Þjóðviljinn - 03.09.1983, Blaðsíða 16
16SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Helgin 3.-4. september 1983
unglinsasíðan
B.Í.L.
Aðeins einn
„ unglingahópur”
Leiklistarlíf hér á Islandi hefur löngum veriö mjög blómlegt.
Því til sönnunar nægir aö nefna hinn ótrúlega fjölda
áhugaleikfélaga um land allt. Okkur lék forvitni á því að vita
hvort leiklistarlíf meöal unglinga væri jafn blómlegt og
höfðum samband viö Sigrúnu Valbergsdóttur,
framkvæmdastjóra Bandalags íslenskra leikfélaga.
Us: Eru einhverjir „unglingaleik-
hópar“ í B.Í.L.?
Sigrún: Já. í B.Í.L. er einn „ung-
lingaleikhópur“ en það er leikhóp-
urinn Vaka á Akureyri. Síðan eru
að sjálfsögðu allir skólaleikhóp-
arnir og allir þeir unglingar sem
leika með áhugaleikfélögunum úti
á landi.
Us: Eru skólaleikhópar mjög
virkir?
Sigrún: Já, állavega á höfuðborg-
arsvæðinu, en úti á landi taka ung-
lingarnir aðallega þátt í leiklistar-
stafi áhugafélaganna.
Us: Er mikið um að unglingar leiki
með áhugaleikfélögunum?
Sigrún: Já, til dæmis í Keflavík, þar
er líklega u.þ.b. helmingur leikara
um og undir tvítugu.
Us: En er ekki alltof lítið gert til að
vekja áhuga unglinga á leiklist?
Sigrún: Jú tvímælalaust. T.d. má
nefna skortinn á „unglingaleikrit-
um“. Það eru til barnaleikrit og
fullorðinsleikrit en aðeins eitt ís-
lenskt unglingaleikrit, þ.e. Græn-
jaxlar.
Leiklistarskóli
íslands
í gamla Búnaðarfélagshúsinu
við tjörnina er Leiklistarskóli ís-
Iands til húsa. Eins og nafniö gefur
til kynna er þar kennd leiklist og er
námstími fjögur ár. Fyrstu þrjú ár-
in eru kenndir hinir ýmsu þættir
sem leiklist eru viðkomandi (fram-
sögn, spuni, leiklistarsaga
o.s.frv.). Fjórða árið spreyta nem-
endur sig svo í „nemendaleikhús-
inu“. Þeir sem sækja um inngöngu í
Leiklistarskólann verða að vera
a.m.k. 19 ára og einnig þurfa þeir
að þreyta inntökupróf (aðeins 1/3
af þeim sem sóttu inngöngu nú
komust inn).
r
Eg œtla aftur!
Áhugi meöal unglinga í Keflavík á leiklistarstarfsemi er að
sögn Sigrúnar Valbergsdóttur mjög mikill, því höföum viö
samband viö Sigrúnu í Keflavík, en hún hefur nýlega tekiö
þátt í námskeiði á vegum N.A.R. (Nordisk Amatörteater
Rád), og lögðum fyrir hana nokkrar spurningar.
Us: Er mikill áhugi meðal ung-
linga í Keflavík á leiklist?
Sigrún: Já hann er mjög mikill.
Us: Eru starfandi leikhópar í
skólum?
Sigrún: Já, það er starfandi
leikhópur í Fjölbrautaskólanum en
enginn í grunnskólanum.
Us: Er mikil þátttaka í þessum
leikhóp?
Sigrún: Já, já, hún er þó nokkur.
Us: En er þátttaka unglinga í
leiklistarstarfi leikfélagsins mikil?
Sigrún: Fyrsti fundurinn hjá okk-
ur í leikfélaginu er á mánudaginn
og fyrr er ekki ljóst hversu mikil
þátttaka verður í vetur en ég veit að
það er fullt af nýju fólki sem ætlar
að starfa í vetur.
Us: Hefur þú tekið þátt í einhverj-
um leiklistarnámskeiðum?
Sigrún: Já ég var á leiklistarnám-
skeiði í Færeyjum sem haldið var á
vegum N.A.R. nú í sumar.
Us: Voru margir íslenskir þátttak-
endur?
Sigrún: Við vorum sex.
Us: í hverju fólst námskeiðið?
Sigrún: Við fengum það verkefni
að semja leikþátt um Óiaf liljurós
sem við sýndum síðan fyrir fullu
húsi.
Us: Og var gaman?
Sigrún: Já það var mjög gaman.
Við íslensku krakkarnir ákváðum
að reyna öll að komast á næsta
námskeið hjá N.A.R. sem haldið
verður í Osló næsta sumar.
Viö vonum að það takist og
þökkum Sigrúnu kærlega fyrir
spjallið.
Atriði úr Pæld’ í’ ðí
einuaförfáum
„unglingaleik-
ritum“ sem sýnd
hal'a verið hér á
landi. Mynd -eik-
„VelkominnÓlafi
riddararós“, hluti
þátttakendanna í
námskeiðinu í Fær
eyjum sýna leikþátt
um Ólaf riddararós
sem þau sömdu
sjálf. Mynd: þs
Ur sýningu nemcnd
aleikhússins á
leikritinu „Sjúk
Æska“. Mynd eik.
Skólabækurnar:________________
Gífurlegar verðhækkanir
Nú þegar skólarnir eru að hetjast er aðal um-
ræðuefnið að sjálfsögðu verð á skólabókum. Því
þótti okkur tilvalið að kanna hversu mikið skóla-
bækur hefðu hækkað frá því í fyrra.
Dönsk málfrceði 239.59 395.20 + 64%
Ensk málfrceði 188.95 395.20 +109%
ísl. hókmennlirtil 1550 164.25 370.50 +125%
Saga leikrit ljóð 193.89 370.50 + 91%
Meðaltalshækkun (á ársgrundvelli) á þessum
fjórum bókum er 97,5%, á saina tíma hækka laun
félagsmanna í A.S.Í. (um 80 þúsund manns)
aðeins um u.þ.b. 40%. Það er ljóst, meira að segja
augljóst að þetta dæmi gengur ekki upp. Nú fyrir
nokkrum dögum var gerð athyglisverð tilraun til
úrbóta í þessum ntálum, þ.e.a.s. skiptimarkaður
Pennans. Skiptimarkaður þessi er þannig að nem-
endur geta selt gömlu námsbækurnar sínar og
fengið greitt fyrir þær 40% af því sem þær kosta
nýjar, síðan selur „Penninn“ þær á 55% af því sem
þær kosta nýjar. Þetta er mjög lítil álagning þegar
tekið er tillit til þess að af þessum 55% þarf „Penn-
inn“ að greiða söluskatt, þannig að af bók sem
kostar 55 krónur í skiptimarkaðnum renna aðeins
4 kr. til „Pennans“.
Þetta er þarft framtak og löngu tímabært og
munu vonandi fleiri bókaverslanir taka skipti-
markaði sem þessa upp hjá sér.