Þjóðviljinn - 30.07.1983, Blaðsíða 27

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Blaðsíða 27
Helgin 30.-31. júlí 1983 ÞjlÓÐVILJINN - SÍÐA 27 Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra Enginn ágreining ur um verð- - Ég kannast ekki við neinn ágreining í ríkisstjórninni um þess- ar verðhaekkanir, sagði Steingrím- ur Hermannsson á blaðamanna- fundi í gær, þegar hann var spurður hvort Framsóknarráð- herrar hefðu verið alveg sáttir við þessar hækkanir. Spurt var hvort málflutningur í leiðara Tímans og fréttaflutningur í fjölmiðlum um ágreining innan ríkisstjórnarinnar hefðu ekki við rök að styðjast og kvað ráðherrann það vera fjarri lagi. Það væri fullt samkomulag um þessar hækkanir enda stefna ríkis- stjórnarinnar að koma í veg fyrir lántöku erlendis. -óg. Forstjórar fjalla um málið Nefnd um gjaldeyri Fjórir framkvæmdastjórar, tveir bankastjórar og einn ráðuneytis- stjóri hafa verið skipaðir í nefnd til að endurskoða lög og reglur um gjaldeyris- og viðskiptamál. Við- skiptaráðherra skipaði þessa nefnd í gær og skal endurskoðunin beinast „að því að draga úr viðskiptahömlum og rýmka reglur um gjaldeyrismeðferð“. í nefndinni eiga sæti: Davíð Ólafsson Seðla- bankastjóri formaður, Jónas Har- alz Landsbankastjóri, Árni Árna- son framkvæmdastjóri Verslunar- ráðs íslands, Friðrik Pálsson fram- kvæmdastjóri SÍF, Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri hjá SÍS, Víg- lundur Þorsteinsson framkvæmda- stjóri frá samtökum iðnrekenda, og Þórhallur Ásgeirsson ráðuneyt- isstjóri í viðskiptaráðuneytinu. Matthías Á. Mathiesen, Sverrirj Hermannsson og Steingrímur Her-: mannsson sögðu á blaðamanna- fundi í gær, að þessi nefnd væri skipuð samkvæmt ákvæði í stjórn-, arsáttmálanum. -óg. Allir sammála um þessar verðhækkanir, sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra. Við borðið sitja þeir Matthías Á. Mathiesen, Steingrímur og Sverrir Hermannssynir. Fyrir aftan þá sitja aðstoðarmenn ráðherranna: Páll Flygenring, Helga Jónsdóttir og Þórður Friðjónsson. Kristján Thorlacius, BSRB, um verðhækkanirnar: Stjómvöld í stríði við launafólk „Þessar verðhækkanir sem ríkis- stjórnin samþykkti sanna að efna- hagsúrræði hennar beinast ein- göngu að launafólki, að því að lækka kaupmáttinn“, sagði Krist- ján Thorlacius formaður BSRB í samtaii við Þjv. í gær. „Það eru samþykktar hækkanir á alit annað en laun. Þessar hækkanir munu koma harkalega við almenning.“ „Mér sýnist engu líkara en aö stjórnvöld séu vísvitandi að stofna til nýrrar verðbólgusprengingar". sagði Kristján ennfremur. BSRB og aðildarfélög þess hafa sagt upp samningum frá 1. október og sagði Kristján að fyrir þann tíma yrði lagt kapp á að hafa samband við félags- menn á fundum til að móta afstöðu bandalagsins og viðbrögð. „Stjórnvöld hafa lýst yfir stríði við launafólk, og við slíkar aðstæð- ur veltur á miklu fyrir launamenn að ná sem allra víðtækastri sam- stöðu.“ _ m< Kristján Thorlacius. Jón Helgason, Einingu, um hækkan- irnar: Ógnvekjandi „Manni ofbjóða allar þessar hækkanir", sagði Jón Helgason formaður Éiningar á Akureyri og Eyjafirði um nýákveðnar hækkan- ir á gjaldskrám opinberra fyrir- tækja. „Þessar hækkanir síðan kjara- skerðingin varð eru ógnvekjandi. það virðist hafa verið opnað fyrir allar flóðgáttir í þessum efnum. Annars gera menn sér nú einna gleggsta grein fyrir verðlagningu með sinni eigin buddu. Ég sé ekki annað en að fólk hljóti að rísa mjög kröftuglega upp gegn þessu öllu núna eftir sumarleyfin.“ - m. Jón Helgason. Gjaldeyrisskatturinn felldur niður Framsókn gerir stefnu Sjálfstæðisflokksins að sinni, sagði Sverrir Hermannsson - Þetta er stefnuskráratriði Sjálfstæðisflokksins sem Fram- sóknarflokkurinn hefur nú gert að sínu, sagði Sverrir Hermanns- son iðnaðarráðherra á blaða- mannafundi í gær sem hann boðaði til með forsætisráðherra og viðskiptaráðherra um nýjustu ákvarðanir ríkisstjórnarinnar þ.á m. að fella niður skatt al'ferð- amannagjaldeyri. Sagði Sverrir að þetta væri gamalt stefnumál Sjálfstæðis- flokksins og nú hefðu Framsókn- armenn gert það að sínu. Ekki hugsað um halla ríkissjóðs - Ráðherrarnir voru spurðir um það hversu háa upphæð væri að ræða sem með þessari ákvörð- un hyrfi úr ríkissjóði. Sverrir Hermannsson sagði það vera um 30 miljónir, en Matthías Á. Mathiesen kvað það vera upp- hæð á bilinu 75 til 95 miljónir. Þá voru þeir spurðir hvernig ríkissjóður ætti að mæta tekju- tapinu, og varð þeim svarafátt við því. Spurt var hvort ekki væri ó- samræmi í því að skera niður lán til Lánasjóðs námsmanna á sama tíma og ákveðið væri að rýra tekj- ur ríkissjóðs með þessum hætti. Það fannst þeim ekki. Flugvallarskatturinn næstur? Forsætisráðherra kvað það vera í athugun hjá ríkisstjórninni að fella einnig niður flugvallar- skattinn svokallaða, sem inn- heimtur er með fargjöldum. Ekki var minnst á það heldur hvernig ríkissjóður ætti að mæta þeim hugsanlega tekjumissi. „Fylgi í einu og öllu“ í máli Steingríms og Matthías- ar Á. Mathiesen kom fram að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði oft farið fram á að ferða- mannagjaldeyririnn yrði sam- ræmdur almennri gengisskrán- ingu. Sögðu ráðherrarnir að þessi skattur hefði verið þvingandi og því þyrfti að losna við hann. Aðspurðir um það hvort Al- þjóðagjaldeyrissjóðurinn hefði þvingað íslensk stjórnvöld til að taka upp nýja stefnu sögðu þeir það alls ekki vera. I fréttatilkynningu frá við- skiptaráðuneytinu í gær um málið segir hins vegar: „Með því að fella nú niður ferðaskattinn geta Islendingar lýst því yfir, að þeir fylgi í einu og öllu reglum gjald- eyrissjóðsins um frjáls gjaldeyris- viðskipti". Ráðherrarnir sögðu að í næsta mánuði væru væntanlegir fulltrú- ar frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum - og væri eðlilegt að hafa þessi mál á hreinu áður en gengið væri til samninga við þá. -óg. 31% hækkun til almenningsveitna Alusuisse ennþá á kosta- kjörum Rikisstjómin veit ekki hver er munurinn á raforkuverði til almennings veitna og til Alusuisse! Raforkan til almenn- ingsveitna hækkar um 31% á meðan Alu- suisse-fyrirtækið 1 Straumsvík fær orkuna á sama verði áfram. AIu- suisse kaupir helming orkunnar af Landsvirkj- un. í tölu Sverris Her- mannssonar á blaða- mannafundi í gær var ekki gert ráð fyrir neinum hækkunum til ál- versins í Straumsvík í langri talnaþulu ráð- herrans um bágan fjár- hag Landsvirkjunar og áætlaðan halla fyrirtæk- isins. Höfum ekki lengur ódýra orku - Iðnaðarráðherra var spurður hver yrði munur á verði raforku til almennra neytenda annars vegar og Alusuisse hins vegar, eftir að ríkisstjórnin hefur sam- þykkt 31% hækkun til almenn- ingsveitna. Sverrir hafði ekki skoðað það og spurði ráðuneytis- stjóra sinn, sem kvað þennan mun verða orðinn býsna mikinn. - Það er umhugsunarefni, sagði forsætisráðherra, að við ís- lendingar höfum ekki lengur ódýra orku einsog margir hafa talið. Þá var upplýst að hvert mills í hækkun til Alusuisse þýddi rúmar .36 miljónir króna tekju- aukningu til Landsvirkjunar á mánuði. Raforkuverðið er nú 6.5 mills til Alusuisse en forsætisráð- herra hefur sagt í sjónvarpi, að íslendingar þyrftu að fá 17-18 mills. Minna mætti það ekki verða. -óg. Steingrímur Hermannsson Burt með vísitölur - Ég er þeirrar skoðunar að það eigi að fella niður allar þessar hel- vítis vísitölur, sagði forsætisráð- herra á blaðamannafundi í gær þar- sem verið var að ræða m.a. hug- myndir ríkisstjórnarinnar um nýja vísitölu, „Íbúðalánavísitölu". -óg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.