Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 14
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 22. júlí 1983
Steinn Stefánsson:
Þriðji hluti
Þjóðfrelsi íslendinga
Haldið vöku ykkar
Bandaríkin eru búin að hafa her í
landi okkar hartnær 40 ár síðan
stríði lauk og þetta er kallað varn-
arlið. Til að verja hvern? Svarið er
óvefengjanlega: Bandaríkin. Hvað
sem mönnum sýndist áður, þá sjá
það allir nú, að það er búið að gera
hluta af landi okkar að virki sem á
að vera U.S.A. til varnar og einnig
hagræðis í hinni eilífu yfirráðasókn
stórveldis, jafnvel til heimsyf-
irráða.
Við sjáum sí og æ, a.m.k. seinni
árin, hvernig þau færa sig stöðugt
upp á skaftið við okkur að hætti
stórveldis. Eitt af því nýjasta er
Helguvíkurhöfn handa hernum og
bætt aðstaða á Keflavíkurflugvelli
sem og hér og þar í landinu. Þá er
e.t.v. það hættulegasta ótalið, en
það eru kjarnorkukafbátar kring-
um landið, sem telja má staðreynd
a.m.k. með tímanum.
Eitt vitum við alveg fyrir víst, að
í stórveldastyrjöld verður land
okkar skotmark, líklega eitt hið
fyrsta vegna herstöðvanna hér. Þá
fær a.m.k. meirihluti þjóðar okkar
að láta lífið og þó líkast til þjóðin
öll í sprengingum og afleiðingum
kjarnorkugeislunar. Einhverjum
þeirra sem biðja um hernám kann
að þykja það ákaflega sælt að deyja
fyrir Bandaríkin, en ég veit að
flestir með þjóð okkar hugsa nú
meira um framtíð hennar og menn-
ingu.
Séu allar aðstæður skoðaðar
rækilega niður í kjölinn utan við
allan áróður, veit ég, að hver hugs-
andi maður sér augljóslega, að
Bandaríkjaher er hér eingöngu
vegna eiginhagsmuna síns ríkis og
alveg án tillits til íslendinga. Þeim
er auðvitað nákvæmlega sama þótt
þjóð okkar farist í stórstyrjöld.
Eftir það hefðu þeir alger yfirráð
yfir þægilegu víghreiðri á hentug-
um stað í Atlantshafinu. Þessa full-
yrðingu má ekki taka svo, að ég
álíti að allir Bandaríkjamenn séu
þorparar, síður en svo, enda eru
þar friðarhreyfingar sem sýna allt
annað. En herstjórn og valdahrok-
inn fæst ekki um tillitssemi eða
góðmennsku.
Nú er það vissulega möguleiki,
aðkjarnorkuveldin vinniþað þarfa _
verk! að þurrka út allt líf á
jörðinni, standi fyrir heimsendi, en
við vonum auðvitað í lengstu lög,
að yfirvegun mannvitsins fái að
ráða það miklu að svo fari ekki.
Þá kem ég að þessari spurningu:
Er okkur nauðsynlegt að hafa her í
landi vegna hættunnar frá Sovét-
ríkjunum? Vissulega eru Rússar
stórveldi og ég hef nú látið í ljós
skoðun mína á slíkum ríkjum. En
hér kemur fleira til. Eins og allir,
sem fylgst hafa með, vita, sömdu
þeir Stalín og Trúmann forseti
USA og kannski fleiri forsprakkar
risaveldanna, leynilega um skipt-
ingu a.m.k. nyrðri hluta jarðar, og
meira þó, í áhrifasvæði í stríðslok
1945. Samkvæmt þessum samningi
er ísland óumdeilanlega á áhrifa-
svæði Bandaríkjanna. Þess vegna
liggur það fyrir, að ef Rússar ætl-
uðu eitthvað að fara að bretta sig
húsbyggjendur
ylurínn er
" góóur
"AfnrBiAiim Pinannrnparnlast a
Afgreiðum einangrunarplasl a
Stór-Reykjavikursvæðið fra
mánudegi — fostudags.
Afhendum vöruna a byggingarstað.
viðskiptamonnum að kostncðar
lausu. Hagkvæmt verð og
greiðsluskilmalar
við flestra hæfi
k»otd g httftnmi f I TtU
og reyna að ná yfirráðum á fslandi,
væri kjarnorkustyrjöld skollin á.
Og af því að Rússar þekkja nú
þjóða best, ásamt Þjóðverjum,
hinar ægilegu afleiðingar styrjalda,
bara af gamla taginu, hefur maður
ástæðu til að álíta, að þeir mundu
hugsa sig um tvisvar áður en þeir
færu út í slíkt ævintýri, sem skv.
eðli málsins er útilokað að þeir
gætu haft nokkurn hag af. Lítum á
fleira í þessu sambandi. Er það
ekki skýr sönnun fyrir viðurkenn-
ingu áhrifasvæðanna, að þegar
Rússar sendu her inn í Ungverja-
land og seinna Tékkóslóvakíu
vegna afskipta af innanlandsmál-
um, datt Bandaríkjunum ekki í hug
að hreyfa sig þessum ríkjum til
hjálpar, svo að eitthvað sé nefnt.
Eða Ameríkuríki eins og t.d. Chile
og E1 Salvador. Ekki hefur hvarfl-
að að Rússum að hreyfa sig þeim til
hjálpar vegna þess að þau eru á
umsömdu áhrifasvæði U.S.A. og
það þrátt fyrir ógeðslegt framferði
svo sem morðið á Allende og sí-
felld manndráp.
Svarið við spurningunni hér að
framan um nauðsyn „herverndar"
verður því skilyrðislaust nei. Við
getum þess vegna sent bandaríska
herliðið hér heim til sín meðan við
eigum að heita að ráða því sjálf,
sem óvíst er hversu lengi verður.
Við erum eftir sem áður á áhrifa-
svæði U.S.A. hvort sem mönnum
líkar betur eða ver, og það eins þótt
viðværum ekki í Atlantshafsbanda-
laginu -vopnlausþjóðíhernaðar-
bandalagi, sem U.S.A. líklega þarf
aðeins að hafa að yfirskini til að
dylja yfirgang sinn.
Eins og áður er sagt veit hver
hugsandi maður að Bandaríkin eru
hér með her sjálfra sín vegna.
Valdsmenn þar hafa gert sér ljósa
grein fyrir því, hve hentug lega
landsins er til þess að vera útvörður
U.S. A. En við vitum ekki hót hve-
nær það veldi telur sig „mega til að
skipa málum“ hér í landi að eigin
vild af þessum eða hinum „knýj-
andi“ ástæðum. Þaulæfðum yfir-
drottnurum verður ekki skota-
skuld úr að búa til einhverjar
„óumflýjanlegar" ástæður til af-
skipta af innanríkismálum ríkis
e.t.v. hæfilega sakleysislegarí byrj-
un. En hershöfðingjar atvinnu-
manndrápara, eru vanir að hafa sitt
fram með einhverjum ráðum. Við
vitum heldur aldrei hvers konar
menn komast til æðstu valda í stór-
veldi. Það er munur á mönnum.
Berum t.d. saman Roosevelt og
aftur Reagan með allar sínar kröf-
ur um aukinn kjarnorkuvopnabún-
að. Einhvers konar Hitler getur
komið upp í hvaða stórveldi sem
er. Hvar stöndum við, ef við yrðum
beittir valdi? Þá hugsun er ekki
hægt að hugsa til enda. Hlutleysi
hefur dugað okkur lengi og vel,
enda lengst af virt. Vopnlaus þjóð
verður að vera hlutlaus í átökum
stórvelda.
Við verðum þess vegna að losa
okkur við herinn og ganga úr Atl-
antshafsbandalaginu. En þótt okk-
ur takist að koma hernum úr landi
og losna úr Nató, sem hvorttveggja
er í dag aðeins innanríkismál okk-
ar, þurfum viðsamtaðgerameira.
Við þurfum að vinna að því, að
Norðurlönd verði friðlýst, eins og
víðast er unnið að, og ekki síð-
ur að fá viðurkennda friðlýsingu
Norður-Atlantshafsins undir eftir-
liti og ábyrgð Sameinuðu þjóð-
anna, til þess að losna við kjarn-
orkukafbáta stórveldanna, svo sem
ágætir menn hafa hvatt til nýlega.
Takist okkur að koma í gegn þess-
um fjórum baráttumálum, værum
við loksins búin að ná fullu sjálf-
stæði fyrir þjóð okkar.
Heiðruðu leiðtogar stjórnmála-
flokka þjóðarinnar. Ég heiti á ykk-
ur í alþjóðarnafni að íhuga vel hvar
við verðum staddir í hinum rang-
snúnu kringumstæðum sem um-
lykja okkur á þessum síðustu og
verstu tímum, sem yfir heiminn
hafa gengið og ekki síst þjóð okk-
ar. Viljið þið ekki gera það fyrir
þjóð ykkar að halda fullu sambandi
við anda þjóðfrelsisbaráttu liðinna
alda, fylgja dæmi Jóns Sigurðs-
sonar og aldamótamanna og halda
áfram baráttunni af fullum krafti
uns lokasigri er náð. Á ykkur hvílir
ábyrgðin, þeim sem stýra málefn-
um þjóðarinnar hverju sinni.
Hér þarf hver sannur íslending-
ur að ástunda íhugun og þar með
yfirsýn yfir aðsteðjandi vanda.
Leita, leita og finna í sameiningu
hina réttu leið til að halda því sjálf-
stæði, sem við töldum okkur vera
að ná þann 17. júní 1944, binda
endi á þá hættu að þjóðin missi
fullveldi sitt og týni tungu sinni og
menningu. Við erum skvldug til að
skila eftirkomendum landinu sem
þeirra eign. íslensk æska, þið sem
eigið að erfa landið ásamt eftir-
komendum ykkar. Gjaldið alvar-
lega varhuga við heimskulegum á-
róðri um að við,vopnlaus þjóð,
þurfum að dingla í einhverjum
hernaðarbandalögum og þiggja
„hervernd" einhvers stórveldis
sem við skiljum að býður einmitt
hættunni heim í fleiri en einum
skilningi. Verið minnug setningar:
Engin þjóð er sjálfstæð sem hefur
erlendan her í landi sínu.
Unga fólk, unga ísland, ég trúi á
þig. Eg hef umgengist mikið yngri
kynslóðina um dagana og einatt
fundið hve dýrmætan efnivið
þjóðin á í ykkur. Aðeins verðið þið
að gæta þess að láta ekki rangsnú-
inn áróður ná tökum á ykkur.
Hugsið sjálf, leitið, íhugið, kynnið
ykkur baráttu okkar bestu manna í
sögunni fyrir sjálfstæði þjóðarinn-
ar og fetið í þeirra fótspor, þá mun
ykkur og allri þjóðinni vel farnast.
Haldið vöku ykkar og munið að
sjálfstæði, tunga og menning þjóð-
arinnar hvílir á ykkar herðum.
Framtíðin er ykkar. „Þetta land átt
þú“, sagði eitt af góðskáldum
okkar.
íslendingar, örlög lands og
þjóðar eru í okkar höndum. Fram
til baráttu fyrir óskoruðu frelsi vors
lands.
Steinn Stefánsson.
Blikkiðjan
Ásgaröi 7< Garöabæ
Ónnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verötilboö
SIMI 53468
FRIÐARGANGA ’83
laugardaginn
6. ágúst
Herstöðin á Keflavíkurflugvelli kl. 8.30
Skráið ykkur strax
á skrifstofu SHA
Miðbæjarskóli
kl. 22.00
(opið alla daga eftir hádegi)
Símar: 1 79 66
(sjálfvirkur símsvari utan opnunartíma skrifstofu)
og 2 92 12
Lœkjargata
Kúagerði
kl. 14.00-15.00
Straumur
kl. 16.00-16.15
Hafnarfjörður
kl. 18.30 - 19.00
Kópavogur
kl. 20.00 - 20.40