Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 20

Þjóðviljinn - 22.07.1983, Side 20
DIÚDVIUINN Föstudagur 22. júlí 1983 Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt að ná í blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum símum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími 81382, 81482 og 81527, umþrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná í afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663 Almenn menningarstarfsemi undanþegin söluskatti Geðþótti ráðherra á ekki að ráða segir Ragnar Arnalds fyrrum fj ármálaráðherra um Tívolí og Cirkusundan- þágur „Aðalatriði þessa máls er að söluskattsundanþágur séu ekki veittar að geðþótta ráðherra eftir því hvaða aðilar sækja um slíkar undanþágur, heldur í samræmi við almennar reglur“, sagði Ragnar Arnalds í samtali við blaðið í gær. „I samræmi við þær reglur sem mótaðar voru í fjármálaráðuneyt- inu í minni ráðherratíð hefði ekki átt að veita Tívolírekstri undan- þágu nema að því er tekur til skemmtiatriða á sviði, en undan- þiggja Cirkusrekstur söluskatti nema að því er tekur til veitinga- reksturs“. Eins og alþjóð er kunnugt felldi Albert Guðmundsson niður sölu- skatt af Tívolírekstri í Reykjavík, en segist ekki munu fella niður söluskatt af Cirkusrekstri. Fram hefur komið að búið var að fella niður söluskattinn af Cirkusnum án þess að það hafi borist ráðherra til eyrna. „Undanþágan til cirkusins mun hafa komið til á síðustu dögum mínum í fjármálaráðuneytinu, og ég veit ekki nákvæmlega hvaða meðhöndlun hún fékk“, sagði Ragnar Arnalds. En meginatriðið er að afgreiðslan var rétt í samræmi við þær reglur sem mótaðar höfðu verið. Meðan ég starfaði í fjár- málaráðuneytinu var unnið að því að setja skýrar afdráttarlausar regl- ur um söluskattsundanþágur, en beiðnir um sííkt eru algengar. Sú viðmiðun var sett upp að almenn menningarstarfsemi skyldi vera söluskattsfrjáls. En vegna þess að erfitt er að skýrgreina hvað flokkist nákvæmlega undir það heiti, þá var kveðið nánar á um það að öll dag- skráratriði á sviði, úti sem inni, skyldu vera söluskattsfrjáls, hvort sem um væri að ræða dans, leik, tónlist, íþróttir, útihátíðir eða hestamannamót. Söluskattur væri hins vegar greiddur þar sem fólk borgaði sig inn til þáttöku í dansi og öðru þvíumlíku, eða greiddi að- gang að tækjum. Samkvæmt þessu hefði ekki átt að taka söluskatt af ■dagskráratriðum Tívolísins en leggja söluskattinn á sölu Tívolí- manna á aðgangi að tækjum. Á sama hátt á ekki að leggja söluskatt á sölu cirkusmanna inn á dagskrár- atriði þeirra í sviðstjaldinu, en skil- yrðislaust á veitingasölu á svæðinu. Svona reglur eru ekki hafnar yfir gagnrýni, en þær eru það skýrar að eftir þeim má fara í afgreiðslum án þess að geðþótti ráðherra ráði“, sagði Ragnar að lokum. -ekh Merki göngunnar. Friðargangan 6. ágúst - Friðargangan 6. ágúst næstkomandi er aðalefni Dagfara, fréttabréfs Samtaka herstöðvaandstæð- inga sem kom út í gær. I fréttabréfinu er merki göngunnar, sem Rúnar Ármann Arthúrsson teiknaði. Fólk er minnt á að hafa samband við skrifstofu Samtaka herstöðvaand- stæðinga í símum 17966 og 29212 til að láta skrá sig. -óg í reglugerð er kveðið nánar á um það að öll dagskráratriði á sviði úti sem inni, skulu vera söluskattsfrjáls. Atriði hjá Arena- sirkusnum sem nú sýnir í Reykjavik. Ljósm.: eik. Vöngum velt. Uppboð á bílum: Fyrsta, annað og... Fjöldi bíla skuldara seldur. Fjöldi manns mætti á bílauppboð sem haldið var að tilhlutan ýmissa skuldheimtumanna m.a. gjald- heimtunnar, á svæði björgunarfé- lagsins Vöku, á Smiðshöfða í Reykjavík síðdegis í gær. Um 45 bíiar voru skráðir til uppboðs en færri voru seldir þar eð nokkrum hafði verið bjargað frá uppboði á síðustu stundu. Um 400 bílar voru ætlaðir til uppboðs í byrjun en síð- an hafa farið fram samningar milli fjölda skuldara og skuldheimtu- manna. Það voru aðallega karlmenn í vinnugöllum sem mændu í átt til uppboðshaldarans eða spörkuðu í bílana til að athuga ástand þeirra. Byrjað var að bjóða 100 krónur í suma og hækkaði talan mishratt, eftir aldri og tegund bílanna. Sumir voru seldir á 3000, aðrir á yfir 100 þúsund og allt þar á milli. Að sögn eins uppboðshaldarans fær sá innheimtuaðili sem á fyrsta veðrétt hjá skuldaranum, sína skuld greidda auk kostnaðar, sá sem á annan veðrétt, sína skuld ef söluverð nægir til þess o.s.frv.. Ef bíll er hins vegar seldur fyrir mun hærri upphæð en nemur skuldinni, fær eigandinn mismuninn, að frá- dregnum kostnaði. Mikið ber á hertum innheimtu- aðgerðum ýmissa stofnana um þessar mundir. Virðast fyrirtækin einsetj a sér að ná inn skuldum áður en enn verri afkoma fer að hrjá almenning og þar með auknar skuldir. EÞ Býður nokkur betur?

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.