Þjóðviljinn - 13.07.1983, Blaðsíða 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 13. júlí 1983
Heigi Guðmundsson formaður samstarfsnefndarinnar um iðnþróun í Eyjafirði. Mynd: -áþj.
„Almennur iðnaður er
grundvöllur iðnþróunar
Rætt við Helga Guðmundsson formann
samstarfsnefndar um iðnþróun í Eyjafirði
töluvert mikið af þeim verkefnum sem eru
keypt að eða innflutt, ss. ýmsa hluti. í
iðnaði sem er tengdur fiskiðnaðinum þá
hafa menn verið að gera ýmsa áhugaverða
hluti, td. í vélsmiðjunni Odda sem virkilega
_ _ væri ástæða til þess að styðja við bakið á.
9 9 Það er líka ástæða til þess að benda á nauð-
syn þess að skipasmíðaiðnaðurinn,
fiskiðnaðurinn og plastiðnaðurinn taki
höndum saman. Hér eru td. tvö fyritæki í
plastiðnaði og það er vitað mál að þar er
ýmislegt á ferðinni sem er áhugavert. Við
leggjum beinlínis til að það verði komið á
samvinnuverkefni þessara aðila bara til
þess að ganga í það að kanna hvaða raun-
verulegir möguleikar eru þarna fyrir
hendi.“
Samstarfsnefnd um iönþróun á
Eyjafjarðarsvæðinu skilaði nýlega af
sér störfum en hún hefur haft það
verkefni að kanna stöðu iðnaðar og
hugsanlega möguleika á iönþróun á
svæðinu fram að lokum þessa áratugs.
í tilefni af því átti Þjóðviljinn viðtal við
Helga Guðmundsson bæjarfulltrúa á
Akureyri sem varformaður
nefndarinnar, en auk hans sátu í
nefndinni: Gunnar Ragnars
framkvæmdastjóri, Valdimar
Bragason bæjarstjóri Dalvík, Bjarni E.
Guðleifsson tilraunastjóri, Helgi Bergs
bæjarstjóri, Sigurður Arnórsson aðst.
framkvæmdastjóri, Sigurður
Guðmundsson aðst.
framkvæmdastjóri og Þóra Hjaltadóttir
formaður Alþýðusambands
Norðurlands. Á lokastigi tók Jón
Sigurðsson aðst. framkvæmdastjóri
sæti Sigurðar Arnórssonar.
- Ef við byrj um fyrst á
aðdragandanum að þessari nefnd
Helgi?
„Aðdragandinn að nefndinni er í stuttu
máli sá að umræður um atvinnumál og iðn-
þróun hér á Eyjafjarðarsvæðinu hafa verið
mjög miklar á undanförnum árurh og menn
almennt haft áhyggjur útaf þessum málum
og sýnst að þau stæðu ekki jafnvel og þau
þyrftu að gera ef tryggja ætti örugga
atvinnu hérí framtíðinni. Til að kannaþessi
mál betur setti Hjörlefur Guttormsson
fyrrv. iðnaðarráðherra þessa nefnd á lagg-
irnar í febrúar 1982. Við gengum strax í það
• erkefni að kanna stöðu iðnaðarins á svæð-
niu og fengum til liðs við okkur fjöldann
allan af einstaklingum og funduðum með
nærri því öllum sveitastjórnum á svæðinu.
Við höfum reynt að skapa okkur heildarsýn
yfir iðnaðinn og niðurstöður okkar eru þær,
að allar greinar iðnaðarins hér fyrir norðan
standi nokkuð vel að vígi, aðrar en bygging-
ariðnaðurinn."
Prengingar
- Hver er ástæðan fyrir þeim erfiðleik-
um?
„Skýringin er fyrst og fremst sú að það er
byggt miklu minna af íbúðarhúsnæði heldur
en verið hefur. Fyrir því eru tvær ástæður,
annars vegar hinn erfiði Iánamarkaður og
hins vegar það að mikið hefur verið byggt af
íbúðarhúsnæði hér á undanförnum árum
þannig að þörfin á nýju húsnæði er minni en
oft áður. Td. gerum við ráð fyrir að byggja
110 - 120 nýjar íbúðir hér á Eyjafjarðar-
svæðinu næstu 5 árin miðað við mannfjöld-
aspá sem við höfum látið gera, meðan
byggðar voru 250 íbúðir á árabilinu 1976-
80.“
- Hvaða úrlausnir bendið þið á fyrir
byggingariðnaðinn?
„Við viljum að það verði þegar í stað
gripið til sérstakra aðgerða sem komi í veg
fyrir frekari fækkun í greininni. Við teljum
að það verði á þessu stigi ekki gert með
öðrum ráðum en að flýta stórlega fyrir opin-
berum framkvæmdum sem í sjónmáli eru,
ss. skólabyggingum og öðrum þessháttar. í
öðru Iagi leggjum við til að verði gert stór-
átak í endurnýjum og viðhaldi eldri mann-
virkja og einnig viljum við koma á sam-
starfsverkefni fyrir litlu trjáiðnaðarfyrir-
tækin hér á svæðinu sem tryggi þeim raun-
verulega vaxtarmöguleika. Þegar hefur
komið fram áhugi hjá nokkrum aðilum fyri
slíku samstarfi en forsendan fyrir öllu þessu
er náttúrulega sú, að ríkið og sveitarfélögin
séu tilbúin til þess að veita fé til þessara
framkvæmda og þarmeð bjarga byggingar-
iðnaðinum út úr kröggunum."
Annar iðnaður.
- Hvaða tillögur eruð þið með í öðrum
iðngreinum?
„I fiskiðnaðinum er ekki gert ráð fyrir
aflaaukningu enda engin skynsemisrök sem
mæla með þvt. Athuganir okkar benda hins
vegar til þess að ótrúlega margir vannýttir
möguleikar séu til staðar þar. Ma. höfum
við stuðst við grein eftir Jónas Bjarnason
sem birtist í Tímariti Verkfræðingafélagsins
og fjallar um betri nýtingu hráefna í sjávar-
útvegi. Þar má nefna atriði eins og aukna
fóðurframleiðslu úr fiskafurðum, fram-
leiðslu blautfóðurs, betri nýtingu auka-
afurða til manneldis, betri nýtingu hráefna
fyrir hefðbundin matvæli, hækkun gæða-
flokka o.s.frv.
í iðnaðinum sem Sambandið er með eru
sérstaklega freistandi möguleikar í skinna-
iðnaði. Aðstæður virðast vera fyrir hendi til
þess að fjórfalda skinnframleiðsluna og
stórauka framleiðslu á fullunnum flíkum. I
því sambandi er talað um 79 þúsund flíkur í
stað 6-7 þúsund á ári eins og nú er.“
- Hversu margar nýjar stöður gefur
svona aukning af sér?
„Það er nú vafasamt að þessi aukning
muni öll koma til hér á Eyjafjarðarsvæðinu.
Það er gerð krafa á Sambandið um að dreifa
sfnum iðnaði. Hins vegar leiðir aukning af
þessari stærð af sér 250 nýjar stöður sem
kosta tiltölulega lítið. Ef við berum þetta
td. saman við álver þá gefur það ekki mikið
meira en 300 stöður og því er aukning af
þessu tagi afskaplega freistandi í tilkostnaði
séð.“
- Hvernig stendur málmiðnaðurinn?
„{ málmiðnaðinum eru langsamlega^
mestu möguleikamir í sambandi við skipa-
smíðarnar. Þar gerum við ráð fyrir því, og
teljum alveg raunsæjan möguleika, að um-
svif Slippstöðvarinnar verði aukin um
svona 50%. Þá er hægt að hugsa sér að þar
væru um 450 manns í vinnu.“
- Á hverju á sú stækkun að byggjast?
„Hún byggist á athugun sem hefur verið
gerð um ástand flotans. Aldurinn á flot-
anum er orðinn ansi hár. Núna er meðalald-
urinn á skuttogurnum um 9 ár en lífaldur
þeirra er talinn vera um 16 ár. Það þýðir í
reynd að töluverður hluti skipanna er þegar
að komast á endurnýjunartímabilið. Sama
er uppá teningnum í vertíðarbátaflotanum.
Meginhluti flotans er um 18 ára en lífaldur
fiskiskipa er talinn um 20 ár. Þetta þýðir í
raun og veru það að ef við ætlum ekki að
dragast verulega afturúr þá verðum við að
smíða ný skip og jafnframt viðhalda eldri
skipum. Þetta er mjög mikið vérkefni og
afkastageta stöðvanna í landinu er langt
undir því sem til þarf til að anna því verk-
efni. Minnkun flotans er svo allt annað mál,
það eru margir sem eru sammála um að það
sé nauðsynlegt, en við megum ekki staðna í
skipasmíðunum."
- Hvað með annan málmiðnað?
„í öðrum málmiðnaði væri hægt að vinna
Orkufrekur iðnaður
- Þið eruð með sérstakar ályktanir í sam-
bandi við orkufrekan iðnað. Hverjar eru
niðurstöður ykkar í því máli?
„Við höfum reynt að gera okkur grein
fyrir því hver yrðu áhrif þess að hér yrði
komið fyrir all-stóru fyrirtæki í orkufrekum
iðnaði og reynt að meta þau. Við notum
álverksmiðju sem viðmiðun, í fyrsta lagi
vegna þess að hún hefur verið mjög á dag-
skrá í þessum umræðum og í öðru lagi
vegna þess að það eru fyrirliggjandi mjög
haldgóðar upplýsingar frá Árdal og Sundal
Verk sem vann mjög ýtarlega könnun um
hagkvæmnina við íslenska áliðju fyrir
iðnarráðuneytið. Við komumst að þeirri
niðurstöðu að atvinnulífið og byggðin í
heild sinni sé það öflug að fyrirtæki af
stæðinni 300 - 500 manns muni ekki valda
neinni teljandi röskun. Hins vegar höfum
við ekki nein svör varðandi mengunarhætt-
una og við því viljum við fá svör áður en
farið er af stað út í einhverjar framkvæmd-
ir. Þar fyrir utan er svo bullandi ágreiningur
á svæðinu um pólitískar hliðar þessa máls.“
- Hvað er langt í það að niðurstöður um
mengunarhættu liggi fyrir?
„Það er lágmark eitt ár þar til legið geta
fyrir einhverjar trúverðugar upplýsingar
um þau mál. Þá er eftir að taka ákvörðun-
ina um hvort eigi að hella sér út í fram-
kvæmdir af þessu tagi. Og verði það sam-
þykkt líða allavegana 3 - 5 ár áður en fram-
kvæmdir gætu hafist við slíka verksmiðju og
þá held ég pólitíska ágreiningnum alveg
utanvið."
- Er mikill ágreiningur í nefndinni um
þetta mál?
„Það er ágreiningur í nefndinni um
eignarhlutföllin og það er rétt að það komi
fram að hvorki ég, né Alþýðubandalags-
menn á Eyjarfjarðarsvæðinu, munum
nokkurn tímann fallast á það að hér rísi
erlend stóriðja og munum við að sjálfsögðu
snúast að alefli gegn því eins og flokkurinn í
stefnuskrá sinni. I annan stað munum við
hvetja til fyllstu varúðar hvað varðar meng-
unarmál ef af verksmiðju verður, þvi hér
eru slík náttúruauðævi að ekki má leggja út
í neina áhættu sem gæti grandað þeim.
Og ég vil undirstrika það að það er al-
menni iðnaðurinn sem er grundvallaratriði