Þjóðviljinn - 15.07.1983, Page 16

Þjóðviljinn - 15.07.1983, Page 16
16 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 15. júlí 1983 BLAÐAUKI „T alaðu við Aðventistana," sagði vinur minn við mig, „þeir hafa gefið út alveg frábæra matreiðslubók með alls kyns ódýrum og hollum jurtaréttum. Ég hef smakkað nokkra og þeir eru æðislega góðir". Svo ég hafði samband við forstöðumann Sjöunda dags aðventistaá íslandi, Erling B. Snorrason. Það er kona Erlings, Jeanette A. Snorrason sem tók umrædda mat- reiðslubók saman. Uppskriftirnar eru flestar frá konum í söfnuðin- um. Bókin nefnist Hollt og Gott, matreiðslubók með jurtaréttum. Rétt mataræöi - Við erum fædd í guðsmynd og eigum að fara vel með líkama okkar, segir Erling P. Snorrason forstöðumaður Aðventista á íslandi. Við hlið hans er Eva Þórðardóttir sem hefur verið grænmetisæta frá blautu barnsbeini. Ljósm. eik. og hugsunin skýrist Aðaluppistaða réttanna í bókinni eru baunir, hnetur, kornmeti og sojakjöt og flokkast uppskriftirnar í súpur, salöt, aðalrétti, brauð, morgunmat og eftirrétti. í formála bókarinnar segir Árni Hólm að eins og aðrar þjóðir hafi fslending- ar vaknað til meðvitundar um mikilvægi rétts mataræðis en af eðlilegum ástæðum kvarti þó margir um að þá skorti þekkingu og þjálfun í að matbúa fæðuteg- undir eins og grænmeti og gróft korn og því sé þessi matreiðslubók mikill fengur. Þetta held ég að sé alveg rétt hjá Árna því flestir ís- lendingar eru aldir upp við hefð- bundið kjötát. En af hverju leggja aðventistar áherslu á jurtafæði? Skýrari hugsun „Þetta er ekki trúarsetning hjá okkur,“ segir Erling, „heldur segirErlingurP. Snorrason, forstöðumaður SD Aðventista spurning um heilbrigði því við trú- um því að líkamlegt heilbrigði haldist í hendur við hið andlega. Með því að halda okkur heilbrigðum líkamlega, verður guðs orð og getum betur gegnt skyldum okkar í samfélaginu. Við trúum því að maðurinn sé skap- aður í guðs mynd og það sé skylda hans að halda líkamanum sem næst því ástandi, sem hann var skapaður í. Við erum ákveðnir bindindis- menn á áfengi, tóbak og eiturlyf og t.d. finnst okkur kaffi óæskilegt að því leyti að það kallar fram auka orku sem ekki er til í rauninni. Það má líkja því við að fara yfir á ávís- anaheftinu!" Söfnuðir Sjöunda dags aðvent- ista eru til í um 200 löndum og eru því útbreiddasta mótmælendatrú í heiminum. í mörgum löndum eru rekin sjúkrahús og skólar á þeirra vegum t.d. eru barnaskólar í Reykjavík og Keflavík og gagn- fræðaskóli í Ölfusi, Hlíðardals- skóli. Hér er einnig rekin myndar- leg bókaútgáfa. En snúum okkur að mataræðinu. Sjöunda dags aðventistar reka verslun að Skóla- vörðustíg 16 í Reykjavík og nefnist hún Frækornið. Erling gekk með okkur um verslunina og útskýrði hinar ýmsu vörur sem þar fást. Tekur tíma að venjast „Við reynum að borða eins holl- an mat og hægt er en ekki er þar með sagt að við borðum aldrei kjöt. Fólk ræður algjörlega matar- æði sínu sjálft. Ég vil benda á að það tekur þó nokkurn tíma að að- laga líkamann að breyttum matar- venjum. Það er t.d. ómögulegt fyrir mann sem hefur verið kjötæta að ákveða að á morgun ætli hann að verða grænmetisæta. Líkami hans myndi gera uppreisn." Máli Erlings til stuðnings sagðist af- greiðslustúlkan, Eva Þórðardóttir sem alin er upp við jurtafæði frá blautu barnsbeini, hafa orðið fyrir verulegum líkamlegum óþægind- um þegar hún þurfti að borða kjöt einn vetur af því hún bjó á þannig stað. Líkami hennar var algjörlega óvanur kjöti og þurfti að venjast því. Þetta verður að koma smátt og smátt, segir Erling. Eftirlíking af nautakjöti Jurtaætur borða alls kyns osta- rétti, salöt og búðinga sem t.d. eru búnir til úr korni, kartöflum eða baunumog bakaðiríofni. „Þettaer kjötlaus kjötbúðingur," segir Er- ling og sýnir mér dós í búðinni, „og hérna eru pylsur búnar til úr baunum." Aðventistar í Dan- mörku reka verksmiðju sem fram- leiðir um 400 tegundir jurtafæðis. Nefnist hún NUTANA og eru ýms- ar vörutegundir frá þeim til í Fræ- korninu. Má þar nefna ýmiss konar morgunmat, hráefni í bollur, mu- esli, bran og ýmiss konar dósamat. Sojakjöt er fyrirbæri sem ég hef aldrei séð áður. Það eru hakkaðar sojabaunir, mismunandi grófar. Tvær tegundir eru til í Frækorninu, eftirlíking af nautakjöti og kjúkl- ingum. Sojakjötið er bleytt í vatni og síðan búnar til úr því bollur eða hleifar sem eru steiktir og líkist það venjulegu kjöti. Einnig eru til sós- ur í pökkum, ýmar bragðtegundir, að sjálfsögðu búið til úr náttúru- legum efnum. Flestar þessar vörur eru líka til í Náttúrulækningafé- lagsbúðinni, Kornmarkaðnum og fleiri stöðum. EÞ. Potta-SEYÐIR: Pokar sem þola suðu Hver vill ekki gera uppvaskið léttara, spara rafmagnið og auka hollustu fæðunnar? Allt er þetta hægt að gera með Potta-seyði, nýju plastpokunum frá Plastprent, að sögn sölustjóra fyrirtækisins. - Við erum fyrstir í heimi að framleiða plastpoka sem þola suðu, segir hann. Maturinn er sett- ur í pokann, hann lofttæmdur og lokað fyrir. Kostirnir eru t.d. þeir að hægt er að sjóða fleiri en eina tegund matar í sama potti og spara þannig rafmagn. Hollustan felst í því að maturinn sýður í eigin safa, hann fer ekki út í vatnið, og þar með óhreinkast potturinn ekki. Þessir pokar hafa verið samþykktir af Heilbrigðiseftirliti ríkisins svo nú er bara að prófa - og hætta að rífast um hver á að þrífa pottana. EÞ. Barnareiðhjól í miklu úrvaii. á Frakklandi A/dur3—10ára. Dekkjastærðir 121/2", 14" og 16". Fótbremsa, bögg/aberi, bjai/a, pumpa, keðjukassi og hjáipardekk á 12 1/2og 14" hjó/um. Litir blátt og rautt. Varah/uta- og viðgerðarþjónusta. Árs ábyrgð. Sendum í póstkröfu. Aidur frá 6 ára. Dekkjastærðir 20", 22", 24", 26" og 28". Án gíra með fótbremsu, 3 gíra, 10 gíra og 15 gíra. Stráka- og stelpustell. Litir: silfur, blátt o. fl. /erslunin /M4RKIÐ Suðurlandsbraut 30, sími 35320.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.