Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 5

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 5
4 SÍÐÁ - ÞJÓÐVÍLjÍNN Helgin 30.-3Í. júlí 1983 stjórnmál á sunnudcgí Þorbjörg___________ Arnórsdóttir, Hala, skrifar Uppeldi, skóli, jafnrétti Eitt er þaö málefni sem ekki hefur mikiö veriö rætt innan Alþýðubandalagsins, í þaö minnsta ekki á Austurlandi, en það erujafnréttismál. Meginuppistaðan í þessari grein minni er hugleiðing um stöðu jafnréttismála, hvað varðar jafnrétti kynjanna, og tengi ég þá umfjöllun lítillega uppeldismálum og mótun skólamálastefnu. Þegar talað er um jafnréttismál er það hugtak gjarnan tengt jafnrétti karla og kvenna. Því fer fjarri að ég líti svo á að það eitt sé jafnréttismál og það er skoðun mín að Alþýðubandalagið hljóti ávallt að láta hverskonar jafnréttismál til sín taka sam- kvæmt þeirri megin hugsjón að jafna ber efnahagslegan og menningarlegan aðstöðumun fólksins í landinu. Þar höfum við mikið verk að vinna og ekki síst þurfum við sem búum í dreifbýlinu að láta í okkur heyra hvað varðar þann mikla aðstöðumun sem er milli búsetu í dreifbýli og þéttbýli. Einnig þarf það að vera megin uppistaðan í stefnu Alþýðubandalagsins að hlúa að þeim sem við erfiðust lífsskilyrðin búa en þar á ég við öryrkjana og aðra þá sem eiga í erfið- leikum sökum heilsubrests. Ef litið er til heimsmála þá er síst ástæða til bjartsýni hvað varðar jafnréttismál og jöfnun lífskjara því á undanförnum árum hefur bilið milli ríkra og fátækra enn aukist. Jafnframt er það ljóst að konur njóta alls ekki jafnréttis á við karlmenn hvað varðar fjárhagslega, pólitíska, hugmyndafræði- lega og félagslega stöðu þeirra. í því sam- bandi vil ég nefna að árið 1980, á miðjum kvennaáratug Sameinuðu þjóðanna, var talið að konur ynnu 75% allrar vinnu í heiminum (launaða og ólaunaða vinnu) en þægju aðeins 10% allra launa og ættu aðeins 1% allra einkaeigna í heiminum. Staða íslenskra kvenna Mjög fáar tölulegar upplýsingar eru til um stöðu kvenna hér á íslandi en ég tel að hún sé síst betri en í öðrum svonefndum velferðarþjóðfélögum. í því sambandi má nefna óheyrilega lág laun, óheppilega til- högun skólagöngu, mikið vinnuálag, stutt fæðingarorlof, vöntun á dagvistunarheimil- um, mjög óhagkvæma húsnæðispólitík og tiltölulega mikinn barnafjölda. Einnig hef- ur komið í ljós með stofnun kvennaathvarfs að fjölmargar konur búa við síst minna of- beldi inni á heimilum hér og í nálægum löndum. Jafnréttisbaráttan einkenndist í upphafi áttunda áratugsins af baráttunni fyrir laga- legu jafnrétti og árið 1976 voru samþykkt á Alþingi lög um jafnan rétt karla og kvenna. Samkvæmt niðurstöðum nefndar, skipaðri af Svavari Gestssyni félagsmálaráðherra í apríl 1981, sem fjalla skyldi um jafnréttis- mál og standa að tillögugerð um breytingu á jafnréttislögunum með tilliti til þeirrar reynslu sem fengist hefur síðan lögin voru sett, er enn langt í land að staða karla og kvenna sé jöfn og hér ríki raunverulegt jafnrétti. Ég ætla að vitna í stuttan kafla úr greinargerð nefndarinnar. Þar sem segir: „Hvað varðar lagalegan rétt til sömu menntunar, atvinnu og laun skortir mikið á að konur hljóti jafn mikla menntun, njóti sömu launa og karlar eða hafi sömu tæki- færi til áhrifa í þjóðfélaginu. Konur eru stærsti hluti láglaunastéttar hér á landi og hlutur þeirra í störfum verður æ minni eftir því sem störfin eru betur launuð og hærra metin í þjóðfélaginu. Hér veldur mestu rót- gróin kynjaskipting á vinnumarkaðnum svo og móðurhlutverk kvenna og þær skyldur og ábyrgð sem það leggur þeim á herðar. Því fyrra hlýtur að vera hægt aö breyta ef vilji er fyrir hendi og markvisst að því unnið og þann aðstöðumun karla og kvenna, sem móðurhlutverkið skapar í raun, ætti að vera hægt að jafna með ákveðnum þjóðfélags- legum aðgerðum." Ég tel, ef litið er til þeirra sjö ára sem liðin eru síðan lögin um jafnan rétt karla og kvenna voru sett, hafi lítið sem ekkert breyst, annað en það að hlutverk kvenna úti á vinnumarkaðnum hafi hækkað. Nú vinna um 80% giftra kvenna utan heimilis. Því miður þýðir það ekki að kjör þessara kvenna hafi batnað einfaldlega vegna þess að af þjóðfélagsins hálfu hefur þeirri breyt- ingu ekki verið fylgt eftir. Það er staðreynd að konur eru lang stærsti hluti láglauna- stéttar hér á landi. Þar tala tölur skýrustu máli því árið 1979 höfðu aðeins 30% giftra kvenna meðaltekjur en 61% giftra karla. í vinnumarkaðskönnun Framkvæmdastofn- unar ríkisins árið 1981 kom í ljós að laun kvenna eru 51,8% lægri en laun karla. Sam- kvæmt jafnréttiskönnun meðal launþega í Kópavogi árið 1982 kemur fram að um 40% karla sem svöruðu fengu kaupauka en aðeins 26% kvenna. Jafnframt útivinnunni bera konur að meginhluta ábyrgð á heimil- ishaldinu sem þýðir óheyrilega mikil vinna og tvöfalt vinnuálag. í Finnlandi vinnur sambærilegur fjöldi giftra kvenna utan heimilis og hér á íslandi. Þau ummæli Ann- elie Mákinin frá ráðstefnu norrænna kvenna í Finnlandi árið 1983 gætu eins átt við íslenskar konur er hún segir: „Flestar konur halda áfram störfum utan heimilis þótt þær eignist börn og hvergi í Evrópu hafa mæður ungra barna eins langan vinnu- dag og í Finnlandi. Þær festast margar í leiðinlegum, einhæfum störfum, eru of þreyttar til að berjast fyrir betri stöðum og það gerir þær oft leiðar og þær glata sjálfsá- liti sínu“ Auk þessa mikla vinnuálags veit ég að margar útivinnandi mæður þjást af sektarkennd gagnvart heimili og börnum. Þessi sektarkennd stafar oft á tíðum af vöntun á öruggri gæslu fyrir börnin en einn- ig er af samfélgasins hálfu töluvert alið á þeim viðhorfum að konur sem vinna utan heimilis vanræki börnin sín. Þó að Golda Meir forsætisráðherra hafi mælt þau orð sem ég vitna til hér á eftir árið 1930 hefur örugglega iítið sem ekkert breyst í þessum efnum síðan þá, en hún sagði: „Það er fátt sem jafnast á við innri bar- áttu og örvæntingu útivinnandi móður. Börnin líða fyrir starfið, starfið líður fyrir börnin. Hún er ofhlaðin vinnu og þjáist af samviskubiti gagnvart hvoru tveggja.“ Hvað er til úrbóta? Ég tel að þetta mikla vinnuálag og ábyrgð á heimili og börnum sé ein megin orsökin fyrir því að konur gefa sig lítið að félags- og stjórnmálum auk þess sem gömul viðhorf, hefðir og fordómar ráða þar nokkru um. En nvað er þá til úrbóta? Það er spurning sem við innan Alþýðubandalagsins hljótum að, velta fyrir okkur svo fremi að við ættum að' sýna það í verki að við höfum áhuga á að bæta stöðu kvenna frá því sem nú er. Ég ætla að telja upp hér á eftir nokkur megin- atriði sem ég tel að Alþýðubandalagið ætti að beita sér fyrir á hinum pólitíska vettvangi til að bæta stöðu kvenna og auka hlutdeild þeirra í stjórnunar- og áhrifastöðum. Ég ætla þá í fyrsta lagi að vitna til niðurstöðu nefndar þeirrar sem Svavar Gestsson skipaði til að fjalla um jafnréttismál. Nefndin hefur skilað af sér drögum af frum- varpi til laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla þar sem gerðar eru ýmsar endurbætur á lögunum frá 1976. Þar stend- ur: „Helstu nýmæli lagafrumvarpsins eru að tilgangur laganna sé ekki eingöngu að koma á jafnrétti og jafnri stöðu kvenna og karla heldur beinlínis að bæta stöðu kvenna. Ætti það ákvæði að opna leið til tímabundinna aðgerða sem nauðsynlegar þættu. Önnur mikilvæg breyting sem gert er ráð fyrir er breytt skipan jafnréttisráðs á þá lund að félagasamtök sem hafa jafnréttis- baráttu á dagskrá tilnefna fulltrúa í ráðið. Það ætti að tryggja að alltaf sitji í ráðinu fulltrúar sem hafa sérstakan áhuga á að vinna farsællega að þessum málum. Önnur nýmæli eru að lögleiða skipan jafnrétis- nefnda í sveitarfélögum og að leitast sé við að hafa sem jafnasta tölu kynja í stjórnum, nefndum og ráðum á vegum ríkis, sveitarfé- laga og félagasamtaka“ Ég tel að þessi breyting á lögunum, ef fram næði að ganga, sé í alla staði jákvæð en jafnframt er ljóst frá reynslu fyrri ára að lagastafurinn einn nægir ekki. Samhliða breytingu á j afnréttis- lögunum þurfa líkaáð koma ýmsar þjóðfé- lagslegar aðgerðir. Þar yrði auðvitað efst á blaði launajöfnuður og endurmat á launak- erfinu í heild, þar sem hin svokölluðu Kvennastörf yrðu metin til hærri launa en nú er. Möguleika á hlutastörfum þarf að auka og endurmeta þarf húsmóðurstörfin í þá átt að þau verði metin sem starfsreynsla er út á vinnumarkaðinn kemur. Fullnægja þarf dagvistun fyrir öll börn þannig að það geti orðið í framtíðinni val foreldra en ekki hins opinbera, eins og nú er, hvort börnin njóti viðunandi og öruggrar dagvistunar. Bæta þarf skólamálastefnuna þar sem lág- markskrafan er einsetinn skóli, samfelldur skóladagur, möguleikar á máltíð í skólum og hæfilegur fjöldi nemenda í bekk. Allar konur fái sex mánaða fæðingarorlof og fyrsta skref til úrbóta í þeim málum yrði að allar konur fái sama fæðingarorlof, hvaða störf sem þær vinna og í þeim efnum sé húsmóðurstarfið ekki vanmetið, eins og nú er. Bættir verði möguleikar til endurmennt- unar og vil ég í því sambandi benda á nauð- syn þess að koma á fullorðinsfræðslu í hin- um dreifðari byggðum. Endurmeta þarf stöðu giftra kvenna hvað varðar lífeyris- mál, skattamál og tryggingamál og endur- bætur þarf að gera á orlofslögum hús- mæðra. Með framkvæmd þessara sjálfsögðu rétt- indamála vinnst tvennt. í fyrsta lagi yrði stuðlað að stórbættum hag barna og um leið yrðu aukin áhrif kvenna í þjóðfélaginu með því að efla menntun þeirra og efnahagslegt sjálfstæði. Með slíkum samfélagslegum aðgerðum yrði það manngildisstefnan sem höfð yrði að leiðarljósi, fjárfest yrði í bætt- ari aðstöðu fjölskyldna í landinu en ekki yrði horft til skjótfengins peningagróða. Er það ekki einmitt ein af megin hugsjónum sósíalismans að setja manngildið ofar pen- ingagildinu? Hinn uppeldislegi þáttur Um leið og við viðurkennum að hægt er að bæta stöðu kvenna með ákveðnum þjóðfélagslegum aðgerðum og viðurkenn- um þessar hindranir sem mikla fyrirstöðu fyrir jafnrétti á við karlmenn þá má þó ljóst vera að þar er á ferðinni sjúkdómseinkenni eða afleiðing en það er meinið sjálft sem liggur mun dýpra. Meinið sjálft tel ég vera hina uppeldislegu og félagslegu mótun eða innrætingu, en sú mótun á sér stað á per- sónulegum, félagslegum og þjóðfélags- legum grunni. Þar er ég kominn að hinum uppeldislega þætti jafnréttismálanna og sá þáttur hlýtur einnig að tengjast skólunum og starfi þeirra, en samkv. lögum ber skól- unum einnig að sinna því uppeldishlutverki sem áður var nær eingöngu í höndum heimilanna. Ég mun hér á eftir styðjast að nokkru við samantekt félagsráðgjafanna Nönnu Sig- urðardóttur og Þuríðar Jónsdóttur þar sem þær hafa á einkar athyglisverðan hátt sýnt fram á hvernig hin félagslega mótun svo og félagslegar hindranir og samfélagsleg við- horf og venjur hafa áhrif á hlutdeild kvenna í atvinnulífi, félagslífi og stjórnunarstörf- um. Áhrifa umhverfisins fer að gæta strax í lífi ungra barna. Þess vegna er erfitt að segja til um með nokkurri vissu hvort það sem aðskilur kynin sé eðlislægur munur eða áunninn af áralöngum rótgrónum þjóð- félagsvenjum. Ég tel það ekkert vafamál að umhverfisáhrifin séu veigamikill þáttur í mótun kynjanna og afgerandi þáttur hvað varðar jafnréttismál. Það leynir sér ekki að viðhorf og væntingar eru mismunandi eftir því hvort um drengi og stúlkur er að ræða. Það er búist við því að drengurinn verði fyrirferðamikill í von um að hann verði sjálfstæður síðar meir. Af stúlku er þess frá upphafi vænst að hún verðu prúð og elsku- leg, þurfi á vernd og jafnvel framfæri að halda að þá jafnframt að hún verði þæg og stillt. Þær vonir sem bundnar eru við börnin hafa áhrif á hegðun foreldranna gagnvart þeim og beina þeim inná ákveðnar brautir. Drengirnir fara í öðruvísi leiki, bílaleiki, stríðsleiki, fótbolta, tefla og fl., en stúlk- urnar fara í mömmuleiki, dúkkuleiki, safna servíettum og fl. Við foreldrarnir styðjum þetta með því að gefa mismunandi leikföng eftir því hvort um drengi eða stúlkur er að ræða og sé þar eitthvað breytt útaf venju eru viðhorf samfélagsins fljót að koma fram, strákum strítt ef þeir leika sér að brúðu o.s.frv. Þessi skipting kemur æ skýrar fram þegar börnin fara að vinna, drengirnir vinna þá ýmis útistörf fara í sendiferðir og fleira en stúlkurnar passa börn og vinna innistörf. Hér er vitanlega ekki um einhlíta lýsingu að ræða en megin viðhorfin eru þessi þó etv. hafi eitthvað breyst í þessum efnum á sfðustu árum vegna aukinnar jafnréttisumræðu. Það má líka ljóst vera að þegar einstakl- ingurinn mótar sína sjálfsmynd þá leitar hann fyrirmyndar í umhverfinu, stúlkur hjá mæðrum sínum og öðrum konum, piltar hjá feðrum sínum eða öðrum karlmönnum. Með því að ganga inn í hin hefðbundnu hlutverk gera þau það sama og kynin hafa gert á undan þeim. Það er alltaf styrkur í því að hafa fyrirmyndir sem byggja á langri hefð en vandasamara að brjótast útúr hefðinni og móta nýjar leiðir ekki síst vegna þess að af samfélagsins hálfu er áróður gegn slíku oft mjög sterkur og erfitt að standast hann. Það er ekki bara uppeldi barna og ung- linga sem mótast af vissum samfélagslegum viðhorfum, þau fylgja einstaklingum gegn- um allt hans lífshlaup. „Áhrifa umhverfisins fer að gæta strax í lífi ungra barna. Þess vegna er erfitt að segja til um. með nokkurri vissu hvort það sem aðskilur kynin sé eðlislægur munur eða áunninn af ára löngum rótgrónum þjóðfélagsvenjum.“ Samfélagið ætlast til annars af konum en körlum og það tívernig karlar og konur bregðast við hinum ýmsu atburðum á lífs- leiðinni mótast alltaf að einhverju leyti af líffræðilegum forsendum en þó ekki síður félagslegri mótun og þeim viðhorfum sem allsráðandi eru í samfélaginu. Jafnrétti að lögum verður því aldrei annað en rammi eða sá grunnur sem þarf til þess að hægt sé að móta nýjar hefðir og vinna gegn for- dómum hjá bæði konum og körlum. Það þarf því fyrst og fremst algjöra viðhorfs- breytinu, brjóta niður gamlar hefðir, viður- kenna hin mótandi áhrif, auka gagn- kvæman skilning karla og kvenna á jafn- réttismálum og endurskilgreina hlutverk kynjanna út frá manngildishugsjón en ekki kynskiptingu. Þróun í rétta átt Það má öllum ljóst vera að slíkar breytingar verða ekki í einni svipan heldur hlýtur þar að verða um ákveðna þróun að ræða og í þeirri þróun getum við öll verið áhrifavaldar og getum haft viss áhrif í gegn- um uppeldi barna okkar og mótun skóla- og uppeldisstefnu. Einkar mikilvægt er að hin- ar opinberu uppeldisstofnanir hafi jafnrétti að leiðarljósi og að sú megin hugsjón grunnskólalaga, að skólinn skuli „leitast við að haga störfum sínum í samræmi við eðli og þarfir nemenda sinna og stuðla að al- hliða þroska, heilbrigði og menntunar hvers og eins“ sé ætíð haft að leiðarljósi í skólastaríinu. Hlutverk skólans verður allt- af að einhverju leyti og óhjákvæmilega inn- prentun viss gildismats en aðalatriðið er auðvitað að skólinn geti sinnt sínu hlutverki sem fræðslumiðstöð sem höfðar til áhuga nemenda og gerir þá virka. Starf kennara verður þá fyrst og fremst leibeinendarstarf. Ekki þarf tíinsvegar að ætla að neinn skóli megni að leiðrétta til fulls neitt það misrétti sem viðgengst í þjóðfélaginu. Það liggur miklu frekar á pólitísku, efnahagslegu og félagslegu ákvörðunarsviði að hve miklu leyti einstaklingurinn öðlast viðurkenningu sem fullgildur þegn. Skólinn getur hins veg- ar hjálpað einstaklingnum til að fá viður- kenningu en einnig dregið úr möguleikum hans. Þess vegna skiptir skólagerðin og starfið innan veggja hans verulegu máli í þessu sambandi, ekki síst ef tillit er tekið til leiðbeininga varðandi starfsval, leiðbeininga um áframhaldandi menntun og menntunarmöguleika og að hinni hefð- bundnu starfskiptingu kynjanna, hvað varðar heimilistörf, handmennt ogfleira, sé algjörlega rutt burt úr skólunum. Stórauka þarf kennslu í heimilisfræði og færa hana niður í yngri bekki grunnskóla þar sem megináhersla yrði lögð á að kenna alla þætti heimilishalds (ekki bara matargerð). Um leið erum við að kenna börnunum að sjá fyrir frumþörfum sínum og gera þeim ljóst að allir þurfa að vinna þessi störf og bera ábyrgð á heimilishaldi og barnauppeldi. Samstaða gegn íhalds- stjórn Alþýðubandalagið hlýtur sem sósíalís- tískur flokkur að starfa með jafnréttishug- sjón að leiðarljósi og beita sér fyrir bættri stöðu kvenna. Ég tel það því mikilsvert fyrir Alþýðubandalagið að æ fleiri konur koma til starfa innan flokksins því um leið hljóta málefni kvenna að verða meira af- gerandi þáttur í stefnu flokksins. Frum- kvæði í jafnréttisbaráttu hlýtur að þurfa að koma frá konunum sjálfum og stefnumótun hlýtur að byggja á reynslu og sjónarmiðum kvenna. Einmitt þess vegna er það ekki óeðlilegt að konur innan Alþýðubandalags- ins starfi saman í sérstökum hópum og standi saman að því að koma sínum málefn- um á framfæri og er það reyndar mjög í samræmi við hið nýja skipulag sem nú er verið að ræða innan flokksins. Hins vegar verður sú starfsemi að vera í þeim farvegi að náin tengsl séu við flokksstarfið svo ekki skapist tortryggni og togstreita á milli hinna einstöku hópa, því þá um leið er þeim mál- stað sem við berjumst fyrir stefnt í voða. Ég held að þaö hafi kannski aldrei verið Ijósara en nú þegar situr að völdum hægri stjórn að jafnréttisbarátta kvenna verður aldrei annað en hjómið eitt meðan að völd- um situr ríkisstjórn sem sker á félagslegar aðgerðir, sker niður laun þar sem láglauna- fólki er í engu hlíft og býður heim hættunni á atvinnuleysi. f öllu þessu eru það konur sem verða verst úti, við þurfum ekki annað en að líta til nágrannaríkjanna til að sjá dæmi um það. Vinstri konur þurfa því að gera sér ljóst hversu mikilvægt það er í jafn- réttisbaráttunni að standa saman og stuðla að öflugri vinstri hreyfingu sem mótvægi gegn hægri öflunum í þjóðfélaginu. Við höfum ekki efni á að sundra kröftunum því um leið auðveldum við atlögu íhaldsins gegn launafólki og gegn mikilvægum jafnréttis- og baráttumálum okkar sjálfra. Helgin 30.-31. júlí 1983 ! ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5 Tvísýnar horfur með kartöflu- upp- skeru Þeir voru aö minnast á það Vestlend- og Vestfirðingarnir, sem við töluðum nýlega við, að þar hefði séð á kartöflugrösum, eftirfrostvotteinanótina. Þá sögu hafa þeir ekki að segja í Þykkvabænum og á Sval- barðsströndinni, aðalkartöflu- ræktarsvæðum landsins. Þar eru kartöflugrösin óskemmd af frostum en samt horfir þó eng- an veginn nógu vel með upp- skeruna, þótt af öðrum ástæð- um sé. Þykkvibær Hrafnhildur Guðmundsdóttir í Miðkoti í Þykkvabæ sagði að þar væri útlitið með uppskeruna engan veginn glæsilegt, vegna sífelldra kulda og bleytu. En frost hefði ekki komið þar ennþá. Úr þessu gæti þó ræst enn ef fljótlega stytti upp og hlýnaði. En þá ykist líka hætta á næturfrostum eftir að komið væri fram í ágúst. Við verðum bara að vona hið besta, sagði Hrafnhildur. Stundum hefur sandurinn viljað fjúka ofan af kartöflunum í Gengur vel hjá Eddunni Ýmsir hafa leitt að því getum að farþegaferjan M.S. Edda myndi verða rekin með tapi á þessu sumri sökum bágs efnatíagsástands al- mennings. í fréttatilkynningu frá Farskip, sem rekur ferjuna, segir hins vegar, að uppselt tíafi verið í síðustu ferð skipsins, en þa$ lét úr höfn sl. miðvikudag. Ennfremur segir í tilkynningunni, að ljóst sé, að hið slæma sumar hér á landi hafi leitt til þess, að landsmenn leiti sér sumarauka með skipinu (hér mun átt við veðrið en ekki efnahaginn). Bfllinn í lagi — beltin spennt bömin í aftursæti. GÓÐAFERÐ! Þykkvabænum í þurrkum og stormum en það hefur ekki gerst nú, um það sér úrfellið. Hrafnhild- ur áleit að Þykkbæingar hefðu sett álíka mikið niður af kartöflum í vor og undanfarin ár. Svalbarðsströnd Bjarni Hólmgrímsson á Sval- barði taldi uppskeruhorfur þar á ströndinni með lakara móti. Valda því kuldar og þurrkar í maí sem mjögtöfðufyrir sprettu. Ekkierþó öil nótt úti enn og veltur mikið á ágústmánuði. Frost hafa engin komið en ef bregður til norðanáttar má búast við kalsa. Sjórinn er svo kaldur að hitastigið er strax komið niður undir frostmark ef eitthvað andar á norðan. Bændur á Svalbarðsströnd eiga mikið undir því komið að kartöflu- uppskeran sé góð því hjá nokkrum þeirra er hún aðal búgreinin. Bjarni kvað kartöflufram- leiðendur þar um slóðir hafa selt sínar síðustu kartöflur í maí og nú yrði verksmiðjan á Svalbarðs- strönd að flytja inn kartöflur til þess að geta tíaldið áfram starfsemi sinni. -mhg Það hljóta að vera góðar kartöflur, sem þessar fallegu stúlkur hafa farið höndum um. , þudrekkur sykudaust Soda Stream með goðrí samvisku! Nú fást fjórar tegundir: Appelsín, Cola, Límonaði og Ginger Ale. Þér er óhætt að drekka sykurlaust Soda Stream eftir æfingar því það er minna en ein kaloría í glasi. Sól hf. ÞVERHOLTI 19 SÍMI26300 REYKJAVÍK

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.