Þjóðviljinn - 14.07.1983, Side 1

Þjóðviljinn - 14.07.1983, Side 1
DJÚÐVSLHNM Herinn og Alusuisse -þaðer atvinnustefna ríkisstjórnarinnar í tveimur orðum, segir Ólafur Ragnar. Sjá 5 8 tonnum af rækju landað á Kópaskeri Rækjuveiðarnar eru án efa vaxtarbroddur útgerðarinnar segir Sólmundur Einarsson, fiskifræðingur „Það er enginn vafi á því að rækja er vaxtabroddurinn í okkar útvegi. Hins vegar þarf að standa betur að veiðunum og þá fyrst og fremst með því að vinna hana að verulegu leyti um borð, sjóða og selja síðan út í skelinni. Þannig vili neytandinn fá þessa vöru og hún er geysilega eftirsótt. Rækjumiðin fyrir austan land gefa mjög góðar vonir, enda kom Votabergið með 8 tonn af rækju af þessum slóðum nú um helgina, sem öll fer í vinnslu á Kópaskeri“ sagði Sólmundur Ein- arsson, fískifræðingur hjá Rann- sóknastofnun fískiðnaðarins, þeg- ar við spjölluðum við hann um rækjuveiðar í gær, en Sólmundur fór með Bjarna Sæmundssyni til rannsókna á rækjumiðum við Þórsbanka um síðustu mán- aðamót. Sólmundur sagði að miðin væru suður af Reyðarfjarðardjúpi og á Héraðsflóadjúpi, og einnig hefði verið leitað á miðlínunni milli Fær- eyja og fslands. Bestu miðin virð- ast vera djúpmiðin fyrir austan og lítil hætta á ofveiði, þar sem djúp- miðin vernda rækjustofninn betur en grunnmiðin, m.a. með ís. Rækja þarna fyrir austan er mjög stór, eða um 100-180 stykki í kílói, sem er mjög gott. Aðalatrið- ið er sem sagt að vinna rækjuna um borð eins og gert er á Bjarna Ólafs- syni frá Akranesi. En allt of fá skip hafa þann möguleika. En hvernig skyldi standa á þessari aukningu á rækjunni? „Það er erfitt að segja. Nærtæk- ast er að iíta til sjávarhitans, en rækjan kann best við sig í köldum sjó, hest við 0 gráður. Minnkandi fiskgengd hefur líka áhrif, því rækj- an er fæða margra fisktegunda," sagði Sólmundur. I gær átti rannsóknarskipið Dröfn að halda á rækjumiðin fyrir austan til að rannsaka grunn- svæðin. júli 1983 fimmtudagur 155. tölublað 48. árgangur 9 „Þarna kraup sjálfstæðisvitundin á bæði hné“, sagði Andrés Kristjánsson í spjalli um daginn og veginn,sem blaðið birtir kafla úr í dag. Hjörleifur Sveinbjörnsson og Úlfar Þormóðsson (nú titlaður ábyrgðarmaður með stórum stöfum) með plakatið af Albert Guðmundssyni sem jafnframt er forsíða blaðsins. Ljósm.: eik Spegíllimi er konmrn út á ný Þriðja tölublað Spegilsins kom út í gær en annað tölublað var gert upptækt eins og alkunna er. Starfs- menn blaðsins, þeir Úlfar Þorm- óðsson (nú titlaður ábyrgðarm- aður með stórum stöfum) og Hjör- leifur Sveinbjörnsson, voru spurðir að því á blaðamannafundi í gær hvort ekki mætti ætla að réttvísin vildi hafa afskipti af þessu blaði líka. Töldu þeir það líklegt þó að ekki vissu þeir út af hverju helst - fremur en síðast. Þeir félagar töldu þó líklegt að teikningar eftir Rembrandt, Pic- asso o.fl. ásamt textum úr Bíb- líunni, Felsenborgarsögum, Lax- ness og Guðbergi gætu talist vafa- samar í augum saksóknara en þetta væri allt í þriðja tölublaðinu. Alt- ént væri vissara fyrir fólk að tryggja sér eintak áður en lögreglan gripi til aðgerða en þeir sögðust hafa frétt að síðasta blað gengi nú kaupum og sölum á svörtum mark- aði fyrir 1500 krónur eintakið. Um málaferlin sögðu þeir að bú- ast mætti við að sakadómarinn í Reykjavík skilaði greinargerðum það í dag - vegna kröfu frá lög- fræðingi Spegilsins- hvort lögregl- uaðgerðirnar væru lögmætar eða ekki. Þegar hún væri komin mættti vænta tíðinda. Margvíslegt efni er í blaðinu og margar myndir. Á forsíðu er mynd af Albert Guðmyndssyni fjármál- aráðherra og verður hún jafnframt seld sem plakat í bókabúðum Sig- fúsar Eymundssonar og Máls og menningar. - GFr Lækkun afurðalána Seðlabankans Rýrir veltufé fisk- vinnslufyrirtækjanna Hvers vegna eru ísraelar hræddari við Arafat en uppreisnarmenn innan PLO? / segir Sigurður Markússon hjá SIS ,Jú, það er alveg rétt að af- furðalán hafa lækkað talsvert að undanförnu og okkur hefur borist til eyrna mikil óánægja einstakra fyrirtækja í frystingunni vegna þess“, sagði Sigfirður Markússon framkvæmdastjóri Sjávarafurða- deildar Sambands íslenskra sam- vinnufélaga í gær. Afurðalán og föst lán viðskipta- bankanna hafa yfirleitt verið um 75% af sk. viðmiðunarverðum en nú er sú prósenta fallin niður í 64- 65%. Sem dæmi má nefna frystihús sem fær af þessum sökum um 4-4.5 miljón króna lægri lán frá þessum bankastofnunum. „Það gefur auðvitað auga leið að þetta fyrir- tæki svo og tugir annarra verða um leið verr í stakk búin að standa við skuldbindingar sínar innanlands,“ sagði Sigurður ennfremur. Hvaða afleiðingar telur þú að þessi rýrnun afurðalána geti að öðru leyti haft á útflutingsfyr- tækin? „Þetta rýrir auðvitað veltufé fyrirtækjanna og getur haft mar- gvíslegar afleiðingar aðrar. Það gæti orðið til samdráttar í útflutn-1 ingi og eins hins að fyrirtækin veigruðu sér við að framleiða í dýr- ar pakkningar". Hafa þessi mál verið rædd við stjórn Seðlabanka og ráðuneyti? „Ég veit ekki til þess að form- legar viðræður eigi sér stað af hálfu framleiðslufyrirtækjanna, en mér er sagt að í sjávarúrtvegsráðun- eytinu séu þessi mál til skoðunar." Ekki náðist í sjávarútvegsráð- herra í gær, en aðrir ráðuneytis- menn vildu ekkert um málið segja. -v í gær var byrjað að grafa fyrir nýrri Morgunblaðshöll á svæðinu þar sem bandaríska sendiráðinu hefur verið úthlutað lóð. Ljósm. eik. Bandaríska sendiráðið byggir Fær 12 þúsund fermetra lóð Bandaríska sendiráðið hefur fengið lóð við hliðina á stórhýsi Verslunarráðs íslands og lóð nýrr- ar Morgunblaðshallar í nýja mið- bænum í Kringlumýri í Reykjavík. Friðrik Brekkan blaðafulltrúi Menningarstofnunar Bandaríkj- anna sagði í viðtali við blaðið í gær að teikningar lægju ekki fyrir af þessu nýja sendiráði, en starfsemin væri nú rekin á tveimur stöðum í bænum, þ.e. sendiráðið á Laufás- vegi og Menningarstofnuninn á Neshaga. Reiknað væri með að starfsemin yrði sameinuð í þessu nýja húsi. Lóðin sem hér um ræðir er tæp- lega 12 þúsund fermetrar að stærð og eru gatnagerðargjöld talin nema 4.7 miljónum króna. - óg

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.