Þjóðviljinn - 12.03.1983, Side 13
Helgin 12. - 13. mars 1983 ÞJOÐVILJINN - SIÐA 13
Alva Myrdal:__
SKYNSEMIN
verður að sigra
Alva Myrdal hlaut
Friöarverölaun Nóbels á
síðasta ári. Hún er oröin öldruö
kona, en andinn lifir enn. Hún
skrifaði hið svokallaða
„Norræna bréf” árið 1983, en
Húsmæðrasamband
Norðurlanda fær ávallt eina
konutil þessað skrifa slíkt bréf
árlega. Bréf Ölvu Myrdal birtist í
nýjastahefti „Húsfreyjunnar”
og við fengum góðfúslegt leyfi
til þess að birta það hér, en það
fjallar eins og sjá má um friðinn:
Af heilum huga óska ég norræn-
um húsfreyjum til hamingju með
hin ágætu störf þeirra í þágu sam-
félagsins, sem og með góða sam-
stöðu þeirra, sem áreiðanlega hef-
ur valdið miklu um góðan stafsár-
angur.
Þær sem eru nógur gamlar, muna
kannski að á styrjaldarárunum var
ég mjög nátengd húsmæðrasam-
tökunum. Á þeim árum varð það
okkur sérlegá mikilvægt að um-
heiminum yrði einnig ljóst, að allar
norrænar konur stóðu vörð um
lýðræðið. Þær sýndu að nn'nu mati
jafnvel meiri djörfung en karl-
mennirnir. Þessi varðstaða um
lýðræðisleg lífsverðmæti kveikti
heitan loga og þess var vissulega
þörf á þeim árunt.
Hin síðari ár hefur baráttan fyrir
heimsfriði staðið næst hjarta
kvenna. Konur hafa, sem betur
fer, síður verið felldar undir ok
hermennskunnar en karlmenn.
Aðallega eru það karlmenn, sem
standa að auknu ofbeldi og glæpa-
mennsku, þar sem einstaklingar
eða hópar grípa til morða, mann-
rána, sprengja og rána, ýmist til
hefnda, kúgunar eða einfaldlega til
fjárhagsávinnings.
Áhrifin af linkind okkar gegn of-
beldi verða æ víðtækari. Ofbeldi á
götum vex. Orsakirnar má í senn
rekja til þess hve auðvelt er að ná í
vopn og að valdbeiting, styrjaldir
og vígbúnaður eru nánast lögleidd
með stuðningi fjölmiðla.
Herþjálfun afsiðar - eða styður
a.m.k. rangt verðmætamat, ef víg-
búnaðarbrjálæðið sviptir okkur þá
ekki allri sannri tilfinningu. Karl-
mennskudýrkunin stjórnar enn
heiminum, þó að við köllum hann
siðmenntaðan. Söguritun okkar er
enn ekki hætt að sveipa hina hörðu
karlmenn ljóma hetjunnar, sigur-
vegarana. Einkennisbúningarnir,
herþjálfunin með yfirdrottnunar-
og undirgefnishefðinni, allt þetta,
sem á að tákna styrk og rétt eigin
þjóðar, stuðlar að því að réttlæta-
vígbúnaðinn.
Myndefni, sem sýnir ofbeldi, er
oft notað að þarflausu til að koma á
framfæri fréttum, sem auðvelt væri
að flytja með öðrum hætti. Tökum
dæmi: Það er stríð á milli íran og
írak - það er staðreynd. Segja má
að þær fréttir, sem almenningur
á rétt á að fá, séu hve margir hafa
fallið og hve víðtæk eyðilegging
hefur orðið í hverri orustu. Hins-
vegar er óþarft og óefnislegt, en
sálrænt sterkt, að birta mynd af lít-
illi stúlku í dulmáluðum hermanna-
búningi, sem beinir byssu að fjand-
manni handan landamæranna.
Slíkt skapar villandi áhrif, lesand-
inn lifir sig inn í hefndar- og haturs-
hug, sem réttlætir ofbeldi. Sjón-
varp og vikublöð eru full af slíku
myndefni, sem leynt eða ljóst er
áróður fyrir valdbeitingu.
Jafnvel börnunum er innrætt að
þetta séu eðlilegir þættir lífsins og
þau fara að haga sér eftir því. Slags-
mál, byssuleikir, þar sem þau látast
miða byssu á önnur lifandi börn
- það eru hversdagsviðburðir,
sem við þekkjum öll af götunum,
leikvöllunum, jafnvel úr leikskól-
unum.
Ég hika ekki við að fullyrða, að
ábyrgðin á þvf, að menning okkar
verður æ ruddalegri, hvílir einkum
„Vonin lifir, þrátt fyrir allt.” Alva
Myrdal, handhafi Friðarverðlauna
Nóbels, 1982.
á karlmönnum. Það eru fyrst og
fremst karlmenn, sem beita sér
fyrir vígbúnaðarkepphlaupinu.
Svo langt er gengið, að fólk al-
mennt er orðið hrætt við þær ógnir,
sem fjölmiðlarnir þrýsta að þeim í
máli og myndum.
Ég hef ekki einu sinni heldur ótal
sinnum bent á hættuna af vígbún-
aðarkapphlaupinu og mun halda
áfram að gera það þangað til
stjórnmálamennirnir skilja það.
Mannkynið er slegið ótta.
Ég viðurkenni að ég gleðst eink-
um þegar ég finn að konurnar -
mæðumar - taka á sig af eigin hvöt-
um aukna ábyrgð á því að reyna að
beina heiminum á rétta leið, áður
en hann verður þeirri glötun að
bráð, sem enginn óskar honum.
Vonin lifir, þrátt fyrir allt. Hún
lifir af því, að fleiri og fleiri gera sér
grein fyrir hve alvarlegt ástandið
er. Einmitt konurnar eru nú að út-
breiða þann skilning, að friður sé
mögulegur.
Skynsemin verður að sigra - það
er ekki manninum samboðið að
gefast upp.
NOKKUR A TRIÐITIL A THUGUNAR:
VEXTIR
Vextir eru nú 3,5% á ári og jafnir allan
lánsúmann.
BINDITIMI
Skírteini í 1. flokki 1983 verða
innleysanleg að þremur árum liðnum, þ.e.
frá 1. mars 1986. Á bindiúma hefur
jafnan verið hægt að selja spariskírteini
með skömmum fyrirvara á hinum
almenna markaði.
UTIL FYRIRHÖFN
Fjárfesting í spariskírteinum er mun
fyrirhafnar- og áhyggjuminni enfjárfesting
ífasteign og skilar auk þess
öruggum arði.
SKA TTFRELSI
Skv. gildandi lögum um tekjuskatt og
eignarskatt kemur ekki í neinu tilviki til
skattlagningar á vaxta- og verðbótatekjur af
spariskírteinum hjá mönnum utan
atvinnurekstrar.
VERÐTRYGGÐ SPARISKIRTEINI
SKYNSAMLEG FJÁRFESTING
- TIL SÖLUNÚNA -
SEÐLABANKI ÍSLANDS