Þjóðviljinn - 03.09.1983, Blaðsíða 27
Helgin 3.-4. september 1983 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 27
Eftir helgina byrja flestir grunnskólarnir, en þá fer í hönd mcsti slysatím inn. Það verður því seint of oft brýnt fyrir börnunum jafnt sem full-
orðnum að taka tillit til aðstæðna og fara varlega i umferðinni. Ljósm. Eik.
- ' íá
mr
p59lF
Félagsfundur Dagsbrúnar
Ástandið er með
öllu óviðunandi
Skýr mtrki um að fátækt og vaxandi erfiðleikar
hrjá heiniili verkafólks
„Það var sneisafullt hús og
einróma afstaða fundarmanna
að ástandið væri gjörsamlega
óviðunandi og grípa þyrfti til
gagnráðstafana", sagði
Guðmundur J. Guðmundsson
um félagsfund Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnarsl.
fimmtudagskvöld í Iðnó.
Björn Björnsson hagfræðingur
ASI flutti ýtarlegt erindi á fundin-
um um þróun verðlags- og kjara-
mála og skýrði mál sitt með mynds-
kyggnum. Var gerður góður rómur
að máli Björns og honum þakkaðar
frábærar upplýsingar. Þeir félags-
menn sem tóku til máls voru sam-
mála um að ástandið í kjaramálum
væri óviðunandi og ólíðandi. Guð-
mundur J. Guðmundsson sagði á
fundinum að enda þótt einhver á-
greiningur hefði verið um einstök
framkvæmdaatriði og manna-
ráðningarí stjórnDagsbrúnar væri
hún einhuga og stæði þétt saman í
andstöðu sinni við valdboðaðar
kjaraskerðingar stjórnvalda. For-
maður Dagsbrúnar og varaformað-
ur lögðu fram sameiginlega tillögu
til ályktunar og var hún samþykkt
einróma á fundinum. „Ég efast um
að nokkur maður hafi setið hjá við
afgreiðslu þessarar tillögu, enda er
harka í mönnum, - það kom greini-
lega fram á fundinum", sagði Guð-
mundur J. Guðmundsson í gær.
Gagnaðgerðir
Ályktunin sem gerð var og boðar
m.a. gagnráðstafanir af hálfu
Dagsbrúnar hljóðar svo í heild:
„Fundur haldinn í Verkamanna-
félaginu Dagsbrún 1. september
1983 ítrekar fyrri mótmæli félags-
ins gegn kjaraskerðingum ríkis-
stjórnarinnar.
Augljóst er nú að hörð mótmæli
og einróma andstaða verkalýðs-
hreyfingarinnar gegn vald-
boðuðum kjaraskerðingum ríkis-
stjórnar og atvinnurekenda megn-
ar ekki að knýja fram breytingar á
efnahagsstefnunni.
Á nokkrum mánuðum hefur
kaupmáttur rýrnað um þriðjung og
verðlagið geysist enn áfram meðan
launin standa í stað. Margt bendir
til að ástandið eigi enn eftir að vers-
na. Sú yfirvinna sem bjargað hefur
verkafólki til þessa fer víða dvín-
andi og samdráttur í atvinnu gerir
vart við sig. Yfirvofandi er
skerðing á félagslegri þjónustu hins
opinbera. Með aðgerðum sínum
hefur ríkisstjórnin stórlega aukið
misréttið í þjóðfélaginu og nú sjást
þess skýr merki að fátækt og vax-
andi erfiðleikar hrjá heimili verka-
fólks. Slíkt ástand er með öllu
óviðunandi.
Fundurinn telur óhjákvæmilegt
að gripið verði til gagnráðstafana.
Stjórn félagsins skal kalla saman
félagsfund að mánuði liðnum, þar
sem lögð verði fram drög að vænt-
anlegri kröfugerð, og verði hún
unnin í samvinnu við félaga og
trúnaðarmenn á vinnustaðafund-
um. Jafnframt verði leitað sam-
starfs við önnur verkalýðsfélög.
Fundurinn hvetur félagsmenn til
að ræða væntanlega kröfugerð og
gagnráðstafanir félagsins, þrátt
fyrir að barátta fyrir baettum kjör-
um falli nú orðið undir refsilög-
gjöfina.
Félagslegur samhugur og stéttar-
leg eining er boðorð líðandi
stundar."
-e.k.h.
Börnin og umferðin
✓
Oaðgæsla
helsta
orsök
1 slysanna
I 247 gangandi vegfarendur slös-
i uðust í umferðinni í Keykjavík á
! árunum 1981 «g 1982. Af þessum
hópi létust sjö - öll 15 ára og yngri.
Helmingur hinna slösuðu var 20
ára og yngri og þar af var um
þriðjungurinn 10 ára og yngri.
Flest slvs á börnum hafa orðið í
maí- og septembermánuðum. Þess-
ar staðreyndir er vert að hafa í
huga nú þegar septcmbcr er geng-
inn i garð og skólarnir taka til
starfa.
Þessar upplýsingar komu fram i
erindi, sem Guðrún Kagnarsdóttir
Briem flutti á norrænni ráðstefnu
um umferðarmái hinn 9. ágúst sl.
Guðrún hefur unnið við könnun á
vegum landlæknisembættisins á
slysum þar sem gangandi vegfar-
endur hafa átt í hlut.
í erindi Guðrúnar kom einnig
fram, að þrjú af hverjum fjórum
slysum á gangandi vegfarendunt
áttu sér stað á akbraut en sjötta
hvert slys varð á gangbraut. í gang-
brautarslysunum áttu börn mun
sjaldnar lilut að máli en fullorðnir.
Meira en helmingur slysanna varð í
dagsbirtu og oftar var þurrt veður
heldur en blautt eöa hálka þegar
slysin urðu - kannski öfugt við það
sem almennt er taiiö.
Guðrún sagði aðalorsök slys-
anna á gangandi vegfarendum vera
óaðgæslu, annað hvort hinna gang-
andi vegfarenda, ökumannanna
eða jafnvel beggja aðilanna. Að
| því er varðar barnaslysin var í öðru
| hverju tilfelli um það að ræða, að
j börnin æddu út á götuna og oft
voru þau ein á ferð. Um heimingur
barnanna reyndist vera ein á ferð
og um 5 prósent í fylgd með full-
orðnum. Einkum virðist vera hætta
á slysum á börnum í grennd við
strætisvagna og virðist fyllsta á-
stæða til að taka upp herferð um
aukna aðgát barna þegar þau fara
úr og í strætó.
ast
Félagsfundur
Dagsbrúnar
Mlnnst
látinna
forystu-
Félagsfundur Dagsbrúnar
205 skoruðu
á Skúla
Á Dagsbrúnarfundinum.í Iðnó
sl. fimmtudag afhenti Brynjar
Jónsson trúnaðarmaður hafnar-
verkamanna stjórn félagsins lista
með nöfnum 205 hafnarverka-
manna í Reykjavík, þar sem
skorað er á Skúla Thoroddsen lög-
fræðing að draga uppsögn sína sem
starfsmanns félagsins til baka, og
starfa áfram með félaginu.
Guðmundur J. Guðmundsson
formaður Dagsbrúnar lýsti því yfir
á fundinum að hann vonaðist til að
ekki yrði af þessari uppsögn. Við-
ræöur hefðu þegar átt sér staö við
Skúla og hans biðu stór verkefni.
UTBOÐ
Hveragerðishreppur óskar eftir
tilboðum í að byggja grunn og gera
fokhelda slökkvistöð í
Hveragerði. Byggingin er 168,8 m2 eða
779,9 m3.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hvera-
gerðishrepps, gegn 500 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð mánudaginn 12. sept-
ember kl. 10 f.h. á skrifstofu Hveragerðis-
hrepps. Allar upplýsingar gefur sveitarstjóri
eða tæknifræðingur í síma 99-4150.
Hveragerði 2. september 1983
Sveitarstjórinn í Hveragerði
manna
í upphafi Dagsbrúnarfundar í
Iðnó sl. fimmtudagskyöld minntist
Guðmundur J. Guðmundsson
i formaður félagsins látinna forystu-
' manna félagsins. Minnti hann á að
i um sama leyti og núverandi stjórn
tók við í félaginu hafi fallið frá einn
stjórnarmanna, Kristvin Kristvins-
son. t>ar hafi orðið skarð fyrir
skildi, en síðan hefðu Dagsbrúnar-
menn einnig þurft að sjá á bak
tveimur sinna bestu manna. Flutti
Guðmundur síðari eftirminnanleg
niinningarorð um Eðvarð Sigurðs-
son fyrrv. formann Dagsbrúnar og
Sigurð Guögeirsson starfsmann
félagsins. Aö lokinni ræðu Guð-
mundar risu fundarmenn úr sætum
í virðingarskyni við hina látnu og
áttu saman hljóða stund.
-ekli
-ekh