Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 3

Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 3
Laxeldis- stöð í Laugardal Stefnt er að því að fyrir árslok hefjist rekstur laxeldisstöðvar í Laugardal sem geti framleitt allt að 200 þúsund laxaseiði. Áætlanir um framkvæmdirnar voru samþykktar á aðalfundi Laugalax h.f. sl. sunnu- dag. Laugalax h.f. er hlutafélag í eigu heimamanna í Laugardalshreppi og nokkurra áhugamanna um fisk- eldi. Einnig er Veiðifélag Árnes- ings hluthafi. Á fyrirhuguðum hluthafafundi 28. þessa mánaðar verður tekin ákvörðun um hluta- fjáraukningu og endanleg ákvörð- un um framkvæmdir í haust. í stjórn Laugalax hf. voru kjörnir á aðalfundinum Eyjólfur Friðgeirs- son, Reykjavík, Kristján Krist- jánsson, Reykjavík og Sigurður Sigurðsson, Laugarvatni. -ekh Sr. Olafur Skúlason vígður vígslubiskup Á Skálholtshátíð á sunnudag verður hinn nýi vígslubiskup í Skál- holtsstifti séra Ólafur Skúlason dómprófastur vígður. Pétur Sig- urgeirsson biskup annast vígsluna en vígsluvottar verða prófastarnir Sigmar Torfason á Skeggjastöðum í Bakkafirði, sr. Jón Einarsson á Saurbæ á Hvalfjarðarströnd, sr. Þórarinn Þór á Patreksfirði og sr. Jón Bjarman fangaprestur Reykja- vík. Sr. Björn Jónsson á Akranesi lýsir vígslu, en Skálholtsprestur, sr. Guðmundur Óli Ólafsson, og pró- fastur Árnesinga sr. Sveinbjörn Sveinbjörnsson í Hruna þjóna fyrir altari ásamt biskupum. Skálholtskórinn undir stjórn Glúms Gylfasonar syngur við at- höfnina m.a. nýja þýðingu dr. Sig- urðar Pálssonar úr latínu á lof- söngnum Te Deum. Biskupsvígsl- an hefst kl. 13.30 og eru að sjálf- sögðu allir velkomnir. Á Skálholtshátíð verður og minnst þess að Skálholtskirkja var vígð fyrir 20 árum. Arkitekt henn- ar er Hörður Bjarnason húsa- meistari. Samkoma verður í kirkj- unni síðdegis og mun dr. Sigur- björn Einarsson biskup verða þar aðalræðumaður.Matthías Jóhann- essen skáld mun flytja hátíðaljóð sitt sem hann flutti við vígslu kirkj- unnar en hefur nú endurort. Fræg- ur þýskur kór frá Nikolaikirkjunni í Hamborg mun flytja tvö kirkjuleg tónverk. Samkoman hefst kl. 16.30. Morgunblaðið í gær: Dáindis- menn og dollara- príns! Tveir dáindismenn að þjóna dollaraprinsi er mynd- efni teiknara Morgunblaðsins á teikningu sem birtist í Mogganum í gær. í ljósi þess að áhrifamáttur teikninga listamannsins í Morgunblaðinu er talinn feikna mikill búast margir við að þessi teikning eigi eftir að segja til sín á næstunni. Föstudagur 22. júlf 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3 Jökull í Ólafsvík Hefur sagt upp kjara- samning- um Verkalýðs- og sjómannafélagið Jökull í Ólafsvík samþykkti að segja upp núgildandi kjarasamn- ingum á fundi sl. sunnudag. Samn- ingar þess verða því lausir 31. ágúst nk. Félagsfundurinn fordæmdi bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar frá því í vor, og tók undir sam- þykktir formannaráðstefnu fslands og Sambandsstjórnar Sjómanna- sambandsins um þau. Söngvakeppni í Vín: Kristinn í úrslitum íslenskur söngvari, Kristinn Sig- mundsson keppir nú í úrslitum í alþjóðlegri söngkeppni í Vín. Keppni þessi nefnist Belvedere og tóku um 300 manns þátt í henni. 3 umferðir eru að baki í keppninni og aðeins eftir 17 söngvarar í úrslita- keppninni. Bíða menn nú spenntir eftir úrslitunum, en þetta er talinn mjög góður árangur hjá Kristni. Kristinn er við söngnám á Ítalíu, en hann hefur sungið hér á mörgum sýningum, bæði hjá íslensku óper- unni og í Þjóðleikhúsinu. þs. Leiðrétting Aðmírállinn hvorki kapteinn né prestur Togarinn Guðsteinn í Akureyrarslipp. Hann hefur verið keyptur norður og heitir Akureyrin þegar hann kemst aftur í kynni við sjávarseltuna. Ljósm.: Leifur. Slippstöðin á Akureyri: Framtíðin svört „Framtíðin? Hún er svört. Ann- ars er best að spyrja Halldór ráð- herra, hann ræður þessu“, sagði Gunnar Skarphéðinsson starfs- mannastjóri á Slippstöðinni á Ak- ureyri þegar spurt var um verkefn- in framundan. Auk almennrar óvissu um framtíðarverkefni skipa- smíðastöðvanna eru uppi hug- myndir um að selja hlut ríkisins í Slippstöðinni á Akureyri,'en þar vinna nú 310 manns. Að sögn Gunnars eru næg verk- efni frammá haustið en enginn veit hvað þá tekur við. Þeir á Slipp- Déskoti að eiga ekki lengri dregil þegar sroom dolUrsprinsar koma ( heimsókn!! stöðinni eru nú að ljúka við fyrsta raðsmíðabátinn og hafa selt hann til Eskifjarðar. Annar er í smíðum, en óseldur. Að auki er verið að smíða bát sem á að senda til Græn- höfðaeyja, liður í þróunaraðstoð. Þá er verið að breyta Guðsteini, pólsksmíðuðum togara frá Austur- Þýskalandi, í einskonar verk- smiðjutogara þarsem aflinn er unninn um borð. Guðsteinn var búinn að liggja lengi við kæjann í Hafnarfirði en hefur nú verið keyptur norður og á að heita Akur- eyrin þegar verkamenn á Slipp- stöðinni hafa lokið breytingum. Auk þess er á Slippstöðinni unnin almenn viðgerðarvinna, „við köllum það skveringar“, sagði Gunnar Skarphéðinsson hjá Akur- eyrarslippnum. Undarleg villa slæddist inní frá- sögn af aðmírálaskiptum á her- stöðinni í Keflavík í gær. Þar var sagt að aðmírállinn, sem væri að taka við af Marryott handhafa ís- lensku fálkaorðunnar, héti Alston S. Kirk. Þetta er óttalegt rugl, því sá sem tók við aðmírálshlutverkinu á herstöðinni heitir Ronald E. Narmi og hefur fengið margar orður fyrir framgöngu í Vietnam- stríðinu. Hinu má svo bæta við að Alston Kirk er líka til. Hann er hinsvegar bara kapteinn og prestur í hernum. -óg. St j órnmála- samband tekið upp við Jemen Ríkisstjórnir íslands og Al- þýðulýðveldisins Jemen hafa tekið upp stjórnmálasamband. Ekki hef- ur verið ákveðið hvenær skipst verður á sendiherrum segir í frétt frá utanríkisráðuneytinu. Skuldbreytingalánin umsóknarhæf 26. júlí Eyðublöð fyrir umsóknir um skuldbreytingarlán til þeirra sem fengið hafa lán hjá viðskiptabönk- um og sparisjóðum vegna bygging- ar eða kaupa á eigin húsnæði í fyrsta sinn undanfarin 2-3 ár liggja frammi í afgreiðslu banka og spari- sjóða frá og með þriðjudegi 26. þ.m. Sarna dag birtist auglýsing um lánin í blöðum. Umsóknarfrestur er til 31. ágúst.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.