Þjóðviljinn - 30.07.1983, Page 28
Þessi fjögur voru í sólskinsskapi á
Gerður Olafsdóttir úr Hafnarfirði,
Gerðar.
leið til Þingvalla í gær. Iris Hjaltadóttir úr Reykjavík,
Ágústa Lárusdóttir úr Brciðholtinu og Finnbogi bróðir
Gígja Sigurðardóttjr og Laufey Viðarsdóttir vinkona hennar voru á
leið í Húsafell, en Örn Sigurðsson ætlaði að skella sér á
Gaukinn ’83 í Þjórsárdal.
Hvert
Iiggur
leiðin?
Umferðar-
miðstöðin
nafli
alheimsins
eina helgi
Aðalsími Þjóðviljans er 81333 kl. 9 - 20 mánudag til föstudags. Utan þess tima er hægt aö ná i blaðamenn og aðra starfsmenn blaðsins í þessum simum: Ritstjórn Aðalsími Kvöldsími Helgarsími
81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, Ijósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9 - 12 er hægt að ná i afgreiðslu blaðsins í síma 81663. Prentsmiðjan Prent hefur sima 81348 og eru blaðamenn þar á vakt öll kvöld. 81333 81348 81663
MOBVIUINN
Helgin 30.-31. júlí 1983
Beðið cftir rútu þó vindar blási kalt. - Myndir: Atli.
Um verslunarmanna-
helgina liggur Ieið unga
fólksins útúr bænum á vit
ævintýra á útisamkomum.
Allir vilja fara þangað sem
fjörið er og strax uppúr
hádegi í gær fóru að tínast
inná Umferðarmiðstöðina
unglingar sem voru á Ieið
„bara eitthvað“ og spurðu
hvert allir færu. Um
miðjan dag var orðið tölu-
vert að gera og áætlunar-
bílar biðu tilbúnir sunnan
byggingarinnar meðan
einkabílarnir streymdu að
anddyrinu norðanmegin
og eftirvæntingarfullir
ferðalangar undu sér út
með allar „græjur“ í úti-
leguna á bakinu. Önnum
kafnir foreldrar rétt gáfu
sér tíma til að lyfta hendi í
kveðjuskyni áður en hald-
ið var á vit vinnunnar og
velferðarkapphlaupsins á
nýjan leik. Þjv. var á
staðnum og átti stutt spjall
við nokkra ferðalanga.
Úti í horni sátu nokkrir hressir
krakkar og voru að bíða eftir því að
komast til Þingvalla. „Þingvalla!",
hváði blaðamaður. „Ereitthvað að
gerast þar?“ „Já blessaður vertu,"
sögðu þau einum rómi, „allur
Breiðholtsskólinn ætlar þangað“.
Þegar þau voru spurð hvers vegna
Þingvellir hefðu orðið fyrir valinu
sögðu þau að allar samkomur væru
svo dýrar að þau hefðu ekki efni á
því að fara. Þau töldu engan hæng á
því að skemmta sér á Þingvöllum,
„við ætlum að kveikja varðeld,
grilla og svoleiðis.“
Á öðrum stað í húsinu hittum við
þrjá vel útbúna unglinga frá
Grindavík, tvær stelpur og einn
strák. Stöllurnar voru á leið í Húsa-
fell; „við vorum þar í fyrra og það
var æðislegt“, sögðu þær er blaða-
maður spurði hvað drægi þær þang-
að. Þær sögðust vera að vinna á
fullu í fiski í Grindavík og því hefðu
þær vel efni á því að lyfta sér á kreik
um þessa helgi. Kváðust þær vera
búnar að undirbúa ferðalagið lengi
og vera búnar í hvaða veður sem
væri, „nema kannski sól!“ Strákur-
inn var aftur á móti á leið í Þjórsár-
dal því honum leist vel á dagskrána
þar. „Það er náttúrlega dálítið
dýrt, svona svipað og var í Eyjum í
fyrra en maður lætur sig hafa
þetta“, sagði hann íbygginn. Hann
kvaðst vinna við trésmíðar hingað
og þangað í nágrenni Grindavíkur
og því hefði hann lítið getað ferðast
í sumar. „Jú, þetta leggst bara vel í
mig og veðrið verður ekkert vanda-
mál. Eg er með allt sem þarf í úti-
legu og geri mér ekki rellu útaf
neinu nema ríkisstjórninni".
Það var nú það eins og maðurinn
sagði. Þjóðviljinn óskar öllum
landsmönnum góðrar og giftu-
samrar verslunarmannahelgar.
-áþj
Sigurður Thoroddsen látinn
Sigurður Thoroddsen verk-
fræðingur lést í fyrrinótt, 81 árs
að aldri. Hann fæddist 24. júlí
1902 á Bessastöðum á Álftanesi,
sonur hjónanna Skúla Thorodd-
sens alþingísmanns og Theódóru
Thoroddsens skálds og var hann
einn eftir á lífi af þeirra stóra
barnahóp. Hann lauk prófi í
byggingaverkfræði í Kaup-
mannahöfn árið 1927 og starfaði
síðan hjá Reykjavíkurhöfn og
Vita- og hafnarmálastjórn. Frá
1932 rak hann eigin verkfræði-
stofu og frá 1961 í félagi við aðra
verkfræðinga. Verkfræðistofa
Sigurðar Thoroddsens hefur ára-
tugum saman verið einna umsvif-
amest hér á landi á sínu sviði og
Sigurður brautryðjandi í hönnun
stórvirkjana á fslandi. Má þar
nefna Laxárvirkjun, Grímsár-
virkjun og Þjórsárvirkjanir.
Sigurður var landskjörinn al-
þingismaöur fyrir Sósíalista-
flokkinn 1942-46 og var alla tíð
einn af traustustu liðsmönnum
stjórnmálahreyfingar sósíalista.
Hann sat í fjölmörgum stjórnum
og nefndum og var m.a. um hríð
formaður Verkfræðingafélags ís-
lands. Hann fékkst við myndlist
og síðari árin helgaði hann sig
henni að mestu leyti. Sigurður
hélt fimm einkasýningar og tók
þátt í mörgum samsýningum.
Eftirlifandi kona hans er Ásdís
Sveinsdóttir og vottar Þjóðviljinn
henni og öðrum aðstandendum
samúð sína. Sigurðar verður
minnst hér í blaðinu síðar.