Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 3
Helgin 30.-31. júli 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
Orkuverðiö til almenningsveitna
56% hækkun á 2 mánuðum
Þannig jafnar ríkisstjórnin hitakostnaðinn! — Og Alusuisse borgar óbreytt verð!
Frá því ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar tók
við völdum þann 26. maí s.l., þá hefur orkuverð frá
Landsvirkjun til almenningsrafveitnanna í landinu
hækkað um 56% á aðeins tveimur mánuðum.
Fyrst hækkaði verðið um 19% þann 3. júní s.l., og
svo aftur um 31% nú þann 1. ágúst.
Þessar gífurlegu hækkanir á heildsöluverði orkunnar
bitna með fullum þunga á öllum almenningi í Iandinu og
hafa nú þegar leitt til nær 40% hækkunar á raforku-
verði til neytenda.
Á sama tíma hefur kaupið aðeins
hækkað um 8% í krónutölu.
Þegar ríkisstjórnin settist að
völdum þóttist hún ætla að jafna
húshitunarkostnað í landinu, - og
svona fer hún að því.
Á sama tíma og verðið til al-
menningsrafveitna er hækkað um
56%, þá stendur verðið á þeim
helmingi orkunnar sem seldur er
Ákærður
fyrir
misferli
í starfi
í gær var gefín út ákæra á hend-
ur fyrrverandi fræðslustjóra í Vest-
fjarðaumdæmi, Sigurð K.G. Sig-
urðsson. Fræðslustjórinn er
ákærður fyrir misferli í starfí sem
talið er varða við almenn hegning-
arlög. Að sögn Þórðar Björns-
sonar, saksóknara verður málið
höfðað í Sakadómi Kópavogs, þar
sem Sigurður er nú búsettur.
Búið er að ráða annan mann í
stað Sigurðar í embætti fræðslu-
stjóra. Það er Ingólfur Ármanns-
son sem verið hefur kennari á Ak-
ureyri lengi og gegnt embætti
fræðslustjóra á Norðurlandi eystra
síðastliðin tvö ár meðan Sturla
Kristjánsson, fræðslustjóri var í
launalausu leyfi og gegndi störfum
skólastjóra Þelamerkurskóla, þar
til Ingvar Gíslason, þáverandi
menntamálaráðherra vék honum
úr starfi. Sturla tekur nú aftur við
starfi fræðslustjóra Norðurlands
eystra.
E.Þ
Herskattar
Bandaríkjaher er annar hæsti
skattgreiðandi f Reykjanesum-
dæmi, og greiðir samtals 5.979.329
kr. í opinber gjöld. Vegna fyrir-
spurnar sem blaðinu hefur borist
skal upplýst að skattar þessarar
júrídísku persónu (lögaðila á
skattamáli) skiptast þannig: vinnu-
eftirlitsgjald 207.207 kr. slysa-
tryggingagjald atvinnurekenda
512.645 kr., lífeyristryggingagjald
atvinnurekenda 4.579.161 kr.,
atvinnuleysistryggingagjald
680.316 kr. Allt eru þetta launa-
tengd gjöld.
Þess má geta til samanburðar og
samlagningar að sömu gjaldliðir
hjá þeim lögaðila sem gjaldhæstur
er á landinu, íslenskum aðalverk-
tökum nema 2.017.012 kr.
- m
Hverjum W
bjargar það
næst.
álverinu í Straumsvík í stað, nema
hvað krónutalan breytist með
gengisbreytingum.
Á síðast liðnu hausti voru teknar
upp greiðslur úr ríkissjóði til að
greiða niður húshitun með raf-
magni vegna hins ógnvænlega
kostnaðar við rafhitunina, sem
leiðir beint af gjöfunum á orku til
Alusuisse.
Þegar stjórnárskiptin urðu stóðu
þau mál þannig, að verðið sem not-
endur greiddu beint var um 60% af
kostnaði við húshitun með óniður-
greiddri olíu, - en ríkissjóður
greiddi síðan þann mismun sem á
vantaði. Til að halda þessu niður-
greiðslustigi út þetta ár var talið að
til þyrfti um 200 miljónir króna, og
hafði Hjörleifur Guttormsson,
fyrrverandi iðnaðarráðherra til-
búnar sameiginlegar tillögur frá
nefnd fulltrúa allra þingflokka um
hvernig þess fjár skyldi aflað.
Hin nýja ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar boðaði einnig á
sínum fyrsta degi 150 miljón króna
aukafjarveitingu í þessu skyni, en
eftir þær gífurlegu hækkanir á ork-
uverðinu, sem yfir hafa dunið þá er
ljóst, að sú upphæð mun ekki einu
sinni duga til að halda óbreyttu
niðurgreiðslustigi á raforku til hús-
hitunar. Þannig má ætla að sú
hækkun ein, sem ákveðin var í
fyrradag kalli á yfir 130 miljónir
niðurgreiðslur, ef halda á óbreyttu
niðurgreiðslustigi.
Það er því ljóst að þeir sem borga
verða allt að hálfum dagvinnu-
launum verkamanns fyrir upphitun
híbýla sinna fá í raun alls engar
bætur fyrir þá 25-30% almennu
kjaraskerðingu, sem ríkisstjórnin
gengst fyrir.
k.
Á mölinni mætumst með
bros á vör — ef bensíngjöfin
er tempruð
AAMSTEMMMÉL
UMEHÚPU
ALIALEJÐ
óvæntum
Bilaleigubíllinn i Amsterdam er einstaklega
þægilegur og ódýr til ökuferðar vítt og breitt um
Evrópu. Borgin er miðsvæðis, flugið ódýrt og
billinn á frábæru verði - ekki síst með tilliti til
þess að innifalinn er allur sá aukakostnaður sem
annars þarf að greiða með dýrmætum gjaldeyri
þegar til útlanda er komið.
Dæmi um verd: kn 10.832
miðað við fjóra farþega i bíl af B-flokki i eina viku.
Innifaliö: Flug, bílaleigubíll, allar nauðsynlegar bila- og
farþegatryggingar, söluskattur og ótakmarkaður akstur án
nokkurs viðbótarkostnaðar.
VIÐ REIKNUM AMSTERDAM- BÍLINN Á RÉTTU
VERÐI - HJÁ OKKUR ER ALLTINNIFAUÐ
Leitið til söluskrifstofu Arnarflugs
eða ferðaskrifstofanna. «
Flugfólag með ferskan blæ
ARNARFLUG
Lágmúla 7, slmi 84477