Þjóðviljinn - 22.07.1983, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 22.07.1983, Blaðsíða 4
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. júlí 1983 UOBVIUINN Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyf- ingar og þjóðfrelsis Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. flitstjórar: Árni Bergmann, Einar Karl Haraldsson, Kjartan Ólafsson. Umsjónarmaður Sunnudagsblaðs: Guðjón Friðriksson. Auglýsingastjóri: Sigríður H. Sigurbjörnsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Blaðamenn: Auður Styrkársdóttir, Álfheiður Ingadóttir, Helgi Ólafsson, Lúðvik Geirsson, Magnús H. Gíslason, Ólafur Gislason, Óskar Guðmundsson, Sigurdór Sigurdórsson, Valþór Hlöðversson. íþróttafréttaritari: Víðir Sigurðsson. Utlit og hönnun: Helga Garðarsdóttir, Guðjón Sveinbjörnsson. Ljósmyndir: Einar Karlsson, Leifur Rögnvaldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Auglýsingar: Áslaug Jóhannesdóttir, Ólatur Þ. Jónsson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Jóhannes Harðarson. Símavarsla: Sigríður Kristjánsdóttir, Margrét Guðmundsd. Húsmóðir: Bergljót Guðiónsdóttir. Bilstjóri: Ólöf Sigurðardóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Gunnar Sigurmundsson, Ólafur Björnsson. Pökkun: Anney B. Sveinsdóttir, Halla Pálsdóttir, Karen Jónsdóttir Útkeyrsla, afgreiðsla og auglýsingar: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 81333. Umbrot og setning: Prent. Prentun: Blaðaprent h.f. / I minningu Eðvarðs • I dag kveðjum við með virðingu og söknuði þann mann sem framar öðrum varðveitti stolt verkalýðsstéttarinnar á sinni tíð. í þau 50 ár sem hann var áhrifamaður í forystu verkalýðshreyfingarinnar og leiðtogi sósíalista á þeim vett- vangi kenndi hann með fordæmi sínu mikilvægi þess „að hinn almenni verkamaður líti aldrei á sig sem neinn annars flokks þegn í þjóðfélaginu, glati aldrei tilfinningunni fyrir rétti sínum, heldur varðveiti stolt stéttar sinnar, það stolt, sem best hefur dugað í allri jafnréttisbaráttu verkalýðsstétt- arinnar og sem engu minni þörf er á að varðveita í dag en var á frumbýlingsárunum“, svo vitnað sé í viðtal við hann á 70 ára afmæli Dagsbrúnar í Þjóðviljanum 24. janúar 1976. • Dagsbrúnarmaðurinn, verkalýðsleiðtoginn, sósíalistinn, bókmennta- og náttúruunnandinn og barnavinurinn Eðvarð Sigurðsson var í sannleika sagt óvenjulegur maður. Mann- kostir hans, skarpar gáfur samfara gjörhygli og hógværri rósemi, urðu hverjum manni ljósir er honum kynntust, og áunnu honum virðingu jafnt samherja sem andstæðinga. Þeir sem yngri eru þekktu Eðvarð sem valdamann í verka- lýðshreyfingunni, formann Dagsbrúnar og Verkamanna- sambandsins, leiðtoga samninganefnda ASI, forseta á ASI þingum og þingmann Alþýðubandalagsins. Hann þótti stundum fara sér hægt og segja minna en skyldi. En hann var ákaflega raunsær og ofmat hvorki samstöðu og styrk verka- lýðshreyfingarinnar á hverjum tíma né vanmat sterkan ands- tæðing í atvinnurekendum og íhaldssinnuðu ríkisvaldi. Pess- vegna voru sótt til hans ráð fram á hinstu stund. Hann var viðurkenndur meistari verkalýðshreyfingarinnar í að gera greinarmun á aðalatriðum og aukaatriðum, og greiða úr flóknum stöðum, þannig að verkalýðshreyfingin gæti teflt hverja skák til enda með langtímahagsmuni sína að leiðar- Ijósi. • Félagar Eðvarðs úr kreppunni og frá upphafi eftirstríðsáranna þekktu hann sem eitilharðan baráttumann fyrir hagsmunum verkafólks og hugsjónum sósíalismans. Hann vó engan mann með orðum eða persónupólitík, en samt, og ef til vill einmitt þessvegna, var hann erfiður and- stæðingur sem minnihlutamaður innan Dagsbrúnar og ASÍ, og síðar við samningaborðið andspænis atvinnurekendum. Eðvarð Sigurðsson var í fyrstu Dagsbrúnarstjórninni sem sósíalistar höfðu forystu um árið 1942. Sama ár hafði Dags- brún forgöngu um að brjóta á bak aftur gerðardómslögin illræmdu og koma á því jafnvægi stéttanna, sem afturhaldið hefur ekki enn brotið á bak aftur. Það er fyrst nú, fjörutíu árum síðar, að vegið er með lagasetningu að samningsrétti launafólks. Það væri verðugt að heyja baráttuna gegn þeirri lögleysu í minningu Eðvarðs Sigurðssonar. • Dægurbaráttan var aldrei markmið í sjálfu sér hjá Eðvarð. Hún var aðeins þáttur í víðtækari baráttu fyrir því að tryggja alþýðunni völdin í landinu, setja manninn í önd- vegi, og tryggja félagsleg réttindi fjöldans. Atvinnuleysis- tryggingasjóður, Styrktarsjóður Dagsbrúnar og skylda at- vinnurekenda til þess að greiða í lífeyrissjóði verkafólks eru allt óbrotgjarnir minnisvarðar um lífsstarf Eðvarðs Sigurðs- sonar, þó að fyrstu möskvarnir í þetta öryggisnet launafólks hafi verið riðnir í lok harðvítugra átaka, og oft verið álitnir eftirgjöf í samningum. Eðvarð þreyttist ekki á að finna að slíkri skammsýni, sem honum fannst alltof oft skjóta upp kollinum í verkalýðshreyfingunni hin síöari ár. Hann gerði þá kröfu til forystumanna hreyfingarinnar að þeir hefðu jafnan bræðralags og jafnaðarhugsjón frumherjanna að leiðarljósi. Jafnaðarkrafan var æðri öllum kaupmetingi, komandi ár mikilvægari en stundarhagur. Þekking, lærdóm- ur reynslunnar, samstaða fjöldans og þrotlaust starf hinna mörgu fyrir verkalýðssamtökin og sósíalismann voru lykil- orðin sem hann ráðlagði eftirmönnum sínum að leggja á minnið. • Þjóðviljinn þakkar Eðvarð Sigurðssyni samfylgd og leið- sögn og vottar aðstandendum hans samúð sína. klippt Aöild að Atlantshafsbanda- laginu er friðarstefna um lögö aö liku. Þetta hlýtur aö stafa af vanþekkingu, og er ásta -a rifja upp aödrag- andé? tofnun Atlants- hafs-. aðW lag ‘ ■jírS Sov.* tryg.' 'Ti ■r^ þegs,, komiVAJ...st« vio valdarán i Tékkóslóvaklu 1948. Hitler haföi innlimað Tékkóslóvakfu ríki sitt tæpum tíu árum áö- r. YfirganKur hans var látinn afskiptalaus i von um. að hann ætlaði sér ekki frekari land- vjnnlnaa Mn, ^pnaleg SAInjn.Jeiiadótlii voriö 1951. Hvor aöilii. sig getur farið fram skoðun varnarsan. Fáist ekki niðurstaf ári, má segja honui hliöa. Ekki aukin hernaðarumsvif fslendingar vilja ekki I landi sfnu, en ástandið í he. inum er ennþá svo ótrygKt.. hann er iil nauösyn. Engin vill aukin hernaöarumsvif á íslandi. Herstöðin er nægilegt tákn um að íslendingar hafi fí.'.ESAA.-VIÍFSÍtU:- k*m-rin-S5 Okob þ. »'• ■ b>nd£ j^'jum og beint gcgn fæðingu Sovét-lslands Al Landaaamb»nd Raunaleg grein Á laugardag skrifaði Sólrún Jensdóttir sagnfræðingur grein í Morgunblaðið sem heitir „Aðild að Atlantshafsbandalaginu er friðarstefna". Þessi grein er held- ur raunaieg að því leyti, að sagn- fræðin hjálpar Sólrúnu ekki minnstu vitund til að segja neitt annað um réttlætingu Nató og fs- lands í því en það, sem hefur ver- ið sagt eitt þúsund og einu sinni í Morgunblaðinu í meira en þrjátíu ár. Tilgangur greinarinnar er svo sá einn að vara þverpólitfska friðarhreyfingu íslenskra kvenna við því að gagnrýna Nató, enda skrifuð sem framlag Landssam- bands Sjálfstæðiskvenna til þeirra mála. Formúlan sem fylgt er líkist að því leyti meðferð friðarmála í op- inberum málgögnum Austur- Evrópu að það er bara HINN sem er sekur. Og gagnrýni sem snýr að eigin valdhöfum er misskiln- ingur, heimska, barnaskapur eða þó helst drottinssvik. Þœgilegar einfaldanir En semsagt - það er ekki margt nýtt í þessari grein Sólrúnar Jens- dóttur, hvort sem litið er til for- tíðar eða nútíðar. Fyrst og síðar ræður einföldun hins pólitíska á- róðurs ríkjum. Hjá sagnfræðing- um kom bandaríski herinn hing- að 1951 vegna þess að það var stríð í Kóreu - hitt er svo látið lönd og leið, að löngu áður en bandamenn í stríðinu gegn Hitler voru komnir í hár saman höfðu Bandaríkjamenn ákveðið að vinna að því með tiltækum ráðum að hafa hér herstöðvar til allrar frambúðar. Önnur einföldun úr nútíman- um: „Allir íslendingar hljóta að vera sammála um að umsvif hers- ins hér á landi megi ekki aukast, en menn verða að gera sér grein fyrir því hvað hernaðarumsvif eru“, skrifar Sólrún. Síðan er sagt að Helguvíkurmálið sé mengun- armál og flugstöðvarmálið ekki annað en íslenskt sjálfstæðis- og metnaðarmál. Það kemur svo vel á vonda sagnfræði, að kvöldið áður en greinin birtist í Morgun- blaðinu sló Gunnar Gunnarsson, starfsmaður Öryggismálanefnd- ar, því föstu að framkvæmdir þær sem Geir Hallgrímsson hefur ver- ið að guma af á Varðarfundum, feli ekki í sér bara endurnýjun á ýmsum búnaði heldur einnig aukningu umsvifa hersins. Þetta gerðist í sjónvarpi og Geir Hall- grímssyni sem sat þar í umræðum datt ekki í hug að andmæla þess- ari túlkun. Það væri heldur ekki úr vegi að spyrja hvort íslenskir aðalverk- takar séu með í þeirri staðhæf- ingu að „allir íslendingar hljóta að vera sammála um að umsvif hersins hér á landi megi ekki aukast"? Fórnarlömb Rússa Ein einföldun enn. Sólrún Jensdóttir segir: „Kröfur um ein- hliða afvopnun Vesturlanda eru hinsvegar hættuleg fljótfærni. Slíkar kröfur eru ógnun við lýðræðið, en augljós hagur óvina þess með Sovétríkin í farar- •broddi. Þessi staðreynd vekur spurningu um hvort þeir sem berjast fyrir einhliða afvopnun Vesturlanda séu fórnarlömb undirróðurs Sovétríkjanna". Þetta er mjög ómakleg sneið til friðarsinna, ekki síst þeirra, fjölmörgu kirkjufunda, sem hafa m.a. mælt með skrefum til ein- hliða afvopnunar. Þetta orð skref, er undirstrikað vegna þess að það er mikil rangfærsla að setja mál svo fram, að friðarsinn- ar ímyndi sér að það sé raunhæft að önnur blökkin afvopnist ein- hliða (þótt til séu pasifistar svo hreinræktaðir að þeir vilja engin vopn sjá, en það er önnur saga). Hugmyndir t.d. mjög margra kirkjunnar manna um að það sé æskilegt að stíga viss skref til ein- hliða afvopnunar byggjast svo á tvennu. Annarsvegar því, að þar með væri farið af stað fordæmi, sem mótaðilinn neyddist til að fylgja (ella myndi vígbúnaðar- kapphlaupið hefjast upp á nýtt væntanlega) - að með slíkum skrefum sé hægt að skrúfa niður þetta margbölvaða kapphlaup. í annan stað byggir þessi afstaða svo á því, að hin kenningin (að ekki sé hægt að afvopnast nema að vígbúast fyrst og semja svo) - hún hefur ekki borið umtals- verðan árangur í þrjá áratugi. Spurning sú sem öðru fremur blasir við hverri friðarhreyfingu er þessi: vilja menn leggja í áhættu þess sem ekki var áður reynt til að komast út úr vítahring eldflauganna? Þá spurningu forð- ast greinarhöfundur eins og Sól- rún Jensdóttir - þess í stað er gripið til þess eilífðarráðs að fara með dylgjur (án þess þó að stað- hæfa of mikið) um „fórnarlömb undirróðurs Sovétríkjanna“. Brenglun? Að lokum þetta. Á einum stað segir Sólrún Jensdóttir, að sögu- skoðun Þjóðviljans sé brengluð vegna þess að í leiðaara hér í blaðinu var sagt að með gerð Keflavíkursamnings 1946 hafi verið undirbúin varanleg hers- eta Bandaríkjamanna á íslandi. „Það var ekki her á íslandi 1947- 1951“, segir Sólrún með sagn- fræðilegum ábyrgðarsvip, rétt eins og einhver hefði haldið öðru fram. Nei, vitanlega muna menn það, að á þeim árum voru hér ekki hermenn í einkennisbún- ingi. En hitt reyndist svo rétt, sem sósíalistarnir héldu fram strax eftir stríð að Keflavíkur- samningur væri undanfari annarra og verri tíðinda. - AB. Víðsýnin í Framsókn Tómas Árnason fyrrum ráð- herra varð sextugur í gær og er skrifað um hann í Tímanum eins og maklegt er. Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ríður á vaðið og skrifar svona heldur í kveðjustíl umTómas, „samstarfokkarTóm- asar varð nánara með hverju ári“ stendur þar. En það sem er at- hyglisverðast í þessari afmælis- grein er svofelld lýsing Stein- gríms á því að Tómas hvarf úr tveim áhrifa- og valdapóstum: „Tómas Árnason tók þá á- Tómas Árnason „gaf ekki kost á sér“. kvörðun að gefa ekki kost á sér til ráðherradóms í þeirri ríkisstjórn sem nú situr. Sú ákvörðun hans, sem og að gefa ekki kost á sér til endurkjörs sem ritari flokksins, lýsir þeirri skoðun Tómasar, að endurnýjun í stjórnmálastarfinu er nauðsynleg. Sýndi Tómas með þessu mikla víðsýni." Nú mætti halda áfram með þessa hugsun stundarkorn og spyrja sem svo: Ef það ber vott um víðsýni að fara ekki í ríkis- stjóm Steingn'ms og Geirs og vilja ekki vera varaformaður Fram- sóknarflokksins við núverandi aðstæður - hvaða athæfi er það þá í þeim sama flokki sem ber vott um þröngsýni? _ ÁB. -ekh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.