Þjóðviljinn - 03.06.1983, Qupperneq 9
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 3. júní 1983
Föstudagur 3. júní 1983. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Gunnar B. Kvaran listfræðingur:
„ÞESSIR DIGRU FÆTUR,
ÞESSI MASSÍVILÍKAM1“
„Kúlan“, vinnustofa Asmundar í byggingu. Það er Asmundur sem er efst uppi á hvelfingunni.
Ekki er vitað hver tók þessa mynd.
Steypuvélin sem framieiddi efniviðinn í Kúluhúsið var knúin áfram af þessari stórmerkilegu
vindmyllu sem Ásmundur hannaði sjálfur. Listamaðurinn virðir fyrir sér verkið. Vindmyll-
an var ekki eina „uppgötvun“ Ásmundar. Hann hannaði þúfnasláttuvél og sótti um styrk til
Alþingis til að fá að fullgera vélina en fékk synjun.
Byggingarframkvæmdirnar á fullu. Það er Ásmundur sem er í stiganum, en seinni kona hans,
Ingrid Sveinsson, horfir í átt til Ijósmyndarans. „Ásmundur vann þetta hús eins og öll sín
listaverk; hann hnoðaði það í höndunum,“ sagði Gunnar Kvaran.
,4*ýramídarnir“ svokölluðu í byggingu. Myndin sennilega tekin um miðjan fimmta ára-
tuginn.
Sýningarskálinn í smíðum. Hann var byggður nokkru eftir að kúluhúsið var fullgert eða í
kringum 1950.
Asmundarsafn opnar sem borgar-
safn á 90 ára afmæli listamannsins
„Þaðmunhafaveriöí
ársbyrjun 1977 sem
Reykjavíkurborg fékk þá
tilkynningu frá þekktasta
myndhöggvara landsins,
Ásmundi Sveinssyni, að eftir
hans dag væri safn hans með
öllum verkum eign borgarinnar.
Gjöf þessi innifól hús þau sem
hann hafði reistvið
Kringlumýrarblett 10 við Sigtún
og alla innastokksmuni. Þessari
gjöf fylgdu eftirfarandi skilyrði:
1. Reykjavíkurborg annaðist
allar nauðsynlegar viðgerðir á
húseignum, bæði á
myndverkum svo og á húsum.
2. Höfundarrétturvegna
myndanna yrði eins og íslensk
lög gera ráð fyrir, hjá eftirlifandi
afkomendum.
3. Safninu yrði kjörin sérstök
stjórn þar sem sæti ættu a.m.k.
einn fulltrúi afkomenda
Ásmundar með fullum
tillögurétti og atkvæðisrétti er
varða safnið.
4. Sett skyldi reglugerð um
starfsemina sem samþykkt yrði
af borgarstjórn og safnstjórn.
5. Frummyndir í safninu yrðu
varðveittar en safnstjórn fengi
leyfi til að lána einstakar myndir
út úr safninu ítakmarkaðan tíma
til sýninga annarsstaðar.
6. Safninu skyldi haldið opnu
fyrir Reykvíkinga og aðra þá er
heimsæktu Reykjavík".
Þannig mæltist Gunnari B. Kvaran list-
fræöingi og nýráðnum safnverði Ásmund-
arsafns. Um hvítasunnuna var safnið opnað
í fyrsta sinn sem borgarsafn en þá var um
hálft ár frá því að Ásmundur lést og 90 ár frá
fæðingu listamannsins. Gunnar er nýráðinn
safnvörður og er jafnframt eini starfsmaður
safnsins. Opið er á hverjum degi frá kl. 14
til 17 nema mánudaga en þá er safninu lok-
að. Þessi tilhögun gerbreytir hlutverki
Ásmundarsafns því síðustu árin hefur það
aðeins verið opið endrum og eins enda lá
Ásmundur veikur síðustu æviárin. Hús-
vörður var ráðinn til að gæta safnsins en
óskir um að fá að skoða það voru afgreiddar
af Ásdísi dóttur listamannsins. Gunnar
Kvaran er fæddur 1955 og að loknu stúd-
entsprófi frá MR lá leið hans til Frakklands
þar sem hann stundaði nám í listfræði við
Aix-en-Provance háskólann í Frakklandi,
en þar stundaði hann jafnframt nám í forn-
leifafræði og lauk BÁ-prófi í þeirri grein.
MA-prófi í listfræði Iauk hann 1981. Loka-
ritgerð hans frá skólanum um listsköpun
Guðmundar Guðmundssonar, Errós. Síð-
an hann kom heim hefur hann stundað
kennslu í listfræðum með því sem hann hef-
ur skrifað myndlistargagnrýni í DV. Fyrir
Reykjavíkurborg tók hann saman heimildir
um listferil Ásmundar, flokkaði verk hans
niður þannig að nú þegar liggir fyrir allítar-
leg skrá yfir verk Ásmundar, þó enn sé
margt ókannað.
„Það vakti eigi alllitla athygli þegar Ás-
mundur tók að reisa húsin sín í Sigtúni. Á
þeim tíma lágu þau úr alfaraleið, voru eigin-
lega lengst uppi í sveit“, sagði Gunnar. „Ás-
mundur byggði þessi hús aleinn. Hann
teiknaði þau, smíðaði inn f þau o.s.frv..
Þetta er auðvitað stórmerkilegt framtak,
sérstaklega þegar haft er í huga að Ás-
mundur var á þessum árum félítili og setti
það mark sitt á bygginguna. Efniviðurinn
var því í ódýrara lagi, en á hinn bóginn var
byggingarlagið með þeim hætti að menn
hreinlega rak í rogastans.
Ásmundur flutti inn í byrjun 5ta áratug-
arins og bjó þar æ síðan. Húsin í Sigtúni
samanstanda af sýningarsal og kúluhúsinu,
en uppi í kúlunni var vinnustofa Ásmundar
en niðri bjó hann svo“.
Fór til náms
28 ára gamall
„Árið 1919 þegar Ásmundur var 28 ára
gamall fór hann til náms til Kaupmanna-
hafnar. Hans veganesti sem myndhöggvara
var ekki ýkja merkilegt þegar grannt er
skoðað, því engin listhefð var til í landinu,
engin skírskotun til verka annarra. í raun-
inni má líta á Ásmund sem sveitamann,
hann kom til Hafnar uppfullur af þjóð-
legum sögualdarviðburðum og kemur inn í
einhverjar stórkostlegustu hræringar í list-
um í Evrópu. Kúbisminn hefur þarna
kveðið sér hljóðs, abstrakt málverkið og
ótal aðrir straumar. Eftir ár í Höfn hélt
Ásmundur til Svíþjóðar þar sem hann var
undir handleiðslu Karls Milles, virts lista-
manns og frábærs kennara. Síðan lá leiðin
til Parísar og þegar Ásmundur kom heim til
íslands var hann búinn að vera við nám í 10
ár, hámenntaður listamaður sem þó átti
lífsstarf sitt framundan".
Kúlan
„í Kúlunni í Ásmundarsafni sem var
vinnustofa Ásmundar getur að líta nokkur
verk sem segja meir en mörg orð um þróun
listsköpunar Ásmundar. Það er ljóst þegar
maður virðir þessi verk fyrir sér að rnikið
umrót hefur átt sér stað í sálarlífi lista-
mannsins. Alls kyns stefnur setja svip sinn á
verk hans frá námsárunum. Forngrísku áh-
rifin koma að öllum líkindum frá Milles
kennara hans, en einnig má greina áhrif
kúbismans á nokkur verk hans s.s. einsog
þegar Sæmundur á selnum er skoðaður.
Natúralisminn gægist fram hreinn og klár í
Negranum, sérstæðu og fallegu verki Ás-
mundar frá 1926. Þegar grannt er skoðað þá
kemur hann fram í öllum þessum verkum.
Þessi sterka línuáhersla, digrir fótleggir og
sterkir sem einkenna mörg hans frægustu
verk. Þessi stíleinkenni koma æ meir í ljós
eftir því sem líður á listferil Ásmundar, þó
svo hann sé í raun alltaf að prófa sig áfram
og þróa sig sem listamann. Það má líka
benda á að Ásmundur var mikill áhugam-
aður um ljósmyndun ogtmótív hans á því
sviði má finna í hans bestu höggmyndum",
sagði Gunnar.
Gunnar Kvaran er eini starfsmaður Ás-
mundarsafns en í stjórn safnsins hafa verið
skipaðir menn samkvæmt ákvæðum gjafa-
bréfsins. Einar Hákonarson er formaður,
en að auki eiga sæti Ásdís Ásmundardóttir,
dóttir Ásmundar, Hafliði Jónsson garð-
yrkjustjóri, góðvinur Ásmundar og hjálp-
arhella, Hulda Valtýsdóttir, Guðrún Erla
Geirsdóttir og Þóra Kristjánsdóttir.
-hól.
Gunnar B. Kvaran listfræðingur og nýráðinn forstöðumaður Ásmundarsafns í garðinum fyrir framan safnið. - Ljósm.: - Atli.
Vinnuteikning af Voltaire. Teikningin er gerð á fyrstu námsárum Ásmundar í Danmörku og
Svíþjóð f kringum 1920. Kennir þar forngrískra áhrifa.
Heybandið. Vinnuteikning. Styttan var fuligerð árið 1935.
Sæmundur á selnum (t.v.) eða „Selgrfmur“ eins og Halldór Laxness kailaði höggmyndina.
Verkið tók miklum stakkaskiptum í tímans rás. „Margir þykjast greina afrísk áhrif í
verkinu“, sagði Gunnar. Tvö önnur verk Ásmundar eru með á myndinni, Kreppan frá 1934
og Víkingur frá 1928.