Þjóðviljinn - 04.06.1983, Síða 9

Þjóðviljinn - 04.06.1983, Síða 9
Helgin 4. - 5. júní 1983.ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9 Opnu mótin verða æ vinsælli Það er e.t.v. tímanna tákn að ís- lendingar skuli hafa farið þá braut með Reykjavíkurskákmótin að breyta þeim í opin mót. Sú stefna hefur verið ríkjandi undanfarin ár hjá hefðbundnum mótahöldurum að breyta formi mótanna þannig. Um ástæður er ekki gott að segja, en benda verður á að skákmótið sem miliónamæringurinn banda- ríski Louis Statham stóð fyrir þótti ávallt heppnast með afbrigðum vel, dró að sér marga snjalla skák- mennogað auki þá sem á uppleið voru af yngri kynslóðinni. Reyndar er því svo fyrir komið í Bandaríkj- unum að önnur en opin mót eru teljandi á fingrum annarrar hand- ar. Mótshöldurum finnst meiri akkur í því að fá til keppni álitlegan hóp skákmanna sem reiðir af hendi þátttökugjald sem sumpart rennur í verðlaun og sumpart til mótshald- aranna sjálfra. Á Norðurlöndunum og þá eink- um í Noregi hafa verið haldin fjölmörg opin mót s.s. í Gausdal í Noregi en þar eru haldin 4-5 sterk skákmót á ári hverju. í Hollandi hefur IBM-mótið lagt upp laupana en við tekið sterkt opið mót sem haldið er í Amsterdam í júlí á ári hverju. í Lugano í Sviss var haldið geypilega sterkt opið mót fyrr í vet- ur og í New York var haldið sterkt mót um páskana með hærri verð- launum en gengur og gerist þar í borg. Það er hald margra að opnu mótin í Lugano, Amsterdam og jafnvel í Reykjavík séu arftakar Lone-Pine mótsins. í Lugano í mars mættu til keppni 13 stórmeist- arar, 34 alþjóðlegir meistarar og að auki nokkrir skákmenn úr hópi kvenna þ.ám. Pia Cramling hin sænska sem vakið hefur mikla at- hygli að undanförnu. Tefldar voru 9 umferðir eftir svissneska kerfinu og bar banda- ríski stórmeistarinn Yasser Seiraw- an sigur úr býtum. Hann hlaut IVi vinning af 9 mögulegum og varð Vi vinningi á undan næstu mönnum þeim Farago frá Ungverjalandi, Timman Hollandi, Nunn Englandi og Gheorghiu Rúmeníu. Þessir skipuðu 2.-5. sætið. Neðar á listan- um komu menn eins og Hort, Trepp, Federowicz, Hodgson, Short, FraVico, Nikolic og Cvetko- vic, allir með 6V2 vinning. Seirawan sem sennilega er sterk- asti skákmaður Bandaríkjanna í dag þó ekki sé hann uppalinn þar í landi frekar en svo margir þeirra bestu, vann fjórar fyrstu skákir sín- ar og undir lok mótsins tókst hon- um að leggja að velli Spánverjann Franco og síðar sinn hættulegasta keppinaut, John Nunn frá Eng- landi. Sú skák þótti ein athyglis- verðasta skák mótsins og fylgir hér á eftir. Skákin þótti einnig hafa fræðilegt inntak þar sem eitt vinsælasta afbrigði byrjunar fátæka mannsins var þar til umræðu: Hvítt: John Nunn (England) Svart: Yasser Seirawan (Banda- ríkin) Caro - Kann 1. e4 c6 2. d4 d5 3. e5 3. .. Bf5 (Algengasti leikmátinn. En 3. - Db6 kemur einnig sterklega til greina sbr. skák Velimirovic og Kasparovs á millisvæðamótinu í Moskvu í fyrra.) 4. Rc3 e6 8- Be3 Db6 5. g4 Bg6 9- h5 Bh7 6. Rge2 c5 10- Dd2 Rc6 7. h4 h6 n- c4! Helgi Ólafsson skrifar um (Skarplega teflt. Svartur lokar drottningarvængnum um stundar- sakir og býr sig jafnframt til aðgerða á drottningarvæng). 12. f4 Da5 13. f5 b5 14. Rxd5! (Það er eftirtektarvert áð jafnvel þó svo þessi fórn hins sókndjarfa Englendings standist ekki fullkom- lega þá er þetta án efa besti leikur, því að öðrum kosti fengi svartur að byggja upp álitlega sóknarstöðu á drottningarvæng.) 14. .. b4! (Svartur kærir sig lítt um manninn enda líst honum ekkert á stöðuna sem kemur upp eftir 14. - Dxd2+ 15. Bxd2 exd5 16. Rc3! og sterk peðastaða hvíts samfara öruggum tökum á miðborðinu gera meira én að vega upp mannstapið. Leikur- inn Seirawan er mun sterkari þar sem jafnframt því að hvítur þarf að huga að riddaranum á d5 verður hann að líta á stöðu kóngsins á cl.) 15. Rc7+! (Þrír stórskemmtilegir leikir í röð. Nunn velur langbesta leikinn. Nú verður Seirawan að höggva á hnút- inn, ella fer illa t.d. 15. - Kd7 16. d5! með myljandi sókn.) 15. .. Dxc7 16. Rf4 c3! (Svartur notar tækifærið meðan það gefst til að höggva skarð í varn- arvegg hvíta kóngsins.) 17. Dg2 Rge7 18. Bc4 0-0-0 19. fxe6?! (Þessi „sjálfsagði" leikur fékk slæma dóma þeirra er skrifað hafa um skákina. Betra er talið 19. d5 og má það til sanns vegar færa ef svart- ur leikur 19. - exd5, því staðan sem kemur upp eftir 20. Rxd5 Rxd5 21. Bxd5 Dxe5 22. Hhel! er hartnær unnin á hvítt. Það stoðar svartan lítt að leika 19. - Dxe5 vegna 20. Hhel! með sterkri sókn hvíts. Svartur leikur því 19. - Rxe5 20. Ba6+ Kb821. d6 Dc6! og má allvel við una þó staðan sé geysilega flók- in og viðkvæm. Gallinn við texta- leikinn er sá að hann opnar fyrir biskup svarts á h7.) 19. .. Kb8 20. exf7 cxb2+ 21. Kbl Ra5! 22. Bd3 Rc4 (Svartur er kominn með sóknar- möguleika á drottningarvængn- um.) 23. Bxc4 Dxc4 24. Hh2 (24. De2 var uppástunga Seirawan eftir skákina. Eftir drottningar- kaupin stendur svartur til muna betur þar sem hann hefur náð að „blokkera" frípeð hvíts.) 24. .. Rd5 25. Rxd5 Hxd5 26. e6 b3! 27. axb3 Da6 28. Bf4+ Kc8 29. Kxb2 Da3+ 30. Kc3 Da5+ 31. Kb2 Da3+ (Svartur var í tímahraki og hugðist vinna tíma með því að endurtaka leiki.) 32. Kc3 Bb4+ 33. 8 7. 6 5 4 3 2 1 Kc4 Be7! (Laglega leikið. Svartur hótar 34. - Db4+ 35. Kxd5 Db5 mát. Hrókur- inn á d5 er friðhelgur.) 34. Kc3 Da5+ 35. Kb2 Ba3+ 36. Kbl Dc3 37. Bcl Bxcl (Annar möguleiki sem einnig leiðir til vinnings er 37. - Dxb3+, en; leiðin sem svartur velur er ein- faldari.) 38. Kxcl Dal+ 39. Kd2 Dxd4+ 7 og hér gafst Nunn upp. Hrókur- inn á dl fellur ofan á aðrar hörm- ungar. id þökkum Islendingum 50 ára traust og ánœgjulegt samstarf Á Sjómannadáginn Sendum öllum íslenskum nnum árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.