Þjóðviljinn - 03.06.1983, Blaðsíða 1
DJÖÐVIUINN
Söngkonan heimsfræga Grace Jones er komin til landsins.
Sjá bls. 2.
júní 1983
föstudagur
119. tölublað
48. árgangur
Fiskeldisstöð Skúla Páissonar
hefur nú verið starfrækt í þrjú ár
frá því að stöðinni var lokað vegna
sýkingar sem kom upp í fiskinum
árið 1976. Leiddi sýking þessi til
þess, að slátra varð öilum fiskinum
í stöðinni nema regnbogasilung-
num. Með þeim aðgerðum töldu
margir að Laxalón væri úr sögunni
sem brautryðjandi á sviði fiskeldis
hér á landi, en því er alls ekki til að
dreifa. I fyrra komst framleiðslan í
fullan gang og náðust hámarks af-
köst, 150 þúsund gönguseiði. Lax-
alón hefur fengið alla tilskila papp-
íra frá heilbrigðisyfirvöldum og
hefur miklar og djarfar áætlanir á
prjónunum. Tilraunaeldi var hafið
í Vestmannaeyjum haustið 1981 og
meining er að stórauka hrogn-
aútflutning til Evrópu. Laxalón átti
stóran þátt í að koma upp svo góð-
um laxveiðiám hér á landi sem raun
ber vitni. Nánar verður sagt frá
starfseminni í Laxalóni í Þjóðvilj-
anum síðar. - hól.
Svavar Gestsson:
Reiðubúnir
tll viðræðna
„Það er bersýnilegt að ummæli
forsætisráðherra um óskir stjórn-
arandstöðunnar hafa verið ótíma-
bær og væntanlega sett fram í fljót-
færni“, sagði Svavar Gestsson for-
maður Alþýðubandalagsins í sam-
tali við Þjóðviljann í gær eftir að
ósætti stjórnarliða um samkomu-
lag alþingis varð opinbert.
„Eftir aö Ólafur G. Einarsson
lýsti sínum viðhorfum í DV í dag,
fimmtudag, er ljóst að forystu-
menn fimm þingflokka af sex eru
hlynntir því að alþingi verði kallað
saman á næstunni. Þessvegna hefði
verið eðlilegra af forsætisráðherra
að ræða málin við stjórnarand-
stöðuna í stað þess að fara með
skæting um sanngjarnar óskir
hennar einsog fram kom í fréttum
ríkisfjölmiðlanna í gærkvöldi.
Alþýðubandalagið er reiðubúið
til viðræðna við stjórnarflokkana
um þinghald nú þegar, hvort sem
um yrði að ræða reglulegt þing eða
aukaþing. Vonandi komast þing-
flokkar ríkisstjórnarinnar strax að
niðurstöðu í þessu máli svo tafar-
laust verði unnt að hefja viðræður
um þinghald." ~m
Engar láglaunabætur greiddar
100 miljónir hverfa
í heildarhítina í ár
100 miljónir króna af fjárlögum
1983 voru ætlaðar til greiðslu svok-
kallaðra ,Jáglaunabóta“ á þessu ári.
og fremst um að ræða láglauna-
málaráðuneytinu kemur þessi
greiðsla ekki sérstaklega til fram-
kvæmdar nú á þessu ári, heldur
verður upphæðin hluti af þeirri
heild sem ráðuneytið er að vinna
með.
í fjárlögum 1983 er gerð grein
fyrir 200 miljónum króna sem sér-
staklega voru ætlaðar „til að mæta
útgjöldum vegna aðgerða, sem get-
ið er í ágústyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar", segir í greinargerð með
frumvarpi til fjárlaga fyrir 1983.
Þar segir ennfremur: „Hér er fyrst
og fremst um að ræða láglauna-
bætur á árinu 1983 að upphæð 125
m.kr., sem koma til viðbótar 50
m.kr. greiðslum í sama tilgangi nú í
desember".
Af þessari 125 miljón krónum,
voru 25 miljónir greiddar til
leiðréttingar á fyrri úthlutun í des-
ember, þannig að eftir standa 100
miljónir.
Höskuldur Jónsson ráðuneytis-
stjóri sagði í viðtali við Þjv. í gær að
þessar 100 miljónir væru hluti af
heildardæmi ráðuneytisins.
Rúmlega 400 miljónir eru á-
formaðar í „mildandi aðgerðir"
ríkisstjórnarinnar nýju, en ekki er
vitað hvaðan á að taka fjármagn
utan þess, að ráðamenn hafa talað
um sparnað í þessu sambandi.
í viðtalinu við Höskuld Jónsson
kom fram að mikið vantaði til að
endar næðu saman hjá ríkissjóði.
-óg
Stj órnarherbúðirnar:
Osætti um þinghald
Steingrímur of fljótur á sér?
Allt er enn í óvissu um hvenær
nýkjörið alþingi verður kvatt
saman. Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra er því mótfallinn,
og með honum flestir Framsóknar-
menn, en sterkar raddir uppi í
þing- og ráðherraliði Sjálfstæðis-
flokksins um að kalla bráðlega
saman stutt þing til að samþykkja
bráðabirgðalög og kjósa embættis-
menn þingsins. Sameinuð stjórnar-
andstaða krafðist þess í fyrradag
að þing kæmi strax saman, og er
mjög óljóst hvort forsætisráðherra
hefur þingmeirihluta við þá afstöðu
sína að fresta þinghaldi fram í
október. Málið er nú á dagskrá
þingflokka stjórnarliða.
Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær, að hann væri
„veikur fyrir því að kalla alþingi
saman eins fljótt og auðið er. A því
kunna að vísu að vera ýmsir tækni-
legir vankantar, um það skal ég
ekki dæma nú, en ég var búinn að
fitja upp á þessu fyrir nokkru,
raunar áður en stjórnarandstaðan
sendi sitt bréf. Ég hefði kosið að ná
samkomulagi við stjórnarand -
stöðuna um að afgreiða bráða-
birgðalög og önnur helstu mál á
skömmum tíma. Ef ætlunin er hins-
vegar að þæfa málin fram eftir
sumri er þetta óvinnandi vegur. Ég
get ekki dæmt um það hver
stuðningurinn er innan þingflokks
Sjálfstæðismanna við þessi sjónar-
mið, þingflokkurinn hefur ekki
komið saman síðan menn byrjuðu
að tala um þetta.“
Matthías Bjarnason samráð-
herra Sverris sagðist „vera inná því
að alþingi starfi sem mest, en ýmsir
annmarkar eru þó á því að þingið
starfi yfir sumarið, nema sam-
komulag gæti tekist um stutt þing-
hald.“ IDV í gær kemur að auki
fram að Ólafur G. Einarsson þing-
flokksformaður Sjálfstæðismanna
og Þorsteinn Pálsson þingmaður
vilja að þing verði kallað saman
strax. „Ég vil að minn flokkur beiti
sér fyrir því að hætt verði þeim ósið
að lítilsvirða þingið", er haft eftir
Ólafi.
í samtali við Þjóðviljann í gær
sagði Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra að málið hefði
verið tekið fyrir á ríkisstjórnar-
fundi í gærmorgun, og hefði þar
verið ákveðið að fela þingflokkum
stjórnarliða að taka til þess af-
stöðu. Steingrímur var spurður
hvort hann teldi þingmeirihluta að
baki þeirrar afstöðu sinnar að kalla
þing ekki saman fyrren í haust, og
svaraði þessu til: „Ja, ég tel að það
sé þingmeirihluti fyrir því sem
ríkisstjórnin hefur samþykkt,
bráðabirgðalögunum og fleiru, en
hitt er annað mál að það kann að
vera æskilegt að kalla saman þingið
af öðrum ástæðum, á það hefur
ekki reynt ennþá. Það er ekki búið
að ákveða þetta enn, og beðið eftir
afstöðu þingflokkanna, en ég tel
ólíklegt að þing verði kallað saman
strax, það er ekki þörf á því.“
-m
Dómur í Hagkaupsmálinu:
Bókin seld
á sama verði
13. maí s.I. kvað Steingrímur
Gautur Kristjánsson, borgardóm-
ari upp dóm í svokölluðu Hag-
kaupsmáli. Hagkaup fór í mál fyrir
rúmu ári síðan til að fá hrundið
ákvörðun samkeppnisnefndar um
að sama verð skuli gilda á bókum í
iandinu öllu. Niðurstaða dómarans
er sú að ákvörðunin skuli standa
óhögguð: Bækur skulu seldar á
sama verði hvar sem er.
Hagkaup hf. stefndu Verðlags-
stofnun, sem tók við störfum sam-
keppnisnefndar með breytingu á
verðlagslögum, svo og félagi Is-
lenskra bókaútgefenda, sem kærði
lækkað bókaverð Hagkaupa til
samkeppnisnefndar á sínum tíma.
Að sögn Gísla ísleifssonar, lög-
manns Verðlagsstofnunar hefur
lögmaður Hagkaupa, Helgi V.
Jónsson tilkynnti að hann muni á-
frýja dómnum.
-ÁI
6
Flogið yfir hálendi
íslands í
kvöldsólinni.
8
Ásmundarsafn
hefur nú verið
opnað almenningi
sem borgarsafn.