allt þetta á sig.
- VS.
Fræknir
feðgar
Tannlæknastofa Hængs Þorsteins-
sonar, keppendur Hængur Þorsteins-
son og sonur hans, Þorsteinn Páll
Hængsson, sigraði Tannlæknastofu
Friðleifs Stefánssonar, keppendur
Friðleifur Stefánsson og Reynir Guð-
mundsson, í úrslitaleik Fyrirtækja- og
stofnanakeppni Badmintonsambands
Islands um síðustu helgi. Úrslitaleikur-
inn var hörkuspennandi og endaði 11-
15, 15-6 og 18-17. Á myndinni að ofan
eru keppendurnir í úrslitaleiknum, frá
vinstri Hængur, Þorsteinn, Reynir og
Friðleifur. Keppnin var haldin til styrkt-
ar unglingalandsliðinu í badminton
sem tekur þátt í Norðurlandamóti í Sví-
þjóð í byrjun mars.
Clarke
aftur til
starfa
Allan Clarke, fyrruni leikmaður
með Leeds og enska landsliðinu í
knattspyrnu, hefur tekið við sem
framkvæmdastjóri 4. deildar-
liðsins Scunthorpe. Clarke missti
starf sitt sem stjóri Leeds sl. vor
þegar félagið féll í 2. deild en er nú
kominn í bransann að nýju. Fráfar-
andi stjóri Schunthorpe er John
Duncan, fyrrum miðherji Totten-
ham, en hann hefur gert ótrúlega
hluti með liðið á skömmum tíma.
Það hefur vananlega verið í botn-
sætum 4. deildar en er þar nú með-
al efstu liða. Hjá Scunthorpe hafa
margir kunnir kappar hafið feril
sinn, þeirra þekktastir sennilega
Kevin Keegan og Ray Clemence.
- VS.
lafntefli í framlengdum
leik á Elland Road í gær
Ekki fékkst úr því skorið í gær-
kvöldi hvort Leeds Unitcd eða Ars-
enal kæmist í 5. umferð ensku
bikarkeppninnar í knattspyrnu.
Liðin léku á Highbury, heimavelli
Arsenal, á laugardaginn og þá varð
jafntefli, 1-1. Sömu úrslit urðu í
gærkvöldi á Elland Road í Leeds,
1-1. Ekkert mark var skorað í venj-
ulegum leiktíma en liðin gerðu sitt
markið hvort í framlengingu.
Úrslit í Englandi og Skotlandi í
gærkvöldi:
FA-bikarinn
4. umferð
Leeds-Arsenal.................1-1
Norwich-Coventry..................2-1
(1-1 eftir venjulegan leiktíma)
Skoski bikarinn
3. umferð
Hearts-Queen oftheSouth...........1-0
Kilmarnock-Patrick Thistle........0-0
Motherwell-Clyde..................3-4
Óvænt tap hjá Jóhannesi
Eðvaldssyni og félögum á heima-
velli gegn 1. deildarliði Clyde.
Liðin gerðu markalaust jafntefli á
laugardaginn en Motherwell tókst
ekki að nýta sér heimavöllinn til
sigurs. Clyde skoraði sigurmarkið í
framlengingu eftir að staðan að
loknum 90 mínútum hafði verið 3-
3.
Greenwood
ráðgjafi Ástrala
Ron Greenwood, sem sagði af
sér sem einvaldur enska lands-
liðsins eftir heimsmeistara-
keppnina í sumar, hefur tekið að
sér að vera ráðgjafi landsliðs-
þjálfara Ástralíu. Góður styrkur
það fyrir andfætlingana, ekki síst
vegna þess að meðal verkefna ástr-
alska landsliðsins eru þrír lands-
leikir á heimavelli gegn Englend-
ingum í júní. Greenwood ætti að
geta gefið góð ráð þá!
- VS
Framtíð Derby Co. í hættu
Derby County, Englands-
meistari í knattspyrnu 1972 og
1975, á yfir höfði sér 200,000 punda
fjárkröfu frá Bradford City. Derby
fékk á dögunum 10,000 punda sekt
fyrir að lokka til sín Roy McFar-
land, framkvæmdastjóra Brad-
ford, og þjálfarann Mick Jones.
Þeir hjá Bradford City eru ekki
ánægðir og krefjast nú tvö hundruð
þúsunda í skaðabætur. Þær kröfur
eru byggðar á því að síðan þeir fé-
lagar fóru til Derby hefur Bradford
ekki unnið leik og áhorfcndafjöldi á
heimaleikjum liðsins hefur lækkað
Roy McFarland.
um 50 prósent.
„Ef til þess keniur að við þurfum
að borga þessa upphæð, þýðir það
að öllum líkindum endalok Derby
County", sagði Mike Watterson
formaður félagsins í gær. „Ég trúi
ekki að þetta nái fram að ganga,
þessi krafa er fáránleg. Stjórn Der-
by á enga möguleika á að nálgast
slíka fjárhæð og ekki kemur hún úr
mínum vasa." Þess má geta að í
haust lét Watterson aðra eins upp-
hæð af hendi rakna til að losa fé-
lagið útúr verstu fjárhagskröggun-
um, enda auðkýfingur lúnn mesti.
- VS.
Bandaríska frjálsíþróttasam-
bandið býður hlaupara stórfé!
Alberto Salazar, fremsti mara-
þonhlaupari heims, hefur upplýst
að tveir stjórnarmenn bandaríska
frjálsíþróttasambandsins hafi
boðið sér 60.000 dollara undir
borðið fyrir að taka þátt í rnara-
þonhlaupi í Los Angeles í vor. Þetta
er ekki í fyrsta skipti sem hann
lcndir upp á kant við þarlend frjáls-
íþróttayfirvöld sem hafa lýst sig
saklaus af ódæðinu.
Salazar á annars við erfitt vanda-
mál að glíma. Honurn hefur verið
boðið að taka þátt í miklu hlaupi í
Brisbane í Ástralíu þann 18. apríl
og etja þar kappi við Roberto Cas-
tella, Ástrala, sem er einn þeirra
bestu í heimi. En, sama dag fer
fram í Boston úrtökumót fyrir
heimsleikana í Helsinki og þar
verður Salazar að gjcra svo vel að
mæta ef hann á að komast í banda-
ríska liðið. Hann hefur ekki tekið
ákvörðun um hvoru megin á jarð-
arkringlunni hann verður þann 18.
apríl og er reiður út í þá bandarísku
fyrir að setja honum skilmála sem
þessa.
Larios - vill til Spánar.
Enn vand-
ræði hjá
St. Etienne
Knattspyrnustórveldið franska,
St. Etienne, á í mikluin erfiðleikum
um þessar mundir eins og fram hef-
ur komið. Liðið er í fallbaráttu í 1.
deildinni og innanfélagsátök ógna
tilveru þess. Nú hefur það orðið
fyrir einu áfallinu enn; fyrirliðinn,
Jean Francios Larios, einn lykil-
manna franska landsliðsins, vill
yfirgefa St. Etienne og Spánn er
efstur á óskalista hans. Fjögur
spænsk stórlið hafa þegar sýnt
áhuga, Barcelona, Real Madrid,
Valencia og Atletico Madrid.
-VS
BjömBorg
hættir
alfarið!
Björn Borg, sænska tennisstjarnan,
hefur ákveðið að hætta keppni alfarið í
lok apríl. Áður hafði hann tilkynnt að
hann drægi sig út úr stórmótum og
hygðist einungis leika sýningarleiki en
í gær gaf hann út þá yfirlýsingu að hann
ætlaði að hætta algerlega að loknu
stórmóti í Tókyo í apríl. Engír sýning-
arleikir - eða ágóðaleikir; Björn Borg
ætlar að henda tennisspaðanum á hill-
una í hinsta sinn.
- VS
-VS