Þjóðviljinn - 14.07.1983, Qupperneq 12
12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 14. júlí 1983
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Norðurlandi vestra
A6 þessu sinni liggur leiðin í sumarferð Alþýðubandalagsins a
Norðurlandi vestra á einn fegursta og sérkennilegasta stað landsins:
gljúfrin í þjóðgarðinum við Jökulsá á Fjöllum: Hljóðakletta,
Hólmatungur og Ásbyrgi.
Feröin hefst fyrir hádegi laugardaginn 20. júlí og er miöað við sameiginlega
brottför frá Varmahlíð kl. 10. Hópferðir verða frá öllum þéttbýlisstöðum á
Norðurlandi vestra og veita umboðsmenn ferðarinnar upplýsingar á
hverjum stað. Farið verður um Akureyri, Mývatn og Grimsstaði, Asbyrgi og
þaðan upp með Jökulsá vestan megin. Gist verður tvær nætur í tjöldum við
Hljóðakletta og efnt til fagnaðar eins og venja er með dagskrá og
fjöldasöng.
Nægur tími ætti að gefast til skoðunarferða um Gljúfrin á sunnudeginum en
á mánudag verður ekið um Tjörnes og Húsavík heim á leið.
Þátttakendur hafi með sér tjöld, nesti og annan viðlegubúnað.
Þátttökugjald er kr. 1000 en hálft gjald fyrir þátttakendur 14 ára og yngri.
Umboðsmenn ferðarinnareru:
Sigluf jörður: Svava Baldvinsdóttir s. 71429, Sigurlína Þorsteinsd. s.
71406.
Sauðárkrókur: Bragi Skúlason, s. 5245, Rúnar Backmann, s. 5684 og
5519.
Hofsós: Gísli Kristjánsson s. 6341.
Varmahlíð: RagnarArnaldss. 6128.
Blönduós: Sturla Þórðarson s. 4356 og 4357, Vignir Einarsson s. 4310.
Skagaströnd: Ingibjörg Kristinsd. s. 4790.
Hvammstangi: Eyjólfur Eyjólfsson s. 1348, ElísabetBjarnadóttirs. 1435.
Þátttaka er öllum heimil
Alþýðubandalagið Norðurlandi vestra
Sumarferð Alþýðubandalagsins
á Austurlandi 23. júlí
Eins dags gönguferð frá Oddsdal í Norðfirði um Grákoll
til Viðfjarðar (15-20 km).
Fararstjóri: Hjörleifur Guttormsson.
Nauðsynlegur útbúnaður: Góðir gönguskór, hlífðarföt og nesti fyrir
daginn.
Glsting: Aðkomufólk sem óskar eftir gistingu þarf að panta hana með
fyrirvara í Hótel Egilsbúð, Neskaupstað, sími 7321.
Ef óskað er eftir svefnpokaplássi þá tilkynnið það við skráningu. Tjald-
stæði er yst í Neskaupstað.
Þátttaka tilkynnist (m.a. vegna bátsferðar) til einhvers eftirtalinna eigi
síðar en 18. júií:
Einar Þórarinsson í síma 7606 eða Valur Þórarinsson í síma 7690 Nes-
kaupstað.
Margrét Oskarsdóttir í síma 6299 Eskifirði.
Jóhanna Þóroddsdóttir í síma 4134 Reyðarfirði.
Anna Þóra Pétursdóttir í síma 5283 Fáskrúðsfirði.
Jóhanna lllugadóttir í síma 1622 Egilsstöðum.
Ferðaáætlun: Þátttakendur koma I bílum (einkabílum eða rútum, ef á þarf
að halda) að brúnni á þjóðvegi innarlega á Oddsdal. Frá Neskaupstað
verður lagt af stað frá Egilsbúð kl. 8:30.
Lagt af stað í göngu frá þjóðvegi kl. 9 stundvíslega. Áð á völdum stöðum á
leiðinni til Viðfjarðar og eftir dvöl þar siglt með bátum til Neskaupstaðar um
kvöldið, þaðan sem menn fá ferð til að nálgast einkabíla sína á Oddsdal,
Ábending um landabréf: Uppdráttur jslands, blað 114 „Gerpir".
Öllum heimil þátttaka - Alþýðubandalagið.
Sumarferðalag Alþýðubandalagsins
á Vesturlandi
Farið verður um Verslunarmannahelgina. Lagt af stað frá Borgarnesi kl. 9.30
laugardaginn 30. júlí og komið heim að kvöldi mánudagsins 1. ágúst. Farið
verður um Húnavatnssýslur, um Skagafjörð og til Siglufjarðar. Gist báðar
nætur að Húnavöllum. Svefnpokapláss og hótelherbergi eftir vali. Leiðsög-
umaður verður Magnús H. Gíslason, Frostastöðum.
Þátttaka tilkynnist sem allra fyrst til undirritaðra: Akranes: Guðbjörg Róberts-
dóttir, sími 2251, Ingunn Jónasdóttir, sími 2698. Borgarnes og nærsveitir:
Ríkard Brynjólfsson, sími 7270, Halldór Brynjúlfsson sími 7355. Snæfellsnes
sunnan heiða: Jóhanna Leópoldsdóttir 7691. Hellissandur: Sigríður Þórar-
insdóttir, sími 6616. Ólafsvík: Anna Valversdóttir, sími 6438. Grundarf jörður:
Ingi Hans Jónsson, sími 8811. Stykkishólmur: Guðrún Ársælsdóttir, sími
8234. Búðardalur: Krisfjón Sigurðsson, sími 4175. Reykjavík: Magnús H.
Gíslason, sími 81333. Tilkynnið ykkur sem fyrst. Kjördæmisráð.
Aðalfundur Alþýðubandalagsins
í Rangárþingi
verður haldinn fimmtudaginn 21. júlí kl. 21.00 að Geitasandi 3 Hellu. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Lífeyrissjóður SÍS:
Eignir
jukust um
80,3%
Eignir Lífeyrissjóðs SÍS jukust
um 80,3% á sl. ári, voru í árslok
364,4 milj. kr. Iðgjaldagreiðslur
sjóðfélaga námu 44,5 milj. kr. en
lífeyrisgreiðslur 11,3 milj. Lífeyris
hjá sjónum nutu 398 einstaklingar
á síðasta ári en virkir sjóðfélagar
voru í árslok 3.746.
Eignir Lífeyrissjóðs SÍS-
verksmiðjanna á Akureyri jukust
um 77,9% á síðasta ári, voru í árs-
lok 36,6 milj. kr. Iðgjaldagreiðslur
sjóðfélaga voru 5,9 milj. og líf-
eyrisgreiðslur 3,6 milj. Virkir
sjóðfélagar voru um áramót 740 en
178 einstaklingar nutu lífeyris á
árinu.
fbúðalán Lífeyrissjóðs SÍS til
sjóðfélaga hækkuðu hinn 1. maí sl.
og eru nú 200 þús. kr. Rétt til þess-
ara lána hafa sjóðfélagar, sem
greitt hafa 4% iðgjöld í 5 ár eða
lengur, miðað við fullan vinnudag.
Sjóðfélagar, sem greitt hafa tilsvar-
andi iðgjöld f 3 ár, eiga rétt á hálfu
íbúðaláni. Viðaukalán sjóðsins
voru hækkuð frá sama tíma í 140
þús. kr., að frádregnum áðurfeng-
num lánum. Þessi lán eru veitt 5
árum eftir töku hámarksláns.
Lánskjörin eru2% vextir á ári, vísi-
tala byggingakostnaðar og há-
marks lánstími 25 ár. Hjá Lífeyris-
sjóði verksmiðjanna giida nánast
sömu reglur um lán og lánakjör.
Að sögn Hermanns Þorsteins-
sonar, framkvstj. Lífeyrsissjóðs
SÍS er líklegt að í reikningum
sjóðsins fyrir yfirstandandi ár verði
áunnin réttindi sjóðfélaga færð upp
sem skuldaliður í efnahags-
reikningi. Kemur þá fram hver
raunveruleg geta lífeyrissjóðanna
er til að standa við skuldbindingar
sínar gagnvart sjóðfélögum, en
ýmsir hafa talið að á undanförnum
árum hafi gætt nokkurrar tilhneig-
ingar til þess að ofmeta stöðu og
afkomu lífeyrissjóðanna í landinu
almennt. -mhg
Nýjungar
e / n •••e
fra Sjofn
Fram eru komnar ýmsar nýjung-
ar varðandi hreinlætisvörur sem
Efnagerðin Sjöfn á Akureyri fram-
leiðir, að sögn Aðalsteins Jóns-
sonar, verksmiðjustjóra.
Vex-þvottalögurinn og Þrif-
hreingerningarlögurinn eru nú í
nýjum og hentugum umbúðum.
Komin er og á markað ný gerð af
Vex-þvottalegi, græn að lit í græn-
um flöskum, ný samsetning. Einn-
ig fljótandi handsápa í dælubrús-
um. Innan skamms eru væntanlegir
á markaðinn freyði- og steypibaðs-
legir, báðir með Kopral vöru-
merkinu.
Þa hefur Sjöfn gefið út nýjan
bækling, sem sýnir með myndum
hvað hægt er að gera innanhúss
með grófri sandmálningu frá verk-
smiðjunni. Eru þar sýnd margs-
konarmálningamynstur. Málningu
þessa má einnig nota utanhúss.
-mhg
Norræna húsið
í kvöld
Erindi um
bjargfugla
í kvöld, fimmtudaginn 14. júlí,
kl. 20:30 er „Opið hús“ í Norræna
húsinu. Þá talar Þorsteinn Einars-
son, fyrrv. íþróttafulltrúi, um ís-
lenska bjargfugla og segir frá hátt-
um þeirra, sýnir veiðarfæri, sem
notuð hafa verið við veiðar í fugla-
björgum, og sýnir glærur og lit-
skyggnur máli sínu til skýringar.
BARNFOSTRA
Okkur vantar konu til aö gæta 1 árs gamallar
dóttur okkar fyrri part dagsins frá 1. septemb-
er. Búum í Austurbænum.
Upplýsingar gefur Hrafnhildur Guðmunds-
dóttir í síma 20794.
Lokað í dag
vegna jarðarfarar Sigurðar Guðgeirs-
sonar.
Lífeyrissjóður Landssambands
vörubifreiðastjóra
Landsamband vörubifreiðastjóra
Umboðsmann vantar strax
á Hellu
DJOÐVHHNN
Kennarar athugið
Kennara vantar að Þelamerkurskóla í Hörg-
árdal næsta vetur. Meðal kennslugreina al-
menn kennsla og handmennt.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í
síma 96-21923 og skólastjóri í síma 96-
21772.
Skólastjóri
Kennarar
Einn kennara vantar að Grunnskóla Eski-
fjarðar.
Aðalkennslugrein enska eða danska auk al-
mennrar kennslu.
Nánari upplýsingar hjá skólastjóra í síma 97-
6182 eða formanni skólanefndar í síma 97-
6299.
Skólanefndin
tækniskóli
íslands
Byggingadeild óskar eftir að ráða aðstoðar-
menn við vettvangskennslu í landmælingum
í ágústmánuði n.k. Allar nánari upplýsingar
veitir Guðbrandur Steinþórsson deildarstjóri,
byggingadeild í dag og næstu daga kl. 10 -
12 í síma 84933.
Kennarastaða
Laus er til umsóknar kennarastaða við gagn-
fræðaskólann á Sauðárkróki.
Aðalkennslugreinar, stærðfræði og eðlis-
fræði. Nánari upplýsingar gefa skólastjóri í
síma 95-5219 og formaður skólanefndar í
síma 95-5255.
Skólanefnd Sauðárkróks