Þjóðviljinn - 04.02.1983, Síða 2
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. febrúar 1983
Skák
Karpov a& tafli - 91
I lok árs 1973 hélt Karpov ásamt þjálfara
sínum Semion Furman til Madrid þar sem
hann tók þátt i sterku alþjóðlegu skákmóti.
Þátttakendur voru 16 talsins, þ.á.m. stór-
meistarar á borö við Portisch, Hort,
Uhlmann, Anderson, Ljubojevic, Browne,
Tukmakov og Planic. Þetta mót átti að
verða síðasti liður í undirbúningi Karpovs
fyrir einvígið við Polugajevskí. I 1. umferð
maetti hann Spánverjanum Arturo Pomar.
Pomar þessi var á sínum yngri árum eitt af
undrabörnum skáklistarinnar og skorti Alj-
ekin orð til að lýsa haefileikum hans. Eftir
að honum fór að vaxa fiskur um hrygg varð
þó heldur lítið úr þessum mikla efnivið og I
dag er litið á hann sem hálfgerðan flóð-
hest, svo að notað sé alþekkt skákmál.
Thor Heyerdahl
finnur merkar fornleifar
Hámenning
í frumskóginum
Skáksveit
Flugleiða
Sigraði
í Swissair
Cup
Skáksveit Flugieiða, skipuð
þeim Herði Jónssyni, Hálfdáni
Hermannssyni, Ólafi Ingasyni og
Trausta Jónssyni, sigraði í hinni
árlegu keppni svissneska Oug-
félagsins Swissair. í keppninni
tóku þátt 6 flugfélög og 6 bankar
og tefldu allar sveitirnar inn-
byrðis.
Flugleiðir hlutu 3172 vinning af
44 mögulegum, en í 2. sæti varð
sveit frá Kantonen bank með29'/2
og sveit Swissair með 27'A
vinning.
Skáksveit Flugleiða hefur ver-
ið mjög sigursæl á skákmótum
flugfélaga undanfarin ár og sigr-
aði t.d. á alþjóðlegu móti flugfé-
laga sem haldið var á Florida á
síðasta ári. Þá má geta þess að
sveit Flugleiða er komin í úrslit
Evrópuskákkeppni flugfélaga.
Mun sveitin heyja úrslitaviður-
eign við skáksveit Lufthansa,
vestur-þýska flugfélagsins, og fer
hún fram í Hamborg þann 19.
mars næstkomandi.
-hól.
500km
Frá Reykjavíkurhöfn á öldinni sem lcið.
Kauptaxti
hafnsögumanna
Hinn 1. des. 1841 var gefinn út
kauptaxti fyrir hafnsögumenn í
Reykjavík og Hafnarfirði. Skyldu
þeir vera þrír á hvorum stað og
geta allir sinnt störfum við hvora
höfnina sem væri. Bar amtmanni
að skipa hafnsögumennina eftir
tillögum bæjarstjórnar í Reykja-
vík og sýslumannsins í
Gullbringu- og Kjósarsýslu, en
þar skyldu og kaupmenn vera
með í ráðum.
Skilyrði fyrir því, að hafnsögu-
menn fengju fulla greiðslu fyrir
störf sín var að þeir kæmu til móts
við skipin hálfa mílu undan Sel-
tjarnarnesi eða Álftanesi eftir því
hvort för þeirra var heitið til
Reykjavíkur eða Hafnarfjarðar.
Stæðist það ekki yrðu hafnsög-
umennirnir hýrudregnir. Og tæk-
ist svo til, að skip væru komin inn
fyrir Akurey eða Helgusker þeg-
ar þau mættu hafnsögumanni,
fengi hann ekkert fyrir sinn snúð.
Hafnsögugjaldið miðaðist við
það hversu djúpt skipið risti og
gat hlaupið á 3 rd. upp í 10 rd. og
48 sk. að sumrinu og frá 3 rd. og
48 sk. í 12 rd. og 48 sk. að vetrin-
um. Fyrir að leiðbeina skipi úr
höfn var gjaldið einum þriðja
lægra.
-mhg
Karpov - Pomar
Pomar vann skiptamun snemma tafls en
allnokkrar bætur hafði Karpov þó, biskup-
aparið og peð. Vinningsmöguleikarnir virt-
ust ekki miklir hvorki á hvítan né svartan en
þegar leið á skákina tók Pomar að leika
hverri vitleysunni á fætur annarri. Eftir 49.
leik svarts kom þessi staða hér aö ofan
upp. Karpov hefur orðið sér út um tvö sam-
stæð frípeð og brunar með þau áfram...
50. c6+ Kc8
51. Bd6 16
52. Bb4! Kc7
53. Kb3 Ha1
54. Kc4 Kb6
55. Bc5+ Kc7
56. Kb5 Hbl+
57. Bb4
- Svartur gafst upp.
Norski vísindamaðurinn kunni Thor Heyerdahl
hefur fundið merkilegar fornleifar á eyju sem til-
heyrir Maldívalýðveldinu. Rústir af hofum og öðrum
byggingum í frumskóginum á þessari óbyggðu eyju
benda til þess að þær hafi verið reistar af þjóð sem
bjó þar á tímum fyrir Búddisma, uþb. 500 árum fyrir
Kristsburð.
Hámenning hefur ríkt á þessari
eyju á þessum tíma og hafa fund-
ist guðamyndir úr steini með álet-
runum sem minna á letur úr hinni
svokölluðu Indusmenningu sem
kennd er við Indusdalinn (núver-
andi Indland og Pakistan) frá
2500 til 1800 fyrir Krist.
Maldivaeyjar eru 1438 kóralrif
um 80 mílur suðvestur af Sri
Lanka, og eru aðeins 202 þeirra
byggðar. Yfirvöld á Maldiva-
eyjum hafa lýst fund Heyerdahls
mesta viðburð í lýðveldinu á
þessari öld. Heyerdahl sem
dvelst á Maldivaeyjum mun í
þessum mánuði fá í heimsókn
Arne Skjöldsvold fornleifa-
fræðing, sem er hans nánasti sam-
starfsmaður, til þess að ræða um
meiriháttar fornleifarannsóknir á
áðurnefndri eyju.
-ekh
Hvað
skrifa
lands-
hluta-
blöðin?
Hið óháða fréttablað Víkur-
blaðið, sem gefið er út á Húsavík
og fyrst og fremst ætlað þeim sem
búa norðanlands, greinir frá því
þann 25. janúar síðastliðinn, að
snemma vetrar hafi skíðaráðs-
menn farið með heljarmikla vír-
rúllu á endastöð skíðalyftunn-
ar í Löngulaut. Var meiningin að
nota þennan vír í lyftuna. Þetta er
10-12 mm trollvír að verðmæti 30
þúsund krónur. Fyrir skömmu
síðan eða þegar koma átti vírnum
fyrir gripu menn í tómt. Engin
rúlla, enginn vír.
Blaðið hefur uppi tvær kenn-
ingar um þetta dularfulla vír-
hvarf. Annaðhvort hafi vírnum
verið stolið, sem verður að teljast
ólíklegt, segir blaðið, eða að ein-
hverjir skopparaglaðir menn hafi
hrundið rúllunni af stað niður
fjallið og hafi hún síðan stöðvast
einhversstaðar við rætur þess þar
sem hennar sé að leita. Langtífrá
er gefið að rúllan finnist fyrr en
með vorinu, því að snjóþungt er á
þessum slóðum og allar líkur
bendi til að rúlluskömmin sé hul-
in snjó. í lok fréttar um þetta
stórundarlega rúlluhvarf er þess
farið á leit við þá, sem hugsanlega
vita eitthvað um afdrif rúllunnar,
að þeir láti skíðaráðsmenn vita...
...Og svo eru það fuglarnir. Eru
annars nokkrir fuglar hér um
slóðir á þessum kalda og frosna
tíma ársins? Jú, ekki ber á örðu,
og hér kemur niðurstaða úr taln-
ingunni á annan dag jóla, skrifar
Norðurslóð, blað Svarfdælinga:
Stokkönd, 42. Hávella, 70.
Æðarfugl, 150. Straumönd, 2.
Gulönd, 2. Sendlingur, 35. Silf-
urmávur, 25. Svartbakur, 30.
Hvítmávur, 15. Teista, 2. Hrafn,
8. Snjótittlingur, 30. Ógreindir
mávar 12.
Þessa könnun gerði Steingrím-
ur Þorsteinsson á Dalvík....
...Komiði sæl elskurnar mínar
og allt það. Moli er svona rétt að
jafna sig eftir hátíðirnar, er skrif-
að í Brautina, málgagn krata í
Eyjum. Blaðið heldur svo áfram:
.. .Heitasta málið þessa dagana er
útreiðin sú sem þingmaður
Suðurlands, Guðm. Karlsson
fékk. Ljóst er að þingmannsferli
hans er lokið að sinni. Árni John-
sen sneri kappann niður í einni
lotu. Ekki er flokksvélin sátt við
útreiðina, því að vitað er að full-
trúaráð flokksins hér í Eyjum
stóð nærri allt með Guðmundi.
Óhætt er að túlka úrslitin sem
mikið áfall fyrir forystuna...
...Veistu að á íslandi munu vera
um 4800 heildsalar? Þetta er afar
merkileg staðreynd, ekki síst í
ljósi þess að íslenskir sjómenn
munu vera um 5000 talsins.
(Austurland, mál Alþýðubanda-
lagsins á Austurlandi).
Þeir vísu sögöu
Alla mína vitneskju öðlaðist ég
eftir þrítugt. - Georges Clem-
enceau
Gætum
tungunnar
Sést hefur: Þeir líta á hvor
annan sem bræður og finnst
þeir hafa frjálsan aðgang að
eigum hvors annars.
Réttara væri: Þeir líta hvor á
annan sem bróður, og þeim
finnst þeir hafa frjálsan að-
gang hvor að annars eigum.