Þjóðviljinn - 13.07.1983, Page 5
Miðvikudagur 13. júlí 1983 ÞJÖÐVILjÍNN — SÍÐA 5
Þrátt fyrir möguleika á að orna sér við varðeldinn var ekki verra að sveipa um sig værðarvoð þegar líða tók á sumarnóttina. Tveir ungir Hríseyingar Svandís og Ástráður.
Allaballar í Hrísey
Veðurguðirnir voru ekki sparir á blíðviðrið þegar Al-
þýðubandalagsfólk í Norðurlandskjördæmi eystra kom
saman á sumarmóti í Hrísey um nýliðna helgi. Glamp-
andi sól og hægviðri var allan tímann og varð það ekki
síst til þess að gera ánægju mótsgesta mikla, en til
viðbótar var að sjálfsögðu rífandi stemmning og gleði
alla dagana.
Fólk fór að tínast til eyjarinnar með Hríseyjarferjunni kl. 6
frá Árskógsströnd á föstudagskvöldið og dreif allaballa og
aðra til eyjarinnar hvaðanæva að af Norðurlandi. Dagskráin
á sumarmótinu var tiltölulega óbundin en meðal þess sem til
gamans var gert var sigling kringum eyna á laugardag og
þau Jóhanna Þórhallsdóttir söngkona og Kolbeinn Bjarna-
son flautuleikari fluttu tónlistarleikverkið „Aðeins eitt skref“ á
vöku í samkomuhúsinu um kvöldið. Þá var auðvitað kveiktur
varðeldur og kyrjaður fjöldasöngur með mararorganundir-
spili og etið af Hríseyjartilbúnum útigrillum. En við látum
nokkrar myndir tala sínu máli frá þessari velheppnuðu úti-
skemmtun, en þær tók fréttaritari Þjóðviljans í Hrísey,
Guðjón Björnsson.
í blíðskaparveðri á laugardeginum var siglt með mótsgesti í kringum
Hríseyna.
rSjÆ
z ' j
Fjölda manna dreif að til Hríseyjar á föstudagskvöldið og tóku talsvert á
annað hundrað manns þátt í sumarmóti AB á Norðurlandi eystra.
MI\MN«. MIM'iiMlK ÍM.F.N/k II \lf VII-MM
SKÍI’ÚS SKÍDHIIJ \H l' VKSON
Minninnarkorlin erutilsölu á
cftiriöltium stöðum:
Bókabúð Máls o/> menningar
Skrifstofu Alþýdubantlalagsins
Skrifstofu pjóðviljans
Munið söfnunurútuk í
Sigfústlrsjóð vegna
flokksmiðslöðvar
A Iþýðu bun dalagsins
r*r
txT-n* ^ . . . v
, :bstíitU4.íjj.
JMöQ£
FLUG - BÍLL
ORLOFSHÚS
í ýmsum löndum
eins og hver vill
Frjálst, ódýrt og þægilegt
ferðalag eins og hver óskar
eftir.
Sumarbústaðir - Norður-
löndum - Vestur-Evrópu -
Bretlandseyjum.
Afsláttarkort á járnbrautum
- bílar á flugvöllum
Verð ákjósanlegt.
Sjáum um að skipuleggja og
panta fyrir farþega. Fljúgum
með Flugleiðum á næstu
flughöfn. Allt öruggt og
tryggt.
FERÐASKRIFSTOFA
KJARTANS
Gnoðarvogur 44
simi 91-86255
Hluti mótsgesta kominn á vettvang.
Það er alveg æðislega gaman hérna i Hríseynni! Þvi máttu trúa!