Þjóðviljinn - 30.07.1983, Qupperneq 21

Þjóðviljinn - 30.07.1983, Qupperneq 21
Helgin 30.-31. júlí 1983 | ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 21 Valtýr Pétursson og Herdís Vigfúsdóttir kona hans í vinnustofu málarans að Vesturgötu 53, ásamt hjónunum Kristínu Harðardóttur og Trausta Víglundssyni sem rekið hafa veitingasölu í Þrastarlundi í 10 ár. Mynd: Atli 10 ára afmæli Valtýr í Þrastarlundi í tilefni þess að hjónin Kristín Harðardóttir og Trausti Víglunds- son hafa rekið veitingastofu í Þrast- arlundi í 10 ár, opnar Valtýr Pétursson sína 10. einkasýningu á staðnum. Sýnir Valtýr þar 21 olí- umálverk og eru það allt nýjar myndir. Sýningin verður opin næstu tvær vikur frá kl. 9-11.30 og eru allar myndirnar til sölu. Valtýr hélt sína fyrstu einkasýn- ingu í París árið 1948 en á þeim árum var hann í myndlistarnámi í Frakklandi og á Ítalíu. Hann hefur tekið þátt í fjöldanum öllum af samsýningum, „svo mörgum að ég man það ekki sjálfur1', eins og hann orðaði það. Verk hans hafa verið til sýnis í helstu borgum heimsins, í Kaupmannahöfn, Ósló, Stokk- hólmi, Moskvu, Krakóv, Róm og New York, auk Parísar eins og áð- ur var getið. -áþj bridge Evrópumótið í Wiesbaden Okkar menn að sœkja sig Okkar menn ytra hafa sótt í sig veðrið í síðustu umferðunum og staðið sig vel á móti veikari sveitunum. Unnið Rúmeníu með mínus, 19 á Spán, einnig 19 á Júkkana. 58 stig á 60 af mögulegum í 3 umferðum í röð. Mjög gott hjá okkar mönnum. Eftir 19 umferðir var liðið komið í 15. sæti með 169,5 stig og átti þá eftir að spila við ísrael, Nor- eg, Finnland og Holland. Ætti að ná 45-50 stigum útúr þeim leikjum og þar með halda 15. sætinu, jafnvel ná 14. sæti ef úrslit eru hagstæð fyrir liðið. Að sögn mun „mórallinn" í liðinu vera mjög góður núna eftir heldur þunga byrjun. Frakkar eru búnir að vinna mótið (svo gott sem) og sennilega tryggir ftalía (með Belladonna og Garozzo innansveitar) sér2. sætið. Pannig að þessi tvö bestu bridge- lönd Evrópu koma til með að spila um heimsbikarinn (Venice Cup) í Svíþjóð á næsta ári. Umsjón Ólafur Lárusson Sumarbridge Enn er lítið lát á aðsókn í Sumar- bridge. 64 pör mættu til leiks sl. fimmtudag í Domus og var spilað að venju í 5 riðlum. Úrslit urðu þessi: A-riðill: Sigfús Þórðarson-Kristján Már Gunnarss.,254 Steinunn Snorrad.-Vígdís Guðjónsd. 241 Ragnar Björnsson-Þórarinn Árnason 235 Guðríður Guðmundsd.-Kristín Þórðard. 232 B-riðill: Baldur 205 Júlíana Isebarn-Margrét 193 Árnason-Svcinn Sigurgeirss. Margeirsd. 75 ára 1. ágúst Mánudaginn 1. ágúst verður Óskar Garibaldason á Siglufirði 75 ára. Óskar er fæddur 1. ágúst 1908 í Engidal við Sigiufjörð og hefur alið aldur sinn á Siglufirði. Hann hefur frá ungum aldri ver- ið í forystusveit verkalýðssamtak- anna á Siglufirði og um skeið for- maður Verkalýðsfélagsins Vöku þar í bæ. Óskar Garibaldason hef- ur einnig verið forgöngumaður um ýmsa menningarstarfsetpi á Siglu- firði og þá ekki síst á tónlistarsviði. Hann hefur einnig um áratuga- Óskar Garibaldason. skeið látið til sín taka í baráttusveit Alþýðubandalagsins og áður Só- síalistaflokksins á Siglufirði. Þjóðviljinn sendir Óskari árn- aðaróskir í tilefni afmælisins. Baldur Ásgeirss.-Magnús Halldórsson 183 Gylfi Baldursson-Sigurður B. Þorst. 178 C-riðill: Þorvaldur Pálmason-Þórður Þórðarson 184 Albert Þorsteinsson-Sigurleifur Guðj. 180 Alfreð Kristjánss.-Skúli Ketilsson 177 Guðmundur Pálsson-Gunnl. Kristjáns- son 176 Viktor Björnsson-Bjarni Ásmundsson 176 D-riðill: Aðalsteinn Jörgenscn-Árni Bjarnason 139 Baldur Bjartmarson-Jörundur Þórðars. 122 Anton Gunnarss.-Eyþór Jónsson 117 Erla Sigurjónsd.-Kristmundur Þor- steinss. 117 E-riðill: Guðlaugur Nielsen-Tryggvi Gíslason 134 Hrólfur Hjaltason-Jónas P. Erlingsson 112 Hallgrimur Hallgr.-Sigmundur Stef- ánss. 111 Meðalskor í A var 210, í B og C 156 og 108 í D og E. Eftir 9 kvöld í Sumarbridge, er staða efstu manna: Hrólfur Hjaltason og Jónas P. Erlings- son 15 stig Sigurður B. Þorsteinsson og Gylfi Bald- ursson 13 stig Esther Jakobsdóttir 12 stig Sigtryggur Sigurðsson 10,5 stig Guðmundur Péturson 10 stig Spilað verður að venju nk. fimmtudag í Domus Medica og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Bikarkeppni Sveit Boga Sigurbjörnssonar Siglufirði, sigraði sveit Bernharðs Guðmundssonar Reykjavík í 2. umferð. Þetta var nokkuð sögu- legur leikur. Fyrir síðustu umferð átti sveit Bernharðs 7 stig til góða, en þá sögðu bræðurnir að nóg væri komið, og unnu síðustu lotuna með 40 stigum gegn engu frá Bernharði. Og þar með var sá draumur úti (í bili) fyrir sveit Bernharðs. Spilað var á Siglufirði. Um þessa helgi eigast svo við sveitir Stefáns Vilhjálmssonar Ak- ureyri og Gests Jónssonar Reykja- vík. Spilað er fyrir norðan. Á miðvikudag eigast við sveitir Ólafs Lárussonar og Sigmundar Stefáns- sonar og um aðra helgi sveitir Árna Guðmundssonar Reykjavík og Einars Svanssonar Sauðárkróki. íslenska járnblendifélagið hf. J auglýsir starf INNKAUPASTJÓRA til umsóknar. Undir innkaupastjóra falla öll innkaup hrá- efna og rekstrarvara til verksmiðjunnar, yfi- rumsjón með birgðahaldi, tengsl við mark- aðsdeild Elkem og skipulagning útflutnings og innflutnings. Nauðsynlegt er að væntanlegir umsækjend- ur hafi staðgóða menntun, gott vald á ensku og a.m.k. einu norðurlandamála auk reynslu af útflutnings- eða innflutningsviðskiptum. Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstof- um félagsins að Tryggvagötu 19. Reykjavík og að Grundartanga og í bókaverslun Andr- ésar Níelssonar Akranesi og skal umsóknum skilað fyrir 15. ágúst n.k. Frekari upplýsingar gefur Stefán Reynir Kristinsson, fjármálastjóri í síma 93-3944. Grundartanga 20. júlí 1983. w J, Félag járniðnaðarmanna Skemmtiferð 1983 fyrir eldri félagsmenn og maka þeirra verður farin laugardaginn 20. ágúst nk. Ferðast verður um Kjós til Þingvalla og Laugarvatns og víðar um Suðurland. Lagt verður af stað frá skrifstofu félagsins kl. 9 f.h. Tilkynnið þátt- töku til skrifstofu félagsins sími 83011. Stjórn Félags járniðnaðarmanna UTBOÐ Tilboð óskast í jarðvinnu við fyrirhugaða sjúkraþjálfunarstöð að Reykjalundi, Mos- fellssveit. Hér er einkum um rippun og sprengivinnu að ræða og er áætlað magn um 3.600m3. Útboðsgagna má vitja á Teiknistofunni Óðinstorgi, Óðinsgötu 7, Reykjavík, gegn 500,00 kr. skilatryggingu. Tilboð verða opnuð á sama stað mánu- daginn 15. ágúst n.k. kl. 11.00. Vinnuheimilið Reykjalundur. Skrifstofustarf Starfskraftur óskast til skrifstofustarfa frá 1. september. Góð vélritunar- og íslenskukunn- átta nauðsynleg. Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og fyrri störf send- ist Fasteignamati ríkisins, Borgartúni 21, fyrir 15. ágúst. Fasteignamat ríkisins. Fjölbreytt skrifstofustarf Hjúkrunarskóli íslands óskar að ráða ritara. Þarf að hafa góða vélritunarkunnáttu og vera vanur skrifstofustörfum. Laun samkvæmt launakerfi ríkisins. Umsóknir sendist skóla- stjóra fyrir 15. ágúst nk.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.