Þjóðviljinn - 03.09.1983, Blaðsíða 17

Þjóðviljinn - 03.09.1983, Blaðsíða 17
Helgin 3.-4. september 1983 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 17 Olyrrpa CPD 3212 Fyrirferðalítil og örugg reiknivél Áreiðanleg og fjölhœf reiknivél sem eyðir ekki borðplássi að óþörfu. <•» Olympia vél sem reikna má með þótt annað bregðist. Leitið nánari upplýsinga. KJARAN ÁRMULI 22 - REYKJAVÍK - SlMI 83022 Annika með gluggatjöld sem lánuð eru heim til fólks. Augjýsing fmbönkum og sparisjóðum um skuldbreytingarlán ✓ I samræmi við samkomulag við ríkisstjórnina hafa bankar og sparisjóðir ákveðið að gefa þeim kost á skuldbreytingarláni, sem stofnað hafa til skuldar við þessar stofnanir vegna byggingar eða kaupa á eigin húsnæði í fyrsta sinn undanfarin 2-3 ár. Skulu þeir lántakendur, sem vilja hagnýta sér þetta, snúa sér til þeirrar afgreiðslu banka eða sparisjóða, sem þeir eiga viðskipti við og gera þar grein fyrir skuldum sínum og óskum á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknarfrestur, sem var til 31. ágúst, hefur nú _______verig framlengdur um 1 mánuð,_ eða til 30. september n.k. Samband íslenskra viðskiptabanka Samband íslenskra sparisjóða ,, Vandinn að velja” Ráðgjafarþjónusta í Svíþjóð Eftir því sem peningaráð al- mennings minnka, ekki bara hér á Islandi, heldur einnig í nágranna- löndunum, verður æ þýðingar- meira fyrir fólk að fá ítarlegar og réttar upplýsingar um vörur þær sem eru á markaðinum. Fólk hcfur ckki efni á því að taka áhættu og prófa eitt og annað, það verður að dctta niður á það rétta þegar það ákveður að láta til skarar skríða og kaupa. Gera má ráð fyrir að neytenda- samtök hafí talsverð áhrif í þá átt að auka þekkingu almennings á ýmsum neysluvörum, sýni mun á gallaðri vöru og heilli og gefí fólki ýmsar þær upplýsingar, sem nauð- synlegar eru til að velja úr þeim tjölda vörumerkja sem á markað- num eru í hinum ýmsu vöru- flokkuni. Verðlagseftirlit hjálpar svo til við að efla verðskynið og heldur, vonandi, aftur af skefja- lausum verðhækkunum. En, - þeg- ar þú veist hvað er eðlilegt að varan kosti og hversu lengi hún mun endast, þá er samt sem áður stóri vandinn eftir. - Hvaða vöru vilt þú kaupa? Viltu röndótt gluggatjöld eða köflótt? Viltu stól úr beyki eða furu? Viltu jarðarberjasultu með heilum berjum eða hökkuðum? Vandinn að velja verður mörg- um þung raun, þegar aurarnir eru fáir. Þess þá frekar er þýðingar- mikið að þroska sinn eigin smekk, - eða bragðlaukana - og láta ekki plata inn á sig hverju sem er - bara af því að það er í tísku. 1 Svíþjóð er starfrækt fyrirtæki sem heitir „Form Design Center“ sem er eins konar alhliða ráð- gjafarþjónusta fyrir neytendur. Annika Heijkenskjöld hefur unnið fyrir þetta fyrirtæki í fjölda- mörg ár og haft mikil áhrif á ýmiss konarframleiðsluvöru. Það mun til dæmis hafa verið henni að þakka að farið var að selja smjör í öskjum á sínum tíma, í stað þess að pakka því inn í álpakkningar, sem þurfti að fjarlægja þegar nota átti smjör- ið. Mest hefur Annika þó haft með húsgögn, gluggatjöld, búsáhöld og aðrar vörur til heimilisins að gera. Flest sænsk fyrirtæki í þessum framleiðslugreinum standa að „Form“ og selja vöru sína í gegnum þessi samtök. Þau hafa stórt hús- næði í Malmö og innan skamms verður opnuð enn stærri deild í Stokkhólmi. Þarna er hægt að setjast niður með kaffibolla, skoða blöð, mynd- ir, verðlista, upplýsingabæklinga og fá ráðleggingar. Einnig er hægt að fá lánað heim t.d. gluggatjöld eða veggfóður. Þú skoðar húsgögn og síðan getur þú leikið þér að því að raða þeim upp, þannig að þú sjáir hvernig þau liæfa þinni íbúð. Þú getur líka skoðað ýmsar tegund- ir af bollúm og diskum og meira að segja uppþvottabursta. „Við erum að vinna fyrir svokall- að „venjulegt" fólk. Þetta eru neysluvörur, sem allir þurfa á að halda. Við viljum benda fólki á ýmsa möguleika í vali, reyna að þroska smekk þess, þannig að það sé betur fært um að taka við auglýs- ingaflóðinu og „skruminu". Það er nefnilega dýrt fyrir einstaklinginn og þjóðfélagið að kaupa eingöngu eftir auglýsingum. Slík kaup enda oft með því að varan lendir uppi á háalofti eða í öskutunnunni áður en langt um líður. Heimili eiga ekki að vera eins og húsgagnaverslanir. Það sem er keypt eftir umhugsun samkvæmt persónulegum smekk og þörfum getur enst fólki ára- tugum saman. En smekkurinn og þarfirnar er það sem fólk þarf að átta sig á, segir Annika. Húsgagnasýning verður á Hótel Loftleiðum sunnudaginn 4/9 kl. 10-19. HUSEBY Tísk Uvers1 K/. 16 mooEl?9o semframleidd eru hjá Húsgagnaiðju Kaupfélags OléfjL °&sý> Rangœinga Hvolsvelli frá EKORNES Húsgagnaiðja :Junjn Kaupfélags Rangœinga Hvolsvelli Sími 99-8121 99-8285 /S koma

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.