Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. júlí 1983
BPWitlwii
BBanramia
■fiptd!
6 M J
■MMHIII
gBBSIÍÍ!
ÍBSSSS
BSSSSSi
sssggii
Flugvélar færðar inn á töflu í Mjörkadah endurnýjun eða aukning?
Poul Schliiter forsætisráðherra Dana á blaðamannafundi í Þórshöfn: við
skiptum olíutekjunum jafnt...
Sjálfstæðismál Færeyinga:
Deilt um Natóradarstöð
og eignarrétt á landgrunni
Færeyingar eiga sér einnig her-
stöðvavandamál og standa um
þessar mundir yfir deilur harðar
um endurnýjun radarstöðvar í
Mjörkadal eða Þokudal, sem er um
tíu km frá Þórshöfn.
Stöð þessi er kölluð langsýnt
auga Nató í Norðuratlantshafi og
er partur af „framsettu viðvörun-
arkerfi" bandalagsins sem spannar
allt frá Grænlandi til Skotlands.
Yfirmaður stöðvar þessarar P.E.
Juhl ofursti segir í nýlegu viðtali við
Information að útbúnaður hennar
sé úreltur og þurfi að endurnýja
hann í anda nútíma tölvutækni.
Juhl, sem er reyndar nýhættur
störfum á Færeyjum, segir enn-
fremur, að hér sé ekki um að ræða
neinarbreytingará hlutverki Þoku-
dalsstöðvar frá því sem verið hef-
ur (samanber deilur hérlendis um
fyrirhugaðar framkvæmdir í þágu
bandaríkjahers).
Framkvæmdum þessum fylgdi,
að það þurfti að sækja um leyfi til
að hækka loftnet á Sornfelli úr 25 m
í 60 m sækja drjúgan hóp sér-
fræðinga til útlanda, sem búa skulu
á herstöðinni, en þar á að reisa
þrjár byggingar nýjar. Fram-
kvæmdir eiga að standa í þrjú ár.
Mótmœli
í Fœreyjum
Áætlanir þessar hafa leitt til
mikilla mótmæla. Annan í Hvíta-
sunnu fóru um 200 manns í 14 km
langa friðargöngu frá Þórshöfn til
Mjörkadals og 600 manns tóku þátt
í mótmælaaðgerðunum við her-
stöðina sjálfa. Það var hreyfingin
„Þjóð með friði“ sem stóð fyrir
þessum aðgerðum, en hún lítur á
það sem eitt höfuðverkefni sitt að
leggja niður mannvirki Nató í Fær-
eyjum.
Hreyfingin vísar til samþykktar
lögþings Færeyinga frá 1960, en
þar segir að Færeyjar skuli vera
hlutlausar gagnvart stórveldum og
ekki leyfa staðsetningu hern-
aðarmannvirkja erlendra ríkja í
landinu. Danskar ríkisstjórnir hafa
að sönnu látið þessa samþykkt sem
vind um eyru þjóta og hafa Fær-
eyjar verið hafðar með í Nató án
þess að landsmenn væru um það
spurðir.
„Þjóð með friði“ hefur mjög á
lofti þá röksemd í málinu, að nær-
vera Nató geri Færeyjar að skot-
marki í hugsanlegum átökum stór-
veldanna. En vegna þess að þær
röksemdir hafa ekki dugað til þessa
gegn þeim sem ákvarðanir taka í
málinu, hafa færeyskir Natóand-
stæðingar reynt að færa sér í nyt
ýmsa formgalla á byggingarmálum
í herstöðinni.
Leyfi og
samningar
Fyrsti formgallinn er sá, að byrj-
að var á húsunum þrem sem áður
voru nefnd áður en menn gerðu sér
ljóst að það þurfti að sækja um
byggingarleyfi til bæjarstjórnar í
Þórshöfn. Þess utan hafa friðar-
sinnar dregið mjög í efa að yfirleitt
hafi nokkurntíma fengist leyfi til að
hafa herstöðina þar sem hún er.
Fyrrnefndur Juhl ofursti hefur
hinsvegar látið svo um mælt, að
gerður hafi verið fullgildur leigu-
samningur um Mjörkadal við
kóngsbónda einn á Kaldbak, en
það hafi verið fyrir handvömm
embættismanns að samningnum
var ekki þinglýst á sínum tíma.
Hart var tekist á um byggingar-
leyfið í bæjarstjórninni í Þórshöfn
og að lokum fór svo að það var
samþykkt með átta atkvæðum
gegn fimm. En bæjarstjórnar-
menn, sem andvígir voru þessu
leyfi, hafa boðað málshöfðun út af
leigusamningnum um Mjörkadal.
Síðan hefur landsstjórnin, sem
nú er skipuð flokkum sem fylgja
óbreyttu sambandi við Danmörku
og svo Nató, gefið út sitt leyfi.
Um hundrað danskir liðsforingj-
ar og ráðnir starfsmenn eru nú í
Mjörkadal.
Natóstöðin er sérstakur þyrnir í
augum færeyskra Þjóðveldis-
manna og annarra sjálfstæðissinna
vegna þess að þeir líta á hana sem
staðfestingu á dönskum yfirráðum,
segir í þeirri grein í Information
sem hér er stuðst við.
Hver á olíuna?
Þar segir einnig frá því, að annað
hitamál sem tengist baráttunni
fyrir sambandsslitum við Dan-
mörku eru átökin um yfirráð yfir
dýrmætum jarðefnum á landgrunni
Færeyja. Færeyska landstjórnin
hefur fengið fyrirspurnir frá meira
en 25 olíufélögum um leyfi til að
bora eftir olíu og gasi á landi eða í
sjó. En öll hafa þau fengið svar á þá
leið, að þau verði að bíða þangað
til gengið hefur verið frá öllum
vafaatriðum að því er varðar
eignarrétt á landgrunninu.
Rétt eins og í lögum um heima-
stjórn á Grænlandi er það tekið
fram í Iögum um stöðu Færeyja, að
réttur til landgrunns sé sameigin-
legt mál allra hluta ríkisins. Danir
geta með öðrum orðum krafist síns
hluta af arði þeim sem kann að
verða af færeysku olíuævintýri eftir
helmingaskiptin.
Lögþing Færeyja hefur á þessu
ári ítrekað þann skilning, að Fær-
eyingar eigi einir að taka ákvarðan-
ir um olíuleit og nýtingu jarðefna af
landgrunninu. En svo kom forsæt-
isráðherra Dana, Poul Schlúter til
Færeyja fyrir skemmstu og hélt fast
því striki, að ekki féllist hann á það
að Færeyingar fengju betri kjör í
þessum málum en Grænlendingar.
Og, segir Information að lokum,
Pauli Ellefsen lögmaður Færeyja,
hefur beygt sig og játast undir það
að framtíðarviðræður um þessi mál
fari fram á grundvelli jafnréttis-
reglunnar svonefndu, þeirrar sömu
og gildir um landgrunnið úti fyrir
Grænlandi.
Blað Þjóðveldismanna, 14. sept-
ember, segir á þá leið um málið, að
allir flokkar Færeyja séu sammála
um að halda fast við samþykktir
lögþingsins um yfirtöku land-
grunnsins. Nema Sambandsflokk-
urinn (flokkur lögmannsins) sem
„vill yfirtaka landgrunnið ef það
væri hægt“ eins og þar stendar.
í sama blaði segir, að boranir í
Lopra hafi sýnt að mati Jóannesar
Rasmussens jarðfræðings, að finna
megi gas, olíu eða kol undir Fær-
eyjum. En hvað af þessu finnst og
hversu mikið sé enn ekki ljóst,
segir jarðfræðingurinn og kvartar
um að fé hafi ekki fengist til frekari
rannsókna.
f Lopra var borað niður á 2180
metra dýpi „en við komumst ekki í
gegnum basaltlagið" segir Rasm-
ussen. Borinn sem notaður var
kom frá fslandi segir í sama blaði.
AB tók saman.
P.E.Juhl stöðvarstjóri Nató sagði m.a. að hann væri í Rotarí-
klúbbnum í Þórshöfn og þar væri aldrei veist að sér persónu-
lega með gagnrýni.
Nafni er ekki logið á Mjörkadal - skyggni er þar ekki gott.
Óttinn fjölgar hjartasjúklingum
Hjartaslag er einhver algeng-
asta dánarorsök nútímamanna
eins og kunnugt er. Orsakir til
þess að hjartað bilar eru margvís-
legar og er oft deilt um það, hvers
konar misnotkun fæðutegunda,
hvers konar efnaskortur eða hve
miklar reykingar þoki mönnum á
hættusvæði.
Mörgum ber þó saman um að
einn samnefnari sé öðrum stærri
þegar grafist er fyrir um orsakir
hjartasjúkdóma en það er
streitan. Og margir telja að
streitan sé vanmetin sem helsti
bölvaldur þeirra sem fyrir aldurs
sakir, lifnaðarhátta eða annars
eiga á hættu að fá hjartaslag.
Nýleg bandarísk könnun bend-
ir til dæmis til þess, að sjálf við-
leitni lækna til að vara líklega
hjartasjúklinga við geti orðið
þeim hættuleg eða banvæn.
Bandarískir læknar tóku fyrir
um 1400 karla sem voru allir yfir
hættumörkum vegna þess að þeir
reyktu, höfðu háan blóðþrýsting
eða of mikla fitu í blóði. Þeim var
skipt í tvo hópa báðir fengu töflur
og holl ráð, en annar hópurinn
var oft og sterklega varaður við
háskanum. í báðum hópum tóku
um þrír af hverjum fjórum hætt-
unni með ró. En sá fjórðungur
sem varð lífhræddur og þar með
„stressaður" lenti líka miklu oftar
en hinir á sjúkrahúsum.