Þjóðviljinn - 15.07.1983, Blaðsíða 10
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. júlí 1983
BLAÐAUKI
Eitt lítið hylki af
GERICOMPLEX
inniheldur:
-GINSENG G115
Staðlað þykkni úr Ginseng rótinni,
eykur líkamlegt og andlegt starfsþrek.
DIKALCIUM
------FOSFAT
Mikilvægt byggingarefni fyrir tennur
og bein, einnig mikilvægt fyrir vöðva, taugar
og æðakerfi.
-----LECITHIN
Nauðsynlegt fyrir taugavefina
og minnkar líkur á æðakölkun með því að halda
blóðfitu uppleystri.
-------JÁRN
Nauðsynlegt til blóðmyndunar,
vöm gegn streitu og sjúkdómum.
—MAGNESIUM
Mikilvægt byggingarefni
fyrir bein, æðar, taugar og tennur.
------KALIUM
Kemur í veg fyrir að
of mikill vökvi bindist í líkamanum (bjúgur).
------KOPAR
Nauðsynlegt til myndunar RNA-kjamsýra,
hjálpar til við myndun hemoglobins og rauðra
blóðkoma.
-----MANGAN
Nauðsynlegt við myndun kynhormóna, mikilvægur
hluti ýmissa efnahvata.
--------ZINK
Mikilvægt við frumumyndun og efnaskipti.
Mjög nauðsynlegt til þess að blöðmhálskyrtillinn
starfi eðlilega.
A-VITAMIN
Blóðaukandi, styrkir beinin
og tennumar. Hefur góð áhrif á nýru og lungu.
—B-1 VÍTAMÍN
Styður orkugjafa líkamans.
Viðheldur tauga- og jafnvægiskerfinu.
Vinnur gegn streytu.
—B-2 VÍTAMÍN
Nauðsynlegt fyrir húðina, neglur og hár.
-B-3 VÍTAMÍN
Auðveldar starf taugakerfisins.
Hjálpar til við meltinguna og hressir upp á húðina.
-----B-5 VÍTAMÍN
Aðstoðar við hormónamyndun og myndar mótefni.
Tekur þátt í orkumyndun líkamans.
Vinnur gegn streytu.
-----B-6 VÍTAMÍN
Nauðsynlegt fyrir nýtingu líkamans á fítuefnum.
Hjálpar til við myndun rauðra blóðkoma.
—B-12 VÍTAMÍN
Mjög blóðaukandi.
Nauðsynlegt fyrir taugakerfið og heilasellumar.
------C-VÍTAMÍN
Vinnur gegn kvefi og kvillum. Hefur stjóm
á blóðfitumagninu.
—D-VÍTAMÍN
Nauðsynlegt í nýtingu kalks og fosfoms.
Talið hindra vöðvarýmun.
—E-VÍTAMÍN
Mótefni sem hindrar óæskilega virkni súrefnis
í líkamanum. Lengir líf
rauðu blóðkomanna, eykur þrekið.
----P-VÍTAMÍN
Eykur áhrif C-vítamíns og vinnur með því.
Gericomplex fæst í Heilsuhúsinu,
Skólavörðustíg lá og Seljabraut 54 (Kjöti og Fisk),
í Heilsuhorninu á Akureyri og einnig
í apotekum.
ÉK
eilsuhúsiö
Vítamín og steinefni nauðsynleg
Framhald af bls. 9.
vasa-fyrirtæki. Ég er alveg hættur
að vinna við það, það er annar tek-
inn við. Við leituðum úrvals frá
upphafi og svo er enn og verður
vonandi allar götur áfram.“ Mar -
teinn vill lítið ræða um sjálfan sig,
leggur meiri áherslu á málefnið
sem honum finnst svo mikilvægt.
Stríð við yfirvöld
„Apótekarar töldu sig hafa
einkarétt á sölu vítamína. Það urðu
átök, þeim í óhag. Vilmundur
Jónsson, landlæknir hafði fullan
skilning á gildi og þörf þessara efna
en embættismenn koma og fara.
1967 var gefin út reglugerð sem
bannaði öll vítamín utan apóteka.
Henni mótmælti ég sem broti á
lögum, ella væri áreiðanlega enn í
dag engin vítamín seld utan apó-
teka og engin náttúruleg vítamín til
á markaðnum. Slíkt kapp var lagt á
að brjóta niður frjálsan innflutning
að sala vítamína og náttúrulegra
lyfja var kærð til sakamála. Þær
kærur runnu út í sandinn því það
voru til rök gegn þeim. Núverandi
handhafar þessara mála hafa gert
margar og róttækar banntilraunir
og gera enn. Þær eru alvarlegt brot
á 69. grein stjórnarskárinnar þar
sem segir að engin bönd megi
leggja á atvinnufrelsi manna nema
almenningsheill krefji. Þær brjóta
einnig í bága við lyfjahugtak lag-
anna. Þetta er skýlaust brot á rétti
þínum og mínum til að velja okkur
hollefni engu síður en heilsu-
skaðleg efni. Þetta sama vald gerir
hins vegar engar tilraunir til að
banna innflutning þeirra.
Þetta eru nauðsynleg næringar-
efni en ekki lyf. Þú átt aldrei að
sætta þig við að vera slöpp“, segir
Marteinn og brosir. Augun eru
hvik og lifandi og hann heldur
áfram: „í blóði hvers manns eru 75
tegundir af steinefnum. Við getum
ekki fengið öll þessi efni úr
fæðunni, í staðinn fáum við þau úr
náttúrulegum efnum. Mér finnst
grátlegt þegar ungt fólk er komið
inn í vítahring lyfja og kvilla og
orsökin er oft skortur á nauðsyn-
legum næringarefnum."
Er hættulegt
að borða of mikið
af vítamínum?
„Gjörðu svo vel, fáðu þér sól-
blómafræ", segir Marteinn og opn-
ar krukku sem stendur á sófa-
borðinu. „f þessum er mikil nær-
ing“. Ég er hikandi í fyrstu, er ekki
vön að borða fræ en finnst þetta
ljómandi gott og ekki sakar að vita
um hollustugildið. „Ég ætti að
bjóða þér eitthvað að drekka",
heldur hann áfram og kemur að
vörmu spori aftur með tvær flösk-
ur, aðra með gulrótarsafa og hina
með rauðbeðusafa. „Ég er vanur
að blanda þessu saman“, segir
hann. „Þetta er hreinn heilsu-
drykkur“. Það eru orð að sönnu,
allavega fannst blaðamanni Þjóð-
viljans hún finna hollustuna
streyma um æðarnar. En snúum
okkur að ágreiningi Marteins við
lyfjavaldið.
„1977 var gefin út ný reglugerð
þar sem m.a. er talað um að vítam-
ín skuli teljast lyf ef þau innihalda
50 hundraðshluta umfram venju-
legan dagskammt. Aftan við reglu-
gerðina er birt tafla yfir venjulegan
dagskammt hinna ýmsu vítamína.
Þarna er ég á algjörlega önd-
verðum meiði \ ið heilbrigðisyfir -
völd. Eg hef í áratugi tekið margfalt
meira af vítamínum en þeir telja
hættulegt magn og er ekki dauður
enn. Kenning þeirra finnst mörg-
um hættulega fjarri staðreyndum.“
Kvöldvorrósarolían
Því miður gefst ekki tækifæri í
þessu stutta spjalli að fjalla ná-
kvæmlega um hin ýmsu efni sem
Elmaro hefur flutt inn gegnum ár-
in. En hvað um kvöldvorrósar-
olíuna, margfrægu?
„Kvöldvorrósarolían hefur
hjálpað fjölda fólks", segir Mart-
einn, „og það hefur sannast hér
eins og erlendis að um mikilvægan
heilsuverndandi þátt er að ræða.
En það þarf að taka inn fleiri vít-
amín með henni, t.d. er C-vítamín
nauðsynlegt öllum til að styrkja
æðaveggi. E-vítamín er mikilvæg
líftrygging gegn blóðtappa, það
víkkar háræðarnar t.d. í fótum og
er því gott við ýmsum fótakvillum
hjá eldra fólki.“
Skop og heilbrigði
Marteinn ber aldurinn vel eins
og áður sagði og ég spyr hvort ekki
l'/2 holli sojakjötsbitar, snöggsoðið
1 laukur, saxaður
2 bollar soðin hrísgrjón
1 bolli sveppir
1 bolli sveppasúpa
Vz bolli mjólk cða rjómabland
Vi bolli majones
salt eftir smekk
Laukurinn soðinn í olíu, sojakjöts-
komi fleira inn í það en vítamín.
„Jú, vissulega," segir hann, „rétt
næring yfirleitt, hreyfing, hæfileg
áreynsla og þjálfun líkamlegra og
andlegra vöðva. Það er hættulegur
ávani að gera fíl úr hverri flugu og
sjá fjandann í hverjum and-
stæðingi, þótt átök harðni. Ég held
að það sé heilsusamlegt að skyggn-
ast eftir skoplegu hliðunum á alvör -
unni. Baráttan gegn vítamínum og
hliðstæðum efnum er svo mótsagn-
akennd og skoplegu hliðarnar svo
skarpar og skýrar að það er hreint
revíuefni. Það er líka syndlaust að
skopast lítið eitt að sjálfum sér.
Heilsuhríngurínn
Ég vil taka það fram að þessi mál
hafa breyst mjög síðustu ár. Fyrstu
fimmtán árin sem ég stóð í þessu,
voru erfið. Annars vegar fjand-
skapur, hins vegar eðlileg van-
þekking. En á síðustu tíu til fimm-
tán árum hefur orðið gjörbreyting
á afstöðu almennings og hraðvax-
andi með aukinni reynslu af neyslu
þessara hollefna.
Heilsuhringurinn er félag sem
var stofnað 1977 og blað hans,
Hollefni og heilsurækt, kom fyrst
út 1978. Þar höfum við á annað
þúsund áhugafólk og stöðugt
stækkandi hóp. Það félag og blað
hefur stóru hlutverki að gegna.
Heimilisfang blaðsins er Hverfis-
gata 35, Hafnarfirði, sími 51775.
Heilbrigðismál snerta hvert einasta
mannsbarn og eru sem betur fer
ekki komin í hina heimskulegu
flokkapólitík."
Þessi látum við vera lokaorð
Marteins Skaftfells og vonum að
barátta hans fyrir heilbrigði al-
mennings vari lengi enn og nái til
sem flestra.
EÞ.
bitunum bætt út í og brúnað létt,
sveppirnir settir út í og látið malla
smástund. Síðan er öllu öðru
blandað saman við. Sett í eldfast
mót, bakað í 45 mín. við 200°C.
Borið fram með soðnum eða
bökuðum kartöflum og hrásalati.
Ætti að duga fyrir 6-8 manns.
(Úr Hollt og Gott)
Sojakjötsbitar og hrísgrjón
Sendist í póstkröfu,
Verð kr. 100 +
postkröfugjald.
Matreiðslubókin
Jurtafæði
Bók ætluö þeim er vilja reyna fyrir sér í matreiðslu
jurtafæöis. Greint er frá meðhöndlun, suðutíma og
öðru því sem nauðsynlegt er að vita til að matreiða á
einfaldan hátt Ijúffenga rétti úr hráefnum úr jurtaríkinu.
Fjöldi uppskrifta er í bókinni. Aðalréttir úr baunum,
grjónum og grænmeti. Brauðgerð, kökuuppskriftir,
salöt, eftirréttir, súpur, sósur, drykkir o.fl. Öll mat-
reiðslan miðuð við að fæðan haldi næringarefnum og
hollustu sinni sem best.
Nafn....
Heimili
Utanáskrift:
Kornmarkaðurinn
Skóiavörðustíg 21 A