Þjóðviljinn - 03.06.1983, Blaðsíða 11
Árni Sveinsson á möguleika á
sínum fertugasta landsleik á
sunnudag.
Fjórar
breyt-
ingar
Fjórðar breytingar hafa ver-
ið gerðar á íslenska landsliðinu
eftir leikinn við Spánverja.
Arnór Guðjohnsen, Guðmund-
ur Baldursson, Heimir Karlsson
og Sigurður Björgvinsson falla
útúr hópnum en í staðinn koma
Atli Eðvaldsson, Pétur Orm-
slev, Omar Rafnsson og Ög-
rnundur Kristinsson. Hópurinn
lítur þá þannig út:
Markverðir:
Þorsteinn Bjarnason, ÍBK......19
ögmundur Kristinsson, Vikingl..0
Aðrir leikmenn:
Viftar Halldórsson, FH........22
Ólafur Björnsson UBK...........4
Sigurður Lárusson, ÍA..........9
Janus Guðiaugsson, FH.........26
Sœvar Jónsson, CSBriigge......13
Ragnar Margeirsson, CS Briigge.7
Pétur Pétursson, Antwerpen....17
Lárus Guðmundsson, Waterschei 10
PéturOrmslev, Dusseldorf......15
Atli Eðvaldsson, Dússeldorf...30
GunnarGislason, KA.............8
Ómar Torfason, Víkingi........11
Árni Sveinsson, ÍA............39
Ómar Rafnsson, UBK.............1
Eins og sjá má af þessu á Árni
Sveinsson möguleika á að leika
sinn 40. varnarleik á sunnudag
en þeim áfanga hafa aðeins
tveir íslendingar náð, Marteinn
Geirsson (67) og Matthías Hall-
grímsson (45).
- VS
Leiörétting
markatölur
Þegar við birtum úrslit úr 4.
deild Islandsmótsins i knattspyrnu í
þriðjudagsblaðinu voru tölurnar
úr einum leiknum ekki alveg réttar.
Víkverji sigraði Hveragcrði í C-
riðli, ekki 4:0 eins og sagt var held-
ur 3:1 og eru hlutaðeigandi beðnir
velvirðingar á þessum mistökum.
Föstudagur 3. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
íþróttir Víðir Sigurðsson
Landsleikur íslands og Möltu á sunnudaginn:
Fimm miðherjar
í byrjunarliði!
„Það verður sókndjarft lið
sem hleypur inná Laugar-
dalsvöllinn til leiks gegn
Möltubúum á sunnudaginn. í
byrjunarliði verða jafnvel
fimm leikmenn sem hafa
leikið stöðu miðherja og
fremstur þeirra verður Atli
Eðvaldsson,“ sagði Jóhann-
es Atlason landsliðsþjálfari í
knattspyrnu á blaðamanna-
fundi í gær.
íslenska landsliðiö mætir Möltu í
Evrópukeppni landsliða á sunnu-
daginn og hefst leikurinn kl. 17 á
Laugardalsvellinum. ísland á
harma að hefna eftir 2:1 tap í fyrri
leik liðanna sem fram fór á Sikiley
fyrir ári síðan, og, eins og Jóhannes
komst að orði, þá er heiður hans,
liðsins og þjóðarinnar í veði, þetta
er þýðingarmesti landsleikur sem
ísland hefur leikið í mörg ár. Jafn-
tefli eða tap þýðir sennilega neðsta
sætið í riðlinum, sigur tryggir ís-
Oft þörf en nú
nauðsyn á að
mæta og veita
íslenska liðinu _
stuðning
landi hins vegar nokkuð örugglega
sæti ofar Möltu.
Pétur og Atli sóttir
Pétur Ormslev og Atli Éðvalds-
son sem leika með Fortuna Diiss-
eldorf í Vestur-Þýskalandi fengu
ekki frí frá leik liðsins gegn Frank-
furt á laugardaginn en þeir koma
heim samt sem áður. Arnarflug
sendir skrúfuþotu eftir þeim á
laugardag, KSI að mestu að kostn-
aðarlausu, og er hún væntanleg
hingað heim seint um kvöldið. Ás-
geir Sigurvinsson fékk hins vegar
ekki frí hjá Stuttgart þrátt fyrir ít-
rekaðar tilraunir KSl og báru
Þjóðverjarnir því við að félagið
væri að leika vináttuleiki á sunnu-
dag og mánudag þar sem það væri
skuldbundið til að vera með sitt
sterkasta lið, þar með talinn Ásgeir
Sigurvinsson.
Leikreynt Möltulið
Jóhannes landsliðsþjálfari sá
Möltu tapa naumlega, 2:3, fyrir
Spánverjum fyrir stuttu í keppn-
inni og um þessa verðandi and-
stæðinga sagði hann: „Möltubúar
eru ekki síðri en við tæknilega séð
og lið þeirra er glettilega leikreynt.
Þeirraleikjahæsti maður John Hol-
land, var ekki með gegn Spánverj-
um en kemur hingað. Þeir beita
skyndiupphlaupum og eiga sterka
skallamenn. Leikur liðsins er hins
vegar hægur að öðru leyti og við
verðum að leitast við að tíalda uppi
hraða gegn þeim.“ Þess má geta að
allir leikmenn Möltu leika með fé-
lagsliðum í sínu heimalandi.
Hörkufrískir Þrótt-
arar hirtu bæði stigin
Hörkufrískir Þróttarar unnu svo
sannarlega fyrir sínum fyrsta sigri í
1. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu í sumar er þeir lögðu Kefl-
vfldnga að velli, 2-1, á Hallarflöt-
inni í Laugardal í gærkvöldi. Kefl-
vfldngar voru meira með knöttinn
þegar á heildina er iitið en Þróttar-
ar vörðust vel, á miðjunni og í
vörninni og nýttu vel færin.
Það voru ekki liðnar nema 10
mínútur af leik Víkings og Vals í
bikarkeppni kvenna í knattspyrnu í
gærkvöldi þegar rauða spjaldið fór
á loft. Jóhanna Pálsdóttir, Val,
felldi Öldu Rögnvaldsdóttur Vík-
ingi án þess að boltinn væri nálægt
og var henni umsvifalaust vísað af
leikvelii. Það kom Valsstúlkunum
þó ekki að sök, þær sigruðu 1:0 og
komust í 2. umferð keppninnar.
Víkingsstúlkurnar voru frískari í
fyrri hálfleik en í þeim síðari komu
Valsstúlkurnar ákveðnar til leiks
og létu boltann ganga vel. Um
miðjan síðari hálfleik var dæmd
) Staðan:
Staðan í 1. deild íslandsmótsins í
knattspyrnu eftir ieikinn í gær-
kvöldi:
3 2 0 1 8:3 4
3 2 0 1 3:1 4
KR 3 1 2 0 5:4 4
Valur 3 2 0 1 4:5 4
Breióabiík 3 1 1 1 2:2 3
Þróttur R 3 1 1 1 4:5 3
(safjöröur 3 1 1 1 3:5 3
3 10 2 5:5 2
ÞórAk 3 0 2 1 2:3 2
Vfklngur 3 0 1 2 1:4 1
Keflvíkingar sóttu talsvert í fyrri
hálfleiknum og þá átti Guðmundur
Erlingsson markvörður Þróttar
annríkt og stóð sig með prýði. Á
33. mínútu tóku sfðan Þróttarar
forystuna. Ársæll Kristjánsson lék
á tvo Keflvíkinga úti á kanti og
sendi fyrir markið þar sem Júlíus
Júlíusson skallaði í netið af mark-
teig. Þróttarar leiddu því þegar
vítaspyrna á Brynju Guðjónsdótt-
ur fyrir að handleika boltann eftir
skot frá Sigrúnu Coru Barker.
Guðrún Sæmundsdóttir skoraði úr
vítaspyrnunni og tryggði Val sigur.
Úrslit leikjanna í gærkvöldi urðu
þessi:
Vfklngur-Valur................... 0:1
Fram-Braiðablik.....................0:8
KR-Breiðablikb......................1:0
Hveragerði-Víðir....................0:7
KR sótti nær stanslaust gegn b-
liði Breiðabliks sem skartaði lands-
liðsfyrirliðanum Rósu Valdimars-
dóttur. Það var Arna Steinsen sem
skoraði eina mark leiksins úr vít-
aspyrnu í síðari hálfleik.
Breiðablik hafði mikla yfirburði
gegn 2. deildarliði Fram eins og töl-
urnar gefa til kynna og sigurinn
hefði getað orðið mun stærri. Ásta
B. Gunnlaugsdóttir skoraði sex
mörk í röð en Erla Rafnsdóttir sá
um það fyrsta og síðasta, endaði
leikinn á stórglæsilega skallamarki
Víðisstúlkurnar voru mikið betri
aðilinn í Hveragerði, en góð nýting
þeirra á marktækifærum gerði þó
sigurinn heldur stærri en efni stóðu
til.
- MHM
flautað var til leikhlés, 1-0.
Síðari hálfleikur var aðeins sjö
mínútna gamall þegar nýliðamir
juku forskotið. Bakvörðurinn
bráðefnilegi, Kristján Jónsson,
sendi fyrir Keflavíkurmarkið,
varnarmaður skallaði aftur fyrir sig
og Páll Ólafsson fékk knöttinn og
afgreiddi hann örugglega í hornið
fjær, 2-0. Þriðja markið var innan
seilingar á 64. mínútu þegar Óskar
Færseth bjargaði á línu frá Sverri
Péturssyni.
Síðan gerðist fátt markvert í vít-
ateigunum lengi vel, barist grimmt
á miðjunni en sóknarmennirnir
fengu úr litlu að moða. Fjómm
mínútum fyrir leikslok kviknaði
vonarneisti í brjóstum Keflvíkinga.
Skúli Rósantsson tók hornspyrnu,
Óli Þór Magnússon „nikkaði"
knettinum aftur fyrir sig, Gísli
Eyjólfsson komst dauðafrír á
markteig og skoraði, 2-1. Kraftur
hljóp í Keflvíkinga en það drapst á
pemnni hjá þeim á lokamínútunni
þegar Guðmundur varði frá Björg-
vini Björgvinssyni úr ágætu færi af
vítateig.
Þróttarar eiga eftir að reyta stig
reglulega í deildinni með þessu á-
framhaldi. Góð barátta er í liðinu
og gott spil myndast í kringum hinn
síunga Ásgeir Elíasson og Pál
Ólafsson. Kristján á framtíðina
rir sér í bakvarðarstöðunni og
rsæll Kristjánsson er orðinn
hörku miðvörður.
Meðalmennskan var ríkjandi hjá
Keflvíkingum og áhyggjuefni fyrir
þá og ekki síður landsliðið að Þor-
steinn Bjarnason meiddist en spil-
aði þó út leikinn. Sigurður Björg-
vinsson var drífandi að vanda og
Skúli Rósantsson átti ágæta kafla.
Þeir Suðurnesjamenn ættu að
halda sér ofan við fallsvæði í sumar
en mikið meira verður það varla.
Slakur dómari var Kjartan Tóm-
asson.
- VS
Jóhanna rekin út
af á 10. mínútu!
Ásta B. skoraði sex mörk í röð
Atli Eðvaidsson - sóttur frá V.-
Þýskalandi af Arnarflugi ásamt
Pétri Ormslev. Atla verður nú í
fyrsta skipti stillt upp sem miðherja
í íslenska landsliðinu, en þá stöðu
hefur hann ieikið með Dússeldorf
og er fimmti markahæsti
leikmaður „Bundesligunnar“.
Forsala
Forsala á leikinn hefst við Út-
vegsbankann í dag, föstudag, kl. 12
og á sunnudaginn verður selt á
torginu frá sama tíma. Leikurinn
sjálfur hefst kl. 17 eins og áður
sagði, og, oft var þörf en nú er
nauðsyn á að mæta á völlinn og
veita íslenska liðinu nægilegan
stuðning til að því takist að herja
tvö stig útúr þessum þýðingarmikla
leik.
- VS
Sigurður Jónsson
Sigurður
kom til
greina!
„Sigurður Jónsson hefði
komið til greina í þennan lands-
lcik gegn Möltu ef við hefðum
hvorki fengið Atli né Pétur heim
frá Vestur-Þýskalandi. Ég var
smeykur við að velja hann, 16
ára gamlan, í 21 árs liðið á dög-
unum en hann stóð sig stórvel
gegn Spánverjunum. Það er
alltaf tvísýnt að setja svona
unga stráka í slaginn snemma
en Sigurður á alla framtíðina
fyrir sér,“ sagði Jóhannes Atla-
son landsliðsþjálfari í knatt-
spyrnu í gær.
Mikið var rætt um Sigurð á
blaðamannafundi KSI, sem
haldinn var í gær, vegna lands-
leiksins við Möltu á sunnudag.
Þar kom meðal annars fram hjá
nokkrum fundarmanna að
hann væri nánast eini
leikmaðurinn í 1. deildinni í dag
sem menn færu gagngert á völ-
linn til að sjá spila. Það er þegar
kominn þrýstingur á Jóhannes
um að nota hann í landsliðið og
það virðist aðeins tímaspursmál
hvenær sú stund rennur upp.