Þjóðviljinn - 12.03.1983, Page 3

Þjóðviljinn - 12.03.1983, Page 3
Helgin 12. - 13. mars 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Fyrirlestur í Árnagarði á morgun Heimspeki og saga Heimspeki og saga heitir fyrir- lestur, sem Arnór Hannibalsson mun flytja í dag, laugardaginn 12. mars í stofu 201 í Árnagarði. Hann hefst klukkan tvö. Arnór Hannibalsson er dósent í heimspeki við Háskóla íslands. Fyrirlestur hans er einn af mörg- um, sem Heimspekideild Háskóla íslands gengst nú fyrir til að kynna almenningi þær rannsóknir, sem deildarfólk er að vinna að. Ráðstefna um áfengismál Staða og stefna í áfengismálum er efni stuttrar ráðstefnu sem á- fengisvarnarnefndir á höfuðborg- arsvæðinu gangast fyrir n.k. laugardag, 12. mars. Ráðstefnan verður haldin í Templarahöllinni, Hiríksgötu 5 og hefst hún kl. 14. Til ráðstefnunnar er boðið sveitarstjórnarmönnum og áfeng- isvarnanefndarmönnum á svæðinu frá Hafnarfirði til Kjósarsýslu, en ráðstefnan er haldin í samvinnu við Áfengisvarnaráð. Dagskrá ráðstefnunnar er sem hér segir: 1. Avarp: Páll V. Daníelsson form. áfengisvarnanefndar Hafn- arfjarðar. 2. Að bjarga eða byrgja: Þanka- brbt um áfengismálastefnu: Jó- hannes Bergsveinsson yfirlæknir nieðferðarstofnana ríkisins fyrir drykkjusjúka. 3. Ný viðhorf: Ólafur Haukur Árnason áfengisvarnaráðunautur. 4. Fyrirspur/iir og umræður. Borgarstjórn Reykjavíkurbýður til kaffidrykkju. Flugleiðir og Emir skipta Flugleiðir hf. og Flugfélagið Ernir hf. á ísafirði hafa gert með sér samning um að Flugleiðir taki að sér afgreiðslu Ernis á Isafjarðar- flugvelli. Munu Flugleiðit annast afgreiðslu farþega og farángurs vegna áætlunarflugs, póstflugs og leiguflugs Ernis, Samkvæmt samningum mun flugfélagið Ernir hf. sjá um dag- legar farbókanir í póstflug og áætl- unarflug sitt innan Vestfjarða þeg- ar starfsmaður þess er til staðar. Þegar starfsmaður Ernis er ekki á staðnum munu starfsmenn Flug- leiða sjá um farbókanir, símsvörun og almenna upplýsingagjöf í símum Ernis. Flugleiðir taka að sér móttöku, geymslu og afhendingu á pósti og frakt fyrir Erni. Leiðbeiningarkver um Sjálfstætt fólk og Pelastikk Mál og menning hefur haflð úgáfu á handhægum bókmennta- kverum handa skólafóiki og áhuga- sömum almenningi. Hvert kver tekur eitt skáldverk til umfjöllun- ar, gefur upplýsingar um höfund þess, bakgrunn verksins og annað sem forvitni vekur í sambandi við tilurð þess eða gerð. Tvö kver eru komin út, annað með skáldsögu Guðlaugs Ara- sonar, Pelastikk, en hitt með hinu mikla verki Halldórs Laxness, Sjálfstæðu fólki. Gunnlaugur Ástgeirsson skrifar kverið með Pelastikk og leggur áherslu á að skýra fyrir lesendum það í sögunni sem lýtur að sjó og fiskveiðum. Dr. Vésteinn Ólason skrifar kverið með Sjálfstæðu fólki og leggur áherslu á að veita lesendum nauðsynlegan fróðleik til að gera þá færari um að skilja og túlka verkið í sögulegu samhengi og benda á athugunarefni í textanum. í formála segir höfundur m.a. :„Ég held að lestur skáldsagna eins og Sjálfstæðs fólks og fjölda annarra geti verið afar mikilvæg dýpkun að sögulegum skilningi skólanem- enda, en ef hann á að koma að fullum notum þarf hvort tveggja að koma til, bókmenntaleg túlkun, sem leiðbeinir mönnum að skilja réttilega þær samfélagsmyndir sem sagan bregður upp, og sögulegar skýringar og gagnrýni.“ í báðum kverunum eru verkefni til leiðbeiningar fyrir kennara og lesendur og ritaskrár. í undirbúningi eru bókmennta- kver um verk Jakobínu Sigurðar- dóttur, Gunnars Gunnarssonar, Svövu Jakobsdóttur og Halldórs Laxness. Vinnufélaginn eða annar góður vinur ? Alkóhólisminn er allstaðar Vonandi þekkir þú áfengisvandann kvíða yfir þúsundum vinnustaða og aðeins af afspurn. heimila. En þá ert þú líka í hópi hinna heppnu. Hér A.m.k. helmingur þjóðarinnar horfir upp á er nefnilega um að raeða stærsta vandann þennan vanda. sem yið eigum v#«*glíma á sviði heil- Þess vegnaer nú kallað á þjóðarátaktil brigðis- og felagsmala. að reisa nýja sjúkrastöð SÁÁ við Grafarvog Tugþúsundir íslendinga eru staddir á í Reykjavík. Hún verður opinn öllum þeim einhverju þrepi áfengissýki sem ógnar sem vilja slfta sig úr fjötrum áfengis og heilsu þeirra, ástvinum og fjölskyldu. fíkniefna. Af þeim sökum grúfir skuggi spennu og tátumokkurvarða líf náungans. Undirritum og sendum gjafabréf SÁÁ Reisum saman sjúkrastðð luossmolga'PD

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.