Þjóðviljinn - 12.03.1983, Blaðsíða 31
PJÓÐVIL'JINN'.— SÍÐA 31
Myndar Alusuisse
nœstu ríkisstjóm?
Ef Alusuisse ætlar að slíta ríkis-
stjórnarsamstarfí með svona til-
lögu, sögðu Alþýðubandalags-
mennirnir á alþingi í gær - þá er
Alþýðubandalagið komið í opið
pólitískt stríð við auðhringinn og
flokkanna sem standa dyggan
vörð um hagsmuni hans. - Loft
var lævi blandið á alþingi í gær,
er hvorttveggja málin, sem gætu
orðið tilefni stjórnarslita voru
tekin til umræðu: tillögur í báð-
um deildum um samkomudag
þings eftir kosningar, sem Fram-
sóknarflokkurinn hefur haft í
frammi hótanir um að gæti orðið
stjórnarslitamál og viðræðu-
nefndin við Alusuisse sem Al-
þýðubandalagið hefur haft í hót-
unum um að gæti orðið stjórnars-
litamál. Það mál var tekið fyrir í
sameinuðu alþingi í gær. Garðar
Sigurðsson mótmælti harðlega
málatilbúnaði meirihluta at-
vinnumálanefndar, sem skil-
yrðislausa samninga við Aiu-
suisse að tillögu sinni. Garðar
skipar einn minnihlutann.
Tillaga meirihluta atvinnumál-
anefndar undir forystu Eggerts
Haukdals þykir vera óbeint van-
traust á iðnaðarráðherra og hefur
hún eðlilega hleypt mjög illu
blóði í Alþýðubandalagsmenn.
Stjórnarsam-
starfið á blá-
þrœði síðustu
daga þinghalds
Tillagan er um leið handarútrétt-
ing til Alusuisse hringsins og
styrkir hans stöðu í deilunni við
íslendinga.
Þannig gætu alvarlegustu hrak-
spár Alþýðubandalagsmanna frá
því 1965-1966 ræst; að auðhring-
urinn hefði það sterka stöðu að
geta haft afgerandi áhrif á innan-
ríkismál og landstjórn á íslandi.
Er þessi orð voru sett á blað í gær
hafði Hjörleifur Guttormsson
iðnaðarráðherra kvatt sér hljóðs
á alþingi og mótmælt harðlega
þessum tillöguflutningi. Ætluðu
Alþýðubandalagsmennirnir að
rekja sögu Alusuisse-málsins ít-
arlega í umræðunum sem gert var
ráð fyrir að stæðu fram á nótt í
gær.
I orðræðum þeirra sem fylgjast
með þingstörfum þessa dagana er
þetta Alusuisse-mál óneitanlega
sett í samhengi við tillögu Al-
þýðubandalags, Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks um að þing
komi saman að afloknum kosn-
ingurri. Þar stendur Framsókn-
arflokkurinn fastur fyrir með hót-
un um að slíta ríkisstjórnarsam-
starfi. í gær var búið að mæla fyrir
þessari tillögu en óvíst um fram-
gang hennar að öðru leyti. Yfir-
leitt brosa menn í kampinn vegna
hótunar Framsóknarmanna í
málinu. Og sjálfir höfðu þeir
Ólafur Jóhannesson og
Steingrímur Hermannsson á orði
í gær, að þessi tillaga væri ekkert
merkileg og hefði enga lögform-
lega þýðingu! Þess vegna þykir
samþykkt tillögunnar vera heldur
léttvæg ástæða til að slíta stjórn-
arsamstarfi, svo ekki sé meir
sagt.
Ótrúlegur
undirlœgju-
háttur gagnvart
erlendu valdi
Hjörleifur Guttormsson sagði í
gær í umræðunni að tillagan um
viðræðunefnd við Alusuisse væri
í besta talli vitnisburður um barn-
askap - en allavega bæri hún vott
um ótrúlegan undirlægjuhátt
gagnvart erlendu valdi. Þessi orð
segja sitt um viðhorf Alþýðu-
bandalagsins gagnvart þessari til-
lögu.
Þeir sem standa að þessari til-
lögu eru þeir Eggert Haukdal for-
maður stjórnar Framkvæmda-
stofnunnar Friðrik Sophusson
varaformaður Sjálfstæðis-
flokksins Halldór Asgrímsson
varaformaður Framsóknar-
flokksins og formaður Seðla-
bankastjórnar, Jón Baldvin
Hannibalsson leiðtogi Alþýðu-
flokksins, Ólafur Þ. Þórðarson
Framsóknarmaður að vestan og
Sverrir Hermannsson forstjóri
Framkvæmdarstofnunar ríkisins.
Það er þessi nefnd undir forystu
Eggerts Haukdals sem flytur til-
löguna og hafa til þess samþykki
flokka sinna.
Það var auðfundið í sölum al-
þingis í gær að hugsanleg sam-
þykkt þessarar tillögu gæti haft í
för með sér stjórnarslit. Það væri
í fyrsta skipti svo vitað sé, að er-
lendur auðhringur hefði jafn af-
gerandi áhrif á landstjórnina á Is-
landi.
Fleiri en
einn
meiri-
hluti á
þingi
Ólafur Ragnar Grímsson mælti í
gær fyrir tillögu þriggja flokka í
efri deild um að Alþingi skuli koma
saman eigi síðar en 18 dögum eftir
kosningar. Tómas Árnason
viðskiptaráðherra kvaddi sér
hljóðs um þingsköp áður en þings-
ályktunartillaga var tekin fyrir og
kvað Tómas ekki eðlilegt að
Alþingi gerði samþykkt um þetta
efni. Þessu mótmæltu Kjartan Jó-
hannsson og Þorvaldur Garðar
Kristjánsson.
Olafur Ragnar Grímsson sagði
m.a. í framsögu sinni að ef þessi
tillaga yrði ekki samþykkt, gæti svo
farið að næstkjörið þing kæmi ekki
saman fyrr en hálfu ári eftir kosn-
ingar. Það gæti engan veginn talist
eðlilegt við þessar aðstæður.
Forseti sameinaðs þings: _
Hafnaði
beiðni um
deildafundi
Forseti hefur látið misnota emb-
ætti sitt með því að hafna beiðni frá
þremur þingflokksformönnum um
að gera hlé á fundi sameinaðs Al-
þingis meðan greitt væri fyrir mál-
um í báðum deildum, sagði Ólafur
Ragnar Grímsson um þingsköp í
sameinuðu þingi.
Þetta gerðist eftir að Jón Helga-
son forseti hafnaði beiðni þing-
flokksformanna Alþýðuflokks, Al-
þýðubandalags og Sjálfstæðis-
flokks um deildarfundi.
Deildi Ólafur Ragnar hart á for-
seta og Framsóknarflokkinn sem
hann sagði að hefði notað það að
forsetinn er Framsóknarmaður.
Jafnframt væri auðséð að
Alusuisse-meirihlutinn gengi fyrir
öðru á þinginu að mati Framsókn-
arflokksins.
Páll Pétursson sagði að þetta
væri í valdi forseta sameinaðs Al-
þingis og hann væri sammála þeirri
ákvörðun.
Ólafur G. Einarsson sagði að
Sjálfstæðismenn hefðu áhuga á, að
boðunardagur þingsins yrði sam-
þykktur fyrst í deildunum. Síðan
væri flokkurinn reiðubúinn til að
sitja fundi sameinaðs Alþingis til
að greiða fyrir Alusuisse-málinu.
Sagði hann leitt til þess, að vita að
forseti sameinaðs Alþingis hunds-
aði greinilegan meirihluta Alþingis
um fundahald. Karl Steinar
Alusuisse-nefndin hafði forgang
hjá Jóni Helgasyni og flokki hans.
Guðnason túlkaði sama vilja Al-
þýðuflokksins og kvað ekki eðli-
legt að forseti meinaði deildum um
fund.
Ólafur Ragnar Grímsson sagði
að kjarni málsins væri sá, að Fram-
sóknarflokkurinn vildi ekki fundi í
deildum vegna þess að þar væru á
dagskrá tillögur um að þing komi
saman eftir kosningar.
Forseti sat fast við sinn keip og
var umræðu fram haldið um
Alusuisse-nefndina, þar sem Hjör-
leifur hélt áfram úttekt sinni á mál-
inu. _óc
Kemur alþingi ekki saman fyrr en í haust?
Ólafur Jóhannesson sagði að
grunsemdir vöknuðu um að hér
væri komin fram viljayfirlýsing um
tvennar kosningar. Hins vegar væri
þetta þingsályktunartillaga sem
hefði ekki annað gildi en sem vilja-
yfirlýsing. Ákvörðun um dagsetn-
ingu væri í höndum forseta. Utan-
ríkisráðherra rabbaði síðan um
þetta mál og í kringum það í léttum
dúr nokkra stund. í máli hans kom
m.a. fram, að hann teldi þetta ekki
merkilega tillögu.
Á meðan Olafur Jóhannesson
hélt tölu sína í hinni virðulegu efri
deild, fylgdi Matthías Bjarnason úr
hlaði þingsályktunartillögu sama
efnis í neðri deild. Þar hóf
Steingrímur Hermannsson andóf
gegn tillögunni og sló á sömu
strengi og utanríkisráðherra í efri
deild.
-óg
Framsókn hafnar
tillögu um annað
Framsóknarflokkurinn mun
beita sér fyrir því að ríkisstjórnin
segi af sér eftir kosningar, sagði
Steingrímur Hermannsson í tilefni
af tillögunni um að þing komi
saman eftir kosningarnar. Mér
flnnst eðlilegt, sagði Steingrímur
að þessir þrír flokkar sem myndað
hafa nýjan meirihluta myndi ríkis-
stjórn.
Óskaði Steingrímur Alþýðu-
bandalaginu til hamingju með nýja
meirihlutann og lét að því liggja að
stjórnarmyndunarviðræður væru
þegar hafnar. Svavar Gestsson
mótmælti þessari túlkun harðlega
en óskaði Steingrími hins vegar til
hamingju með nýja meirihlutann
sem Framsókn hefði búið til með
Sjálfstæðisflokknum í álmálinu.
Matthías Bjarnason mótmælti
einnig harðlega túlkun Steingríms
Hermannssonar um að væri kom-
inn nýr meirihluti. Sá meirihluti
væri ekki um annað en það, að þing
kæmi saman eftir kosningarnar.
Það væri nefnilega þannig að Sjálf-
stæðisflokkurinn vildi ekki fyrir
nokkurn mun leyfa Framsóknar-
flokknum og Gunnari Thoroddsen
að stjórna landinu með bráða-
birgðalögum og tilskipunum.
Umræðu var svo frestað. -óg
Síðustu fréttir
Laust fyrir miðnætti í gærkvöldi
var tillagan um samkomudag al-
þingis eftir kosningar sam-
þykkt í efri deild með 12 atkvæðum
gegn 6.
Króna á hvert
kíló bíls:
Bíí
stjórar
mót-
mæla
Nú á síðustu dögum þinghalds
eru margs konar frumvörp og áætl-
anir í vegamálum á leið í gcgnum
þingið. Meðal þess er frumvarp til
laga um fjáröflun til vegagerðar,
þar sem gert er ráð fyrir að frá og
með árinu 1983 skuli greiða ár-
gjald, vegagjald sem renni óskipt til
vegagerðar í landinu. Gjaldið er
ein króna af hverju kílógrammi
upp að 2000 kg. Greiða skal sjötíu
aura fyrir kílóið frá 2001 kg til 5000
kg eigin þyngdar hverrar bifreiðar
og flmmtíu aura fyrir hvert kg þar
umfram. Þó skal hámark veggjalds
vera 7600 krónur fyrir hverja bif-
reið.
Vörubílstjórar hafa mótmælt
áformum um þetta veggjald og ver-
ið tíðir gestir í baksölum þingsins
undanfarna daga. í gær umkringdu
þeir Alþingishúsið á stórum vöru-
bifreiðum og þeyttu bílhornin há-
vær í þann mund að fundur var sett-
ur í neðri deild Alþingis kl. 13.00,
þar sem veggjaldið var til lokaaf-
greiðslu. Hins vegar komst málið
aldrei til umræðu í gær. Var hinn
vörpulegi hópur bílstjóranna á
pöllum í allan gærdag en bílarnir
biðu mannlausir hækkunarinnar
fyrir utan þinghúsið.
_______________-óg
Þingað daga
og nætur >
Mörg
frum-
vörp að
lögum
Sl. miðvikudag voru mörg frum-
vörp samþykkt sem lög frá Alþingi.
I efri deild voru samþykkt lög um
sjúkratryggingagjald þ.e.
framlenging á því gjaldi, um tekj-
uskatt og eignaskatt sem gerir ráð
fyrir því að helmingur tekna skuli
talinn fram til skatts hjá þeim sem
hætta vinnu aldurs vegna. Þá var
hið merka frumvarp um málefni
fatlaðra að lögum en það hefur ver-
ið lengi í meðförum þingsins.
Loks má nefna að efri dcild sam-
þykkti frumvarp til framlengingar
á leyfi fyrir starfsemi Happdrættis
DAS.
Frá neðri deild voru afgreidd
frumvarp um framlengingu á skatti
á verslunar- og skrifstofuhúsnæði.
Á kvöldfundi dcildanna voru auk
ofangrcindra sainþykkt tvö frum-
vörp til laga. Frá neðri deild frum-
varp um fólksflutninga með lang-
ferðabifreiðum, en það felur í sér
m.a. leyfisveitingu til flmm ára í
stað eins árs áður til hópferða. Enn
fremur var samþykkt frumvarp um
kaupstaðarréttindi fyrir Ólafsvík.
-óg
Leiðrétting
Röng fyrirsögn birtist á 3. síðu
blaðsins í gær þar sem sagt var frá
fundi sveitarstjórnarmanna um
sameiningu sveitarfélaga. í stað
fyrirsagnarinnar: „Sveitarfélög í
eina sæng?“ mátti lesa aðra:
„Verða aðildarfélög sameinuð?“.
Er beðist velvirðingar á þessum
mistökum.